Morgunblaðið - 28.11.1996, Blaðsíða 64
adidas
64 FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Stolinn prófessor?
► LEIKARANUM gamansama Eddie
Murphy var ekki hlátur í huga þegar honum
var tilkynnt að bræðurnir Steven og William
Patrick ætluðu að kæra hann og Universal
kvikmyndaverið fyrir að stela handriti þeirra
að myndinni „Brand New Me“ sem er mjög
áþekkt handriti Murphys að myndinni vin-
sælu „The Nutty Professor". Bræðurnir segj-
ast hafa sent handritið, sem fjallar um feitan
erfðafræðing sem finnur upp megrunarmeð-
al, til kvikmyndaversins fyrir fimm árum en
þar var það afþakkað. Talsmenn Universal
vijja ekki láta hafa neitt eftir sér um málið
fyrr en þeir hafa lesið lögsóknina.
B u x u r
kriiu'lumii (S 1 ? * s S(>8 (>() 10
Heimakær
o g skrýtin
LEIKKONAN Lisa Marie leikur
marsbúa í nýrri mynd leikstjórans
Tims Burtons, „Mars Attacks“,
sem frumsýnd verður bráðlega í
Bandaríkjunum en Burton er
þekktur fyrir myndir sínar „Edw-
ard Scissorhands“, „Batman“ og
„Ed Wood“ meðal annarra. Lisa
Marie er unnusta Tims en frum-
raun hennar í kvikmyndaleik var
í mynd hans „Ed Wood“ þar sem
hún lék Vampiru. „Þegar ég var
yngri gekk ég í strangan kaþólsk-
an skóla og eyddi oft dögunum í
að horfa út um gluggann og láta
mig dreyma. Ég var frekar róleg
og feimin á mínum yngri árum
og þegar ég var í sjöunda bekk
hættu vinir mínir að vilja umgang-
ast mig. Þeim þótti ég skrýtin því
ég fór alltaf í balletttíma eftir
skóla í stað þess að hanga með
þeim og gera ekki neitt,“ segir
Lisa. Hún er mjög heimakær og
finnst gaman að vera ein með Tim.
„Ég ákvað reyndar um daginn að
reyna að fara aðeins meira út og
hitta fólk og fór í veislu í Malibu
en skemmti mér ekkert sérstak-
lega vel. Það eina sem var gert í
veislunni var að tala illa um þá
sem mættu ekki.“
Veijast staradriti
með regnhlífum
► STARAR leggja leið sína ár
hvert yfir franska bæinn Perp-
ignan og í ár er fjöldi þeirra
meiri en nokkru sinni áður.
Regnhlífasala í bænum tekur
kipp þegar fuglarnir hefja inn-
reið sína en bæjarbúar nota
hlífarnar til að hlífa sér við
fugladritinu sem er óþægilegur
fylgifiskur staranna. Dritið er
ekki einungis ógnvaldur úr
lofti heldur á einnig á götunum
því það er sleipt og árlega
renna fjölmargir í því og bein-
brjóta sig. Aætlaður fjöldi fugl-
anna í ár er um tvær milljónir.
Staraveiðar eru bannaðar í
Frakklandi og því eru ýmis
önnur ráð en byssukúlur notuð
til að fæla þá í burtu. Notaðar
eru hvellhettur og stórir hátal-
arar sem þruma söng skræksk-
aða, helsta óvinar staranna, út
í loftið.
STARINN er ekki vinsæll hjá
íbúum í Perpignan í Frakk-
landi.
vaknaðu!
á undan frunsunni...
...meö því að bera á hana Zovir krem sefur hún áfram
Hafir þú fengiö frunsu þekkir þú eflaust fyrirboða hennar,
sting, sviöa eöa æðaslátt. í kjölfariö láta fyrstu blöörurnar
á sér kræla. í Zovir kreminu er virka efnið acíklóvír sem
kemur í veg fyrir fjölgun frunsuveirunnar. Beröu Zovir
kremiö á um leiö og þú finnur fyrir fyrstu einkennum og þá
getur þú náö aö svæfa hana strax. Beröu á sýkta svæöiö 5
sinnum á dag í 5 daga.
ZOVIR kremið fæst nú einnig með pumpu
sem er auðveld í notkun og skammtar
kremið á þægilegan og hreinlegan hátt.
ZOVIR kremiö 2 g fæst án lyfseöils í apótekum.
Kynniö ykkur vel leiöbeiningarnar
sem fylgja lyfinu.
OVIR
o
GlaxoWellcome • Þverholti 14 • 105Reykjavík • Sími 5616930