Morgunblaðið - 11.12.1993, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1993
35
Mikil verkefni bíða Flóttamannahjálpar SÞ
Lok kalda stríðsins
leystu vandamál en
sköpuðu einnig ný
Fagnaðarefni ef Islendingar gætu
tekið við fleiri flóttamönnum
LOK kalda striðsins hafa haft í för með sér að tekist hefur að
binda enda á fjölmörg staðbundin átök og að fjölmargir flótta-
menn geta nú snúið aftur til síns heima. A þetta m.a. við um
Mósambík, Mið-Ameríku, Kambódíu og Víetnam. Er meðal annars
áætlað að um ein og hálf milljón Mósambíkbúa geti snúið aftur.
Vandamálið er hins vegar að þessi ríki eru mörg hver í rúst eftir
margra ára átök og því mikil þörf á aðstoð við uppbyggingu. Þá
hafa endalok kalda stríðsins einnig orðið uppspretta nýrra átaka
og ber þar hæst átökin í fyrrverandi Júgóslavíu. Kom þetta fram
á blaðamannafundi sem þær Christina Linnér og Maria Sands-
tröm, frá Flóttainannahjálp Sameinuðu þjóðanna, héldu i gær, en
þær eru hér staddar til að ræða við íslensk stjórnvöld.
Fyrir tveimur árum, þegar fram-
kvæmdastjóri SÞ fól flóttamanna-
hjálpinni yfirumsjón með aðstoð við
stríðshijáða íbúa fyrrum Júgóslavíu
var áætlað að um hálf milljón
manna þyrfti á aðstoð að halda.
Nú er talið að um 4,2 milljónir
þurfí á aðstoð að halda. Þær sögðu
að á sama tíma og þörfín fyrir
flóttamannahjálp hefði ekki verið
meiri í mörg ár væri orðið erfíðara
að fá aðstoð stjórnvalda, ekki síst
vegna erfíðs efnahagsástands í
heiminum. Þá hefðu mörg ríki tekið
upp á því að krefjast vegabréfsárit-
unar af íbúum Bosníu, sem gerði
þeim nánast ókleyft að yfírgefa
landið.
Er starfsfólk á vegum Flótta-
mannahjálpar SÞ nú að finna í um
hundrað ríkjum og talið að um 1,3
milljarð dollara þurfí til að fjár-
magna starfsemina á næsta ári.
„Það eru geysilega erfið verkefni
framundan. Þó að kalda stríðinu sé
lokið eru átök ekki liðin undir lok.
Það er ljóst að það mun ekki draga
úr þörfmni fyrir aðstoð á næstu
árum,“ sagði Christina og lagði
áherslu á að Flóttamannahjálpin
væri þakklát fyrir framlag íslend-
inga. Aðspurðar um hvort Flótta-
mannahjálpin myndi fara þess á
leit við íslendinga að taka við flótta-
mönnum í auknum mæli sögðu þær
að að sjálfsögðu yrðu SÞ þakklátar
ef íslendingar væru fúsir til þess.
Það væri mikilvægt að ríki skiptu
með sér byrðunum. Þær væru hins
vegar ekki hingað komnar til að
setja fram neinar sérstakar kröfur.
Þær sögðu það_ í sjálfu sér ekki
mjög skrýtið að íslendingar hefðu
til þessa ekki tekið við mörgum
flóttamönnum er leituðu að póli-
tísku hæli. ísland væri landfræði-
lega afskekkt og fólk yrði fyrst að
fara í gegnum önnur ríki til að
komast þangað. Flóttamannahjálp-
in teldi það mjögjákvætt að nýlega
hefði verið skipuð nefnd til að móta
stefnu íslendinga í flóttamannamál-
um og yrði fylgst með útkomu þess
starfs. Aðspurðar um hvort að
Flóttamannahjálpin hefði gagnrýnt
stefnu íslendinga til þessa var svar-
ið að skrifstofa stofnunarinnar í
Stokkhólmi væri í reglulegum sam-
skiptum við íslensk stjómvöld og
að ef eitthvað hefði þótt gagnrýnis-
vert hefði eflaust verið fundið að
því.
Jackson vill eng-
ar myndatökur
Los Angeles. Reuter.
LÖGMENN poppsijörnunnar
Michaels Jacksons hafa hafið
samningaviðræður við sak-
sóknara í Los Angeles og sett
skilyrði fyrir því að hann komi
heim til Bandaríkjanna vegna
rannsóknar á kæru 13 ára
pilts sem segir Jackson hafa
misnotað sig kynferðislega.
Frá þessu skýrði sjónvarps-
stöð I Los Angeles.
Að sögn sjónvarpsstöðvarinn-
ar hefur lögreglan aflað sér
heimildar til skoða líkama Jack-
sons og hyggst ljósmynda kyn-
færi hans til þess að sannreyna
fullyrðingar 13 ára piltsins sem
lýst hefur ýmsum kennileitum á
þeim og kynfærasvæðinu.
Jackson hefur ætíð haldið
fram sakleysi sínu og sagði einn
lögmanna Jacksons í samtali við
sjónvarpsstöðina að alltof langt
væri gengið ef ætlunin væri að
ljósmynda kynfæri söngvarans.
Hermt er að lögmenn hans hafí
sett það skilyrði fyrir því að
hann snúi heim úr meðferð við
verkjalyfjafíkn að fallið verði frá
því að leita á honum og ljós-
mynda einstaka líkamshluta.
LaToya Jacksons, systir popp-
stjörnunnar, sagði í samtali við
sjónvarpsstöðina NBC í gær, að
móður þeirra hefði mislíkað vin-
fengi hans við unga pilta og oft
talað um son sinn sem „bölvaðan
kynvilling." Foreldrar og systk-
ini LaToyu hafa vísað fullyrðing-
um hennar síðustu daga á bug
sem ómerkilegum lygum er sett-
ar hefðu verið fram til þess að
hún kæmist sjálf í sviðsljósið.
Jólaljósin tendruð
BILL Clinton Bandaríkjaforseti faðmar dóttur sína, Chelsea, að sér er forsetafjölskyldan hefur kveikt ljósin
á bandaríska þjóðarjólatrénu sem stendur í Washington. Notaði Clinton tækifærið og hvatti alla Bandaríkja-
menn til að takast á við glæpaölduna sem riðið hefur yfír landið. Til vinstri stendur forsetafrúin Hillary
Rodham Clinton.
dag opnar Hótel Saga
GULLNÁMU í vistlegri
stofu inn af MÍMISBAR.
har bjóðum við gestum okkar upp á hressingu og ijúfa tónlist í
þægilegu umhverfi á meðan þeir taka þátt í nýju spennandi
happdrætti sem gefur möguleika á milljónum í vinninga.
Opið: Sunnud. - fimmtud. kl. 16.CX) - 24.00
föstud. og laugard. kl. 16.00 - 03.00
Aldurstakmark 18ára.
-lofar góðu!
V / HAGATORG SlMI 29900
r 3 1
Metsölublað á hverjum degi!