Morgunblaðið - 14.11.1991, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NOVEMBER 1991
49
Auðveldur signr Kasparov
___________Skák_______________
Margeir Pétursson
ERKIFÉNDURNIR Gary Kasp-
arov, heimsmeistari og Anatólí
Karpov, fyrrverandi heims-
meistari, mættust í síðustu um-
ferðinni á hinu árlega Inter-
polis-stórmóti í Tilburg í Hol-
landi. Þetta var hvorki meira
né minna en 159. skák þeirra
tveggja, en þeir hafa háð fimm
einvígi um heimsmeistaratitil-
inn. Miðað við þá miklu reynslu
sem þeir hafa í að kljást hvor
við annan kom það verulega á
óvart að Kasparov hefur aldrei
áður náð upp unninni stöðu jafn-
fljótt og í þessari skák. Þegar
eftir 13 leiki var staða Karpovs
hartnær töpuð og hann greip til
þess örvæntingarfulla úrræðis
að fórna manni fyrir tvö peð.
Eftirleikurinn var fremur auð-
veldur fyrir Kasparov sem gaf
andstæðingnum engin gagn-
færi.
Kasparov hafði þegar tryggt sér
sigurinn á mótinu fyrir síðustu
umferðina, en þessi vinningur á
erkióvininum gerði hann ennþá
glæsilegri en ella. Kasparov hlaut
tíu vinninga af fjórtán.mögulegum
en Englendingurinn Nigel Short
varð annar með átta og hálfan
vinning.
Undanfarna mánuði hefur
heimsmeistarinn mjög látið til sín
taka í stjórnmálum. „Kasparov er
lýðskrumari” sagði Karpov um það
í viðtali við Morgunblaðið fyrir
skömmu, en enskur prófessor við
Oxford, Norman Stone, sérfræð-
ingur í málefnum Austur-Evrópu,
lét hins vegar nýlega hafa eftir sér
í Sunday Times að Gary Kasparov
væri maður framtíðarinnar í hópi
lýðræðissinna í Rússlandi.
Karpov varð að láta sér lynda
fjórða sætið með sjö og hálfan
vinning og er það slakasti árangur
hans í Tilburg frá því mótin hófu
göngu sína árið 1977. Karpov hef-
ur átta sinnum verið með og er
þetta aðeins í annað skiptið sem
honum mistekst að sigra. Að þessu
sinni var hann greinilega þreyttur
eftir hið erfiða heimsbikarmót hér
í Reykjavík.
Eftir að Kasparov tók yfirburða-
forystu í upphafi mótsins varð það
aðeins Indveijinn Anand sem náði
að ógna honúm. Anand vann Ka-
sparov glæsilega í tólftu umferð,
en tapaði daginn eftir fyrir Karpov.
Anand er frægur fyrir hraða og
hvassa taflmennsku, en hraðinn
er ekki bara styrkur hans heldur
getur hann stundum verið veik-
leiki. Þetta kom glögglega í ljós í
biðskák hans við Gata Kamsky á
sunnudaginn. Indveijinn hafði haft
betur í langri og strangri skák,
hélt andstæðingnum í þungri
pressu bæði á skákborðinu og á
kiukkunni. Þegar hér var komið
sögu var Kamsky í tímaþröng fyr-
irtímamörkin í 100. leik, en Anand
hafði safnað upp miklu forskoti og
hefði getað eytt tveimur klukku-
stundum á næstu þijá leiki. Hann
hefði betur gert það:
Svart: Anand
Hvítt: Kamsky
98. - g3?
Mun betra var 98. — Hh3 til
að eiga möguleikann Hh5+.
Svartur á þá áfram vinnings-
möguleika.
99. Hb7+ - Kf8??
Eftir 99. — Ke8 á hvítur ekkert
betra en að taka jafntefli með
100. Hb8+.
100. Hd8+ - Kg7 101. Hbb8! og
þótt Anand hafi nú átt þijár
klukkustundir fram að næstu tíma-
mörkum í 120. leik stoðar það
ekki neitt. Hann er í mátneti og
eina leiðin til að losna úr því er
101. — f6 sem tapar manni. Hann
mátti því gefast upp. Afar sorgleg-
ur endir, fyrir glæsilega tafl-
mennsku sína hefði Anand vissu-
lega verðskuldað annað sætið.
I síðasta heimsmeistaraeinvígi
hóf Kasparov skoska leikinn aftur.
til virðingar, en sú skákbyijun
hafði síðustu hundrað árin þar á
undan notið fremur lítilla vinsælda.
Nú er hún hins vegar komin aftur
í tísku, m.a. hér á íslandi, en þeir
Jóhann Hjartarson, Þröstur Þór-
hallsson og Hannes Hlífar Stefáns-
son hafa iðulega beitt henni upp á
síðkastið. Karpov virðist ekki enn
hafa uppgötvað viðunandi svar.
Hvítt: Gary Kasparov
Svart: Anatólí Karpov
Skoski leikurinn
I. e4 - e5 2. Rf3 - Rc6 3. d4 -
exd4 4. Rxd4 — Rf6
Afbrigðið 4. — Bc5 hefur verið
vinsælla upp á síðkastið, en á
heimsbikarmóti Flugleiða dugði
það þó illa, tvær skákir töpuðust
á svart.
5. Rxc6 — bxc6 6. e5 — De7 7.
De2 — Rd5 8. c4 — Ba6
I sextándu einvígisskákinni í
fyrra lék Karpov hér 8. — Rb6.
Hann tapaði henni í 102 leik'um.
9. b3 - g6
í íjórtándu einvígisskákinni
langhrókaði Karpov í stöðunni og
fer hann í smiðju til Ungvetjans
Portisch sem beitti þessum leik
gegn Jóhanni Hjartarsyni í Reykja-
vík á dögunum. Jóhann svaraði
með 10. Bb2, en eftir 10. — Bg7
II. Rd2 — Rb4 náði svartur viðun-
andi gagnfærum.
10. f4 - f6?
Eftir öflugt svar heimsmeistar-
ans lendir svartur nú í mjög er-
fiðri stöðu. Svartur virðist ekki
eiga neitt betra en 10. — Bg7.
11. Ba3 - Df7
11. — Rb4 12. Bb2 er einnig
hagstætt hvítum.
12. Dd2 - Rb6
Líklega var 12. — Bxa3 skárra,
þótt hvítur standi betur eftir 13.
cxd5 — Bxfl 14. Rxa3 — Ba6 15.
dxc6 — dxc6 16. 0-0-0
13. c5!
13. — Bxfl 14. cxb6 — axb6!?
Fórnar manni frekar en að taka
á sig erfiða stöðu með 14. — Bxa3
15. Rxa3 — Ba6 16. bxc7 og svart-
ur hefur æpandi veikleika á d6.
15. e6!?
Kasparov skýtur inn millileik,
en það er ekki heldur að sjá að
svartur nái neinu teljandi mótspili
eftir hið einfalda 15. Bxf8.
15. - dxe6 16. Bxf8 - Hd8 17.
Db2 — Bxg2 18. Dxg2 — Kxf8
19. Dxc6
Línurnar hafa skýrst. Karpov
hefur aðeins fengið tvö peð fyr-
ir manninn og hefur ekki nægi-
leg sóknarfæri til að réttlæta
liðsmuninn. — Hd6 20. Dc3 —
Kg7 21. Rd2 - Hhd8 22. 0-0-0
- De8 23. Dxc7+ - H8d7 24.
Dc2 - Db8 25. Rc4 - Hd5 26.
Df2 - Dc7 27. Dxb6 - Dxf4+
28. De3 - Dg4 29. Hdgl - Dh4
30. Hg3 - e5 31. Hh3 - Dg4
32. Hgl - Hdl+ 33. Hxdl -
Dxdl+ 34. Kb2 - h5 35. Hg3 -
Dhl 36. Df2 - h4 37. Dg2 -
Dxg2+ 38. Hxg2 — g5 39. a4 —
Kg6 40. a5 — e4 41. b4 — h3
42. Hg3 - Hh7 43. a6 - f5 og
Karpov gafst nú loksins upp.
Atskákkeppni í París um
helgina
Franska fyrirtækið Immopar
hefur um nokkurt skeið styrkt
skáklistina á sama hátt og ýmsir
aðrir aðilar í viðskiptum styrkja
íþróttafélög, listviðburði og kapp-
akstur. Immopar fetar þar með í
fótspor alþjóðlega fjárílutningafé-
lagsins SWIFT í Brussel, sem m.a.
LOFTPRESSUR
ÁTTATÍU ÁRA REYNSLA
TÆKNI OG GÆÐI
Stimpilpressur
Þrýstingur 3-35 bör.
Skrúfupressur
Þrýstingur 4-13 bör.
Vinnsluvaki og
hljóðeinangrun.
BOGE hefur upp á að bjóða eitt fjölbeyttasta úrval
af loftpressum - loftkútum - þurrkurum - síum og
olíuhreinsurum til framleiðslu á lofti.
Loftkútar Þurrkarar
liggjandi og standandi. Margar stærðir.
Síur
Með eða án fláns.
Stimpilpressur
Litlar og stórar.
Með eða án kúts.
Sölu- og þjónustuaðilar
Geisli - Vestmannaeyjum, Glitnir - Borgarnesi
Póllinn - ísafirði, Snarvirki hf. - Djúpavogi
RAFLAGNIR - TÖLVULAGNIR - MÓTORVINDINGAR - VERZLUN - ÞJÓNUSTA
SlMAR 91-812415-812117 TELEFAX 1-680215 SKEIFAN 3F, BOX 8433, 128 REYKJAVlK
l iJ ■* r .
greiddi verðlaunin hér á heimsbik-
armóti Flugleiða um daginn.
Immopar greiðir tveimur ungum
skákmönnum, þeim Joel Lautier
og Gata Kamsky, háar fjárhæðir
svo þeir geti áhyggjulausir helgað
sig skákinni. Um næstu helgi, frá
8-11. nóvember, verður síðan teflt
um Immopar-bikarinn í París.
Sextán af öflugustu skákmönnum
heims tefla atskák með útsláttar-
fyrirkomulagi. í fyrra sigraði Ka-
sparov í keppninni sem heppnaðist
afar vel. Atskák virðist höfða mjög
til áhorfenda. Fullt hús hefur verið
að slíkum útsláttarkeppnum bæði
í BYakklandi og Þýzkalandi auk
þess sem þær hafa líka verið vin-
sælt sjónvarpsefni. Keppnin fer
fram í Champs-Elysée leikhúsinu
við samnefnda breiðgötu.
A sama hátt og í stóru tennis-
keppnunum er búið að ákveða upp-
röðun í fyrstu umferð, sem er eft-
ir stigum. Hún er þannig: Karpov
(2.730)—Speeiman (2.630), Timm-
an (2.630)—Kamsky (2.595), Salov
(2.665)—Júsupov (2.625), Kortsnoj
(2.610)- Anand (2.650), Short
(2.660)—Gúrevitsj (2.630), Lautier
(2.560)—Bareev (2.680), Beljavskí
(2.655)—Gelfand (2.665) og Kha-
lifman (2.630)—Kasparov (2.770).
'“Þessi uppröðun þýðir að þeir
Karpov og Kasparov geta ekki
mæst fyrr en.í úrslitum. Sigurveg-
arinn fær í sinn hlut jafnvirði 4,3
milljóna ísl. króna, en sá sem verð-
ur í öðru sæti fær helmingi minna.
Tluéancb
Heílsuvörur
nútímafólks
ezeeei
FORSTOFU-
HÚSGÖGN
Forstofan er andlit
heimilisins, vandaðu
til hennar.
Funahöfða 19 sími 685680
VJterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!