Morgunblaðið - 14.11.1991, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1991
ATVINNUA UGL YSINGAR
Framtíðarstarf
Vélaumboð vantar traustan sölumann sem
getur unnið sjálfstætt. Tæknimenntun og
góð enskukunnátta nauðsynleg.
Umsóknir óskast sendar auglýsingadeild
Mbl. merktar: „VA - 91”.
Aðstoðísal
Óskum að ráða vanan starfskraft í veitinga-
sal. Um er að ræða vaktavinnu.
Upplýsingar á staðnum í dag
milli kl. 16 og 18.
Hótel Borg.
Afgreiðslustarf
Óskum eftir að ráða góða manneskju milli
40-50 ára til afgreiðslustarfa í verslun okkar.
Vinnutími frá kl. 12.00-18.00 virka daga og'
laugardaga.
Þarf að hafa reynslu af afgreiðslustörfum,
prúða framkomu og snyrtilegan klæðaburð.
Meðmæli óskast.
Upplýsingar veittar á skrifstofu
Tískuskemmunnar, Laugavegi 34a, 2. hæð,
milli kl 17 og 19.
Tískuskemman.
Afgreiðslustarf
Skóverslun Kópavogs óskar eftir að ráða
starfskraft til afgreiðslustarfa strax.
Vinnutími er frá kl. 12-18.
Upplýsingar gefur verslunarstjóri
í síma 41754 eða á staðnum.
w
Iþróttakennarar
íþróttakennara vantar að íþróttakennara-
skóla íslands frá 1. janúar 1992.
Upplýsingar um starfið gefur skólastjóri í
símum 98-61110 og 98-61115.
Matartæknar -
matarfræðingar
Sjúkrahús Akraness óskar eftir að ráða mat-
arfræðing eða matartækni frá 1. janúar 1992.
Nánari upplýsingar. veitir yfirmaður eldhúss.
Umsóknarfrestur um stöðu þessa er til
29. nóvember nk.
Sjúkrahús Akraness.
Vaktavinna f þrif um
Við óskum eftir konum við þrif og eftirlit með
salernum kvenna og sameign í Kringlunni.
Um fullt starf er að ræða. Unnið er á vöktum
frá kl. 7-20 tvo daga í senn og síðan tveir
dagar í frí miðað við sex daga vinnuviku.
Áhugasamir leggi inn upplýsingar um aldur,
nafn og símanúmer á auglýsingadeild Mbl.
merktar: „H - 9584”.
Hugbúnaðardeild
EJS
óskar eftir að ráða starfsmann í hugbúnaðar-
deild. Háskólagráða í tölvunarfræði eða sam-
bærileg menntun er áskilin.
Æskilegt er að umsækjendur hafi þekkingu
í UNIX-stýrikerfi og reynslu í „C”-forritun og
smíði hugbúnaðarfyrir Oracle gagnagrunna.
Skila þarf umsóknum á skrifstofu vora fyrir
23. nóvember nk.
Upplýsingar um starfið gefur
Olgeir Kristjónsson í síma 686933.
EINAR J.SKÚLASON HF
'''Ti
AUGLYSINGAR
TIL SÖLU
Bóka- og ritfangaverslun
til sölu
Til sölu er verslun sem verslar með bækur,
ritföng og leikföng. Vel staðsett. Ársvelta
um 30 millj. án vsk. Húsnæðið getur selst.
rneð ef vill.
Áhugasamir leggi inn nafn og símanúmer á
auglýsingadeild Mbl. fyrir 19. nóvember
merkt: „B - 9620”. Með allar fyrirspurnir
verður farið sem trúnaðarmál.
ÝMISLEGT
Málverkauppboð
Móttaka er hafin á verkum fyrir næsta mál-
verkauppboð.
Opið frá kl. 14.00-18.00 virka daga.
éraYYbiÝ
BÖRG
Pósthússtræti 9, 101 Reykjavík,
sími 91-24211.
FUNDIR - MANNFAGNAÐUR
80ARA
Herrakvöld Vals
Herrakvöld Vals verður á Hlíðarenda föstu-
daginn 15. nóvember. Húsið opnað kl. 19.30.
Veislustjóri: Árni Gunnarsson, fyrrv.
alþingismaður.
Ræðumaður: Bjarni Guðnason, prófessor.
Fjölbreytt skemmtiatriði, meðal annars Vals-
bandið í fyrsta skipti. Frábær matur.
Verð aðeins kr. 2.900,-
loskahjáþ
Landssamtökin Þroskahjálp
Nóatúni 17, 105 Reykjavík
Sími 91-29901
Landssamtökin Þroskahjálp gangast fyrir1’
opinberum fyrirlestri í Norræna húsinu
fimmtudaginn 14. nóvember kl. 20.30.
Ingvald Bastesen, starfsmaður norska félags-
málaráðuneytisins, flyturfyrirlestursem nefnist
Átthagaréttur allra
Heildstæð þjónusta fyrir fatlaða
í heimabyggð
Ingvald Bastesen er fyrrum skólastjóri og
forystumaður um uppbyggingu þjónustu við
fatlaða í sveitarfélaginu Mejand í Noregi, þar
sem búa um 4500 manns. í þessu sveitarfé-
lagi hefur verið unnið að þróunarverkefni
undir stjórn Ingvalds Bastesen um hvernig
hægt sé að veita fötluðum heildstæða þjón-
ustu í heimabyggð, allt frá skóla til atvinnu
og búsetu.
Ingvald Bastesen starfar nú í norska félags-
málaráðuneytinu við að aðstoða sveitarfélög-
in í að taka við þjónustu við fatlaða, sem
áður var veitt af ríkinu. Lög þessa efnis gengu
í gildi í Noregi 1. janúar 1991.
Ingvald Bastesen mun í erindi sínu fjalla um
reynslu Norðmanna við breytta skipan þess-
ara mála.
Fyrirlesturinn verður fluttur á norsku og er
öllum opinn.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Atvinnuhúsnæði
í Þorlákshöfn
Framkvæmdasjóður íslands auglýsir til sölu
tvær samstæðar húseignir að Unubakka
34-36 í Þorlákshöfn. Eldra húsið er að mestu
tvílyft steinhús, 528 fm að grunnfleti, byggt
1976. Hitt húsið er stálgrindarhús 294,8 fm,
byggt 1986.
Tilboð sendist Framkvæmdasjóði íslands,
Rauðarárstíg 25, Reykjavík.
Skrifstofuhúsnæði
til leigu
Mjög gott skrifstofuhúsnæði á 3. hæð í Skeif-
unni, 260 fm, innréttað.
Þeir, sem áhuga hafa, hafi samband
í síma 812220.
Fönn hf.,
Skeifunni 11.
KENNSLA
Gítarkennsla
Nú getur þú lært á gítar í gegnum bréfa-
skóla. Bæði fyrir byrjendur og lengra komna.
Námskeið í rokk og blús hefjast í hverri viku.
Upplýsingar í síma 91-629234.
GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA.
Félag íslenskra gítarleikara.
TILKYNNINGAR
Hundahreinsun f
Mosfellsbæ
Árleg hundahreinsun fer fram í áhaldahúsi
bæjarins föstudaginn 15. nóvember kl.
17.00-19.00. Mjög áríðandi er að allir hunda-
eigendur mæti með hunda sína á staðinn.
Heilbrigðisfulltrúinn.
SJÁLFSTÆDISFLOKKURINN
F É I. A G S S T A R F
Hvöt og Landssamband
sjálfstæðiskvenna
halda sameiginlegt námskeið „Ræðumennska og greinaskrif’’ í Val-
höll, Háaleitisbraut 1, dagana 18.-20. nóvember nk. kl. 20-22.00.
Þátttaka tilkynnist i síma 682900.