Morgunblaðið - 14.11.1991, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1991
53
Brynjólfur Hall-
grímsson - Minning
Fæddur 18. maí 1913
Dáinn 18. október 1991
Síðbúin kveðja frá
afmælisbróður
Afmælisbróðir. Ég man ekki
lengur, hvor okkar var fyrri til að
nota þetta orð, en er þó ekki frá
því, að það hafi verið ég. Fyrr en
varði vorum við farnir að ávarpa
hvor annan á þennan veg og sögð-
um t.d. „Hvað segirðu fallegt, af-
mælisbróðir?” Á svipaðan hátt og
menn kynnu að segja: „Hvað ség-
irðu fallegt nafni?”
Og á gleðistundum áttum við það
jafnvei til að bregða á leik og kepp-
ast um hvor væri fljótari að nefna
fræga afmælisbræður og -systur.
í beinu framhaldi af þessu væri
ef til vill ekki úr vegi að geta nokk-
urra nafntogaðra afmælisbræðra
eins og Gunnars Gunnarssonar, rit-
höfundar, Bertrands Russells heim-
spekings, stærðfræðings rithöfund-
ar og Nóbelsverðlaunahafa, og að
lokum sjálfs páfans.
Allir fæddir 18. maí, þessir heið-
ursmenn.
Þannig létum við lengi gamminn
geisa og vorum heldur en ekki
hreyknir af því að vera í svo góðu
og göfugu bræðralagi. En nú getum
við því miður ekki framar leikið
þennan leik saman, enda er Biynj-
ólfur sálugi sennilega nú genginn
í enn betra og hégómalausara
bræðralag. Bræðralag sem blífur.
Brynjólfur festi ekki ráð sitt fyrr
en hann var kominn vel á miðjan
aldur og kvæntist Þórhöllu Friðriks-
dóttur, þeirri ágætu konu. Fyrir
þann tíma hélt hann heimili ásamt
systur sinni, Þorgerði, þeirri öðl-
ingskonu, og gerðu þau það áratug-
um saman. Sem nágranni þeirra
og tengdasonur Þorgerðar get ég
vottað, að á því heimili ríkti kærleik-
ur og einlægt hjartaþel, enda voru
þau systkini einkar samrýmd og
samstiga í flestu ef ekki öllu sem
þau tóku sér fyrir hendur. Það er
ekki ofsagt að Þorgerður hafi verið
Brynjólfi ekki aðeins góð systir
heldur kom hún oftsinnis fram við
hann sem umhyggjusöm móðir, og
það kunni Brynjólfur vel að meta.
Hér mætti einnig geta þess að
það var ákaflega hlýtt á milli konu
minnar, Andreu, og Brynjólfs, sem
í hennar augum var ekki aðeins
möðurbróðir hennar heldur líka
bezti bróðir. Þeirra á milli var allt
svo fallegt og fölskvalaust og hélzt
það til hinztu stundar.
I lífi hvers manns skiptast á skin
og skúrir, enda mátti Brynjólfur
stundum þola andstreymi, þreng-
ingar og vonbrigði meira en góðu
hófi gegndi þótt ekki verði farið
nánar út í það hér, en skakkaföllum
sínum tók Brynjólfur af karl-
mennsku, æðruleysi og þrautseigju
sem jaðraði jafnvel við þijózku.
Mannkostir hans komu bezt í ljós
þegar á móti blés og svona eiga
sannir menn að vera.
Brynjólfur Hallgrímsson var mik-
ill útivistarmaður alla sína ævi, og
úti í okkar yndislegu íslenzku nátt-
úru undi hann sér bezt. Á yngri
árum gerði hann víðreist um landið
okkar góða, einkum óbyggðir þess
og á veturna naut hann þess manna
mest að renna sér á skíðum. Síðar
tóku laxveiðar við af skíðaiðkunun-
um, en síðustu árin átti hesta-
mennskan hug hans allan. Þessi
skæða baktería hafði tekið sér svo
varanlega bólfestu í Bi-ynjólfi að
einhveiju sinni sem ég spurði vin
hans, hvort Binni væri fyrir austan,
svaraði gárunginn að bragði: „Nei,
hann er ekki fyrir austan, hann er
fyrir „hestan”. Og í hans nýju heim-
kynnum eru vonandi góðir skeið-
vellir, þar sem Brynjólfur getur
hleypt á sprett eða brugðið á skeið
og haldið þannig áfram að vera
fyrir „hestan”. Þar væri hann al-
sæll.
Þótt Brynjólfur væri mikill úti-
vistarmaður var hann ekki síður
mikill bókamaður eins og vandað
safn hans ber vitni um. Bókmennta-
smekkur hans var fágaður, enda
var virðing hans fyrir bókum honum
í blóð runnin og ekki dugði minna
+
Eiginmaður minn og faðir okkar,
JÓHANN BJÖRNSSON,
Grundarstíg 12,
Reykjavík,
lést í Borgarspítalanum að morgni 12. nóvember.
Magnea Jóelsdóttir,
Hreinn M. Jóhannsson,
Hafdís Jóhannsdóttir.
Hjartkær móðir okkar, tendamóðir, amma og langamma,
PÁLÍNA EYJA SIGURÐARDÓTTIR,
Skarðsbraut 15,
Akranesi,
er lést í Sjúkrahúsi Akraness 11. nóvember, verður jarðsungin
frá Akraneskirkju föstudaginn 15. nóvember kl. 14.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Sjúkrahús Akraness.
Erla Karlsdóttir, Alfreð Viktorsson,
Sigþóra Karlsdóttir, Þórður Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför föður
okkar, tengdaföður, bróður og afa,
EINARS JÓNSSONAR
sjómanns,
Hrefnugötu 7,
Reykjavík.
Jón Þór Einarsson,
Hilmar Einarsson,
Sigríður H. Einarsdóttir,
Kjartan Einarsson,
Guðjón Einarsson,
Steinunn S. Jónsdóttir,
og barnabörn.
Sjöfn Kristjánsdóttir,
Monika S. Baldursdóttir,
Hjálmar Björgvinsson,
Guðrún Erla Brynjólfsdóttir,
Knud Salling
en að hafa bækurnar í sem beztu
og fegurstu bandi, slík var snyrti-
mennska eigandans.
Engan eða fáa hef ég þekkt, sem
var jafnglaður í bragði, er gest bar
að garði. Hann fagnaði manni svo
innilega, svo hjartanlega og jafnvel
barnslega. Hann var þó blessunar-
lega laus við að vera gestagleiður,
þótt hann væri svona yfirmáta
gestaglaður. Við þessi veizluhöld
naut hann vitanlega ómetanlegs
stuðnings húsfreyjunnar, Þórhöllu.
Nú heldur þessi góði gestgjafi ekki
fleiri gestaboð né afmælisveizlur,
að minnsta kosti ekki í bili, en minn-
ingin um þau mun lengi lifa hjá
þeim sem þeirra nutu.
Ég bar ekki Brynjólf, afmælis-
bróður minn, til hans hinztu hvílu
og þó, ég gerði það í huganum.
Halldór Þorsteinsson
+
ÞORLEIFUR ARASON
slökkviliðsstjóri,
Skúlabraut 2,
Blönduósi,
andaðist 11. nóvember.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hildur Gunnarsdóttir.
+
Hjartans þakkir til ykkar allra, er auðsýnduð samúð og vináttu
við andlát og útför móður minnar,
GUÐRÚNAR AUÐUNSDÓTTUR.
Björn Sveinsson og fjölskylda.
+
Innilegar þakkir færum við öllum þeim fjölmörgu, sem auðsýndu
okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför ástkærrar
eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu,
ALDÍSAR BJARNARDÓTTUR
kennara,
Grænuvölium 3,
Selfossi.
Sérstakar þakkir sendum við hjúkrunarfólki og læknum Landspítal-
ans á deildum 11 E og 12B fyrir góða umönnun og hjúkrun, svo
og öllum öðrum, sem önnuðust hana fyrr og síðar í langvarandi
veikindum.
Óskar Þór Sigurðsson,
Örn Óskarsson, Kristín Runólfsdóttir,
Úlfur Óskarsson, Signhildur Sigurðardóttir,
Hrafn Óskarsson, Kristrún Gisladóttir,
Gerður Óskarsdóttir, Gunnar Sigurgeirsson,
Þrúður Óskarsdóttir,
Hreinn Óskarsson, Guðný Birgisdóttir
og barnabörn.
kr. 11 9.900,- stgr
52 MB harður diskur 17 ms (64 KB Cache skyndiminni)
2 MB vinnsluminni stækkanlegt í 8 MB á móður borði
1,2 MB 5,25" disklingadrif og rými fyrir 1,44 MB 3,5"
Super VGA-litaskjár (1024X768)
Super VGA-skjákort 512 KB stækkanlegt í 1 MB
Windows 3.0 og mús
Við afgreíðum af lager!
LÁTTU EKKI ÞVINGA ÞIG
MED RÍKtSSAMNINGI !
Umboósmenn um land allt.
TÆKNVAL
Skeifan 17 - 128 Riykjavik - Sími 91-681665 - Fax 91-680664
VID GERUM EKKI
UPPÁMILLI
ÍSLENDINGA!
386ST - 20MHz