Morgunblaðið - 14.11.1991, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1991
43
LÍMMIÐUM FYRIR
TÖLVUPRENTARA,
LASERPRENTARA,
LJÓSRITUNARVÉLAR,
RITVÉLAR O.FL. O.FL.
Gerið góó kaup
HALLARMÚLA 2, S. 813211
AUSTURSTRÆTI18, S. 10130
KRINGLUNNI, S. 689211.
HERMA
Við bjóðum i dag og næstu daga alla uppítökubíla okkar á stórlækkuðu verði.
Allir bílarnir eru yfirfarnir af
fagmönnum vélaverkstæðis okkar
og seldir með 1 árs ábyrgð.
%/ Þetta er tilboð, sem þú ættir
virkilega að athuga, því verð og
greiðsluskilmálar eru við aiira hæfi.
Bílasalan er opin frá kl. 9.00-18.00 virka daga
og laugardaga frá kl. 13.00-17.00.
Höfðabakka 9, Reykjavík, sfmi 670000 og 674300
d notuðum uppítökubílum
SKAGFJÖRÐ
a .■) / y ö j! j ,<j i i i y
Hólmaslóð 4, 101 Reykjavik, sími 24120
10%
AFSLÁTTUR AF
# HERMA
LIÐSMAÐUR
skipa milliþinganefnd sem endur-
skoðaði reglur ,um val á landsliði
íslands í hestaíþróttum og skal hún
hafa lokið störfum fyrir 1. septemb-
er nk. og skila áliti sínu til næsta
þings. Einnig var samþykkt heimild
til stjórnar um að veita mótshöldur-
um opinna móta leyfí til að bjóða
upp á keppni í tölti, fjór- og fimm-
gangi þar sem aðeins einn dómari
dæmdi.
Eitt boð kom fram um stað fyrir
íslandsmót 1993 frá íþróttadeild
Léttis á Akureyri og var það sam-
þykkt með lófataki. Aðspurðir kváðu
fulltrúar Léttis ekki ljóst á þessari
stundu hvoit mótið yrði haldið á
svæði félagsins á Akureyri eða á
sameiginlegu svæði eyfirsku félag-
anna á Melgerðismelum.
Velta sambandsins á nýliðnu
reikningsári var rétt yfír 6 milljónir
en í samþykktri fjárhagsáætlun er
gert ráð fyrir að hún verði rétt yfír
4 milljónir. Astæða fyrir þessari
lækkun má rekja til þess að í sumar
tók landsliðið þátt í heimsmeistara-
mótinu í Svíþjóð. Vegna þess var
safnað af sérstakri fjáröflunamefnd
4,7 inilljónum til að fjármagna þátt-
tökuna en kostnaður við hana var
um 4,5 milljónir.
Yfir 30 tillögur voru teknar fyrir
pg gengu þingstörfín vonum framar.
í stjórnarkjöri var Pétur Jökull Há-
konarson, Herði, endurkjörinn for-
maður samtakanna. Stungið var upp
á Jónsteini Aðalsteinssyni, Létti, til
mótframboðs en hann gaf ekki kost
á sér. Hákon Bjarnason, Fáki, var
endurkjörinn og Bergur Jónsson,
Freyfaxa, var kjörinn í stað Lísbetar
Sæmundsson sem ekki gaf kost á
sér til endurkjörs. í varastjóm vom
kjörin Dagný Gísladóttir, Fáki, Einar
Ragnarsson, Sörla, og Amundi Sig-
urðsson, Skugga. í dómstól HIS
voru endurkjörnir Eyjólfur ísólfsson,
Iþróttadeild Skagafjarðar, Sveinn
Jónsson, Sörla, og Magnús Lárus-
son, íþróttadeild Skagafjarðar. Til
vara voru endurkjömir Sigurbjöm
Bárðarson, Fáki, Jón Gísli Þorkels-
son, Gusti, og Pjetur N. Pjetursson,
Söría.
Mr. Sheen hreinsar, fægir og ilmar.
Hann bregður skínandi áferð út í hvert
horn heimiiisins með undraverðum
hætti. Jafnvígur á alla harða fleti
innanhúss og í bílnum — tréverk, gler,
spegla, veggi — hvað sem er!
_ Moi-gunblaðið/Valdimar Knstinsson
2. ársþing Hestaíþróttasambands Islands var haldið í Húnavallaskóla en yfir 60 fulltrúar sóttu þingið.
Annað ársþing HÍS:
Nýr einkunnaskali
notaður á næsta ári
_________Hestar_____________
Valdimar Kristinsson
NYR einkunnaskali verður nú
tekinn upp á hestaíþróttamótum
á næsta ári samkvæmt samþykkt
2. ársþings Hestaíþróttasambands
Islands sem haldið var nýlega að
Húnavöllum. Verða einkunnir þá
gefnar samkvæmt alþjóðlegum
reglum FEIF (Evrópusamband
eigenda íslenskra hesta).
I FEIF-skalanum em einkunnir
frá 0 til 10 en hérlendis hafa ein:
kunnir verið gefnar frá 0 til 15. í
framtíðinni er reiknað með að íslend-
ingar tileinki sér einnig svokallaðar
FlPO-keppnisreglur sem gilt hafa á
evrópu- og heimsmeistaramótum.
Er nú unnið að endurskoðun þeirra
með það fyrir augum að þær verði
notaðar í öllum aðildarlöndum FEIF.
Samþykkt var að beina þeim til-
mælum til stjómar HÍS að hún leit-
aði eftir könnunarviðræðum við
stjórn Landsambands hestamanna-
félaga um hugsanlegan samruna
samtakanna. Er gert ráð fyrir að
niðurstöður úr slíkum viðræðum
myndu auðvelda hestamönnum
ákvarðanatöku um hvort til hags-
bóta sé að sameina þessi landsam-
tök.
Agamál báru nokkuð á góma og
voru m.a. samþykkt viðurlög við því
ef keppendur mæta ekki til leiks án
þess að tilkynna forföll með lögleg-
um hætti. I samþykktinni segir að
slík framkoma jafngildi ráuðu spjaldi
sem aftur getur þýtt keppnisbann
fyrir viðkomandi aðila í allt að eitt
ár. Þá voru samþykktar starfsreglur
fyrir dómaranefnd HÍS. Reglur þess-
ar eru sniðnar eftir reglum knatt-
spyrnu- og handknattleikssamband-
anna um sama efni.
Samþýkkt var að stjórn HÍS skip-
aði milliþinganefnd er ynni að úttekt
á íslandsmótum og gerði tillögur í
þá átt að stytta mótin og gera þau
áhugaverðari. Á nefndin að skila af
sér fyrir næsta ársþing samtakanna.
Ennfremur var stjórninni falið að