Morgunblaðið - 28.11.1996, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1996 67
S
I
I
)
I
I
1
I
I
'
í
l
.
I
I
í
í
i
http://www.islandia. ís/sambioin
GULLGRAFARARNIR
AÐDAANDINN
Christina Ricci
Anna Chlumsk\
Nú er tækifærið!
Sýnd í A-sal á öllum sýningum næstu 9 dagaJ
Verður Djöflaeyjan vinsælasta mynd ársins?
DAUÐASOK
Far- eða Gullkortshafar VISA og Námu- og Gengismeðlimir Landsbanka lá 25%
Gildir fyrir tvo.
KÖRFUBOLTAHETJAN
is Daniel Slern and Dan
Aykroyd
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.15 ÍTUX DIGITAL B.i. 12.
SAMBÍÓ
Stórskemmtileg
ævintýramynd um
tvær stúlkur á
ferðalagi i leit að
horfnum fjársjóði. I
aðalhlutverkum eru
þær Christina Ricci
(Adams Family,
Casper) og Anna
Chlumsky ( My Girl).
SANDRA BULLOCK SAMUELI.. .IACKS0N
MATTHKW MCCONAUGHEY KEVIN SPACY
„Myndin er byggð á sterkri sögu sem gott handrit
hefur verið gert eftir og hún er mjög vel leikin."
★★★ A.l. Mbl
„Mynd sem vekur umtal." ATTMF
Splunkuný stórmynd frá leikstjóranum Tony
Scott (Crimson Tide, True Romance, Top
Gun). Róbert DeNiro fer hreinlega á kostum í
magnaðri túlkun sinni á geðveikum
aðdáanda sem tekur ástfóstri við skærustu
stjörnuna í boltanum. Spennan er nánast
óbærileg og hárin rísa á áhorfendum á
þessari sannkölluðu þrumu!!! Aðalhlutverk:
Róbert DeNiro, Wesley Snipes, Ellen Barkin,
Benecio Del Toro og John Leguizamo.
Axel Axelsson FM 95,7
Ómar Friðleifsson X-ið
Kii Ebn Kíi Fffi Bii Kfi Bati Eaii
Boðið upp í línudans
SNÖRURNAR: Erna Þórarinsdóttir, Eva Asrún
Albertsdóttir og Guðrún Gunnarsdóttir.
TONLIST
Gcisladiskur
SNÖRURNAR
Geislaplata með söng Guðrúnar
Gunnarsdóttur, Evu Ásrúnar Al-
bertsdóttur og Ernu Þórarinsdótt-
ur- Gestasöngvari í einu lagi: Pálmi
Gunnarsson. mjóðfæraleikarar:
Gunnlaugur Briem trommur, slag-
verk. Guðmundur Pétursson gítar.
Jóhann Ásmundsson bassi. Óskar
Einarsson hljómborð, pianó og
niddir. Daniel K. Cassidy fiðla.
Utsetningar og upptökustjóm:
Óskar Einarsson. Upptaka og
hljóðblöndun: Ari Dan. Útgefandi:
MIFA. Dreifíng: Japis. 49:02 mín.
LINUDANS nýtur nú sívaxandi
vinsælda hér á landi, en sú fót-
mennt er ættuð frá Bandaríkjum
Norður-Ameríku og er dansinn
gjarnan stiginn við þarlenda kú-
rekatónlist. Nýr geisladiskur frá
söngkonunum Guðrúnu Gunnars-
dóttur, Evu Ásrúnu Albertsdóttur
°S Emu Þórarinsdóttur, sem hér
koma fram undir nafninu Snörurn-
ar, er greinilega stílaður á þennan
markað og sem slíkur hittir hann
áreiðanlega í mark.
Hér er um að ræða einfalda og
léttleikandi kúrekatónlist og flest
laganna bandarísk með íslenskum
textum eftir ýmsa valinkunna höf-
unda. Strax í fyrsta Iaginu Óveður
hlýtur að fara fiðringur um tær
fótnettra línudansara og jafnvel
fótafúnir jálkar gætu átt það til
að fara á stjá, slík er hrynjandin
og taktslátturinn. Það ættu líka
allir að geta verið með því að á
textablaði er uppskrift að einföld-
um línudansi. Með öðmm orðum:
Upp með kúrekastígvélin og allir
út á gólf!
Kosturinn við þessa plötu er að
hún er vel gerð í öllum sínum ein-
faldleika. Hljómlistarmennirnir
skila sínu með prýði, en samt fær
maður það á tilfinninguna að þeim
hafi kannski oft liðið betur í öðrum
stellingum. Eins finnst mér að
hljómurinn á plötunni hefði mátt
vera aðeins þéttari og „kántrí-
legri“. Þær stöllur, Snörurnar, fara
hins vegar létt með að túlka laglín-
urnar, enda hafa þær allar mikla
reynsíu og oft fengist við flóknari
og erfiðari söng.
Það er út í hött að gera upp á
milli laganna á þessari plötu. Það
væri álíka fáránlegt og rökræður
um hvort bítlalagið sé betra Help
eða A Hard Days Night. Lögin em
líka flest gamalkunnug bandarísk
kántrílög, nema eitt, Lífíð er svo
stutt, sem er eftir Magnús Eiríks-
son. Þetta er vissulega ekki besta
lag sem Magnús hefur samið, en
hann sýnir þó hér að hann fer létt
með að hrista eitt stykki kántrílag
fram úr erminni, ekki síður en strák-
amir í Nashville og Memphis. Pálmi
Gunnarsson syngur sem gesta-
söngvari í einu laganna og þótt
hann syngi vel að vanda finnst mér
lagið koma dálítið „eins og skrattinn
úr sauðarleggnum" og á skjön við
heildaryfirbragð plötunnar.
Um þessa plötu þarf í sjálfu sér
ekki að hafa fleiri orð. Þetta er
létt og leikandi sveifla sem ætti
ekki að skaða neinn. Með réttu
hugarfari má þvert á móti hafa af
henni gaman og, fyrir línudansara,
talsvert gagn.
Sveinn Guðjónsson
lAMs
114 M 1.4
FRUMSÝNING: SAGA AF MOÐINGJA
| PIGITAL [
OLTVERSTONT PRESCNflfS
ROBERT SEAN
LEONARD
KI L L E R
A JDURNAL OF MURDER
Úr smiðju meistara Oliver Stone kemur hér ein
umdeildasta kvikmynd ársins. James Woods (Salvador)
sýnir magnaðan leik ásamt Robert Sean Leonard (Dead
Poet's Society) í mynd sem byggð er á dagbókarbrotum
eins skæðast fjöldamorðingja í sögu Bandaríkjanna. Eru
einhver takmörk fyrir grimmd einnar manneskju? Elur
refsikerfið af sér skrýmsli í mannsmynd?
Umdeild kvikmynd sem vekur fólk til umhugsunar
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Stranglega bönnuð innan sextán ára
KtiKíi Kii Kn Kii Kii
Afmælishátíð í Skálholti
JÓNAS Gíslason, fyrrverandi vígslu-
oiskup Skálholtsstiftis, hélt upp á
sjötugsafmæli sitt um síðustu helgi
á sérstakri afmælishátíð í Skálholts-
kirkju að viðstöddum fjölda vina og
vandamanna. Jónas var kjörinn
vigslubiskup árið 1989 og flutti í
Skálholt skömmu síðar en þá hafði
ekki setið biskup þar í nær tvö hundr-
uð ár. Á hátíðinni kom fram fjöldi
tóniistarmanna, þar af tveir kórar
°g meðal annars var flutt kantata
við texta séra Jónasar. Góður rómur
var gerður að flutningnum. Eftir
kirkjuathöfnina þáðu gestir veitingar
í boði afmælisbarnsins í Oddstofu
þar sem margir tóku til máls og fluttu
Jónasi kveðjur.
JÓNAS Gíslason og eiginkona
hans, frú Arnfríður Arn-
mundsdóttir.
KÓR Menntaskólans á Laugarvatni og Barnakór Biskupstungna sungu á tónleikunum í Skálholti.