Morgunblaðið - 28.11.1996, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
LAIMDIÐ
FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1996 15
Flutningur Landmælinga Islands til Akraness
Kostnaður 16-20
BEINN kostnaður ríkisins af flutn-
ingi Landmælinga íslands er áætl-
aður um 16-20 milljónir kr. sam-
kvæmt mati umhverfisráðuneytis-
ins og Framkvæmdasýslu ríkisins.
Þetta kemur fram í skriflegu svari
Guðmundar Bjarnasonar umhverf-
isráðherra við fyrirspurn alþingis-
mannanna Ögmundar Jónassonar
og Kristins H. Gunnarssonar, sem
dreift var til þingmanna í vikunni.
Að mati ráðherra á kostnaður
við rekstur Landmælinga íslands
ekki að vera hærri eftir flutninginn
en fyrir, en samkvæmt fyrirliggj-
andi fjárlagafrumvarpi kostar hann
um 70 millj. kr. Húsnæðið á Akra-
nesi, sem fyrirséð er að hýsi stofn-
unina, er minna en það sem hún
hefur nú til ráðstöfunar og er því
gert ráð fyrir að húsaleigukostnað-
ur hennar muni lækka um 2,8 millj.
kr. á ári við flutninginn.
Hvað starfsmenn stofnunarinnar
varðar, er gert ráð fyrir að kjósi
einhveijir þeirra að halda ekki
áfram störfum hjá henni eftir flutn-
inginn muni það hafa viðbótar-
kostnað í för með sér og röskun á
starfsemi stofnunarinnar. Starfs-
milljónir
menn þurfa að gera upp hug sinn
um áframhaldandi störf hjá stofn-
uninni fyrir 1. janúar 1998.
Ögmundur Jónasson segir vilja
starfsfólks Landmælinga hafa kom-
ið skýrt fram, um að það hyggist
ekki flytja með stofnuninni, og það
sé því alveg ljóst að kostnaðurinn
af þeim völdum muni verða mikill.
Ögmundur bendir einnig á, að ýms-
ir sem nota þjónustu Landmælinga,
hafi lýst því yfir að þeir verði fyrir
óhagræði við flutning stofnunarinn-
ar. Hvetur Ögmundur ráðherra því
til að endurmeta ákvörðun sína.
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
FRA uppsetningu nemenda í Laugabakkaskóla af sögunni um Gretti.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
NÝ stjórn Menningarfélags Brydebúðar. F.v. Guðrún Sigurðar-
dóttir, Edith Ragnarsson, Sveinn Pálsson, formaður, Anna
Björnsdóttir. Fjarverandi var Þorsteinn Baldursson.
SVEINN Pálsson og Helga Þorbergsdóttir varaoddviti.
Menningarfélag í Vík
Uppbygging og rekst-
ur Brydebúðar
Fagradal - Nýverið var stofnað fé-
lag til að eignast Brydebúð í Vík í
Mýrdal, endurbyggja húsið í gamalli
mynd og varðveita það þannig ásamt
því að reka þar starfsemi er tengist
menningu og sögu héraðsins. Mýr-
dalshreppur átti húsið en afhenti
Menningarfélaginu það til eignar við
stofnun félagsins.
101 ár er liðið frá því að Pétur
Bryde keypti og flutti húsið til Víkur
frá Vestmannaeyjum og hóf þar
verslunarrekstur og er húsið eitt af
elstu húsunum á Suðurlandi. Þar var
áratugum saman rekin sölubúð
Kaupfélags Skaftfellinga.
Á fundinum var kosin 5 manna
stjórn sem var falið að koma sam-
þykktum félagsins í verk en félags-
skapurinn nýtur dyggrar aðstoðar
Þórðar Tómassonar, safnvarðar í
Skógum.
Árshátíð
Laugabakkaskóla
Grettir í
leik o g söng
Hvammstanga - Árshátíð Lauga-
bakkaskóla í Miðfirði var haidin
föstudaginn 22. nóvember. Þema
hátiðarinnar var Grettir sterki
Ásmundsson, en á þessu ári er
talið að liðin séu 1000 ár frá fæð-
ingu hans. Grettir var eflaust
nafntogaðasti Miðfirðingur sem
uppi hefur verið og um hann var
skrifuð ein af vinsælustu Islend-
ingasögunum, Grettis saga.
Allir bekkir skólans tóku fyrir
atriði úr sögunni, allt frá æsku
hans og bernskubrekum til ævi-
loka hans og Illuga bróður hans
í Drangey á Skagafirði. Voru atr-
iðin leikin, sungin og lesin og
1.-3. bekkingar dönsuðu Grettis-
romju, færeyskan dans.
Sögumaður rakti æviferil kapp-
ans, en atriðin voru oft stílfærð
til nútímans. Nemendur 10. bekkj-
ar tóku að Iokum fyrir það verk-
efni að setja Gretti inn í nútímann
þar sem hann naut hylli móður
sinnar en fálæti föðurins. Þáttur-
inn hét Vandræðabarnið Grettir,
og mátti þar sjá að máli skiptir á
hvaða tímaskeiði manneskjan lif-
ir.
Á árshát íðinni sungu nemendur
yngri og eldri bekkjar í tveimur
kórum, undir stjórn Ólafar Páls-
dóttur, sem er tónlistarkennari
skólans. Greinilegt var að mikil
vinna liggur að baki slíkri upp-
setningu efnis sem ekki er að-
gengilegt svo ungum flytjendum
í fornbókmenntum okkar. Reynd-
ar verður Grettis saga verkefni
10. bekkjar til samræmds prófs á
vori komanda.
Að dagskrá lokinni var gestum
boðið til kaffidrykkju. Var þá
skoðuð myndlistarsýning yngri
bekkjanna, þar sem þau höfðu
unnið upp úr Grettiss ögu. Að
lokum var stigin dans fram á nótt.
Vandaður BALENO WAGON 4WD fyrir aðeins 1.580.000, -kr.
BALENO WAGON með framhjóladrifi aðeins 1.450.000,- kr.
MEÐ: aflmikilli 16 ventla vél • toppgrind • vindkljúf með
hemlaljósi • þjófavörn • hæðarstilíing á ökumannssæti •
öryggisloftpúðum fyrir ökumann og farþega í framsæti •
vökvastýri • upphituðum framsætum • samlæsingum •
veltistýri • rafdrifnum rúðuvindum • rafstýrðum
útispeglum • tvískiptu aftursætisbaki • útvarpi/segulbandi
með 4 hátölurum • styrktarbitum í hurðum • skolsprautum
íyrir framljós • samlitum stuðurum.
Geturðu gert betri bilakaup?
SUZUKIBÍLAR HF
Skeifunni 17, 108 Reykjavik.
Sími 568 51 00.