Morgunblaðið - 11.12.1993, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1993
41
ar síns? Er leiðin sú að boða verk-
fall á öllum flotanum, þegar það
liggur þegar fyrir að kvótakaup
með þessum hætti eru bönnuð sam-
kvæmt kjarasamningum? Er hægt
að komast lengra á vettvangi kjara-
samninga? Þarf ekki að fara eitt-
hvað lengra, annars vegar til lög-
gjafarvaldsins til að breyta gildandi
reglum um framsal á aflakvóta og
til dómstóla til að leita réttar síns
vegna brota á kjarasamningi?
Dæmin um þvingum sjómanna til
þátttöku í kvótakaupum eru auðvit-
að skýlaust brot á kjarasamningum
og tæpast sæmandi þeim, sem að
þeim standa, en það eru mál dóm-
stóla.
Snúin vígstaða
Vígstaða sjómanna í þessu máli
er afar snúin. Þeir hafa samúð al-
mennings og virðist útgerðin standa
höllum fæti í því taugastríði sem
staðið hefur yfír að undanförnu.
Verkfall upp úr áramótum kemur
mjög misjafnlega niður á útgerð-
inni. Verst bitnar það líklega á
Vestfírðingum, sem vanir eru að
hefja veiðar strax upp úr áramótum
og togaraútgerð almennt, en áhrifin
á vertíð sunnanlands og vestan
verða væntanlega lítil. Verkfall
kemur sér einnig illa fyrir loðnuflot-
ann, en þar er þá verið að hengja
bakara fyrir smið, því „kvótabrask-
ið“ á sér ekki stað á loðnuflotanum.
Fyrir kvótalitlar útgerðir má jafnvel
segja að verkfall sé eins konar
himnasending. Þær leggja bara
skipunum, losna við launakostnað
og taka kvótann svo síðar á
skemmri tíma en ella og með minni
tilkostnaði.
Mestur þrýstingur á þá sem
eru ekki í kvótabraskinu
Þá má segja að komi að físk-
vinnslunni. Fyrir hana kemur sér
væntanlega illa að fá verkfall á
þessum tíma, enda er farið að gæta
ákveðins þrýstings úr herbúðum
hennar. Fyrir vinnsluna er bezt að
búa að jöfnu hráefnisstreymi, en
afurðaverð er hins vegar lágt og
birgðir nokkrar, til dæmis í rækju.
Söltunin þarf hins vegar á hráefni
að halda á þessum árstíma, því þá
stendur yfir kapphlaup milli okkar
og Norðmanna um að ná mörkuðun-
um í Portúgal og á Spáni. Þá er
aðal físksölutíminn í upphafi árs,
þegar heildsalar, veitingahús og
verzlanakeðjur eru að birgja sig upp
fyrir föstuna. Þá má ekki gleyma
fiskverkafólki, sem stendur frammi
fyrir því að missa vinnuna. Hætt
er við því að það verði með blendn-
um hug sem það styður sjómennina
í þessari baráttu sem gæti kostað
það vinnuna á tímum þrenginga og
samdráttar.
Það er því ljóst að samtök sjó-
manna ná fram nokkrum þrýstingi,
einkum á þá, sem ekki stunda hið
illræmda kvótabrask. Þeir sem hafa
verið að kaupa kvóta með þátttöku
sjómanna verða kannski hvíldinni
fegnir.
XJöföar til
Xlfólksíöllum
starfsgreinum!
Samkomulag Vinnuveitendasambands íslands og biskupsembættisins
Kirkjugarðsgjald fyrirtækja.
fellt niður í þremur áföngum
SAMKOMULAG hefur tekist milli Vinnuveitendasambands íslands
og biskupsembættisins um niðurfellingu kirkjugarðsgjalds atvinnu-
fyrirtælga í þremur áföngum. Frá og með næstu áramótum, til
þriggja ára, verður innheimt undir heitinu markaðsgjald vegna niður-
fellingar kirkjugarðsgjaldsins og sérstakt markaðsgjald vegna fjár-
mögnunar Útflutningsráðs. Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmda-
stjóri VSÍ, segir að við álagningu markaðsgjalds á árinu verði tekið
mið af samtölu útflutningsráðsgjalds og kirkjugarðsgjalds. Upphæð-
in verði þó í öllum tilfellum lægri en samtalan hafi verið. Smám
saman lækkar svo gjaldið og árið 1997 er aðeins gert ráð fyrir 0,015%
markaðsgjaldi á allar greinar. Hr. Ólafur Skúlason, biskup íslands,
segist sáttur við samkomulagið miðað við hvað gæti hafa orðið.
Hann segir að með því sé verið að horfa til næstu ára og á þeim
tíma verði fjárhagsleg málefni kirkjunnar endurskoðuð. Ríkissljórn-
in féllst á að farið yrði eftir samkomulaginu á fundi sínum í gær.
Þórarinn sagði að samkomulag
hefði náðst um niðurfellingu á inn-
heimtu kirkjugarðsgjalds um
næstu áramót. „Þess í stað verður
innheimt markaðsgjald af öllum
greinum atvinnulífsins af virðis-
aukaskattskyldri veltu. Markaðs-
gjaldið kemur til með að taka mið
af samtölu útflutningsráðsgjalds
og kirkjugarðsgjalds á þessu ári
en verður þó í öllum tilfellum lægra
en samtala þessara gjalda var,“
sagði Þórarinn og nefndi sem dæmi
að aðilar í verslunarrekstri væru
nú að greiða sem svarar 0,02% af
veltu en myndu á næsta ári greiða
0,015%. Aðilar í fiskvinnslu
Var með
of smáa
möskva
Stykkishólmi.
VARÐSKIP stóð togarann
Þuríði Halldórsdóttur GK
94 að veiðum með of smáa
möskva í poka um 18,5 mílur
norðvestur af Öndverðar-
nesi í fyrradag.
Samkvæmt reglugerð mega
möskvar í poka skipsins vera
155 millimetrar en mældust
innan við 140 mm að sögn
Landhelgisgæslu.
Skipið var fært til hafnar í
Stykkishólmi og þar var réttað
í málinu. Að sögn Daða Jó-
hannessonar ' fulltrúa sýlu-
manns hlaut skipstjórinn 125
þús. kr. sekt en til vara 35
daga varðhald.
greiddu 0,061% af veltu og myndu
greiða 0,049% og útgerðarmenn
greiddu 0,039% og myndu greiða
0,035% á næsta ári.
Þrír áfangar
Atvinnúfyrirtæki hafa hingað til
greitt 1,5% gjald á aðstöðugjald
vegna reksturs kirkjugarða og er
um aö ræða um 75 milljónir króna
á ári. Umrætt samkomulag gerir
ráð fyrir að hlutfallið haldist
óbreytt á næsta ári. Árið 1995 fái
kirkjugarðarnir hins vegar tvo
þriðju hluta galdsins, eða um 50
milljónir, og árið 1996 einn þriðja,
eða um 25 milljónir. Frá og með
árinu 1997 falli greiðslur fyrir-
tækja til kirkjugarða svo endan-
lega niður.
Þórarinn minntist þess að fyrir
lægi að samtök atvinnurekenda
hefðu talið óeðlilegt að skattleggja
framleiðslukostnað fyrirtækja í
þágu kirkju og kirkjugarða. „Við
höfum verið þeirrar skoðunar að
það væri óeðlilegt að atvinnulífið
greiddi sérstaklega skatt til kirkju-
garðanna. Þeir eru eðli málsins
samkvæmt málefni einstakling-
anna. Við leituðum þess vegna eft-
ir því við kirkjuna þegar aðstöðu-
gjaldið féll niður hvort ekki væri
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
JOLATILBOÐ
20% afsláttur í dag af tvískiptum útigöllum.
Þýsk gœðavara. Stœrðir 80-110.
DIMMALIMM
Bankastmti 4, 101 Reykjavík,
sími 11222.
hægt að komast hjá ágreiningi um
málið. Við buðum fram samkomu-
lag um aðlögun, það var ekki gerð
krafa um að gjaldið félli niður strax
og kirkjunnar menn urðu sammála
um að þetta væri skynsamleg nálg-
un enda þyrfti að skoða stöðu
kirkjugarðanna í framhaldi af því.
En við fögnum mjög að takast
skyldi að ná sáttum um þetta milli
kirkju og atvinnulífs. Okkur fannst
það mikils virði að geta leyst þetta
mál án þess að það yrði ágreinings-
mál og án þess að það þyrfti að
fara sem deilumál á hinn pólitíska
vettvang," sagði Þórarinn.
Horft til næstu ára
Hr. Ólafur Skúlason, biskup ís-
lands, sagði að með niðurfellingu
aðstöðugjalds hefði blasað við tölu-
verð hætta vegna kirkjugarðanna.
„En með þessu samkomulagi erum
við að horfa til næstu ára og á
þeim tíma, og því aðeins skrifaði
ég undir samkomulagið, verða fjár-
hagsleg málefni kirkjugarðanna
endurskoðuð. Þannig að ef þeir -
ekki þola þá skerðingu sem núna
verður sennilega lögfest á Alþingi,
sem er 20% skerðing almennra
kirkjugarðsgjalda með þeirri
skerðingu sem verður á aðstöðu-
gjöldunum, er ríkið búið að lofa
að endurskoða ijármál garðanna.
Við höfum sem sé þennan umþótt-
unartíma og skilning hins opinbera
á því að það er ekki hægt að ganga
að görðunum sí og æ án þess að
tryggja tekjustofna."
10 KRÓNUR
Það er alveg rétt, að til eru
ódýrari dýnur en DUX-dýnur.
Munurinn finnst líka á endingunni.
Venjulegar dýnur endast í 5 - 8 ár.
DUX-dýnur endast ofi: í 30 - 40 ár.
Við hjá DUX leggjum nefnilega aðaláhersluna
á gæði og endingu.
Þegar dæmið er reiknað til enda kemur því í ljós að
DUX-dýnur eru ekki dýrari en aðrar dýnur. Miðað við
30 ára endingu, kostar DUX-nóttin 10 krónur.
Það er stundum dýru verði keypt
að kaupa ódýrt.
10% staðgreiðsluafsláttur á takmörkuðu magni
Á harðri dýnu liggur
hryggsúlan í sveig
Á Dux-dýnu liggur
hryggsálan bein
ÍSLENSK MYNDLIST TIL GJAFA?
LEITAÐU ÞÁ FYRST OG SÍÐAST TIL OKKAR
HVERGI MEIRA ÚRVAL AF
ÍSLENSKRI MYNDLIST.
Ásgeir Smári Einarsson
OPIÐ LAUGARDAG KL. 10.00 • 18.00
SUNNUDAG KL. 13.00 - 18.00
AUSTURSTRATI 3
S Í M I 1 0 4 0 0
Einar Már Guðvarðarson