Morgunblaðið - 11.12.1993, Page 70
70
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1993
FOLK
■ AMSENE Wenger, þjálfari
Mónakó, fékk flest atkvæði sem
næsti landsliðsþjálfari Frakka í sér-
stakri atkvæðagreiðslu sem íþrótt-
blaðið l’Equipe stóð fyrir á meðal 200
leikmanna úr 1. deild. Wenger fékk
73 atkvæði, Rolland Courbis, þjálf-
ari Bordeaux, fékk 37 og Michel
Platini, fyrrum landsliðsþjálfari, 27
atkvæði. Franska knattspyrnusam-
bandið mun ákveða það í næstu viku
hver fær starfíð.
9 JOHN Hansen, landsliðsmaður
Dana í knattspymu sem hefur leikið
tvö síðustu keppnistímabil með Ajax
í Hollandi, er á heimleið. Hann er.
27 ára vamarmaður og hefur átt við
þrálát meiðsli að stríða frá því hann
fór til Ajax og aðeins leikið sjö leiki
fyrir hollenska félagið. Hann hefur
nú gert fjögurra og hálfs árs samn-
ing við danska félagið OB, þar sem
hann lék áður.
■ HOWARD Kendall, yfirþjálfari
enska knattspyrnuliðsins Everton,
sem hætti öllum á óvart eftir leik
liðsins um síðustu helgi hefur enn
ekki viljað gefa upp hvers vegna, en
talið er að slæma fjárhagsstaða fé-
lagsins hafi gert útslagið.
■ JIMMY Gabríel, þjálfari varaliðs
Everton, var settur yfir aðalliðið til
bráðabrigða, en Peter Reid, fyrrum
leikmaður Everton og nú spilari hjá
Southampton, sem var látinn fara
frá Manchester City síðsumars, er
orðaður sem næsti stjóri. Joe Royle
hjá Oldham hefur einnig verið
nefndur til starfans.
VIÐURKENNINGAR
Jamaíku-bömin þau bestu
VORIÐ1960 fæddust í Kings-
ton í Jamaíku stúlka og drengur
með mánaðar millibili. Nú 33
árum seinna hafa þau verið
útnefnd íþróttamenn íheimi
árið 1993, í vali sem íþróttaf-
réttamenn frá 50 þjóðum stóðu
að. Þetta eru heimsmeistar-
arnir f spretthlaupum, Melene
Ottey frá Jamaíku og Linford
Christie sem keppir fyrir Bret-
land.
Christe varð heimsmeistari í 100
metra hlaupi á HM í Stuttg-
art og Ottey varð önnur á eftir
Gail Devers í 100 metra hlaupi en
vann loks langþráðan sigur á HM
er hún kom fyrst í mark í 200
metra hlaupinu. Á þessu sést að
spretthlauparar eru þeir sem fá
hvað mesta athygli fjölmiðlamanna,
en til gamans má geta þess að Al-
þjóða fijálsíþróttasambandið valdi
fyrir skömmu 1.500 metra hlaupar-
ann Nourredine Morceli frá Álsír
sem fijálsíþróttamann ársins 1993.
Þetta var í 47. sinn sem þetta
kjör fer fram og var keppnin um
efstu sætin í bæði karla og kvenna-
flokki mjög jöfn og spennandi að
þessu sinni.
Bestu iþróttakonur ársins:
stig
1. Merlene Ottey - hlaup (Jamaíku)...110
2. Steffí Graf - tennis (Þýskalandi).109
3. Van Almsick - sund (Þýskal.)......105
4. WangJunxia- hlaup (Kína)..........100
5. Gail Devers - hlaup (Bandar.).....85
Linford Christie - fijábær spretthlaupari
Marlene Otte - fljót og falleg á hlaupabrautinni
6. Sally Gunnell - hlaup (Bretlandi)....
7. Kr. Egerszegi - sund (Ungveiial.)...33
8. AnitaWachter-skíði (Austurr.).......19
9. Hortensia - blak (Brasilíu).........16
10. Stefania Belmondo - skíði (Ítalíu).13.
Bestu íþróttamenn ársins:
1. Linford Christie - hlaup (Bretl.)...113
2. Miguel Indurain - hjólreiðar (Spáni)..112
3. Michael Jordan - karfa (Bandar.)...108
4. Javier Sotomayor - hástökk (Kúbu) ....50
5. Nourredine Morceli - hlaup (Alsír).47
6. Pete Sampras - tennis (Bandar.)....46
7. Sergei Bubka - stangarst. (Úkraínu) ..46
8. Alain Prost - kappakstur (Frakkl.).34
9. R. Baggio - knattspyma (Italíu)....19
10. Moses Kiptanui - hlaup (Kenýu)....17
KNATTSPYRNA / RUSSLAND
Vilja landsliðsþfaKarann burl
Pórtán landsliðsmenn Rússlands
í knattspymu hafa gagmýnt
landsliðsþjálfara sinn opinberlega
og vilja að hann verði rekinn, en
Anatoly Byshovets, fyrrum landsl-
iðsþjálfari, taki við. Liðið tapaði 1:0
á útivelli fyrir Grikkjum í síðasta
leik forkeppni HM. Byshovets hefur
ekki tjáð sig um málið, en sagt er
að honum standi til boða að stjóma
landsliði Suður-Kóreu í úrslita-
keppni HM í sumar.
Ráðgjafi forseta Rússlands í
íþróttamálum hefur beðið Knatt-
spymusamband Rússlands um að
taka á málinu, sem á sér ekki for-
dæmi í landinu, og koma í veg fyr-
ir að það bitni á landsliðinu í úrslita-
keppni HM í Bandaríkjunum næsta
sumar.
Frétt þessa efnis birtist í kjölfar
viðtala við þijá lykilnemm landsliðs-
ins, sem sögðu að Pavel Sadyrin,
landsliðsþjálfari, væri hreinlega
ekki nógu góður þjálfari.
Igor Kolyvanov, leikmaður hjá
Foggia á Ítalíu, sagði að 14 leik-
menn hefðu skrifað Tarpitsjchev og
farið fram á þjálfaraskipti. „Við
viljum ekki vinna lengur með Sa-
dyrin og sjáum aðeins Byshovets
sem arftaka. Þetta er það sem við
sögðum í bréfínu,“ sagði hann og
bætti við að hann neitaði að spila
framar undir stjórn Sadyrins.
Sergei Kiryakov, leikmaður
Karlsmhe í Þýskalandi, ásakaði
Sadyrin um óverðskuldaða gagn-
rýni á leikmenn og sagði hann *
skjóta sér undan ábyrgð, þegar lið-
inu gengi illa. „Að mínu mati hugs-
ar Sadyrin ekki um leikinn sem slík-
an. Æfíngamar eru tóm vitleysa
og undirbúningur fyrir hvem leik
tekur í mesta lagi fimm mínútur.
Hvers konar leikaðferð er það?
Þetta er aðeins „sækjum og sigr-
um“ og búið, en eftir leik er annað
hljóð í skrokknum — öllum er um
að kenna nema honum sjálfum."
Igor Shalimov, fyrirliði Rúss-
lands og leikmaður Intemazionale
á Italíu, sagði að Sadyrin væri ekki
slæmur maður og góður þjálfari
fyrir félagslið, „en það nægir aug-
Ijóslega ekki fyrir landslið." Hann
ásakaði þjálfarann um að standa
ávalit með stjórnarmönnum gegn
leikmönnum í viðkvæmum málum.
Shalimov sagði að „möppudýr"
réðu ferðinni í knattspymunni í
Rússlandi í engu samhengi við það
að ná árangri í úrslitakeppni HM
næsta sumar. „Eins og staðan er
nú, er rússneska liðið dæmt til að
ganga illa,“ sagði hann.
Samaranch
til Sarajevo
FORSETI alþjóða ólympíu-
nefndarinnar (IOC), Juan An-
tonio Samaranch, segist stefna
á að heimsækja borgina
Sarajevo í Bosníu, meðan á
vetrarólympíuleikunum í Lille-
hammer stendur í febrúar á
næsta ári.
Allsheijarþing Sameinuðu Þjóð-
anna samþykkti í haust, að
áeggjan IOC, stuðning við það að
1994 yrði ár íþrótta og í samskonar
ályktun studdi allsheijarþingið að
Jiinn gamla gríski siður um ólympíu-
grið yrði endurvakinn; að menn
leggðu niður vopn frá því viku áður
en ólympíuleikar hefjast og meðan
á þeim stendur. Samaranch lýsir
yfir ólympiugrið 25. janúar í höfuð-
stöðvum IOC í Lausanne í Sviss og
taka þau gildi 5. febrúar, viku fyrir
leikana í Lillehammer. „Við vitum
að þetta verður ekki auðvelt. Það
verður nærri útilokað að griðin verði
haldin, en þið megið vita að við
gerum okkar besta,“ sagði Samar-
anch á blaðamannafundi í Lausanne
í vikunni.
Forsetinn sagði að IOC hygðist
hafa beint samband við Bosníu-
serba, Króata og Múslima fyrir
febrúar og reyna að sannfæra þá
um nauðsyn griða. Samaranch
myndi síðan halda til Sarajevo, þar
sem Vetrarólympíuleikamir fóru
fram 1984, en þar hefur ríkt stríðs-
ástand lengi.
Aðspurður neitaði Samaranch því
að siðurinn um ólympíugrið væri
endurvakinn í þeirri von að IOC
yrði úthlutað Friðarverðlaunum
Nóbels á næsta ári. „Ef við fáum
verðlaunin einhvern tíma, verðum
við mjög stolt og mjög ánægð,“
sagði hann. „En höfum það alveg
á hreinu: við höfum lifað í hundrað
ár án verðlaunanna og getum auð-
veldlega gert það í önnur hundrað."
Sameining Óí og ÍSÍ?
Morgunblaðinu hefur borist eftir-
farandi:
„Vegna viðtals við forseta ÍSÍ í
Morgunblaðinu 9. desember um
samþykktir frá formannafundi sér-
sambanda viljum við undirrituð,
sem sátu þann fund, vekja athygli
lesenda Morgunblaðsins á því sem
samþykkt var á fundinum.
Tillagan sem samþykkt var ‘á
fundinum var eftirfarandi:
„Fundur formanna og fulltrúa
sérsambanda haldinn þriðjudaginn
7. desember lýsir yfir stuðningi við
þá hugmynd Milliþinganefndar að
sérsamböndin fái jafnan atkvæðis-
rétt á við héraðssambönd og
íþróttabandalög á íþróttaþingum
enda_ sé það forsenda þess að ÍSÍ
og Óí verði steypt saman undir
eina stjórn. Er þá gengið út frá
því að fulltrúar, kosnir af sérsam-
böndum, hafi meirihlutavald þegar
ólympíumálefni eru til ákvörð-
unar.“
í seinni hluta viðtalsins var vitn-
að_ til tillagna milliþinganefndar
ÍSÍ. Þær tiliögur hafa fengið tak-
markaðar undirtektir og voru ekki
samþykktar á umræddum form-
annafundi. í þessu sambandi er
rétt að það komi fram að fyrir
liggja, bæði skriflega og munnlega,
aðrar tillögur en tillögur milliþing-
anfndar varðandi sameiningamál
innan íþróttahreyfingarinnar.
Til þess að skýra það atriði
hvernig sameining geti orðið þá
þarf fyrst að breyta vægi atkvæða
á ÍSÍ þingi mili sérsambanda og
héraðssambanda þannig að sér-
sambönd ráði að minnsta kosti
helmingi atkvæða á íþróttaþingi.
Samkvæmt ólympíusáttmálanum
þurfa sérsambönd ólympískra
greina að hafa meirihluta atkvæða
í forseta og stjómarkjöri og meiri-
hluta atkvæða í framkvæmdastjóm
hins nýja Ólympíu- og íþróttasam-
bands.
Við teljum nauðsynlegt að ofan-
greint komi fram til viðbótar við
viðtal við forseta ÍSÍ.
Undirrituð sitja í framkvæmda-
stjórn Ólympíunefndar íslands.
Margrét Bjarnadóttir, forma.
Fimleikasambands íslands.
Kolbeinn Pálsson, form. Körfu-
knattleikssambands íslands.
Sigurður Einarsson, form.
Skíðasambands íslands."
UM HELGINA
Handknattleikur
Laugardagur
1. deild kvenna:
. Austurberg: Fylkir - Víkingur.....14
Kaplakriki: FH - KR..............16.30
Valsheimili: Valur - Grótta......16.30
Vestm.eyjar: IBV - Fram..........16.30
2. deild karla:
Kaplakriki: HK - Völsungur..........18
Sunnudagur
1. deild karla:
Garðabær: Stjaman - ÍR..............20
Laugard.höll: KR - Selfoss..........20
Kaplakriki: FH - IBV.............. 20
Valsheimili: Valur - KA.............20
Varmá: UMFA - Haukar................20
2. deild karla:
Iþr.hús. Strandg.: ÍH - Vöisungur...16
Körfuknattleikur
Sunnudagur
Úrvalsdeild:
Borgames: Skallgr. - ÍA.............16
Grindavík: UMFG - Tindastóll........16
Iþr.hús. Strandg.: Haukar-KR........14
Keflavík: ÍBK-Valur.................20
Borðtennis
Fyrri hluti íslandsmótsins verður í Laugar-
dalshöl! í dag; keppt verður í 2. deild karla
og kvennadeild og auk þess í flokkakeppni
unglinga. Keppni hefst kl. 13.
Keila
Keiluliðið Læriingar heldur jólamót í Keilu-
höllinni f Öskjuhlíð í dag, þar sem öllum
er heimil þátttaka. Keppt verður í fimm
flokkum, þannig að allir eiga að finna flokk
við sitt hæfi, hvort sem þeir em byijendur
eða lengra komnir. Keppni fer fram í tvennu
lagi og fólk ræður í hvort skiptið það kem-
ur; kl. 16 eða kl. 18.30. Úrslit hefjast svo
kl. 20.30 en þangað komast fimm efstu í
hverjum flokki. I verðlaun er matur ýmiss-
konar að verðmæti 10-15 þúsundum króna
f hveijum flokki. Þátttökugjald er 1.100
krónur.
Knattspyrna
Búnaðarbankamótið í innanhússknatt-
spymu verður haldið á Selfossi í dag. Keppni
hefst kl. 10.30 með leik Selfoss og KR.
Auk þeirra taka þátt Fram, ÍA og Ægir.
Keppni stendur frá 10.30 til 14.40 er verð-
launaafhending fer fram. Leikið er eftir
reglum KSf; 5 leikmenn í hveiju liði, þar
af einn markvörður, og leiktíminn er 2x10
mínútur. Aðgangseyrir er 300 kr. fyrir full-
orðna en 16 ára og yngri frá frítt inn.
DIGRANES LOKAÐ
íþróttahúsið Digranes f Kópavogi verður
lokið um helgina, vegna bilunar í húsinu.
Öllum kappleikjum sem áttu að fara þar
fram, hefur því verið frestað, nema leik
HK og Völsungs f 2. deild karla í hand-
bolta sem verður í Kaplakrika, eins og get-
ið er um hér að ofan.
FELAGSLIF
Jólaknall Breiðabliks
Jólaknall knattspyrnudeildar
Breiðabliks verður haldið í Alþýðu-
flokkssalnum í Hamraborg í kvöld
kl. 20.30. Allir Blikar velkomnir.