Morgunblaðið - 14.11.1991, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1991
Tryggingastofnun — talkennsla
í skólum — talþjálfun
Tryggingastofnun PíH'Sins (allir aldurshópar) (ENGINN í FULLU STARFI) - radveilur (í víðum skilningi) | - málstol (oftast vegna heilablæðingu) - böm fædd holgóma - seinn málþroski FORMLEG SAMVINNA - lestrarörðuleikar UM TILVÍSANIR SEM - stam ??? BERAST FRÁ LÆKNUM Menntamálaráðunevtið (böm undir skólaaldri) - seinn málþroski (aðallega framburðargallar) - stam
Fræðsluskrifstofur fræðsluumdæmanna Hevrnar- ou talmeinastöð Tslands
5-7 talkennarar í fullu starfi (böm á grunnskólaaldri) - allir flokkar talmeina 2 talmeinafræðingar (allir aldurshópar) - allir flokkar talmeina
Mynd sem á að sýna í grófum dráttum skipulag talmeinaþjónustu á íslandi.
eftir Elmar
Þórðarson
Talkennsla/talþjálfun — Hvað er
það og fyrir hveija?
I okkar ágæta velferðarríki er
víða pottur brotinn í skipulagi
ýmissa mála sem flokkast undir
þjónustu landsmanna, þykja sjálf-
sögð og eðlileg í velflestum ná-
grannalöndum okkar. Sú þjónusta
sem nefnd hefur verið talkennsla/
talmeinaþjónusta á undir högg að
sækja. Stofnanir vísa hver á aðra
þegar kemur að greiðsluþætti eða
hreinlega neita að þetta svið »sé
þeirra deild«. Mörg börn og ungling-
ar (og þeim fer fjölgandi) eru með
slakan málþroska, lélega setninga-
skipan, framburðargalla, stam o.fl.
og þurfa faglega þjálfun. Margir
fullorðnir þurfa þjálfun vegna
þroskahömlunar sinnar, aðrir hafa
orðið fyrir höfuðáverkum/heila-
skaða og missa getu til að skilja
eða tjá sig. Aðrir fá meinsemd í
barkakýli og/eða raddveilur. Auk
þess þjást þó nokkuð margir full-
orðnir vegna stams. Þetta fólk þarf
mjög nákvæma og sérhæfða þjálf-
un. Talkennarar/talmeinafræðing-
ar hafa allir lokið 4-7 ára háskóla-
námi erlendis til að sinna þessu
fólki. Þeir einir veita þessa þjónustu
hér á landi.
Af hverju er erfitt
að fá talþjálfun
Tryggingastofnun ríkisins (hér
skammstafað TR) hefur aldrei sam-
ið við talmeinafræðinga um kaup á
vinnu en í nokkur ár ákvarðað ein-
hliða laun til þeirra fyrir talþjálfun.
»Kerfið« gengur þannig fyrir sig
að læknar vísa sjúklingum (eyðu-
blöð sjúkraþjálfara notuð) í talþjálf-
un og fer slík beiðni fyrir nefnd
(hér eftir kölluð TR nefnd) sem í
sitja tryggingayfirlæknir, Björn
Önundarson og yfirlæknir Heyrnar-
og talmeinastöðvar íslands, Einar
Sindrason. Þessi nefnd úrskurðar
hvort greiða beri fyrir þjálf-
un/kennslu eða ekki. Hún ákvarðar
líka hvort TR eða menntamálaráðu-
neytið greiði fyrir viðkomandi skjól-
stæðing/sjúkling því 1986 var gert
samkomulag á milli þessara aðila
um hvað bæri að líta á sem heil-
brigðismál (þjálfun v/talmeina)
annars vegar eða menntamál (tal-
kennsla) hins vegar. Stór galli er á
vinnubrögðum þessarar nefndar og
hann er sá að ákvarðanir hennar
eru mjög tilviljunarkenndar. Stund-
um samþykkir hún beiðnir — stund-
um ekki og er ógjörningur að sjá
hvaða rök eru notuð hveiju sinni.
Þó virðast vera heldur meiri líkur
á að beiðnir vel menntaðra barna-
lækna á Reykjavíkursvæði fáist
samþykktar en heilsugæslulækna
„Hér eru mál komin í
mikinn hnút. Það mætti
halda að það væri
stefna stjórnvalda á
ýmsum stöðum í heil-
brigðis- og menntageir-
anum að útrýma tal-
kennslu/talmeinaþjón-
ustu í landinu.”
úti á landi. Læknar, sem vísa sjúkl-
ingum til talmeinafræðinga, eru að
vonum óhressir með þessa af-
greiðslu sem bitnar þó mest á skjól-
stæðingum talmeinafræðinga sem
aldrei vita hvort þeir hljóta náð
fyrir augum þessara háu herra
varðandi greiðslu. Okkur í félagi
talkennara og talmeinafræðinga
(FIT) þykir þó verst að ekki hefur
verið rætt við okkur (síðan við feng-
um löggildingu á starfsheiti innan
heilbrigðismálaráðuneytis) né sam-
ið um greiðslur.
Af hverju er erfitt
að fá talkennslu?
Menntamálaráðuneytið tekur
skýrt fram (í bréfí frá des. 1990)
að það borgi ekki talkennsku barna
á skólaaldri í gegnum TR-»kerfið«.
í sjálfu sér væri þessi afstaða í lagi
ef talkennarar væru almennt starf-
andi út í skólunum. En því er ekki
að heilsa nema í fáum tilvikum. Á
Reykjavíkur- og Reykjanessvæðinu
vantar talkennara í marga skóla. Á
Suðurlandi er einn talkennari á um
30 skóla, á Vesturlandi er einn tal-
kennari á 15 skóla og á Norður-
landi eystra eru 2-3 talkennarar
starfandi sem slíkir í 3-4 skólum
af um það bil 35. Það er enginn á
Austfjörðum og enginn á Vestfjörð-
um. Einn talkennari er starfandi á
Norðurlandi vestra og sinnir aðeins
einum skóla af u.þ.b. 25 skólum.
Vantar talkennara/tal-
meinafræðinga á íslandi?
Ef skýringin væri sú að skortur
væri á talkennurum/talmeinafræð-
ingum í landinu þá væri dæmið
skiljanlegt. En það er ekki svo. Á
íslandi eru yfír 50 menntaðir tal-
kennarar/talmeinafræðingar (hlut-
fallslega eðilegur fjöldi miðað við
önnur Norðurlönd) en aðeins 5-7
eru í fullu starfi við grunnskóla
landsins sem talkennarar. Þá mætti
spyija hvar talkennara/talmeina-
fræðinga væri að fínna? Jú - marg-
ir starfa alis ekki sem talkennar-
ar/talmeinafræðingar, nokkrir
starfa innan félagsmálageirans
(með fötluðum), nokkrir starfa á
sjúkrahúsum, 2-3 hafa fengið ráðn-
ingu hjá metnaðarfullum sveitarfé-
lögum og sinna leikskólum en e.t.v.
starfa flestir sem sérkennarar við
einn skóla þvílaun og vinnuaðstaða
versnar ef þeir taka að sér tal-
kennslu.
í viðtali við Stefán Hreiðarsson
barnalækni í Morgunblaðinu 4.
október 1991 segir hann (orðrétt
tekið upp úr Morgunblaðinu), þegar
hann er spurður hvort misþroska
börn fái nægjanlega aðstoð? » Veiku
hlekkirnir eru talkennsla og iðju-
þjálfun. Þar er biðtími oft upp í 10
mánuði ...« Spurningunni hér að
ofan er svarað á þann veg, að nógu
margir íslendingar eru með mennt-
un innan talmeinafræði en þeir vilja
ekki starfa, aðallega vegna lágra
launa.
Þessi grein er skrifuð fyrst og
fremst til að upplýsa almenning um
stöðu þessara mála því mikið er
leitað til okkar taikennara og tal-
meinafræðinga af fólki og foreld-
rum barna í miklum málerfíðleik-
um. Erfitt hefur verið að veita þjón-
ustu til þessa hóps vegna ofan-
greindra atriða.
Hér má bæta við að nýlega hó-
fust samningaumræður á milli T.R.
og F.T.T. sem miklar vonir eru
bundnar við. Eins vonum við tal-
kennarar að samningar ríkisvalds
og kennarasamtakanna sem eru
framundan leiði til skárri stöðu
okkar innan grunnskólans.
BOSCH DAGAR TIL JÓLA
EICINMENN, UNNUSTAR!
GLEÐJIÐ AUGASTEININN
MEÐ GJÖF FRÁ OKKUR OG
JÓLIN VERÐADANSÁ
RÓSUM.
MUNIÐ OKKAR FRÁBÆRU
GREIÐSL UKJÖR.
VIÐ GERUM ENN
BETUR VIÐ ÞÁ
SEM GREIÐA
MEÐ PENINGUM,
EN ÞEIR FÁ
15% AFSLÁTT.
VIÐ ERUM KOMNIR í JÓLASKAP OG AF ÞVÍ TILEFNIBJÓÐUM VIÐ
10% AFSLÁTTAF ÖLLUM HEIMILISTÆKJUM OKKAR — STÓRUM SEM
SMÁUM, í VERSLUN OKKAR AÐ SUNDABORG 13, FRAM TIL JÓLA.
RAÐGRBÐSLUR
MUNÁLÁN
Aðrir útsölustaðin Metró, Reykjavík; Parma, Hafnarfirði; Neisti,
Vestmannaeyjum; SÚN, Neskaupstað; Rafmagnsverkstæði L.
Haraldssonar, Seyðisfirði; Hákon Gunnarsson, Höfn í
Hornafirði; Straumur, ísafirði.
m w Jóhann Ólafsson & Go
1 SIMMBORCI U • 104 RKYKJAYÍK • SfMIMMMÍH
Höfundur er
talkennari/talmeinafræðingur og
formaður Félags talkennara og
talmeinafræðinga.
Blöndunartækin frá damixa
tryggja rétt vatnsmagn og
hitastig með einu handtaki.
Veljið aðeins það besta
- veljið damixa blöndunartæki
fyrir eldhúsið og baðherbergið.
damixa
III
Fæstíhelstu
byggingarvöruverslunum
umlandallt.
Höföar til
.fólks í öllum
starfsgreinum!
glOTlgtottMllfcÍft >