Morgunblaðið - 28.11.1996, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1996 49
FERÐ LAGANEMA TIL LANDSINS HELGA
KARLAR í teningaspili á ströndinni í Tel Aviv.
Testamentinu (Jesajabók 56:5) en
þar segir Guð eftirfarandi um þá,
sem sviptir hafa verið möguleikan-
um á því að eignast afkomendur:
„þeim vil ég gefa minningarmark
og nafn í húsi mínu og á múrveggj-
um mínum, sem er betra en synir
og dætur; eilíft nafn vil ég gefa
þeim, það er aldrei mun afmáð
verða.“ Yad Vashem er mesta
„minningarmark" í ísrael um hel-
förina.
í safninu er m.a. varðveitt skrá
með nöfnum 3,5 milljóna gyðinga
sem voru myrt í seinni heimsstyij-
öldinni. Nöfn annarra vantar þar
sem heilu samfélögunum var eytt
og þannig ógerlegt að hafa upp á
nöfnum þeirra.
Stígurinn, sem við gengum eftir
og liggur að safninu, nefnist „Stíg-
ur hinna réttlátu meðal þjóðanna“.
Meðfram stignum hafa alls 6.000
tré verið gróðursett. Hver einasta
tijáplanta er merkt nafni manns
eða konu, sem ekki var gyðingatrú-
ar, en lagði líf sitt í hættu til þess
að bjarga gyðingum í stríðinu. Eitt
tréð er t.d. merkt sænska stjórnar-
sendimanninum Raoul Wallenberg,
sem skaut skjólshúsi yfir 13.000
gyðinga í Ungveijalandi og bjarg-
aði þannig lífi þeirra. Hvert tré sem
við gengum framhjá var því lifandi
minningarmark og að baki hveiju
tré, ólík saga um hugrekki og
hetjudáð þessara mannvina og vel-
unnara gyðinga.
Þegar við komum að safnbygg-
ingunni þurftum við að bíða aðeins,
því safnið er greinilega mikið sótt
og fólki er aðeins hleypt inn í hóp-
um, til þess að hver fái næði til
þess að meðtaka það sem fyrir augu
ber. Áður en safnið sjálft var skoð-
að gafst okkur því góður tími til
að virða fyrir okkur frægt abstrakt
állistaverk á svörtum grunni eftir
ísraelska listamanninn Naftali Bez-
em (f.1924). Listaverk Bezem sem
prýðir anddyri Yad Vashem er í
fjórum hlutum. Fyrsti hluti verksins
lýsir helförinni, annar andspyrn-
unni, sá þriðji heimför eftirlifenda
til ísrael og fjórði og síðasti hlutinn
stofnun ísraelska ríkisins.
Við gengum stuttu síðar í gegn-
um aðalsafnið, þar sem helförinni
er lýst í máli og myndum. Alls stað-
ar blasti við andsemítískur áróður
nasista og frásagnir eftirlifenda um
ólýsanleg grimmdarverk.
Einn eftirminnilegasti hluti Yad-
Vashem safnsins er skálinn sem
reistur var til minningar um 1,5
milljónir gyðingabarna og ung-
menna sem myrt voru í seinni
heimsstyijöldinni. Við gengum nið-
ur í myrkvaðan skála þar sem spegl-
ar og gler endurvarpa ljósi 4-5 kerta
og gera þau að þúsundum minning-
arljósa. Rödd heyrist sem stanslaust
les upp nöfn, aldur og heimkynni
barnanna. Skálinn var fyrst opnað-
ur 1987 og er nýjasta viðbót við
Yad Vashem.
Eftir dvölina í Yad Vashem þáð-
um við hressingu hjá Birni Bjarna-
syni, menntamálaráðherra, sem
staddur var í Jerúsalem á fundi
menntamálaráðherra. Að lokum
héldum við áleiðis til Tel Aviv og
skáluðum þar, langt frany eftir
nóttu fyrir lífinu eða eins og ísrael-
ar segja: „Lachæm!"
Herréttur
ísrael er mikið hernaðarþjóðfé-
lag. ísraelsher (Zahal - IDF eða
Israeli Defensive Forces) var mynd-
aður árið 1948. Hlutverk hans hef-
ir frá upphafi verið að gæta örygg-
is Israels, einkum fyrir árásum frá
arabaríkjunum kringum ísrael.
Vegna fámennis (í ísrael búa ein-
ungis um 4 milljónir manna) hvílir
herskylda á öllum vopnfærum íbú-
um landsins. Allir ísraelskir karl-
menn á aldrinum 18-29 ára verða
að gegna herþjónustu í 3 ár og
vera í varaliði Israelshers til 59 ára
aldurs og eins verða allar 18-29 ára
ógiftar konur að gegna herþjónustu
í 2 ár og vera í varaliðinu til 39
ára aldurs. Þrátt fyrir að Israelsher
hafi verið fámennari en herir þeir
sem ráðist hafa á ísrael í gegnum
tíðina, þá hafa stríðin unnist vegna
þess hversu vel þjálfaður ísraelsher
er, skipulagning er mikil, og eins
vegna þess hversu vel vopnum bú-
inn ísraelsher hefir verið.
Laganemarnir sem hýstu okkur
höfðu nær undantekningarlaust
lokið 2-3 ára herskyldu og gegnt
margvíslegum stöðum innan hers-
ins. Sögðu þeir margar sögur af
ströngum aga hersins, en svo virt-
ist samt sem veran þar hefði mark-
að þá á jákvæðan máta. T.d. voru
flestir hýslarnir okkar stundvísari
og árrisulli en við.
Fimmtudaginn 11. janúar áttum
við þess kost að heimsækja her-
dómstól í Tel Aviv. Á móti okkur
tók háttsettur maður innan Ísra-
elshers, hr. Aaron Schlein. Hann
hélt fyrirlestur um herdómstólinn
og tók síðan við fyrirspurnum okk-
ar.
Herdómstóllinn í Tel Aviv er einn
af átta starfandi herdómstólum í
ísrael. Þar er dæmt í málum
óbreyttra hermanna sem og herfor-
ingja allt upp í stöðu majóra. Dæmt
er í málum er varða brot á umferð-
ar- og herlögum. Umferðarlagabrot
eru algengasti málaflokkurinn og í
slíkum málum situr aðeins einn
dómari, sem getur dæmt hermenn
í allt að eins árs fangelsi. í málum
sem varða brot á herlögum sitja 3
dómarar, einn lögfræðimenntaður
aðili, skipaður ad hoc og tveir menn
úr hernum. Viðurlög við brotunum
eru margvísleg eftir eðli þeirra og
eru þau allt frá viðvörunum og
banni við að yfirgefa herbúðir að
stöðulækkunum innan hersins og
brottrekstri úr hernum. Herdóm-
stólar í ísrael geta ekki dæmt her-
menn til dauða - í slíkum málum
dæmir Hæstiréttur.
Aðspurður hvernig tekið væri á
málum manna, sem neituðu að
gegna herþjónustu, t.d. vegna trú-
arskoðana sinna eða vegna þess
að viðkomandi væru friðarsinnar,
þá svaraði Schlein því svo til að
hann myndi ekki eftir neinu máli
varðandi friðarsinna því flestir
ísraelar væru sér meðvitaðir um
mikilvægi þess að veija ísrael.
Hins vegar þyrftu t.d. strangtrúað-
ir gyðingar ekki að gegna herþjón-
ustu.
Höfundur er lögfræðingur.
Jó^astödin Heimsljós
býður upp á opna tíma í jóga og
umbreytingardansi sem hér segir:
Mán. Þri. Mið. Fim. Fös. Lau.
06.55-07.55 Jón Agúst Jón Agúst Jón Agúst
07.30-08.30 Aslaug Aslaug Ymsir
10.30-11.45 Hulda Hulda Ymsir
12.15-13.15 Anna Guðfinna Jón Agúst Guðfinna Ingibjörg
16.30-17.45 Guðfinna Jenný Nanna/dans Jenný
18.00-19.30 Ingibjörg Jón Agúst Ingibjörg Jón Agúst Guófinna
20.00-22.00 Námskeið Námskeið Námskeið Námskeió Dans/ýmsir >ÖGA A ,
dógastöðin Heimsljós
Ármúla 15,sími 588 4200
IÓGASTÖDIN
HEIMSLJÓS
öUBarion
eykjavíkurvegi 64 • Hafnarfirði • Sími 565 1147
Ný sending
fró
Líéra
Buxna- og pilsdragtir,
kjólar og blússur.
Frakkar meö lausu skinni
á kraga og húfur í stO.
Átilbóöi;
Peysur, dragtir, blússur,
buxur og blazer jakkar
með 30% afslœtti.
Opið á laugardögum
frá kl. 10.00-16.00.
ESIA
JÓLAHLAÐBORD
Frá 29. nóvember til 23. desember
bjódum við okkar ljúffenga
jólahlaðborð.
Verð kr. 1490.- í hádeginu
og 2290 - á kvöldin.
Pantið tímanlega í síma 568-9566
Munið skötuhlaðborðið
í hádeginu á Þorláksmessu.
HÓTEL ESJA
ICELANDAIR HOTELS
Matargestir eru sjálfkrafa þátttakendur
í ferðahappdrætti.