Morgunblaðið - 28.11.1996, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1996 13
Samstarf fimm sveitarfélaga í Eyjafirði
Viðræðum um stofnun
hafnarsamlags að ljúka
Samið á ný
við Byggða-
stofnun
IÐNÞRÓUNARFÉLAG Eyjafjarð-
ar hf. og Atvinnuþróunarfélag
Þingeyinga hf. vinna nú að end-
urnýjun á samningi við Byggða-
stofnun um atvinnuþróun á Norð-
urlandi eystra. í samningnum, sem
gildir til þriggja ára, er gert ráð
fyrir að Byggðastofnun greiði fé-
lögunum tveimur samtals 8,7 millj-
ónir króna á ári í styrk til að sinna
atvinnuuppbyggingu á svæðinu.
Áður hafði Byggðastofnun gert
hliðstæða samninga á Austurlandi
og Suðurlandi. Upphæðin sem hér
um ræðir skiptist á milli Þingeyjar-
sýslna og Eyjafjarðar í ákveðnum
hlutföllum, þar sem m.a. koma inn
í íbúafjöldi og samgöngumál.
VIÐRÆÐUR um stofnun hafnar-
samlags fímm sveitarfélaga í Eyja-
firði, Akureyrar, Svaibarðsstrand-
ar-, Grýtubakka-, Glæsibæjar- og
Arnarneshrepps eru nú á lokastigi.
Fulltrúar sveitarfélaganna hafa
komið saman á nokkrum fundum á
árinu og á fundi í gær var gengið
frá uppkasti að stofnsamningi hafn-
arsamlagsins, sem verður á næst-
unni lagður fyrir viðkomandi sveit-
arstjórnir til samþykktar.
Markmiðið með stofnun hafnar-
samlags er að auka samvinnu þess-
ara aðila og hagkvæmni i rekstri
og uppbyggingu hafnamannvirkja á
svæðinu.
Guðmundur Sigurbjömsson,
hafnarstjóri á Akureyri, segir að
sérstaða hverrar hafnar muni njóta
sín áfram en þetta komi viðskipta-
vinum hafnanna til góða. Færsla
báta milli einstakra hafna þýði t.d.
ekki aukin útgjöld fyrir viðskipta-
vinin.
Samningurinn taki
gildi um áramót
„Ég lít þannig á málin að með
stofnun hafnarsamlags séu menn
að horfa lengra fram í tímann og
búa sig undir aukna hafnagerð á
svæðinu. Ég vonast til að drög
stofnsamningsins verði samþykkt í
sveitarfélögunum fímm og að hann
taki gildi frá og með næstu áramót-
um,“ sagði Guðmundur.
Á Grenivík er lítil fískihöfn og
smábátahafnir á Svalbarðseyri og
Hjalteyri. Akureyrarhöfn er lang-
stærsti aðilinn að hafnarsamlaginu,
með tekjur upp á rúmar 90 milljón-
ir króna á ári. Tekjur hinna hafn-
anna samanlagt eru hins vegar að-
eins um ein milljón króna á ári.
Erlend fjárfesting í matvælavinnslu
V erkefnisslj óri
kynnir Eyjafjörð
fyrir fjárfestum
Morgunblaðið/Kristján
FULLTRÚAR sjómannadagsráðs, Ásgrímur Sigurðsson formað-
ur og Árni Erlendsson ritari afhenda Guðnýju Gerði Gunnarsdótt-
ur, forstöðumanni Minjasafnsins, Atlastöngina.
Minjasafnið
fær Atlastöngina
ATLASTÖNGIN, sem sjómenn á
Akureyrartogurunum kepptu um
í hálfa öld, hefur verið afhent
forsvarsmönnum Minjasafnsins á
Akureyri til varðveislu.
Verðlaunagripurinn er kennd-
ur við vélsmiðjuna Atla sem lengi
var starfrækt á Akureyri, en for-
stjórinn Alfreð heitinn Möller
smíðaði stöngina.
Atlastöngina fengu þeir sjó-
menn sem efstir voru að stigum
eftir keppni í björgunarsundi
með jafningja, stakkasundi,
róðri, knattspyrnu og reiptogi.
Hún var fyrst afhent á sjómanna-
daginn árið 1945 en það ár hlaut
Jónas Þorsteinsson Atlastöngina,
hann fékk stöngina einnig níu
árum síðar eða árið 1954. Tveir
menn unnu fjórum sinnum, Krist-
ján Vilhelmsson hjá Samheija á
árunum 1974-1984 og Samúel
Björnsson sem gerði sér lítið fyr-
ir og vann fjögur ár í röð, frá
1991-1994.
GUÐBJÖRG Pétursdóttir, hefur
verið ráðin verkefnisstjóri í verk-
efnið Erlend fjárfesting í matvæla-
vinnslu á íslandi. Guðbjörg, sem
áður starfaði hjá Iðntæknfytofnun
í Reykjavík er ráðin til átta mán-
aða og hefur hún þegar tekið til
starfa. Hlutverk hennar er m.a.
að ljúka vinnu við gerð kynningar-
efnis og kynna Eyjafjarðarsvæðið
á meðal þeirra sem eru í fjárfest-
ingarhugleiðingum í matvæla-
vinnslu, ásamt erlendu ráðgjafar-
fyrirtæki.
Kynningarverkefni
í rúmt ár
Héraðsnefnd Eyjafjarðar, Iðn-
þróunarfélag Eyjafjarðar hf. og
Atvinnumálaskrifstofa Akureyrar,
gerðu fyrr á árinu samstarfssamn-
ing við Fjárfestingaskrifstofu ís-
lands, um að unnið verði að kynn-
ingu Eyjafjarðarsvæðisins meðal
erlendra fjárfesta sem valkosts
vegna fjárfestinga í matvælaiðn-
aði. Áætlað er að verkefnið standi
yfir í rúmt ár og að kostnaður
verði 12 milljónir króna.
í verkefninu felst m.a. að kynna
fyrir sérvöldum hópi fyrirtækja í
matvælaframleiðslu möguleika til
að fjárfesta í vinnslu matvæla á
öllum sviðum matvælaframleiðslu,
með áherslu á notkun þess hráefn-
is og þekkingar sem til staðar er.
Markmiðið með verkefninu er að
freista þess að auka erlenda fjár-
festingu á íslandi á þessu sviði en
einnig mun hluti vinnunnar nýtast
sem undirbúningur undir kynningu
Eyjafjarðarsvæðisins vegna ann-
ars konar atvinnurekstrar.
Veltan á svæðinu
20 milljarðar á ári
Eyjafjörður er þekkt matvæla-
vinnslusvæði og þar starfa nokkur
stærstu matvælaframleiðslufyrir-
tæki landsins. Velta greinarinnar
hefur farið vaxandi og er heildar-
velta matvælaiðnaðarins á svæð-
inu upp undir 20 milljarðar króna
á ári.
Morgunblaðið/Kristján
Nýjungar hjá
Kjötiðnaðar-
stöð KEA
HJÁ Kjötiðnaðarstöð KEA er stöð-
ugt unnið að nýjungum og nú hefur
KEA sett á markað appelsínugrat-
inerað lambalæri. Einnig hefur KEA
sett á markað tilbúnar kjötbollur í
súrsætri sósu. Réttinn þarf aðeins
að hita og er hann tilbúinn á fimm
mínútum. Slíkir réttir, handhægir
og fljótlegir, njóta sífellt mpiri vin-
sælda i nútíma þjóðfélagi. Á mynd-
inni er Elís Árnason, sölustjóri Kjöt-
iðnaðarstöðvar KEA, með appels-
ínugratinerað lambalæri.
Almennur áhugi á Norrænu lestrarkeppninni í Glerárskóla
Nemendur
lásu nær
250 þúsund
síður
SÝNING á veggspjöldum sem
nemendur í Glerárskóla gerðu í
Norrænu lestrarkeppninni sem
stóð yfir frá 4. til 17. nóvember
síðastliðinn stendur nú yfir í skól-
anum. Alls lásu nemendur skólans
sem eru í 1. til 10. bekk 247.495
blaðsíður í keppninni eða 503
blaðsíður á mann að meðaltali.
Krakkarnir í 6. bekk 18. stofu
voru duglegastir að lesa en þeir
lásu 33.500 blaðsíður samtals.
íslenskar og sænskar bækur
vinsælastar
Helga Thorlacius skólasafns-
kennari segir að á óvart hafi
komið hversu duglegir krakkarn-
ir í unglingadeildunum hafi verið,
en tilhneigingin sé sú að yfirleitt
dragi heldur úr lestri þegar á
unglingsaldurinn kemur. Það var
mikið að gera á bókasafninu
Morgunblaðio/Knstján
ÞÆR eru í 6. bekk 18. stofu í Glerárskóla, bekknum sem átti
lestrarmetið í skólanum. I neðri röð eru frá vinstri María, Stella,
Freyja og Aníka, en í þeirri efri Lína, Kristín, Ásrún og Regína.
meðan á lestrarkeppninni stóð,
stöðug útlán og þurfti jafnvel að
fá aðstoð nemenda skólans til að
afgreiðslan gengi hraðar fyrir
sig. Mikið var tekið af íslenskum
bókum en þær sænsku voru líka
vinsælar.
„Við erum ánægð með hversu
þátttakan var góð og það er
greinilegt að áhuginn á lestri
hefur aukist því börnin halda
áfram að koma á safnið til að fá
bækur þó svo að keppnin sjálf sé
búin,“ segir Helga.
V eitingarekstur
íHlíðarfjalli
Rætt við
Norð-
lenskt
framtak
ÍÞRÓTTA- og tómstundaráð
hefur samþykkt að hefja við-
ræður við Norðlenskt framtak
vegna veitingareksturs í
Skíðastöðum í Hlíðarfjalli.
Ákveðið var í haust að bjóða
reksturinn út, en Akureyrar-
bær hefur fram til þessa haft
hann með höndum.
Auk tilboðsins frá Norð-
lensku framtaki, sem sér m.a.
um rekstur Pizza 67 á Akur-
eyri, barst tilboð frá Haraldi
Erni Hannessyni. Þórður Guð-
björnsson hjá Akureyrarbæ
sagði að í tilboði Norðlensks
framtaks væri gert ráð fyrir
meiri starfsemi, þ.e. að Skíða-
staðir yrðu opnir allt árið en
ekki bara nokkra mánuði eins
og verið hefur. Uppbygging
svæðisins sé því m.a. höfð að
leiðarljósi.
Bæjarráð mun fjalla um
tilboðin á fundi sínum í dag,
en gert er ráð fyrir að rekstur-
inn verið leigður út frá ára-
mótum.
Deildarstjóri
atvinnudeildar
Sex sækja
um stöðuna
SEX umsóknir bárust um
stöðu deildarstjóra atvinnu-
deildar Akureyrarbæjar, en
deildin mun hefja starfsemi
um næstu áramót.
Þeir sem sóttu um eru
Berglind Hallgrímsdóttir,
Kristján Jósteinsson, Rögn-
valdur R. Símonarson, Stefán
Hallgrímsson, Vignir Þór
Jónsson og Vilborg Oddsdótt-
ir. Félagsmálaráð mun fjalla
um umsóknirnar á fundi sín-
um næstkomandi mánudag,
2. desember.
Deildarstjóri atvinnudeild-
ar mun bera ábyrgð á þjón-
ustu við atvinnulausa, s.s.
atvinnuleysisskráningu, ráð-
gjöf, átaksverkefnum og at-
vinnuleit fyrir fatlaða og aðra
auk þess að sjá um rekstur
hæfingastöðvar, verndaðs
vinnustaðar og endurhæfing-
ar- og starfsþjálfunarvinnu-
staðar.
Fimm
kærðir fyrir
búðarhnupl
FIMM manns voru kærðir
fyrir búðarhnupl í verslun
Hagkaups á Akureyri í vik-
unni. Þeir sem voru kærðir
voru með varning á sér fyrir
allt frá nokkur hundruð krón-
um og upp í átta þúsund krón-
ur. Samkvæmt upplýsingum
frá rannsóknardeild lögregl-
unnar á Akureyri er ekki mik-
ið um að búðarhnupl sé kært
til lögreglu, en ljóst að um
leið og slíkt eykst er gripið
til harðari aðgerða.