Morgunblaðið - 28.11.1996, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1996 25
LISTIR
Ljóðakvöld
með Bubba
BUBBI Morthens verður á Súfist-
anum - bókakaffinu í Bókabúð
Máls og menningar að Laugavegi
18 í kvöld, fimmtudagskvöld kl.
20.30.
Bubbi les þar ljóð af nýja ljóða-
diskinum sínum, Hvítu hliðinni á
svörtu, við undirleik valinkunnra
hljóðfæraleikara. Guðni Franzson
leikur á ýmis blásturshljóðfæri,
Tómas R. Einarsson á kontrabassa,
Eyþór Gunnarsson á píanó og Eð-
varð Lárusson á gítar.
Diskurinn verður seldur á sér-
stöku kynningarverði þetta kvöld
og Bubbi mun árita hann fyrir þá
sem það vilja.
Upplestrarkvöldið hefst kl. 20.30
eins og fyrr segir og stendur til kl.
22. Aðgangur er ókeypis.
------♦ ♦ ♦
Jörð, Undir pari
SÓLVEIG Þorbergsdóttir opnar
sýningu í dag, fimmtudag, ki. 20,
sem ber yfirskriftina „Jörð“, Undir
pari, Smiðjustíg 3.
Sólveig sýnir tvö vídeóverk og
einnig rýmisverk. Á opnuninni mun
hún fremja gjörning.
Sólveig er fædd í Reykjavík 1964
og var við nám i skúlptúrdeild
Utrecht School of the Arts 1986-92.
Hún hefur áður haldið nokkurn
§ölda sýninga í Hollandi, London
og Reykjavík.
Sýningin stendur yfir í þrjár helg-
ar, til 14. desember. Undir pari er
opið fimmtudaga-laugardaga kl.
20-23.
------♦ ♦ ♦-----
Aðventutónleik-
ar Lúðrasveitar
Hafnarfjarðar
AÐVENTUTÓNLEIKAR Lúðra-
sveitar Hafnarfjarðar verða haldnir
í Hafnarborg, fimmtudaginn 28.
nóvember kl. 20.30. Efnisskráin er
fjölbreytt og verða flutt þekkt inn-
lend og erlend lög ásamt jólalögum.
Einnig mun blásarakvintettinn
„Þeyr“ koma fram.
Lúðrasveit Hafnarfjarðar var
stofnuð 1950 og hefur starfað af
fullum krafti síðan. í sveitinni eru
nú um 35 manns á aldrinum 16-60
ára. Stjórnandi er Stefán Ómar
Jakobsson.
Aðgangur er ókeypis og allir eru
velkomnir.
Sjálfstætt fólk
í Lundar-
reykjadal
UNGMENNAFÉLAGIÐ Dagrenn-
ing í Lundarreykjadal frumsýnir
Sjálfstætt fólk eftir Halldór Lax-
ness í nýrri leikgerð Hjalta Rögn-
valdssonar, Gísla Einarssonar og
Þórunnar Magneu í félagsheimilinu
Brautartungu sunnudaginn 1. des-
ember næstkomandi.
Að sögn leikstjórans, Þórunnar
Magneu, taka tuttugu leikarar þátt
í sýningunni, en það mun vera um
helmingur íbúa í dalnum. Fjórðung-
ur leikaranna er frá sama bænum,
Gullberastöðum, eða fjölskyldan
eins og hún ieggur sig.
-----♦ ♦ ♦-----
Djass á Café
au Lait
í KVÖLD klukkan 22:00 mun Tóp-
astríóið spila á Café au Lait.
Tríóið er skipað þeim Birni Thor-
oddsen á gítar, Árna H. Karlssyni
á Fender-Rhodes píanó og Tómasi
R. Einarssyni á kontrabassa.
Afsláttur: 95.000 kr.
Verð nú: 1.685.000 kr.
Afsláttur: 140.000 kr.
Verð nú: 2.750.000 kr.
Ti\boð á
Chrvsler !
Grand Limited V8
Lúxusbíll meö kraft og styrk
jeppans. Ríkulegur staöal-
búnaöur, gott innra rými og
fullkominn öryggisbúnaður.
Jeppi ársins 1996.
lUUU
Chrysler Neon LE
2,0 lítra, 16 ventla, 133 hö
sjálfskiptur, loftpúðar,
samlæsing, rafmagn
í rúöum o.fl. Amerískur
fólksbíll meö öllu.
Jeep Cherokee Turbo Diesel
Sígildur jeppi,
sterkur og traustur.
Mun betri kaup heldur en litlu
„jeppalíkin" sem ekkert drífa.
Dodge Ram Diesel
Vinnubíll, ferðabíll,
fjölskyldubíll, fjallabíll,
lúxusbíll. Þitt er valið.
5,9 lítra, 6-cylindra
Cummins Turbo Diesel
tryllitæki sem aörir óttast
Anægjulegt afmælisár Jöfurs er á enda og nú er það rúsínan
í pylsuendanum. Þaö eru aðeins nokkrir bílar eftir af Chrysler Neon,
Jeep Cherokee, Grand Cherokee og Ram, árgerð 1996. Viö erum að
taka til fyrir jólin og gera klárt fyrir 1997 árgeröina. Því fara síðustu
bílarnir á ótrúlegu verði. Endaðu árið með einstökum kaupum.
2 • Sími 554 2600
Afsláttur: 220.000 kr. Verð nú: 3.325.000 kr.
! i
1 ■■ n o. C\ 1 F II V i'a 1 R
U u i r tj p n