Morgunblaðið - 11.12.1993, Síða 24

Morgunblaðið - 11.12.1993, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1993 Óbreytt verö á jóiabókunum Bókaútgefendur Jólatréð er komið á sinn stað á Austurvelli. Morgunblaðið/Sverrir Kveikt á jólatrénu á Austurvelli á morgun KVEIKT verður á jólatrénu á Austurvelli á morgun, sunnu- daginn 12. desember kl. 16. Tréð er gjöf Oslóarborgarbúa til Reykvíkinga. Athöfnin hefst að loknum leik Lúðrasveitar Reykjavíkur. Sendi- fulltrúi Noregs á Islandi, Öyvind Stokke, mun afhenda tréð en Markús Örn Antonsson, borgar- stjóri, veitir trénu viðtöku fyrir hönd borgarbúa. Athöfninni lýkur með því að Dómkórinn syngur jólasálma. Askasleikir, foringi jólasvein- anna, og jólasveinarnir birtast í fullum skrúða þegar kveikt verður á jólatrénu. Munu þeir koma fram á þaki Nýja kökuhússins við hom- ið á Landsímahúsinu eftir athöfn- ina við jólatréð. Þegar skemmtun jólasveinanna lýkur mun dagskrá- in flytjast yfir á Ingólfstorg en þar mun hljómsveitin Gleðigjafar ásamt Ellý Vilhjálms, Móeiði Jú- níusdóttur, trúðinum Jóga og jóla- sveininum Hurðaskelli og Kerta- sníki skemmta fólki með söng og leik. Forstjóri Landssambands lífeyrissjóða Innheimtustofnun sveitarfélaga 5-600 milljónir vantar vegna bamsmeðlaga INNHEIMTUSTOFNUN sveitarfélaga hefur aldrei þurft að sækja jafn mikið til Jöfnunarsjóðs vegna vangoldinna barnameðlaga og á þessu ári. Árni Guðjónsson, forstjóri Innheimtustofnunar, áætlar að hana vanti á bilinu 5-600 milljónir til að standa við skuldbindingar sínar gagnvart Tryggingastofnun ríkisins allt árið. Árið 1991 var mismunurinn 192 milljónir og árið 1992 var mismunurinn 266 milþ'- ónir. Fjármálaráðherra hefur lagt fram breytingartillögu við fjáraukalög upp á 250 milljónir til Jöfnunarsjóðs vegna vangoldinna barnsmeðlaga. Ámi sagði að aldrei innheimtist meira en í desember enda væri venja margra að gera upp skuldir sínar um áramót. Engu að síður væri nokkuð ljóst að stofnunina vantaði 5-600 milljónir til að standa við skuldbindingar sínar á þessu ári. Sú upphæð hefði aldrei verið hærrri og væm ástæðumar vænt- anlega fyrst og fremst tvær, þ.e. hækkun bamsmeðlaga um síðustu áramót, úr 7.551 kr. í 10.300 kr. (rúm 36%), og slæmt atvinnu- ástand. Erfið innheimta Hann sagði að alltaf hefði reynst erfitt að innheimta meðlagsskuldir. „Ef við skoðum þetta sjáum við að fólk greiðir skatta af því það hefur tekjur eða á eignir. En menn eiga ekki síður að greiða meðlög þó þeir hafi hvorki tekjur né eigi eignir, sem sagt af einhveijum ástæðum stundi ekki vinnu o.s.frv. Það er dálítið stór hópur okkar viðskiptavina sem ekki hafa tekjur af ýmsum ástæð- um.“ ALLT UM Þúsundir íslenskra knattspyrnumanna og kvenna á öllum aldri koma við sögu. Frásögn af leikjum, einstaklingum og liðum, sagt frá úrslitum. Hundruð mynnda og auk þess litmyndir af öllum sigurliðum frá 6. flokki og til meistaraflokks. Engin bók geymir betur upplýsingar um íslenska knattspyrnu frá ári til árs. Bókin er ómissandi handbók og upplýsingarit fyrir þau tugi þúsunda sem áhuga hafa á íslenskri knattspyrnu Ármúla 23 Sími 91-67 24 00 Lífeyrissjóðirnir eiga 3,5 milljarða í bönkum Yeltiinnlán sem bera mjög lága vexti Sárgrætilegt ef útfar- [ arkostnaður hækkar! - segir biskup íslands um niðurstöðu Héraðsdóms > ÓLAFUR Skúlason biskup ís- lands segir að dómur Héraðs- dóms Reykjavíkur, þar sem Kirlq'ugarðar Reykjavíkur eru dæmdir til að greiða Líkkistu- vinnustofu Eyvindar Árnasonar tæpar 15 milljónir króna í skaða- bætur fyrir að hafa valdið hruni í viðskiptum fyrirtækisins, sé mikil vonbrigði og hann trúi ekki öðru en að honum verði áfrýjað til Hæstaréttar. Hann segist telja að hið opinbera eigi að bjóða Kirkjugörðum Reykjavíkur gjaf- sókn í málinu þar sem um sé að ræða grundvallaratriði sem snerti fleiri en málsaðUa. „Það sem síðan er sárgrætilegast í þessu öllu er ef útfararkostnað- urinn fer hækkandi við þetta," sagði biskup í samtali við Morg- unblaðið. Biskup sagði að Kirkjugarðar Reykjavíkur hefðu staðið að starf- seminni í góðri trú og talið sig vera að framfylgja því sem ákveðið hefði verið í upphafi; að bjóða ódýrari útfarir sem valkost og það hefði alla tíð verið gert án þess að mót- mæli kæmu fram. Fyrir árið 1976 hefðu Kirkjugarðarnir eingöngu annast útfarir sem fram fóru í Foss- vogskirkju, en eftir því sem kirkjum í borginni hefði fjölgað hefði fólk ekki viljað una því. „Þá tilkynntu Kirkjugarðarnir Líkkistuvinnustofunni að þeir ætl- uðu að annast útfarir í öllum kirkj- um hér eftir, og því var heldur ekki mótmælt. Svo kemur þetta atriði fram núna upp á síðkastið við það að hlutdeild Líkkistuvinnustofunnar fer svona hrapandi, að þeir fara að leita einhverra skýringa og fínna hana í þessu að Kirkjugarðarnir hafi veitt þjónustu umfram það sem samkeppnisaðilinn hafði getað gert, og því hljóti að hafa kumið þama framlag úr kirkjugarðasjóði. Ég er ekki að deila við dóminn, en það sem vekur spurningar er hvernig þessi §öldi athafna er fenginn, sem þeir segja að Líkkistuvinnustofan hafí misst af á þessu tímabili, og hins vegar kostnaðurinn sem þessi fjöldi er margfaldaður með, svokall- aðar niðurgreiðslur Kirkjugarð- anna. Þetta hlýtur að vera einhver æðri stærðfræði. Hin spurningin sem dómurinn vekur er sú hvort þetta verður ekki til þess að fleiri fylgja á eftir. Getur til dæmis ekki leigubílstjórafélagið Hreyfill farið í mál við Strætisvagna Reykjavíkur? Það er sannanlega niðurgreidd þjónusta sem Strætisvagnarnir bjóða fólki til að komast á milli bæjarhverfa en leigubílstjórar taka fullt gjald fyrir,“ sagði biskup. Getur varðað fleiri Atli Gíslason lögmaður Kirkju- garða Reykjavíkur sagðist vera ósáttur við dóm Héraðsdóms ^ Reykjavíkur þar sem menn hjá Kirkjugörðum Reykjavíkur hefðu talið sig hafa farið að lögum. Þetta | væri fyrsta mál sinnar tegundar, þannig að það væri eðlilegt að á það yrði látið reyna fyrir Hæsta- | rétti. „Þetta getur líka varðað fjölmörg önnur svipuð og sambærileg tilvik, og í því sambandi dettur mér til dæmis í hug deila garðplöntufram- Ieiðenda og skógræktarfélaga sem verið hefur í fréttum, en það er víðar sem ríkisstofnanir, fyrirtæki og félagasamtþk eru með í skjóli iaga rekstur sem ekki er skattskyld- ur. Þessi dómur er nýmæli og það þarf að áfrýja honum að mínu mati,“ sagði Atli. Arnór Pálsson formaður fram- kvæmdastjómar Kirkjugarða Reykjavíkur sagði að fjallað yrði um málið á fundi framkvæmda- | stjómarinnar næstkomandi þriðju- dag, en síðan yrði tuttugu manna aðalstjórn Kirkjugarðanna kölluð ) saman innan tíðar til að ákveða hvort málinu yrði áfrýjað til Hæsta- réttar eða ekki. Sjálfur sagðist hann ) telja eðlilegt að dóminum yrði áfrýj- að, bæði vegna þess um hve háa fjárhæð væri að ræða og eins vegna þess að hliðstæður fyrir dóminum lægju ekki fyrir til viðmiðunar. Sjóðimir em langtíma- fjárfestar „Lífeyrissjóðimir eru langtíma- fjárfestar og liggja ekki með pen- inga í bönkum til langframa, þann- ig að þetta era einhveijar sögusagn- ir,“ sagði Hrafn Magnússon, fram- kvæmdastjóri Sambands almennra lífeyrissjóða. Hrafn sagði að það skipti út af fyrir sig ekki máli vegna útboðsins á húsnæðisbréfum á þriðjudag hvort lífeyrissjóðimir hefðu átt pen- inga til ráðstöfunar. Menn hefðu ekki séð ástæðu til að bjóða í bréf- in þegar því hafi verið lýst yfír fyr- ir uppboð bréfanna að ríkið tæki ekki tilboðum í þau nema með 5% ávöxtun en aðrir pappírar með betri kjörum hafí verið í boði á eftirmark- aði. ÞORGEIR Eyjólfsson, forstjóri Landssambands lífeyrissjóða, segir að því fari víðs fjarri að lífeyrissjóðimir geymi fé sitt í bönkum eins og fram kom í máli viðskiptaráðherra í frétt Morg- unblaðsins á fimmtudag. Sagði hann að innstæða lífeyrissjóð- anna í bönkum væri um 3,5 m'.llj- arðar króna en heildarinnlán í viðskiptabönkum og sparisjóðum væru hins vegar um 155 miHjarð- ar kr. og því væru fjármunir líf- eyrissjóðanna i bönkunum um 2-2V2% af heildarinnlánum bankakerfisins. Sagði Þorgeir að að stærstum hluta væri um að ræða veltiinnlán sem bæra mjög litla vexti. Því væra ummæli ráðherra úr lausu lofti grip- in.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.