Morgunblaðið - 14.11.1991, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1991
t
Elskuleg móðir okkar,
JÓSEFÍIMA ÞORLEIFSDÓTTIR,
Ægisgötu 17,
Akureyri,
andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri mánudaginn
11. nóvember.
Kristín Pálsdóttir,
Sigurhelga Pálsdóttir,
Erling Pálsson.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUNNLAUGUR JÓNASSOIM
fyrrverandi bankagjaldkeri,
Seyðisfirði,
verður jarðsunginn frá Seyðisfjarðarkirkju laugardaginn 16. nóv-
ember kl. 14.00.
Vilhelmína Jónsdóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
t
Systir okkar og mágkona,
GUÐRÚN HANNESDÓTTIR,
Bólstaðarhlið 42,
Reykjavfk,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 1 5. nóvember
kl. 13.30.
Gunnþórunn Hannesdóttir,
Valdimar Hannesson, Ingibjörg Magnúsdóttir.
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, SALÓME HALLDÓRSDÓTTIR frá Súðavík,
verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 15. nóvem- ber kl. 15.00.
Þórður Sigurðsson, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
t
Sambýliskona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
ÁLFHEIÐUR K. JÓNSDÓTTIR
dagmamma,
Ásvallagötu 48,
lést á heimili sínu að kvöldi 10. nóvem-
ber.
Útför hennar fer fram frá Áskirkju föstu-
daginn 15. nóvember kl. 15.00.
Þeir, sem vilja minnast hennar, láti
Orgelsjóð Hallgrímskirkju njóta þess.
Hreiðar Hálfdánarson,
synir, tengdadætur og barnabörn.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
BENEDIKT BLÖNDAL
frá Grímstungu,
Vesturbraut 6,
Keflavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 15. nóvember
kl. 15.00.
Sigriður Blöndal, Sverrir Kristinsson,
Guðrún Blöndal, Benedikt Jónsson,
Kristinn Blöndal, Guðbjörg Róbertsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
EGGERT ÞÓRARINN TEITSSON
frá Þorkelshóli,
verður jarðsunginn frá Víðidalstungukirkju laugardaginn 16. nóv-
ember kl. 14.00.
Rútuferð verður sama dag kl. 8.30 frá Umferðarmíðstöðinni.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Dvalarheimilissjóð
Kvennabandsins á Hvammstanga.
Teitur Eggertsson, Maria Pétursdóttir,
Ingibjörg Eggertsdóttir, Jóhann Jónsson,
Jóhannes Eggertsson, Sigríður Sigvaldadóttir,
Jóhanna Eggertsdóttir, Anton Júlíusson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Minning:
GuðrúnL Viderö
Bjömsdóttir
Fædd 5. janúar 1916
Dáin 14. október 1991
Mig langar fyrir hönd okkar
systkina, að minnast systur okkar,
Guðrúnar, sem andaðist 14. október
síðastliðinn í Færeyjum. Fullu nafni
hét hún Guðrún Ingigerður og
fæddist 5. janúar 1916 á Nesi í
Norðfirði. Foreldrar: Björn Emil
Bjamason, f. 7. janúar 1885 í Vet-
urhúsum í Eskifirði, d. 23. janúar
1963. Guðbjörg Bjarnadóttir, f. 21.
marz 1888 á Dúki í Sæmundarhlíð,
d. 28. júní 1951. Systkini sem eru
dáin: Hjalti, Kjartan og Hrefna sem
var yngst. Þau sem eru á lífi: Birna,
sem er elzt. Lára, Hákon, Hilmar,
Margrét, Óskar og Trausti.
Guðrún byijaði snemma að
vinna, var þá aðallega um að ræða
vinnu, sem tengdist sjónum, svo
sem beitning, uppstokkun og salt-
fiskþvottur og þurrkun. Þessháttar
vinnu inntu mjög margir unglingar
af hendi á þessum árum. Þegar hún
var 17-18 ára, fékk hún steingráan
hest að gjöf norðan úr Skagafirði.
Kom hann með skipi til Norðljarð-
ar. Hestinn tóku að sér feðgar hér
í sveit, sem hétu Þorsteinn Sigfús-
son og Sigfús Þorsteinsson. Önnuð-
ust þeir hann með stakri prýði.
Auðvitað þótti þetta viðburður á
þeim tíma, að fá hest að gjöf. Mynd-
virk var hún, og sótti hún handa-
vinnutíma hjá konu sem kenndi
ungum stúlkum flos og annan út-
saum. Flosaði hún meðal annars
mynd af hreindýri, sem stendur við
vatn. Bróðir okkar, Hjalti, tók
myndina með sér til Danmerkur og
lét mála vatnið og himininn og var
það síðan innrammað. Konan, sem
kenndi þessum stúlkum hét hét Sig-
ríður Erlendsdóttir og var hún af-
burða listræn.
Síðan átti það fyrir systur okkar
að liggja, að fara til Færeyja og
giftast þar. En það^ átti allóvenju-
legan aðdraganda. Á heimili okkar,
kom oft maður að nafni Karl Hjelm.
Var hann sænskur að ætt. Eitt sinn
var hann beðinn að lesa í bolla fyr-
ir okkur. Hann gerði í fyrstu lítið
úr þeirri kunnáttu, en lét þó tilleið-
ast. Þegar kom að því að lesa í
bolla systur okkar, varð hann ofur-
lítið hugsi, en sagði síðan: „Þú ferð
til einhverra eyja, og giftist þar.”
Kom nú flestum í hug Vestmanna-
eyjar, en þá sagði hann: „nei þær
eru lengra í burtu.” Var þá gizkað
á Færeyjar. Þá sagði hann: „Já, ég
hugsa að það séu Færeyjar.” Eng-
um datt í hug, að taka þetta alvar-
lega, því þetta var jú bara til gam-
ans gert. En það fór nú á annan
veg. Um það bil tveim árum seinna,
var henni boðið til Færeyja, af ís-
lenzkri konu, sem bjó þar. Þessi
kona átti heima á Sandi á Sandey.
Hún hét Ólöf Jónsdóttir og var
hálfsystir Lúðvíks Jósepssonar,
fyrrverandi alþingismanns. Systir
okkar giftist síðan manni þar, sem
hét Ewald Viderö, og setist hún þar
með að á Sandi. Skömmu eftir gift-
inguna kom fyrir einkennilegt at-
vik. Systir okkar var að taka upp
t
Maðurinn minn,
ÞORSTEINN Ö. STEPHENSEN
fyrrverandi leiklistarstjóri,
andaðist 13. nóvember á Vífilstaðaspítala.
Dóróthea Guðmundsdóttir Stephensen.
t
Móðir mín og amma,
SIGURLAUG GUÐMUNDSDÓTTIR,
Reynimel 52,
lést í Borgarspítalanum 1 2. nóvember.
Esther Jónsdóttir,
Sigurlaug Halldórsdóttir.
t
SIGRI'ÐUR VÍÐIS JÓNSDÓTTIR
fyrrum sýslumannsfrú,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 15. nóvember
kl. 13.30.
Héraðskveðja fer fram í Laufáskirkju laugardaginn 16. nóvember
kl. 14.00 um leið og jarðsett verður.
Jón Hálfdanarson, Kristfn Steinsdóttir
og aðrir vandamenn.
Móðir okkar, t KRISTÍN PÁLSDÓTTIR,
Drápuhlið 38,
Reykjavik,
lést í Landspítalanuni þann 13. nóvember sl.
Kristín Þorsteinsdóttir, Þórhildur Þorsteinsdóttir, Þorsteinn Þorsteinsson.
t
Hjartans þakkir til ykkar allra, er auðsýndu samúð og vináttu við
andlát og útför
ÓSKARS F. JÓNSSONAR.
Ástrós Guðmundsdóttir.
dót, úr stórri kistu sem hún átti,
maður hennar var að hjálpa henni
og verður þá fyrir honum Ijósmynd
af fullorðnum manni, með mikið
skegg. Segir hann þá: „Þennan
mann hef ég séð áður.” „Það getur
ekki verið”, segir systir okkar,
bætir síðan við: „Þú hefur aldrei
verið á Norðfirði.” „Nei”, segir
hann. „En mig dreymdi þennan
mann, nokkrum mánuðum áður en
þú komst til Færeyja.” Maðurinn á
myndinni, var annar af feðgunum,
sem pössuðu steingráa hest, systur
okkar. Hét þessi maður Þorsteinn
Sigfússon.
Þau hjón bjuggu í 17 ár í barn-
lausu hjónabandi, en tóku þá kjör-
barn, sem heitir Margrét, og býr
hún nú í Vágum á Suðurey. Hún
varð augasteinn þeirra og yndi. Síð-
an eignast þau dreng og stúlku.
Jógvan heitir pilturinn, en Guðbjörg
stúlkan, og bú, þau bæði í Þórshöfn.
Móðir okkar, Guðbjörg, fór til
Færeyja til að vera við brúðkaupið.
Dvaldizt hún einn vetur í Færeyjum.
Við brúðkaupið, skartaði hún ís-
lenzkum búningi, sem vakti mikla
athygli. Móðir okkar var gædd
miklum dulrænum hæfileikum, sem
kom meðal annars fram í berdreymi
og skyggni. Meðan hún dvaldi í
Færeyjum, dreymdi hana fyrir
hernámi Danmerkur. Sá hún í þess-
um draumi, danska fánann sundur-
skotinn og blóðugan. Þrem árum
steinna, var Danmörk hernumin.
Eg, sem þessar línur rita, var
hjá systur okkar og íjölskyldu, þijá
vetur og eitt sumar, á stríðsárunum.
Mér leið ákaflega vel hjá þeim allan
þann tíma, og vil ég þakka öllum
ánægjulega samveru og góðar
minningar.
Að lokum vil ég fyrir hönd konu
minnar, sona okkar og þeirra fjöl-
skyldna, systkina okkar, og þeirra
fjölskyldna, votta ykkur, Jógvan,
Guðbjörg og Margrét, okkar inni-
legustu samúð, svo og ykkar fjöl-
skyldum.
Megi Guð geyma systur okkar
og móður ykkar, og styrkja ykkur
í sorginni.
Megi systir okkar hvíla í firði.
Óskar Björnsson
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmæl-
is- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofu blaðsins í Hafnarstræti
85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsbiaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki eru
tekin til birtingar frumort Ijóð
um hinn látna. Leyfilegt er að
birta tilvitnanir í ljóð eftir þekkt
skáld, og skal þá höfundar get-
ið. Sama gildir ef sálmur er birt-
ur. Meginregla er sú, að minn-
ingargreinar birtist undir fullu
nafni höfundar.