Morgunblaðið - 28.11.1996, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRVERINU
LÁRA Emilsdóttir, starfsmaður á skrifstofu Fiskmarkaðarins
í Eyjum, hjá steinbítsrisanum.
Uppstoppaður
steinbítsrisi
Vestmannaeyjum. Morgunblaðið.
STEINBÍTSRISINN sem Góa VE
fékk í netin við Mannklakk aust-
ur af Vestmannaeyjum 1. mars á
þessu ári og sleginn var Fisk-
markaði Vestmannaeyja á upp-
boði hjá markaðnum hefur nú
verið stoppaður upp og prýðir
vegg í uppboðssal markaðarins.
Steinbíturinn, sem er sá stærsti
sem veiðst hefur hér við land,
var 124,5 sentimetra langur og
vóg 15,5 kíló, slægður, og er tal-
ið að hann hafi verið 25 til 30
ára gamall. Steinbiturinn var
nálægt því að vera sá stærsti sem
veiðst hefur í heiminum, því sá
stærsti sem veiðst hefur var 125
sentimetrar á lengd.
Páll Rúnar Pálsson, fram-
kvæmdastjóri fiskmarkaðarins,
sagði að Jón Guðmundsson hefði
stoppað steinbítinn upp fyrir
markaðinn og var hann ákaflega
ánægður með vinnu Jóns. Hann
sagði að steinbíturinn myndi
prýða vegginn í uppboðssal
markaðarins fyrst um sinn en
ákveðið væri að í framtíðinni
yrði hann gefinn til Náttúru-
gripasafnsins í Vestmannaeyjum
til að sem flestir gætu fengið að
sjá þennan risa.
Ný skipavog frá
Póls á markaðinn
PÓLS hefur nýlega sett á markað
minnstu skipavog, sem framleidd
hefur verið, en fyrirtækið hefur um
áraraðir verið framarlega í hönnun
og framleiðslu á vogum fyrir fisk-
vinnslu. Um er að ræða nýja gerð
af vog, sem upphaflega var hönnuð
fyrir rannsóknaskip en er mun fjöl-
hæfari, með fleiri eiginleikum, not-
endavænni skjá og er algerlega
vatnsheld.
Hörður Ingólfsson, markaðsstjóri
Póls, segir að fljótlega eftir að eldri
gerðin kom á markaðinn hafí önnur
skip óskað eftir að fá að nota hana
en því hafi fylgt mun meiri vatns-
elgur og álag. „Vogin hefur til
dæmis verið vinsæl um borð í síldar-
skipum þar sem menn þurfa að
taka 100 stykkja prufu og skila
skýrslu um þyngdardreifíngu síld-
arinnar sem gefur mikilvægar upp-
lýsingar um aflann. Þessar upplýs-
ingar geta skipt miklu máli þegar
ákveðið er hvað gera eigi við farm-
inn,“ segir Hörður.
Ný tegund gátvogar
Ennfremur kynnir Póls nýja teg-
und sjálfvalsvélar eða gátvogar sem
tekur of léttar eða þungar einingar
úr umferð. Hörður segir að þessi
gerð sjálfvalsvélarinnar hafí aldrei
verið seld á íslandi. „Við höfum
selt slíkar vélar til Noregs og Hol-
lands og vélin vakti mikla athugli
á íslensku sjávarútvegsýningunni á
dögunum.
Þá er einnig komin á markað ný
gerð flæðivogar fyrir land- og sjó-
vinnslu frá Póls. Flæðivogin vigtar
sleitulaust flæði á færibandi af mik-
illi nákvæmni. Hörður segir að sí-
fellt komi fram fleiri kröfur um
gæði og tækni flæðivoga og nú
hafi Póls tekist að hanna vog sem
eigi að endast árum saman án við-
halds.
Islenskra útgerðaraðila
óskað til Suður-Ameríku
ÍSLENSKUM útgerðaraðilum
stendur nú til boða samstarf um
rækju- og bolfiskveiðar og vinnslu
í Guyana og Surinam í Suður-
Ameríku. Fyrirtækin Noble House
Seafoods í Guyana og Guyana Sea-
foods í Surinam eru tvö blómlega
rekin fyrirtæki á sviði rækjuveiða
og vinnslu auk vinnslu meðafla sem
er aðallega sjóbleikja. Rækjan er
eingöngu seld ósoðin en pilluð og
stærðarflokkuð á Bandaríkjamark-
að, en sjóbleikjan, sem er flökuð
og fryst, fer til annarra landa.
Hagnaður af rekstri á síðasta ári
nam 1,5 milljónum bandaríkjadala
að frádregnum sköttum, en hagnað-
urinn er áætlaður yfir tvær milljón-
ir bandaríkjadala á yfirstandandi
ári, að sögn Arnars Sigurðssonar,
fulltrúa fyrirtækjanna hérlendis.
Hvor verksmiðja um sig vinnur
að meðaltali um 3.000 tonn af
rækju á ári og 800 tonn af sjó-
bleikju. NHS er með núverandi
framleiðslulínur í leiguhúsnæði og
er óvíst hvort eða hvenær því verð-
ur sagt upp. Pillunarvélar eru af
gerðinni Laitram og eru nýuppgerð-
ar af framleiðanda og viðhaldið
undir þjónustusamningi. Guyana
Seafood er í nýju húsnæði, sem
verið er að leggja lokahönd á, og
eru allar vélar og tæki sem ný.
Samtals eiga fyrirtækin fímmtán
togbáta, 55-65 feta, sem komnir
eru nokkuð til ára sinna. Meðalafli
úr 10-12 daga veiðiferð er um átta
til tíu tonn.
Veitt með tveimur trollum
Veitt er með tveimur 55 feta trollum
í einu. Fjárfest hefur verið í einum
nýjum trefjaplastbát og síðan í
framhaldi af því byggingarmótum
fyrir sama skrokk og er ætlunin
Tækifæri í rækju-
veiðum við Guy-
ana og Surinam
að hefja framleiðslu á um 35 bátum
til endumýjunar eigin flota sem og
til endursölu til annarra útgerðarað-
ila sem einnig eru að horfa til end-
urnýjunar á sínum bátum. Áætlað
kostnaðarverð á 55 feta rækjubát-
um af einfaldri gerð er um 150
þúsund bandaríkjadalir.
Að sögn Arnars er hægt að end-
urbæta verulega þau veiðarfæri,
sem nú eru í notkun um borð og
má ef til vill I því horfa til reynslu
Þormóðs ramma í Mexíkó. Einnig
mætti auka skilvirkni veiða með
uppsetningu og þjálfun á GPS-stað-
setningarbúnaði og dýptarmælum.
Ný verksmiðja í Guyana
„Verulegir möguleikar eru á auk-
inni framleiðslu með tilkomu nýrrar
verksmiðju í Guyana með kaupum
á rækju frá sjálfstæðum bátum,
sem aðallega leggja upp afla hjá
samkeppnisaðilanum BEV. Skortur
er á ís, leguplássi og viðgerðarþjón-
ustu til útgerðaraðila sem verður
ekki til staðar með tilkomu nýju
verksmiðjunnar. Bættri meðferð
afla er mjög auðvelt að koma við
með notkun einangraðra fískikara,
sem draga myndi stórlega úr brot-
inni rækju sem og tryggja betri
meðferð og kælingu allra afurða,
sem koma á land,“ segir Arnar.
Samkvæmt skýrslu, sem FAO
hefur gert á svæðinu, fyrirfinnst
rækja einnig á dýpri sjó utan 20
faðma línunnar og allt niður í 120
faðma þar sem veiðst hefur svoköll-
uð „Scarlet“-rækja, sem er af
stærðargráðunni 19-33 cm, en þeir
bátar, sem til eru, hafa ekki burði
til að veiða svo djúpt. Til að reyna
þennan þátt, er nú leitað samstarfs
við útgerðaraðila á íslandi um að
senda skip til veiða á öllu hafsvæð-
inu, frá 12 til 120 faðma dýpis, og
er tilgangurinn tvíþættur; annars
vegar að fá staðfest hvort skuttog-
arar hafi yfirburði yfír núverandi
togbáta og hinsvegar að kanna ný
mið. í slíkum samningi er í raun
allt opið varðandi kostnaðarskipt-
ingu, tilraunatíma og ráðstöfun
afla.
Leyfi fyrir 35 togbáta á
grunnsævi
Arnar segir að eigandi fyrirtækj-
anna tveggja, Timur Mohamed, sé
mjög áhugasamur um að bæta við
vinnsludeild, sem myndi annaðhvort
sjóða og raspa og/eða neytenda-
pakka. I því sambandi væri hús-
næði til staðar, en um hönnun og
breytingar þyrfti að afla frekari
þekkingar og jafnvel samstarfs hjá
aðila í tengdum rekstri.
„Rækjumiðin liggja milli lögsögu
beggja ríkja og hafa fyrirtækin tvö
alls leyfí fyrir 35 togbáta til veiða
á grunnsævi, en ótakmörkuð leyfí
eru til veiða í dýpri sjó, hvort sem
er á rækju eða bolfiski. Ekkert verð
er sett upp fyrir veiðiréttindi og
engar magntakmarkanir eru fyrir
hendi,“ segir Arnar, sem að lokum
bætti við að Timur Mohamed væri
maður, sem ynni hratt en varfærn-
islega. „Eins og sönnum athafna-
manni sæmir, vill hann hrinda þess-
ari hugmynd í framkvæmd sem
fýrst, en semja má um ákveðinn
tilraunatíma og viljayfírlýsingu um
framhaldið.*1
Góð veiði á
Húnaflóa
GÓÐ veiði hefur verið á Húna-
flóa að undanförnu. Bátarnir
hafa verið að fiska vel á línuna
og fengið bæði góðan þorsk og
ýsu. Þeir Guðmundur Guð-
mundsson og Hilmar Hermanns-
son á Kristbjögu ST 6 fengu um
daginn um 3,5 tonn af góðum
fiski á 15 bala eða rúmlega 200
kíló á bala. Þeir þakka þennan
góða afla aukinni friðun fyrir
Norðurlandi.
Þeir félagar landa aflanum á
fiskmarkaðnum á Hólmavík og
hefur verið mikið annríki við
að gera að aflanum og ganga
frá honum til sölu.
Morgunblaðaið/Birgir Þórbjarnarson
Góður
í samanburði
Samanburðurinn hjálpar þér að velja rétt
4 3 dyra bílar HYUNDAI VW TOYOTA OPEL NISSAN
Accent LS» GolfCl Corolla XLi Astra GL Almera LX
Rúmtak vélar sm2 1341 1398 1330 1389 1392
Hestöfl 84 60 75 60 87
Lengd 4103 4020 4095 4051 4120
Breidd 1620 1696 1685 1691 1690
Vökva- og veltistýri J J J J J
Utvarp + segulb. J J N J/N J
VERÐ 979.000 1.220.000 1.164.000 1.199.000 1.248.000
3 dyra LSi. Verðfrá
EjE
979.
HYunnni
til framliöar
Neqld vetrardekk fylqja öllum Accent bílum.