Morgunblaðið - 14.11.1991, Page 60
60
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1991
ÁRNAÐ HEILLA
Ljósm. Sigr. Bachmann.
Hjónaband. 7. september sl. voru
gefin saman í hjónaband í Áskirkju
af séra Árna Bergi Sigurbjörnssyni
Þórhildur Ágústsdóttir og Erling
Klemenz Antonsson. Heimili þeirra
er í Holtsbúð 61, Garðabæ.
Ljósm. Sigr. Bachmann.
Hjónaband. Þann 28. september
sl. voru gefin saman í hjónaband í
Dómkirkjunni af séra Hjalta Guð-
mundssyni, Lára Grettisdóttir og
Jóhann Bergmann Guðmundsson.
Heimili þeirra er að Lindarbrekku
6, Kópavogi.
Ljósm. Sigr. Bachmann.
Hjónaband. 7. september sl. voru
gefin saman í hjónaband í Garða-
kirkju af séra Braga Friðrikssyni
Ólöf Edda Eysteinsdóttir og Rögn-
valdur Guðbrandsson. Heimili
þeirra er í Löngumýri 18.
Ljósm. Sigr. Bachmann.
Hjónaband. 28. september sl. voru
gefin saman í hjónaband í Áskirkju
af séra Árna Bergi Sigurbjörnssyni
Hildur Arnardóttir og Steindór
Guðnason.
Ljósm. Sigr. Bachmann.
Hjónaband. 31. ágúst sl. voru gef-
in saman í hjónaband í Bústaða-
kirkju af séra Pálma Matthíassyni
Bryndís Jóhannesdóttir og Guðjón
Hauksson. Heimili þeirra er í
Hraunbæ 32, Reykjavík.
Ljósmyndarinn - Jóhannes Long
Hjónaband. Þetta eru brúðhjónin Valdís
Ólafsdóttir og Gunngeir Friðriksson. Þau
voru gefin saman í Fríkirkjunni 12. októ-
ber sl. Prestur var sr. Valgeir Ástráðsson.
Heimili þeirra er í Byggðarenda 24, Reykja-
vík.
Ljósmyndarinn - Jóhannes Long
Hjónaband. Þetta eru brúðhjónin Marta
Guðmundsdóttir og Þórður Oddsson. Þau
voru gefin saman í Bústaðakirkju 5. októ-
ber sl. Prestur var sr. Pálmi Matthíasson.
Heimili þeirra er i Einarsnesi, Reykjavík.
Ljósmynd/Páll Ketilsson
Hjónaband. Anna Berglind Magnúsdóttir og
Björn Ingi Knútsson voru gefin saman í hjóna-
band í Árbæjarkirkju 7. sept sl. af sr. Guð-
mundi Þorsteinssyni. Heimili þeirra er að
Hraunbæ 58, Rvík.
Ljósmyndarinn - Jóhannes Long
Hjónaband. Þetta eru brúðhjónin Dóra
Mjöll Stefánsdóttir og Rafn Emilsson. Þau
voru gefin saman í Hrunakirkju 19. októ-
ber sl. Prestur var sr. Halldór Reynisson.
Heimili þeirra er í Laugalandi, Hruna-
mannahreppi.
llr^Af hverju „rautt álegg”?
Lengi vel voru aðalkjötálegg
okkar íslendinga kæfa og
rúllupylsa. Vissulega halda
þessar tegundir enn velli að ein-
hveiju leyti, en hið svokallaða
„rauða álegg” er þó allsráðandi.
Maður gengur að áleggsgrindum
stórmarkaða. Þar hanga bréfin í
röðum, en þegar litið er yfir, er
þetta yfirleitt allt rautt, sem sagt
með saltpétri og meirihluti þess
er pylsur, skinka og hangiálegg.
Af hverju þarf þetta endilega að
vera rautt? Bragðið er þó hið sama.
Kaupmenn segja: „Fólkið vil! þetta,
það kaupir ekki annað álegg.” En
þetta sama fólk býsnast yfir auka-
efnum í mat, en kaupir síðan ekki
annað. Þetta þyrfti að breytast.
Það er nú svo, að saltpétur telst
ekki hoílur, þótt hann sé leyfður
að vissu marki og hann sé að ein-
hveiju leyti rotvörn. En svo er með
mig, og sjálfsagt fleiri, að ég þoli
saltpétur illa, ekki bara í kjötá-
leggi heldur líka í osti, en þar er
talsvert af honum. Þar af leiðir að
ég get ekki borðað nema lítið af
því áleggi sem fæst í verslunum.
Lifrarkæfu er ég ekki hrifin af og
kindakæfa er of feit að mínu mati.
Ostmálið leysi ég ekki, en kæfu-
málið hefi ég leyst með því að búa
til mjög góða „léttkæfu”, þar sem
sama og engin Fita er notuð. Nú
segja sumir: „Hvernig er hægt að
búa til kæfu án fitu, fitan mýkir
kæfuna?” Því svara ég: „Það er
hægt með því að sjóða soðið niður
og setja það samna við kæfuna,
það mýkir hana og gefur miklu
betra bragð en fitan. Hægt er að
skera mikla fitu úr slögum og búa
til rúllupylsu og steikja á pönnu.
Ekki þarf einu sinni að sauma
þessa rúllpylsu saman. Við ættum
að gera meira af því að búa til
'okkar álegg sjálf. Með því spörum
við mikið og getum forðast auka-
efni, svo sem saltpétur. í næsta
þætti held ég áfram með áleggið.
Þessi uppskrift er úr bók minni,
„Minna mittismál”.
Léttkæfa
3-4 kg. lambajöt, nota má alls
konar bita
vatn svo að fljóti yfir kjötið
2-3 tsk. salt eða meira
'h tsk. pipar
1 lárviðarlauf
'h tsk. allrahanda
4 stórir laukar
1. Raðið kjötinu þétt ofan í pott.
Kjötið má vera feitt, við getum
notað alla „ruslbita”, en fitan er
tekin frá eftir suðu.
2. Látið vatnið sjóða og hellið
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
yfir þannig að fljóti yfir allt kjötið.
Sjóðið við hægan hita í 3 klst.
3. Takið kjötið úr pottinum og
kælið talsvert. Takið síðan alla fitu
og bein úr kjötinu og fleygið.
Hakkið síðan magra kjötið.
4. Látið soðið kólna, en takið
þá flotskjöldinn ofan af og fleygið.
5. Látið soðið sjóða niður,
þ.e.a.s. á fullum straumi þar til
það er u.þ.b. 'h lítri.
6. Afliýðið laukinn, skerið í bita
og setjið út í soðið, setjið lárviðar-
lauf út í. Sjóðið við hægan hita í
10 mínútur. Takið laukinn úr og
hakkið með kjötinu, fleygið lárvið-
arlaufinu.
7. Setjið hakkað kjötið og lauk-
inn út í soðið. Hitið vel í gegn.
Setjið salt út í, erfitt er að áætla
magnið, smakkið á kæfunni. Setið
síðan pipar og allrahanda út í.
Látið kæfuna sjóða vel. Takið þá
af hellunni. Kælið örlítið og hrærið
í á milli.
8. Setjið kæfuna í lítil box.
Kælið alveg. Geymið síðan í frysti.
Athugið: Þessi kæfa geymist
ekki vel þar sem lítil fita er í
henni. Takið úr frysti í einu og
geymið í kæliskáp.
Næstu 2 uppskriftir eru úr bók
minni, „220 ljúffengir lambakjöts-
réttir”.
Steikt rúllupylsa með
sinnepi og mintu
1 síða, u.þ.b. 'h kg
2 tsk. fínt salt
'h tsk. pipar
1 msk. þurrkuð minta (nota
má annað krydd, t.d. oregano,
basiliku eða steinselju)
1 msk. milt sinnep
1 msk. matarolía til að steikja
úr
1. Fjarlægið talsvert af fitunni
í kjötinu og skerið frá rif.
2. Smyijið sinnepi í síðuna að
innanverðu og stráið á hana salti
og pipar. Stráið mintu eða öðru
kryddi jafnt yfir.
3. Vefý'ið síðuna þétt saman.
Oþarfi er að sauma pylsuna saman.
4. Hitið pönnu, setjið olíu á hana
og steikið pylsuna á öllum hliðum.
5. Setjið 'h dl af vatni á pönn-
una, minnkið hitann. Setjið lok á
pönnuna og sjóðið þannig í l-U/2
klst. Bætið örlitlu vatni á pönnuna
ef með þarf.
6. Takið rúllupylsuna af pönn-
unni, setjið á fat, leggið síðan
bretti ofan á hana og farg (eitt-
hvað þungt) þar á. Látið kólna
þannig.
7. Soð myndast á pönnunni,
hellið því í skál og látið kólna.
Skerið í ræmur og berið með pyls-
unni.
Steikt rúllupylsa með
sveskjum og kryddi
1 síða, u.þ.b. 'h kg
2 tsk. fínt salt
'h tsk. pipar
1 msk. milt sinnep
15 steinlausar sveskjur
'h tsk. engiferduft
'h tsk. kanill
1 msk matarolía til að steikja
úr.
1. Farið eins að og með rúllu-
pylsuna hér að ofan, nema notið
annað krydd og sveskjur. Kljúfið
sveskjurnar og raðið þétt inn á
slagið 0g vefjið síðan saman.