Morgunblaðið - 14.11.1991, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1991
51
Sigurlaug Svanlaugs-
dóttir - Minning
Fædd 29. maí 1904
Dáin 31. september 1991
Það var fyrir rúmum 8 árum
að fundum okkar Sigurlaugar bar
fyrst saman. Um var að ræða
sunnudagskvöld eitt, síðsumars og
staðurinn var bílastæðið utan við
KFUM-húsið fyrrverandi á Amt-
mannsstíg 2B Reykjavík. Samko-
munni var rétt nýlokið og á leið-
inni að bílnum, tók ég eftir fullorð-
inni konu, sem var að flýta sér að
ná í strætisvagninn. Kallaði ég á
eftir henni og spurði hvort hægt
væri að spara henni sporin. Var
þetta upphaf af gæfuríkum kynn-
um mínum við öðlingskonu og
traustan vin, sem þrátt fyrir mik-
inn aldursmun, átti aldrei eftir að
bera skugga á. Fljótlega varð ég
var við áhuga hennar við að fara
á kristilegar samkomur og til
kirkju og fór áhugi okkar þar sam-
an.
Sigurlaug var þessum tíma hætt
að vinna úti, enda aldurinn að
nálgast áttatíu ár, en hélt þó enn-
þá myndarheimili í Ljósheimum 10,
fyrir sig og Hjalta bróður sinn.
Hún var höfðingi heim að sækja,
alltaf tekið á móti manni með kost-
um og kynjum og velgjörðum á
margan hátt.
Sigurlaug var framúrskarandi
samviskusöm, vinnusöm og ósér-
hlífin. Að baki var margs konar
vinna á hinum almenna vinnu-
markaði, allt frá vinnu við hjúkrun
á spítölum til verkamannavinnu,
auk þriggja áratuga vinnu við sum-
arbúðir KFUK í Vindáshlíð. Ein-
hvern veginn segist mér hugur,
að vinnutímaskráning hafi verið
heldur slök, vinnuframlag var
launum mun verðmeira. Hjá Sigur-
laugu þekkist ekki slór eða slæp-
ingur, skyldurækni var viðbrugðið.
Handavinnukona mikil var Sigur-
laug og ekki féll henni verk úr
hendi, allt fram á síðasta dag.
Sparsemi og nýtni gagnvart
sjálfri sér, voru henni í blóð borin,
enda alist upp við þröngan kost á
barnmörgu heimili. Sparsemi var
hins vegar óþekkt hugtak hjá
henni, þegar um hið kriStilega starf
og aðra var að ræða, þá var miklu
til kostað, svo vegur þeirra mætti
vera sem mestur á allan hátt.
Hún lagði sitt lóð á vogarskál-
arnar svo um munaði og gilti þá
einu hvort um fórn, vinnu, basar,
happdrættismiðasölu eða annað
var að ræða, allt var unnið af sömu
elju og alúð.
Ekki fór þó hátt um margvíslegt
framlag hennar, þar vissi hægri
höndin ekki hvað sú vinstri gerði.
Hún sáði ríkulega og mun upp-
skera ríkulega, hjá honum sem hún
setti traust sitt á, Jesúm Krist.
All mikil viðbrigði urðu það fyr-
ir Sigurlaugu, er hún futti inn á
hjúkrunarheimilið Skjól við
Kleppsveg, fyrir rúmum þremur
Magnús Sveinjóns-
son - Minning
Fæddur 21. september 1920
Dáinn 6. nóvember 1991
Miðvikudaginn 6. nóvember sl.
lést á lyflækningadeild St. Jósefs-
spítala í Hafnarfírði Magnús Svein-
jónsson vélstjóri, eftir skamma en
snarpa viðureign við ólæknandi
sjúkdóm sem læknavísindin ráða
ekki við enn í dag.
Magnús byijaði ungur að vinna
við vélar í Vélsmiðjunni Kletti í
Hafnarfírði og lærði þar vélvirkjun
og rennismíði. Fór þaðan í Vélskóla
íslands og kláraði hann. Var á sjón-
um um skeið, þá á vertíðarbátum
og síðan eitthvað á togurum. Um
margra ára bil skeið starfaði Magn-
ús í Skipasmíðastöðinni Bátalóni í
Hafnarfirði og lét mjög vel yfír
störfum sínum þar. Þegar hann
hætti þar þá hóf hann störf við
rafsuðu í Álverinu í Straumsvík og
vann þar alls í 19 ár og líkaði þar
mjög vel. Hugur hans var mjög oft
þar suður frá eftir að hann varð
að hætta störfum sökum aldurs um
seinustu jól.
Magnús kvæntist Mörtu Sveins-
dóttur snemma árs 1979 og flutti
hún þá til hans á Reykjavíkurveg
20, í litla húsið sem hann var búinn
að eiga í mörg ár og hafði áður
búið í með Guðríði, uppeldissystur
sinni, sem var orðin mikill sjúkling-
ur og komin a spítala. Létu Magnús
og Marta sér mjög annt um hana
og eiga þakkir skildar.
Fyrir um 5 árum réðust þau í
að láta teikna viðbyggingu við
gamla húsið og svo var byggt. I
þeirri byggingu vann Magnús nán-
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmæl-
is- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofu blaðsins í Hafnarstræti
85, Akureyri.
.uiiJmbginiVlotfe u'ioH r.iniD
ast allt saman sjálfur sem hann
mögulega gat og var á fullu við að
smíða skemmtilega verönd í. kring-
um húsið, sem var að mestu komið
upp. Með Mörtu flutti líka Sveinn
Wíum, sonur hennar af fyrra hjóna-
bandi, sem Magnús hélt mikið upp
á. Börn Mörtu og barnabörn, sem
alltaf kölluðu hann Magga afa,
sakna hans sárt og þakka honum
samfylgdina o^ biðja Guð að varð-
veita hann og styrkja ömmu sína á
erfiðri stund. \
Gísli og Kolbrún, Þór og
Hjördís, Hildur, Sveinri
og barnabörn. ý
Minning
Semjum minningargreinar,
afmælisgréinar,
tækifærisgreinar.
Önnumst milligöngu
við útfararstofnanir.
Sími 91-677585.
Fax 91-677586.
\a:')>i n
nvj
árum. Kona sem hafði stóran hluta
ævi sinnar orðið að standa á eigin
fótum, getur átt erfitt með að
sætta sig við að vera upp á aðra
komin, að nokkru leyti.
Söknuður fyllir hugann nú að
leiðarlokum, söknuður eftir ein-
stökum vin og velgjörðarmanni.
Undirritaður vill þakka vináttu og
hlýju fyrir sig og sína, 'Sem kemur
til með að verma um ókomin ár.
„Drottinn gaf og Drottinn tók,
lofað veri nafn Drottins.”
Bjarni Árnason
ólaskeifan
C---^ SÖLU- OG KYNNINGARMARKAÐUR
NOKKUR SVÆÐI LAUS
Kaupmenn og heildsalar athugið, að nú eru
aðeins nokkur svæði laus á jólamarkaðnum sem
haldinn verður í húsi Framtíðarinnar Faxafeni 10,
dagana 23. nóv. - 23. des.
Frábær staðsetning - aðlaðandi sýningarsalur
og básakerfi. Einstakt tækifæri til þess að
auka jólasöluna. Nú þegar hafa yfir 40 aðilar
tryggt sér pláss
Hringið eða komið og sjáið með eigin augum
frábæra aðstöðu. Símar: 687245 - 677855.
VIRÐISAUKASKATTUR
Endurgreiðsla
virdisaukaskatts
til íbúdarbyggjenda
Hvað er endurgreitt?
Viröisaukaskattur af vinnu manna við
íbúðarhúsnæði er endurgreiddur:
• Byggjendur ibúðarhúsnæðis geta fengið
endurgreiddan þann virðisaukaskatt
sem þeir greiða vegna vinnu manna á
byggingarstað hússins.
•Eigendur íbúðarhúsnæðis geta fengið
endurgreiddan þann virðisaukaskatt
sem þeir greiða vegna vinnu manna við
viðhald og endurbætur íbúðarhúsnæðis
sins.
• Þeir sem framleiða (búðarhús í verk-
smiðju hér á landi geta fengið endur-
greiddan hluta virðisaukaskatts af
söluverði húsanna.
Sérstaklega skal tekið fram að hvorki er
endurgreiddur virðisaukaskattur vegna
tækjavinnu né af efni sem notað ertil
byggingarframkvæmda.
Endurgreiðslubeiðni
Sækja skal um endurgreiðslu á sér-
stökum eyðublöðum til skattstjóra í því
umdæmi sem umsækjandi á lögheimili.
Eyðublöðin eru:
•RSK 10.17: Bygging íbúðarhúsnæðis til
sölu eða leigu.
•RSK 10.18: Bygging, endurbætur og
viðhald íbúðarhúsnæðis til eigin nota.
- J
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
Athygli skal vakin á þvi að frumrit
sölureiknings skal fylgja umsókn um
endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna
endurbóta og viðhalds. Vegna ný-
byggingar verður umsækjandi að geta
lagt fram umbeðin gögn, t.d. sölu-
reikninga þar sem skýrt kemur fram
hver vinnuþátturinn er og að vinnan sé
unnin á byggingarstað.
Uppgjörstímabil
Hvert uppgjörstímabil er tveir mánuðir:
janúar og febrúar, mars og apríl, maí og
júní, júlí og ágúst, september og október,
nóvember og desember.
Skiladagur
Endurgreiðslubeiðni skal berast skatt-
stjóra fyrir 15. dag næsta mánaðar eftir
að uppgjörstímabili lýkur.
Hvenær er
endurgreitt?
Hafi beiðni um endurgreiðslu verið
skilað á tilskildum tíma skal endur-
greiðslan fara fram eigi síðar en 5. dag
næsta mánaðar eftir skiladag vegna
nýbygginga og eigi síðar en 20. dag
næsta mánaðar eftir skiladag vegna
endurbóta og viðhalds.
rrt9E 6iYlr;>lniJg'toín i