Morgunblaðið - 28.11.1996, Side 24

Morgunblaðið - 28.11.1996, Side 24
24 FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Morgunblaðið/Silli LEIKENDUM og leikstjóra var vel fagnað í frumsýningarlok, en frumsýning var 22. nóvember. A myndinni eru: Herdís Birgisdóttir, Sigurður IÍlugason, Ingimundur Jónsson, Oddur Bjarni Þorkelsson, Guðrún Alfreðsdóttir og Svavar Jónsson. Lífslygi Willy Lomans LEIKUST Lcikfclag ilúsavíkur SÖLUMAÐUR DEYR Leikrit eftir Arthur Miller. íslensk þýðing: Jónas Kristjánsson. Leikarar: Ingimundur Jónsson, Herdís Birgisdóttir, Sigurður 111- ugason, Oddur Bjarni Þorkelsson, Vigfús Sigurðsson, Anna Björg Stefánsdóttir, Ingimar S. Hjálmars- son, Svavar Jónsson, Ari Páll Páls- son, Margrét Sverrisdóttir, Jón Guðlaugsson, Friðrika Baldvins- dóttir og Dóra Ármannsdóttir. Leikstjóri: Guðrún Alfreðsdóttir. Leikmynd: Grétar Sigurðarson og Sigurður Hallmarsson. Ljósahönn- un: Guðrún Alfreðsdóttir og Jón Arnkelsson. Tónlist: Anton Fourn- ier. 26. nóvember. ÞAÐ mun vera Iiðin heil öld og tíu árum betur síðan Húsvíkingar settu upp fyrstu leiksýninguna, en leikfélag var formlega stofnað þar árið 1900. í dag telst Leikfélag Húsavíkur með öflugustu áhuga- ieikfélögum og setur félagið upp metnaðarfullar sýningar á hveiju ári. í ár ráðast Húsvíkingar svo sann- arlega ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. Sölumaður deyr eftir bandaríska leikskáldið Arthur Miller er með þekktustu verkum nútíma- leikbókmennta og er verk sem gerir miklar kröfur til leikara vegna til- fínningaþrungins innihalds síns og dramatískrar framvindu. Verkið fjallar um sölumanninn Willy Loman og hans heilögu sjálfsblekkingu. I samskiptum hans við syni sína, eig- inkonu, kunningja og vinnuveit- anda, og í endurlitum tii fortíðar, endurspeglast draumar og þrár Will- ys sem svo hróplega stangast á við það líf sem hann hefur lifað - en neitar þó að viðurkenna. í mögnuð- um texta flettir höfundur smátt og smátt hverri blekkingarhulunni af annarri utan af Willy, þar til hann stendur eftir rúinn sjálfsblekking- unni, og þar með sjálfsvirðingunni, og sér aðeins eina leið til lausnar; að fara í þá ferð sem enginn snýr til baka úr. Það er Ingimundur Jónsson sem fer með hið krefjandi hlutverk Willy Lomans og leysti hann þá þraut vel af hendi. Ingimundur er þrautreynd- ur leikari hjá Leikfélagi Húsavikur og hefur leikið þar mörg hlutverk, stór og smá. Þetta hlýtur þó að vera með því erfiðasta sem hann hefur leikið, því hann er á sviðinu mest allan tímann og þarf að sýna alit litróf geðbrigða. Leikur Ingi- mundar var vandaður í alla staði og náði hann að skapa trúverðuga persónu og var framsögn hans sér- staklega góð (reyndar gildir það um flesta leikarana). Það eina sem skyggði á túlkun Ingimundar skrif- ast alfarið á leikstjóranns, en það var tímasetning, þ.e.a.s. hann hefði þurft að gefa sér meiri tíma fyrir textann - eða öllu heldur fyrir þögn- ina, hina mikilvægu þögn á milli setninga sem gefa orðunum aukið vægi og persónunni meiri dýpt. Þetta gildir sérstaklega um þá staði þar sem nútíð og fortíð renna saman í skynjun Willys - þar sem glittir í andlega hrörnun hans. Hér hefði leikstjórinn þurft að stýra betur og markvissara. Með hlutverk Lindu, eiginkonu Willys, fer annar reyndur leikari Húsvíkinga; Herdís Birgisdóttir, og sýndi hún vel hina bældu konu sem er ekkert nema gæðin og góð- mennskan en getur þó sagt sonum sínum tii syndanna ef þeir gera á hlut föður síns. Synirnir eru leiknir af Sigurði Illugasyni og Oddi Bjarna Þorkelssyni og var samleikur þeirra fínn. Meira mæðir á Sigurði, sem fer með hlutverk Biffs, eldri sonar- Jálamatur, gjafir ogyfimdur Uppskriftir, heimsóknir, jólasiðir; konfektgerð, föndur, pakkar og margt fleira er í 64 stðna blaðauka sem fylgir Morgunblaðinu nk. sunnudag, 1. desember. - kjarni málsins! ins, sem hefur bognað undan óraunsæjum kröfum föður síns um frama og frægð. Samband Willys og Biffs er í raun þungamiðja verks- ins og aðalátök þess kristallast í átökum feðganna. Sigurður sýndi okkur ungan taugaveiklaðan mann sem þráir að fá að vera „venjulegur meðalmaður" og að vera eískaður og virtur af föður sínum sem slík- ur. Þetta er erfitt hlutverk og í byrj- un virkaði Sigurður sem hikandi, en náði sér vel á strik þegar leið á sýninguna og var lokauppgjör feðg- anna virkilega áhrifamikið atriði. Hlutverk Happys, yngri sonarins, gerir ekki kröfur til dramatísks leiks, eins og hlutverk eldri sonar- ins, en er engu að síður mikilvægt. Happy er, eins og nafnið bendir til, kampakátur ungur maður, kæru- laus og kvenhollur. Hann virðist í byijun áhyggjulaus en þegar á líður sést að einnig hann ber skaða af uppeldi föður síns. Hann vill stöðugt geðjast honum, er alltaf að reyna að vinna þann sess sem honum hef- ur aldrei tekist að öðlast; að standa jafnfætis bróður sínum í drauma- heimi föðurins. Happy er í raun mun líkari föður sínum en Biff, reiðubú- inn að leika með í þeim blekkingar- leik sem faðirinn stjórnar, eins lengi og þess er krafist. Oddur Bjarni passaði vel inn í hlutverkið og sýndi góðan leik bæði á léttu nótunum svo og hinum erfiðari stundum. Níu leikarar fara með hinn smærri hlutverk í Sölumaður deyr og því miður er ekki hægt að ijalla um þá alla. Ingimar S. Hjálmarsson lék Charley, nágranna Loman-flöl- skyldunnar. Hann sýndi okkur raunsæjan, dálítið þungbúinn mann, sem á erfitt með að skilja hinn óraunsæja, loftkennda Willy. Son hans lék Vigfús Sigurðsson á kóm- ísku nótunum og gerði það vel. Sva- var Jónsson var ábúðamikill Ben frændi og þar var goður „bræðra- svipur" með þeim Willy. Leikarar í aukahlutverkum stóðu sig vel og lítið upp á þá að klaga. Sviðsmynd er hönnuð af Sigurði Hallmarssyni og Grétari Sigurðar- syni og er henni haglega fyrirkomið í því litla rými sem Leikfélagið hef- ur yfir að ráða. Gráir litir eru ríkj- andi og er það í takt við þann gráa hversdagsleika sem Lomans-fjöl- skyldan býr við - hvað sem öllum draumum hennar líður. Vonandi nýta Norðlendingar sér þetta tækifæri til að sjá klassískt nútímaverk á sviði. Soffía Auður Birgisdóttir Söngva- safn Dómkirkj- unnar SÖNGVASAFNIÐ „Víst ertu, Jes- ús, kóngur klár“ er gefið út í til- efni af tveggja alda afmæli Dóm- kirkjunnar í Reykjavík. í því er 21 sönglag. í kynningu segir m.a., að söng- heftið hafi að geyma einföld lög, sálma og mótettur eftir dómorgan- istana Pétur Guðjohnsen, Jóhann Helgason, Sigfús Einarsson, Pál ísólfsson, Ragnar Björnsson og Martein H. Friðriksson. Stærri tónverk hafi ekki rúmast í þessari bók og því miður tókst ekki að hafa upp á lagi eftir Brynjólf Þor- láksson sem gegndi starfi dómorg- anista á aárunum 1903-1912. Tónskáldin Hjálmar H. Ragn- arsson, Hróðmar I. Sigurbjörns- son, Jón Þórarinsson, Jónas Tóm- asson og Þorkell Sigurbjömsson eiga öll heiður af verkum í safn- inu. Verkin voru ýmist samin fyrir Dómkirkjuna eða frumflutt þar. Söngvasafnið gefur sýnishorn af þeirri tónlist sem hljómað hefur í kirkjunni síðustu tvær aldir og fæst hjá kirkjuverði í Dómkirkj- unni. > I í > I I r \ i I I

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.