Morgunblaðið - 14.11.1991, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1991
63
KNATTSPYRNA
i
i
l
(
(
<
Guðmundur fer fram
ásölufráSt. Mirren
Þorvaldur
fráUBKog
aftur til
Leifturs
orvaldur Jónsson, markvörður,
sem lék með Blikunum í sum-
ar, hefur ákveðið að ganga aftur
til liðs við sína gömlu félaga hjá
Leiftri á Ólafsfirði.
Þorvaldur er annar ieikmaðurinn
sem gengur til liðs við Leiftur á
stuttum tíma. Hinn leikmaðurinn
er Júgóslavinn Zoran Coguic, sem
lék með' Stjömunni.
Guðmundur Torfason fór í gær
fram á að verða seldur frá
skoska úrvalsdeildarliðinu St.
Mirren. Hann er óánægður með
gang mála hjá félaginu og vill
komast annað sem fyrst, en samn-
ingurinn rennur út næsta vor.
Guðmundur sagði við Morgun-
blaðið að ágreiningur hefði orðið
við þjálfarann, þegar hann til-
kynnti honum að hann færi í
landsleikinn gegn Frökkum. Á
sama tíma á St. Mirren, sem er í
næst neðsta sæti, að leika úti gegn
St. Johnstone, og vildi þjálfarinn
hafa Guðmund til staðar.
Guðmundur gaf sig ekki og svo
fór að hann fór fram á að verða
seidur.
St. Mirren keypti Guðmund fyr-
ir rúmlega þremur árum. Hann
gerði 12 mörk í 29 leikjum fyrsta
tímabilið, en fjögur mörk í 18 leikj-
um í fyrra og er nú kominn með
tvö mörk. Hann ætlaði frá félaginu
s.l. sumar og var Southampton
tilbúið með samning, en meiðsl
komu í veg fyrir kaupin.
Miðheijinn sagðist ekkert vera
farinn að spá í hvert hann færi,
en hann hefði alltaf haft áhuga á
að leika í Englandi. „Ég vona
bara að ég komist í burtu sem
fyrst, en ef ekkert verður áf sölu
núna hugsa ég minn gang í vor.”
Hann bætti við að St. Mirren
gæti tafið málið með því að setja
fráhrindandi upphæð á sig, en
félagið gerði sér grein fyrir að það
fengi ekkert, ef hann færi aftur
til Islands að samningnum lokn-
um, og myndi þess vegna senni-
lega ekki standa í veginum, ef til-
boð bærist.
Anægjulegt að koma
aftur inn í hópinn
sagði GuðmundurTorfason, sem léksíðast með landsliðinu 1990
Verð að sjá Guðmund
GUÐMUIMDUR Torfason, mið-
herji hjá skoska úrvalsdeildar-
liðinu St. Mirren, er í 16 manna
landsliðshópi Ásgeirs Elías-
sonar fyrir viðureignina gegn
Frökkum í Evrópukeppninni,
sem verður í París n.k. miðviku-
dagskvöld. Gera má ráð fyrir
að Guðmundur verði í byrjunar-
liðinu og verður þetta þá 30.
landsleikur hans, en síðast var
hann með í 2:0 sigri gegn Alba-
níu á Laugardalsvelli 30. maí
1990.
Aðspurður sagðist Guðmundur
vera mjög ánægður með að
fá tækifærið á ný. „Það er mjög
gaman og ánægjulegt að koma aftur
inn í hópinn eftir að hafa verið í
meiðslum meira en minna í eitt og
hálft ár. Ég hef verið fullu í sjö eða
átta vikur eftir síðasta áfall og er
heill á sál og líkama. Liðinu hefur
gengið illa, en ég hef spilað ágæt-
lega og gert tvö mörk, þó ég hafi
ekki alltaf leikið í fremstu víglínu
heldur einnig verið á miðjunni.”
Hrakfallasaga
Guðmundur, sem verður 30 ára í
desember, sagði að nóg væri komið
af meiðslum. Hann tognaði í lær-
vöðva vorið 1990 í leik með St. Mirr-
en, „en ég gerði þau mistök að gefa
kost á mér í landsleikinn gegn Alba-
níu, þar sem ég varð að fara útaf.
Ég var nánast frá allt sumarið og
missti því af undirbúningstímabilinu,
en komst engu að síður í gott form
um haustið. Þá nefbrotnaði ég viku
fyrir fyrsta leik, en læknir liðsins
sagði að ég gæti leikið og eftir tvær
mínútur lenti ég í samstuði. Annað
krossbandið í hné rifnaði og ég var
frá í um þijá mánuði. Síðan byijaði
ég aftur og gerði þijú mörk í fjórum
leikjum, en 1. desember, í fímmta
leiknum, skallaði varnarmaður
Dundee United í andlitið á mér með
þeim afleiðingum að ég kjálkabrotn-
aði og þríkinnbeinsbrotnaði. Þá kom
aftur um þriggja mánaða „frí”, en
síðastliðið vor rifbeinsbrotnaði ég í
leik og var því frá í sumar sem leið.
10 dögum fyrir fyrsta leik í haust
kjálkabrotnaði ég öðru sinni, en er
orðinn góður,” sagði Guðmundur.
Ásgeir sá besti
Guðmundur sagði að íslenski hóp-
urinn væri sterkur „og mér líst vel
á leikinn gegn Frökkum. Það var
stórt skref fyrir íslenska knatt-
spyrnu að ráða Ásgeir sem landsliðs-
þjálfara, því hann er í fremstu röð
og fremstur þjálfara á íslandi, en
við sjáum hvað setur.”
Ásgeir sá Guðmund í leik með St.
Mirren fyrir skömmu og sagði að
allt spil hefði snúist í kringum mið-
heijann. „Hann var eini leikmaður
liðsins, sem eitthvað gerði, og ég
valdi hann í Iandsliðið núna til að sjá
hvemig hann fellur inní það sem við
erum að gera,” sagði landsliðsþjálf-
arinn við Morgunblaðið í gærkvöldi.
Ásgeir sagðist aetla að halda sig
við sama leikkerfi og áður, en hann
hefur verið með þijá menn í vörn-
inni, fimm á miðjunni og tvo frammi.
„Það verður bara að koma í ljós,
hvað við getum leikið framarlega á
vellinum og hvar við byijum að veij-
ast.”
Hann á von á að Frakkarnir leiki
4-4-2 eða 4-2-4 eins og gegn Alba-
níu, en þá pressuðu þeir mjög fram-
arlega og nýttu vel kantana að sögn
Ásgeirs, sem sagðist hafa skoðað
vel síðasta leik Frakka og fyrrnefnd-
an leik á myndbandi.
Hilmar í viðbragðsstöðu
Sigurður Jónsson meiddist í baki
á æfíngu á laugardaginn og ekki er
ljóst hvort hann getur leikið gegn
Frökkum. Ef hann verður ekki orð-
inn góður, tekur Hilmar Sighvats-
son, UBK, sæti hans í hópnum.
Guðmundur Torfason á fullri ferð í landsleik.
4
4
4
a
i
i
-i
HANDKNATTLEIKUR / ÍSLANSMÓTIÐ
Landslidid
Morgunblaðið/Bjarni
Tékkinn Michal Tonar hjá HK skorar, en landi hans, Petr Baumruk er til
varnar hjá Haukum. Jáfnræði var annars með þeim sém og liðunum:
Skemmtilegt
og spennandi
ÞAÐ var stórskemmtilegur
handbolti, sem Haukar og HK
buðu upp á, þegar liðin gerðu
29:29 jafntefli í Hafnarfirði í
gærkvöldi. Óhætt er að segja
að HK liðið er eitt það skemmt-
ilegasta í 1. deild karla. Leik-
menn fagna hverju marki á
skemmtilegan hátt, mikil bar-
átta er í vörninni, falleg leik-
kerfi og leikmenn hafa mjög
gaman af því sem þeir eru að
gera. Liðið hafði forystu allan
leikinn, en reynsluleysi undir
lokin kom í veg fyrir að það
færi með sigur af hólmi.
Bæði lið hófu fyrri hálfleik af
krafti og léku hraðan hand-
knattleik. HK-menn voru ávallt
fyrri til að skora og
höfðu undirtökin.
Haukar tóku Gunn-
ar Má Gíslason úr
umferð, en HK-
menn áttu svar við því og gerðu
mörg mörk eftir skemmtilegar leik-
fléttur. Haukar i’eyndu mikið-gegn'
PéturHrafn
Sigurðsson
skrifar
umbrot í sókninni með ágætis ár-
angri.
I seinn i hálfleik leiddu HK-
menn, en Haukar hleyptu þeim
aldrei langt frá sér. Þegar ein og
hálf mínúta var eftir tókst Haukum
að jafna, 28:28. Gunnar Már kom
HK aftur yfir, þegar 40 sekúndur
voru eftir og í næstu sókn Hauka
var dæmdur ruðningur á Petr
Baumrúk. í stað þess að róa leikinn
og láta tímann líða brunuðu HK
menn í sókn, fengu dæmdan á sig
ruðning og á lokasekúndunum
fengu Haukar vítakast, sem
Baumruk skoraði úr af öryggi og
jafnaði leikinn.
Bestir í liði Hauka voru Halldór
Ingólfsson og Baumruk. Páll Ólafs-
son var dijúgur í seinni hálfleik,
en fékk lítið að spreyta sig í sóknar-
leiknum fyrir hlé.
í lið i HK voru bestir þeir Magn-
ús I. Stefánsson markvörður, Mic-
hal Tonar Óskar Óskarsson og Ró-
bert Harðarson, sem er stór-
skemmtilegur leikmaður.
Þrír leikmenn, sem voru í 16
manna hópnum gegn Spán-
veijum, verða ekki með að
þessu sinni. Ólafur Þórðarson
er meiddur, en Hörður Magn-
ússon og Hlynur Stefánsson
detta út. í þeirra stað koma
Arnór Guðjohnsen, sem var í
banni, Guðmundur Torfason
og Kristinn R. Jónsson. Eftir-
taldir leikmenn skipa annars
hóp Ásgeir Elíassonar, lands-
liðsþjálfara, fyrir leikinn gegn
Frökkum:
Friðrik Friðriksson........Þór
Pétur Ormslev.............Fram
Guðni Bergsson......Tottenham
Kristján Jónsson.........Fram
Baldur Bjarnason.........Fram
Sigurður GrétarssonGrasshopper
Arnór Guðjohnsen.....Bordeaux
Sigurður Jónsson......Arsenal
Þorvaldur Örlygsson Nott. Forest
Eyjólfur Sverrisson..Stuttgart
Guðmundur Torfason ..St. Mirren
Birkir Kristinsson........Fram
Sævar Jónsson..............Val
Andri Marteinsson...........FH
Valur Valsson..............UBK
Kristinn R. Jónsson.......Fram
Pétur, Guðni, Kristján, Sigurð-
ur Grétarsson og Guðmundur
voru ekki með í vináttuleiknum
gegn Kýpur i október, en þá voru
Hörður, Hlynur, Óiafur Kristj-
ánsson, Atli Helgason og Atli
Einarsson auk hinna, sem hafa
verið í hópi Ásgeirs frá byijun.