Morgunblaðið - 28.11.1996, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 28.11.1996, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1996 21 Indónesía Andófs- menn fá væga dóma Jakarta. Reuter. DÓMSTÓLAR í Indónesíu létu í gær lausa 124 liðsmenn stjórnarand- stöðuflokks Megawati Sukamoputri sem setið höfðu inni síðan í júlí er þeir voru handteknir, sakaðir um óeirðir. Megawati er dóttir Sukarnos, sem var forseti landsins fyrstu ára- tugina eftir að landið hlaut sjálf- stæði en það var lengi hollensk ný- lenda. Níu voru sýknaðir en aðrir fengu fangelsisdóma sem voru þó ekki lengri en svo að allir eru þegar bún- ir að afplána þá með varðhaldinu. Sakbomingar mótmæltu harðlega dómunum og sögðust vera saklausir. „Búið er að gera okkur að brota- mönnum og það er ekki gott fyrir fjölskyldur okkar, eiginmann og börnin," sagði kona í hópnum og grét. Megawati, sem var í salnum, reyndi að hugga hana. Vetjendur komu í veg fýrir að fólkið gæti nálg- ast dómarana og óeirðalögregla rak það út úr salnum. Flokkur Megawati heitir Lýðræð- isflokkur Indónesíu (PDI) og fólkið hafði sest að í aðalstöðvum hans til að mótmæla því að flokksmenn sem hlynntir em ráðamönnum landsins höfðu velt Megawati úr leiðtoga- sessi. Lögregla hrakti það burt í lok júlí. Hófust þá mestu óeirðir sem orðið hafa í höfuðborginni Jakarta í meira en tvo áratugi. Stjómmálaskýrendur segja stjóm Suhartos forseta, er styðst við flokk- inn Golkar, óttast að Megawati gæti dregið mjög úr yfirburðum stjórnar- flokksins í kosningum á næsta ári. Reuter DANIEL Ortega, forsetaefni I sandinista. Ortega vill sættir Managua. Reuter. FLOKKUR sandinista í Nicaragua hvatti á þriðjudag til þess að hafnar yrðu „umræður meðal þjóðarinnar" ) til að reyna að leysa deilurnar vegna kosninganna sem þeir töpuðu fyrir skömmu. Daniel Ortega, forsetaefni sandinista, ítrekaði á blaðamanna- fundi fyrri fullyrðingar þess efnis að í kosningunum 20. október hefðu verið brögð í tafli en sýndi þó sátta- hug í fyrsta sinn. „Hreyfing sandin- ista gerir sér grein fyrir ábyrgð sinni og hvetur til umræðna í samfélaginu til leggja grandvöll að traustu | stjórnarfari í landinu," sagði hann. Hægrimaðurinn Amaldo Aleman sigraði Ortega í forsetakjöri, hlaut 51% atkvæða en Ortega 38%. Mun Aleman svetja embættiseið 10. jan- úar. Ortega lagði fram áætlun í 14 liðum þar sem hvatt er til gagn- kvæmrar virðingar í samskiptum stjórnmálaflokkanna, þess að bund- inn verði endi á átök, kosningalög- gjöf endurbætt, hagsmunir hersins ) verði virtir og einnig lög um eignar- rétt. ERLEIMT Reuter INDÓNESÍSKIR lögreglumenn loka vegi við dómhúsið í Jakarta þegar dómur var kveðinn upp yfir 124 stjórnarandstæðingum. RANGE ROVEI? 3.9 VOUGE árg. 1992, ekinn 108.000 Upplýsingar í síma 551 4637 alla Skreytingar fyrir Hurðakransar kr. 999,- , Aðventuskreytinx uskraut ^r. 999 Englavakt (kertaslökkvari) 31 pakka kr. 99,- Tröppuskra, kr. 2990,- J/ Aðventukrans kr. 999,-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.