Morgunblaðið - 14.11.1991, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1991
Hirði hver sitt
eftirRagnar
Guðmundsson
Undanfarið hafa gengið yfir
ýtingar vegna hrossa minna í
Múlasveit í Reykhólahreppi hinum
nýja. Fréttir af þessum málum
hafa einkennst af hroka, missögn-
um og ósannindum, góð blanda
það.
það er svona á takmörkunum
að svarandi sé þessum fréttaflutn-
ingi. Þó sé ég mér ekki annað
fært, ekki síst vegna meðferðar
þeirra, sem hross mín hlutu af
hendi þeirra Reykhólamanna. Það
hefur sem sé verið lögð áhersla á
að það komi hvergi fram hvers
konar „týrannaháttur” var þar
sýndur saklausum skepnum.
Hvers konar hugarfar er það sem
ræður svona gerðum? Þessir
ágætu menn vildu ná höndum yfir
mig, „glæpamanninn”. Það má þó
altént lesa strax í fyrstu grein
„Miðhúsagoðans” og tíminn sem
valinn var, síðhaust, allra veðra
von. Það skipti engu máli, því
aðstæðurnar sem fyrir hendi voru,
töldu þessir ágætu menn meira
virði. Eg, sjálfur „bófinn”, íjarver-
andi á sjúkrahúsi. Sonur minn
fjarri við sín störf í Búðardal.
Tengdason minn hafa þeir vafa-
laust áætlað á sjó. Sem sagt, að-
stæður til varnar engar. Nú skyldi
vinna „Gretti” með göldum, eins
og forðum. Hvað brást svo þessum
herrum til að ljúka „níðingsverk-
NOTAÐU
PENINGANA ÞÍNA
í EITTHVAÐ ÁNÆGJULEGRA EN
DRÁTTARVEXTI
Við minnum á gjalddaga
húsnæðislána sem var
1. NÓVEMBER
16. NÓVEMBER
leggjast dráttarvextir á
lán með lánskjaravísitölu.
1. PESEMBER_______
leggjast dráttarvextir á
lán með byggingavísitölu.
HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
LJ SUÐURLANDSBRAUT 24 108 REYKJAVÍK ■ SÍMI 696900
Ragnar Guðmundsson
„í Djúpadal var samið
um að enginn eftirmáli
skyldi um þennan
rekstur, við þann sátt-
mála stend ég.”
'inu”? Því níðingsverk er það og
ekkert annað að pína sumarstaðið
hrossastóð járnalaust á öllum
aldri, úr högum sínum, á vélhjólum
og bílum, tugi kílómetra á vegi
og vegleysum. Já, kolhörðum bíl-
vegi. Og rekstrarhraðinn, honum
vildu sjónarvottar ekki líkja við
gerðir manna með eðlilegar tilfinn-
ingar eða skynsemi. Hvað stjórnar
gerðum manna í svona tilfellum?
Náttúruvernd? Voru þeir að vetja
fasteignir? Hvers konar tilfinning-
ar bærast í bijósti svona manna?
Þeir horfa á gullfalleg hross, hest-
efni á öllum aldri, margra ára starf
ræktunar. Getur verið að nokkrum
sé sama, hvernig skepnunum líður
bara ef þeir geta svalað kvikindis-
skap sínum. Hrossin voru rekin
burt frá þeirri rétt sem þau hafa
á undanförnum árum verið réttuð
í, hún stendur á stað sem engum
getur dulist og engum duldist.
Hvers vegna var hún ekki notuð?
Jú, „bófinn” sjálfur átti máske
réttina eða réði henni. Hvers
vegna? Hvernig stóð á því? Svarið
vita Múlnesingar mætavel. Á ár-
unum frá 1978 og til þess er Barð-
astrandarhreppur var sauðlaus,
1984, hafði ég og mitt fólk með
öll fjallskil að gera í mestum hluta
Múlasveitar og þá kvartaði enginn
enda höfðu þá „sumir” tekjur af,-
en engan kostnað.
Fyrir það að mega beita tak-
mörkuðum fjölda fjár á Múlasveit
sáum við Btjánslækjarmenn um
öll fjallskii, eigendum jarða að
kostnaðarlausu. Já, við byggðum
jafnvel þessa allstóru fjárrétt og
girðingu við hana. Þar með er
útskýrð tilurð þessarar réttar.
Getur nokkuð talist undarlegt að
bryddi á kala til þess fólks, sem
síðan hefur ljóst og leynt reynt
að ófrægja mig á allan hátt fyrir
yfirgang, oft á tíðum með orðum
sem hæfa annars konar samskipt-
um. Nei Reykhólamenn, nú gen-
guð þið of langt. Jafnvel ykkur
líðst ekki að níðast á sakleysingj-
um. Ef þið hefðuð verið menn til
að heimsækja mig hingað á sjúkra-
húsið og gefa mér kosti, þá hefði
þó sést einhver mannsbragur á
ykkur.
í Djúpadal var samið um að
engin eftirmáli skildi um þennan
rekstur, við þann sáttmála stend
ég. Þetta opna bréf til ykkar, sem
getið tekið það til ykkar, hefði
aldrei komið, ef ekki hefði birst í
Vestfirska fréttablaðinu klausa
um þessi mál, eftir að samið var.
Um missagnir þær og ósannindi
sem þar koma fram ræði ég ekki,
þær eru í takt við flest, sem rætt
hefur verið um þessi mál og ekki
svara verð. Að lokum þetta: Þið
sem stóðuð á bak við þessa aðgerð
sem leiddi til svívirðilegrar með-
ferðar á hrossum mínum, þið skul-
uð muna það, þetta er geymt en
ekki gleymt. En eitt ber að þakka.
Þarna komu menn að, sem vildu
og sýndu að ennþá eru til menn,
sem álíta góð samskipti fólks
meira virði en óráðshjal ráðlausra
og ráðvilltra illgirnissála. Þeirra
er eitt hugsa um, að kalla fram
illt. Btjánslækjarhrossin stóðust
þolraunina. Hvað er betri auglýs-
ing?
Þið sem stóðuð að málalokum í
Djúpadal, hafið þökk fyrir. Við son
minn og tengdason segi ég aðeins:
„Ég er stoltur af ykkur.”
Reykjalundi á fyrsta vetrardegi
1991.
Höfundur er bóndi á Brjánslæk.
MAZDA 323 STATION
NÚ MEÐ
ALDRIFI !
1600 cc vél með tölvu-
stýrðri innspýtingu, 86 hö •
Sídrif • 5 gírar • Vökva-
stýri • Álfelgur o.m.fl.
Verð kr. 1.099.000 stgr.
með ryðvðtn og skráningu.
MAZDA - ENGUM LÍKUR I
Opið laugardaga kl. 10-14.
Júdasarpeningar fullþurrkaðir og t blómi.
Júdasarpeningar
(Lunaria biennis)
Blóm vikunnar
Umsjón: Ágústa Björnsdóttir
229. þáttur
Lunaria biennis — Mánasjóður
— er betur kunn undir nafninu
Júdasarpeningar og undir því
nafni er jurtin talsvert mikið rækt-
uð og notuð í þurrkaða vendi. Hún
er af krossblómaætt. Skjannhvít-
ar milligerðir í fræhirslunum eru
mjög skrautlegar og geta enst í
vasa árum saman.
Þvi miður er það á mörkunum
að jurtin nái fullum þroska í görð-
um hérlendis, en með því að dekra
svolítið við hana má ná sæmileg-
um árangri og fáeinar plöntur í
heimilisgróðurhúsi gætu nægt í
nokkra vendi. í gróðurhúsi má að
líkindum ná fram blómgun á einu
og sama ári.
Ræktunin er ekki mjög erfið.
Fræinu í sjálfu sér má sá í sólreit
seint á hausti eða snemma vors.
Með því að sá að hausti spírar
fræið um leið og vorar.
Um leið og smáplönturnar fara
að skipta blöðum þarf að endur-
gróðursetja þær í 20-25 sm háan
reit með 20-25 sm bili á milli í
næringarríka mold. Aukaáburðar-
skammtur við og við er vel þeg-
inn, einkum fyrra árið.
Þegar verður fer að hlýna verð-
ur að láta lofta vel um plönturnar
til þess að þær teygist ekki og
fjarlægja verður gluggana strax
og veður leyfir. Það má líka gróð-
ursetja plönturnar upp við hús-
vegg eða skjólgirðingu og skýla
þeim fyrir næðingi haust og vet-
ur. Annars eru plönturnar látnar
standa í reitnum og þeim skýlt
eftir föngum með gleri eða plast-
glugga. Næsta vor eiga plöntunar
svo að blómgast. Þær geta orðið
1 metri á hæð og þurfa kannski
einhvern stuðning. Blómin eru
falleg, dimmfjólublá. Það er líka
til hvítt afbrigði. Laghentur mað-
ur gæti smíðað plastskýli yfir
plönturnar, það gæti komið sér
vel í kalsa eða á rigningarsumr-
um. Jafnvel á afbragðssumri eins
og síðastliðið sumar var, eru fræ-
belgir ekki nærri þroskaðir í sept-
emberlok.
Það er líka til ijölært afbrigði
— Lunaria rediviva — en það er
ekki eins fallegt og það tvíæra,
hvorki með tilliti ti! blómalitar né
fjölda blóma, og fræstönglar eru
heldur ekki eins fallegir. Og það
eru fleiri vankantar á þeim fjö-
læru. Þær taka mikið meira rúm
og nauðsynlegt er að binda þær
upp. Sniglar ásækja þær svo mjög
að stundum sést varla á þeim
heilt blað.
Þeir sem ætla að nota fræ-
stönglana í vendi skulu varast að
klippa þá of snemma. í góðu
haustveðri geta stönglar verið að
þroskast langt fram á haust. Ef
belgirnir eru grænir er erfitt að
hreinsa þá, þeir þurfa að visna
vel og harðna áður en hafist er
handa. Bytja skal á því að losa
um hýðið neðst með því að sveigja
það frá stilkinum. Þurrka skal
afklippta stöngla vel á hlýjum og
þurrum stað. Þroskað hýði losnar
auðveldlega og kringlóttar hvítar
milligerðimar koma í ljós. Það
má líka reyna að sprengja það
með því að þrýsta á jaðrana.
Hafi fræin náð þroska er sjálfsagt
að sá því.
Hermann Lundholm
■ LANDSSAMTÖKIN Þroska-
hjálp gangast fyrir opinberum fyr-
irlestri í Norræna húsinu fimmtu-
daginn 14. nóvember kl. 20.30.
Ingvald Bastesen starfsmaður
norska félagsmálaráðuneytisins
flytur fyrirlestur sem nefnist Átt-
hagaréttur allra. Heildstæð þjón-
usta fyrir fatiaða í heimabyggð.
Ingvald Bastesen er fyrrum skóla-
stjóri og forystumaður um upp-
byggingu þjónustu við fatlaða í
sveitarfélaginu Meland í Noregi þar
sem búa um 4.500 manns. I þessu
sveitarfélagi hefur verið unnið að
þróunarverkefni undit' stjórn Ing-
valds Bastesen um hvernig hægt
sé að veita fötluðum heildstæða
þjónustu í heimabyggð allt frá skóla
til atvinnu og búsetu. Ingvald
Bastesen starfar nú í norska félags-
málaráðuneytinu við að aðstoða
sveitárfélögin í að taka við þjónustu
við fatlaða sem áður var veitt af
ríkinu. Lög þessa efnis gengu í gildi
í Noregi 1. janúar 1991. Ingvald
Bastesen mun í erindi sínu fjalla
um reynslu Norðmanna við breytta
skipan þessara mála. Fyrirlesturinn
verður fluttur á norsku og er öllunl
opinn.