Morgunblaðið - 14.11.1991, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1991
41
Sauðárkrókur:
Viðræður um lagningu hita-
veitu í Staðar- og Skarðshrepp
HITAVEITA Sauðárkróks er ein þeirra stofnana sem á síðustu
áratugum hafa gert það að verkum að búseta og rekstur fyrir-
tækja á Sauðárkróki hefur þótt fýsilegur kostur.
Erlingur Örn afhendir Þórarni Thorlacius 30 þúsund króna ávís-
um.
Körfuboltamenn
á nýjum fjár-
öflunarleiðum
LEIKMENN og stuðningsaðilar körfuknattleiksdeildar Tindastóls
liéldu ótroðna slóð í fjáröflun til deildarinnar um síðustu helgi. Tóku
þeir sig til og héldu villibráðarkvöld í félagsheimilinu Bifröst, þar
sem borð svignuðu undan allskyns krásum, sannkallaðri villibráð,
og önnuðust sjálfir öll skemmtiatriði. Að borðhaldi loknu skemmti
hljómsveit Geirmundar Valtýssonar, en hljómsveitin gerði í haust
samning við Tindastól um auglýsingar á aðalkeppnisbúningi körfu-
knattleiksdeildarinnar.
Fyrstu holur veitunnar voru
boraðar rétt fyrir 1950, en fyrsta
húsið var tengt veitunni 1953.
Jón Nikódemusson þáverandi
vatnsveitustjóri tók að sér rekstur
hitaveitunnar enda var hann sá
maðurinn sem mest vann að stofn-
un hennar og smíðaði jarðbor
þann sem notaður var við borun
á fyrstu holunum, en einnig hann-
aði Jón og annaðist allar lagnir í
bænum fyrstu áratugina, eða allt
fram yfir 1970.
í Sauðárkrókslandi hafa nú
verið boraðar 14 holur og sjá þær
bænum fyrir nægu vatni sem við
dæluhús er 70 gráða heitt, og er
ekki fyrirséð að breyting verði þar
á.
Heildarvatnsnotkun bæjarins
er núna 2,4 milljónir lítra á ári,
og hefur nýting á heitu vatni til
ýmissa annarra nota en húshitun-
ar aukist mjög, til dæmis eru ein
aðalgatnamót á Skagfirðinga-
braut upphituð og einnig hefur
aukist verulega að lagðar séu hit-
alagnir í gangstéttar og plön.
Á síðasta ári ákváðu bæjaryfir-
völd og stjóm Hitaveitunnar að
reisa 180 fm gróðurhús á bæjar-
landinu, með það í huga að skapa
aðstöðu fyrir garðyrkjufræðing
bæjarins, Helgu Gunnlaugsdóttur,
en hún hefur unnið mjög gott starf
meðal annars við lagfæringu og
fegrun opinna svæða í bænum.
Páll Pálsson veitustjóri sagði
að hann teldi engin vandkvæði á
að nýta þetta ágæta hús sem nú
er nýrisið, og gerði hann heldur
ráð fyrir, að þegar þetta hús er
komið í gagnið að fleiri sæktust
eftir að nýta heita vatnið til yl-
ræktar, og þessvegna gætu fleiri
samskonar hús átt eftir að rísa á
þessum stað.
En stærsta mál Hitaveitunnar
þessa dagana er beiðni sem barst
á síðastliðnu sumri frá nágranna-
sveitarfélögunum, Skarðs- og
Staðarhreppi, um lagningu hita-
veitu frá Sauðárkróki í hreppana.
Sagði Páll að nú þegar hefðu
verið haldnir nokkrir fundir í Veit-
ustjórn um þetta mál, og einnig
með kjörnum nefndum frá hrepp-
unum tveim, þar sem kynntar
voru kostnaðartölur varðandi
lagningu veitu frá Sauðárkróki,
fram Langholt að Kjartansstaða-
koti og í Sæmundarhlíð.
Sagði Páll það enn ókannað
hvort farin yrði sú leið að selja
heita vatnið við bæjarmörk, sem
væri tvímælalaust hagstæðasti
kostur fyrir veituna og mundu þá
heimaaðilar í hvorum hreppi eiga
og annast lagnir í viðkomandi
sveitarfélagi, eða þá hvort veitan
sæi alfarið um framkvæmdina og
alla gerð veitunnar og annaðist
viðhald og rekstur.
Fram hefur komið að áætluð
vatnsnotkun í hina nýju veitu er
á rriilli 3-400 þúsund tonn á ári,
og heildarkostnaður við lagningu
hennar tæpar 60 milljónir króna.
Þá sagði Páll það ljóst að Hita-
veita Sauðárkróks yrði að leggja
í allnokkurn kostnað ef af þessu
yrði, vegna kaupa á stærri og
öflugri dælum, en þær mundu að
sjálfsögðu skapa aukið öryggi fyr-
ir veituna.
BB. -
Mikill fjöldi stuðningsmanna
lagði hönd á plóginn til þess að
koma þessu villibráðarkvöldi í fram-
kvæmd, og kom enda í ljós að ótrú-
legustu menn höfðu haldið til veiða
á haustdögum til að afla fanga fyr-
ir þessa veislu.
Undir borðhaldi voru veittar
ýmsar viðurkenningar til leikmanna
t.a.m. „rasspúði” ársins til þess
leikmanns sem lengst hefur setið á
bekknum, „gullskórnir” komu í hlut
leikmanns sem þótti hafa sýnt nett-
astan fótburðinn f leik, og síðast
en ekki síst var veitt viðurkenning
fyrir troðslur í tíma og ótíma.
Þá veitti Þórarinn Thorlacius,
formaður deildarinnar viðtöku
30.000 kr. ávísun frá öðrum stórum
styrktaraðila Tindastóls, Erlingi
Erni Péturssyni kaupmanni, en
hann hét í haust að greiða Körfu-
knattleiksdeildinni kr. 300 af hverju
pari af L.A. Gear skóm sem hann
seldi í verslun sinni, og var hann
þarmeð að gera upp fyrir fyrstu
100 pörin. Afhentu Erling Örn og
Skúli Björnsson umboðsmaður L.A.
Gear á ísiandi ávísunina, en Skúli
Björnsson hefur einnig stutt starf-
semi Tindastóls á margvíslegan
hátt.
Karl Jónsson flutti gamanmál,
en mesta athygli vakti það þegar
leikmenn, allir úr aðalliðinu, gengu
á sviðið og tóku til við annarskonar
spilamennsku en þeir stunda að
jafnaði, og var þarna komið hið
æsilegasta þungarokksband, þar
sem þjálfari liðsins og lengstum
stigahæsti leimaðurinn, Valur Ingi-
mundarson, lék á gítar ásamt Birni
Sigtryggssyni, unglingalandsliðs-
maðurinn Björgvin Reynisson lék á
bassa og Kristinn Baldvinsson á
hljómborð, en við trommurnar sat
Karl Jónsson, sá eini þeirra félaga
sem ekki er nýgræðingur á þessu
sviði. Um sönginn sá Haraldur
Leifsson og fór hann ekki síður á
kostum en þeir hinir sem upp tróðu.
Skemmtu menn sér konunglega
við ágæt skemmtiatriði og fjörugan
dansleik að því loknu, fram eftir
nóttu, og þykir sýnt að ekki verður
látið hér staðar numið, enda var á
gestum að heyra að þeir mundu
ekki láta lenda í undandrætti að
mæta, yrði til dæmis boðið til ann-
arar skemmtunar af þessu tæi.
- BB
Leikmenn Tindastóls í þungarokkstilþrifum. MorpinblaSið/Bjöm Bjömsson
\%\%m\ mi 'funimi iiimiumm iikmuun n niaii 111 itiiiinn ikwi /// /
é
0
L
4
Kópal Tónn 4
Gefur matta áferð.
Hcntar einkar vcl
þar sem minna
mæðir á, t.d. í
stofum, borðstof-
um, í svcfnherbcrgi
og á loft.
20 &§)
Kópal Glitra 10
Hcfur örlítið meiri
gljáa cn KÓPAL
TÓNN og þar af
lciðandi bctri
þvottheldni. Hcntar
vcl þar scm mcira
mæðir á.
Kópal Birta 20
■Gefur silkimatta
áferð. Hcntar vcl
þar scm mæðir
talsvcrt á vcggfleti,
t.d. á ganga, barna-
hcrbcrgi, eldhús, og
þar sem óskað cr
cftir góðum gljáa.
Kópal Flos 30
Hcfur gljáa scm
kcmur að góðum
notum á lcikhcr-
bergið, stigaganga,
barnaherbergi,
baðhcrbcrgi, þvotta-
hús o.fl. Hcntar
cinnig á húsgögn.
Kópal Geisli 85
Gcfur mjög gljáandi
áfcrð og hentar þar
sem krafist cr
mikillar þvotthcldni
og stykleika, t.d. í
bílskúrinn, í
gcynrsluna og í
iðnaðarhúsnæði.
Hcntar einnig á
húsgögn.
Kópal innanhúss-
málning er með
flmm gljástig
KÓPAL er samheiti á innan-
hússmálningu sem uppfyllir
kröfur um ómengandi máln-
ingarvöru til innanhússnota á
Norðurlöndum. KÓPAL
yfirmálning er vatnsþynnan-
leg, fæst með fimm gljástigum
og í staðallitum og nær ótelj-
andi sérlitum skv. KÓPAL
tónalitakortinu. KÓPAL
yfirmálning er auðveld í með-
förum, slitsterk og áferðar-
falleg og seld í öllum málning-
arverslunum landsins.
«R
rM77T\t
'¥ryy?Trr.TrnTnr
málning'f
- það segir sig sjálft -
§n/w s / /m í n m i