Morgunblaðið - 28.11.1996, Side 32

Morgunblaðið - 28.11.1996, Side 32
32 FIMMTUDAGUR 28. NÓVBMBER 1996 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ BÓKMENNTIR Barnabók GAUTI VINUR MINN Eftir Vigdísi Grímsdóttur. Myndir: Brian Pilkington. Iðunn, 1996 - 94 bls. SAGAN hefst á Njálsgötunni þar sem Begga blaðburðarkona á leið um. í glugga situr lítill drengur sem bendir henni að koma inn. Þessi litli drengur heitir Gauti. Hann er oft einn heima og einmana á meðan mamma hans er úti að vinna en nú hefur hann eignast dýrgrip sem er auga. Augað gefur honum vísbend- ingar sem hann hlýðir og þegar augað segir honum að kalla í Beggu hlýðir hann þvi. Þau verða miklir vinir og skilja hvort annað ákaflega vel. Sagan er sögð frá hennar sjón- arhóli og við skynjum sögusviðið og atburðina með augum hennar. Saga Vigdísar er ákaflega vel skrifuð. Hún er hljóðlát og hlý, mannleg og sögð á látlausan máta. Við kynnumst bæði Beggu og Gauta mjög vel í gegnum þær ævintýra- ferðir sem þau fara. Þau eru bæði hversdagslegar manneskjur, engir kappar eða ofurmenni. Saman fara þau með hjálp augans inn í Gula heiminn og hitta fyrir Önnu Maríu, litla englastúlku sem er týnd af því að hún hefur brotið loforð sitt. Hún situr illa í súpunni fyrir vikið og hennar bíður ekkert annað en hung- urdauði. Þeim tekst að bjarga henni úr klípunni og fá að kynnast veröld hennar. í Gula heiminum er aldrei rifíst og þar má enginn eiga leyndar- mál. Gauti og Begga verða að segja frá sínu lífi og þannig kynnast les- endurnir þeim. í næsta ferðalagi kynnast þau Bláa heiminum. Þar hitta þau fyrir landamæravörðinn Manna, strák- inn sem er með tvö höfuð. Þetta urðu örlög hans vegna þess að þeir tveir sem í honum bjuggu, þeir Fúli og Reiði, gátu aldrei kom- ið sér saman um neitt og því ekki um annað að ræða en skipta hausn- um í tvennt. Hann getur ekki fyrir- gefið og því er þetta hlutskipti hans. Það eina sem getur hjálpað honum úr þessum álögum er að bjargvættir hans segi honum leyndar- mál sín. Þar með kynn- ist lesandinn Beggu og Gauta ennþá betur þegar þau þurfa að segja sín dýpstu leynd- armál, segja frá því sem þau hræðast og því sem aldrei hefur má.tt tala um. í lokaferðinni hitta þau upprunalega eig- anda augans og kom- ast að því hvernig draumar eru búnir til. Sérhver maður á sér ósýnilegan draumamann sem fylgir honum eftir á meðan hann lifir og sá fram- leiðir drauma í draumaverksmiðj- unni. Ef einhvern boðskap má finna út úr þessari sögu er hann sá að með vináttu er hægt að leysa mörg mál, þar á meðal að losa sig út úr viðjum leyndra hugsana sem gera manni illt. Vigdís skrifar mjög látlausan og tilgerðar- lausan texta. Samt sem áður er hann alls ekki neitt barnalegur og hún notar jafnvel orð eins og að hlaupa á „harðakani“ sem ég hef ekki heyrt annars staðar en á Austfjörð- um og finnst tæpast í orðabókum. Myndir Brians Pilk- ingtons eru gullfalleg- ar og falla ákaflega vel að textanum. Þær eru einnig óvenjulegar fyr- ir þá sök að þær eru fremur skreytingar og eru mjög misstórar. Ég minnist varla að hafa séð hann teiknajafn mildar og lát- lausar myndir. í heildina hefur ís- lensk barnabókaútgáfa auðgast verulega við að fá þessa bók. Hún á varla sinn líka hvað snertir mál- far, stíl og frásögn. Sigrún Klara Hannesdóttir Nýjar bækur • INNSÝN í mannlega tilveru nefnist ný bók eftir Einar Þorstein Ásgeirsson. „Mikil þáttaskil eru framundan. End- urskoða þarf allan grundvöll tilveru okkar. Raunvís- indalögmál sem trúað hefur verið á, Newtonlögmálið og Einsteinslög- málið standa höll- um fæti og fá ekki staðist," segir út- gefandi í kynningu og að þetta sé kjarninn í þessu rit- verki Einars Þorsteins. „Meginhluti bókarinnar er opinská rannsókn á röksemdum tilverunnar frá öllum hliðum. Einkum skoðar hann þau óræðu lokasvið mannlegrar hugs- unar, þar sem raunvísindi gefast upp og eiga ekkert endanlegt svar svo sem um lífið, uppruna óendanleikans og _ uppruna tímans," segir ennfremur. I lokakafla enj tilgátur fyrir eðlisfræði mannlega sviðsins en þar safnar höf- undur saman um 140 röksemdum um þaðhvers eðlis tilveran er. Útgefandi er Fjölvaútgáfan. Með heimildum og tilvitnunum í ótal aI- þjóðleg rít er bókin 240 bls. með fjölda táknrænna teikninga. Filmu- gerð annaðist PMS íSúðarvogi, en bókin er prentuð og innbundin í Singapore. Verð 2.980 kr. • ÚTER komin bók sem fjailar um þátttöku íslendinga í heimsstyrjöld- inni með Þjóðverjum. Hún er eftir Einar Björgvins- son og nefnist ís- lendingur á víga- slóð í Waffen-SS. Bókin er í skáld- söguformi en eins og segir á kápu er hún „fléttuð raun- sönnum atburðum úr síðari heims- stytjöldinni“. Höf- undurinn hefur um langt skeið sökkt sér ofan í sögu stríðsins og þykist hafa komist að því að hlutur manna af íslensku bergi hafi til þessa verið nokkuð vanmet- inn. Fjölvaútgáfa gefur út. Bókin er 240 bls. ífjórum meginköflum sem nefnast Hæl Hitler, Krossferðin í Austurveg, Dauði og djöfull ogloks Rústir. Bókin er Filmutekin hjá PMS en prentuð og innbundin í Singapore. Verð 2.980 kr. • UNGLINGABÓKIN Égget svariðþað er eftir Þorstein Marels- son. Ferming er mikilvægur áfangi í lífi unglinga og kringum hana er töluvert tilstand. Stefán og félagar hans standa í þess- um sporum. Freist- andi tilboðum rign- ir yfir þá og fjöl- skyldur þeirra og ekki er allt með kyrrum kjörum frá kirkjunni. „Þetta er gamansöm unglingasaga um fermingarárið og inngönguna í heim hinna fullorðnu,“ segir í kynningu. Útgefandi er Mál og menning. Bókin er 150 bls. ogkostar 1.880 kr. Prentsmiðjan Oddi hf. prentaði. Alda Lóa Leifsdóttir gerði kápu. • ÍSAFOLD fer í síld eftir Gísla J. Ástþórsson hefur verið endurút- gefin með nýjum teikningum eftir höfundinn. ísafold fer á síld á Sigló ásamt Krumma og Ólafi ketti og kynnist Jósafat síldarkóngi og ótal litríkum einstaklingum að ógleymdum álfa- kónginum sem gefur henni eina ósk. „Bókin var vinsæl á sinrii tíð enda gamansöm ádeila á íslenskt þjóðfélag á síldarárunum en um leið hug- myndarík fantasía," segir í kynn- ingu. Útgefandi erMál ogmenning. Bókin er 64 bls., prentuð íSvíþjóð og kostar 1.380 kr. Nýjar plötur • HÖRÐUR Torfason hefur sent frá sér geisladisk með bama- efni sem nefnist Barnagaman. Þar er að finna níu bamalög úr ýmsum leikhús- verkefnum sem Hörður hefur unnið fyrir böm víðsvegar um landið á ferli sin- um sem leik- stjóri. Þannig er frá söngvunum gengið á diskn- um að fýrst em þau sungin við undirleik en síðan er aðeins undir- leikurinn þannig að bömin geta sungið með þegar þau hafa lært textana sem fylgja með disknum og em allir prentaðir með stóra og vel læsilegu letri. Höfundur texta og tónlistar er Hörður Torfa sem einnig leikur á gítar og syngur. í laginu um Línu Langsokk í leikhúsinu syngur ung stúlka, Ólöf Jakobsdóttir, en hún teiknaði líka myndina sem prýðir diskinn. Um útsetningar, hljóm- borðsleik, hljóðblöndun og forrit- un sá Hlynur Sölvi Jakobsson. Hörður Torfason gefur plötuna út ogJapis sér um dreifmgu. Um hönnun sá Hjörtur Hjartarson. • „Steini spil frá Selfossi“ inni- heldur þau lög er komu út á hljóm- plötum með Hljómsveit Þorsteins Guðmundssonar á sínum tíma. Lögin komu annarsvegar út á tveimur fjögurra laga plötum árin 1970 og ’72 og hinsvegar á einni stórri plötu árið 1976. Þegar Hljómsveit Þorsteins Guðmundssonar var og hét léku lengst með henni trommuleikar- inn Kristinn Alexandersson og Haukur Ingibergsson gítarleikari. Þegar Haukur hætti 1974 tók Hermann Jónsson gítaristi stöðu hans, en einnig komu ýmsir fleiri tónlistarmenn við sögu hljóm- sveitarinnar á þeim tveimur ára- tugum sem hún var starfrækt. Það eru samt sem áður fyrst og fremst fyrrnefndir þrír tónlistar- menn, auk Þorsteins sjálfs, sem leika og syngja þau lög sem hljóm- sveitin hljóðritaði til útgáfu á hljómplötum. Hér má finna m.a. Vakna Dísa, Snjómokstur, Hanna litla, Ó, Mar- ia mig langar heim, Bréfið hennar Stínu, Grásleppu Gvendur, Hann Tumi fer á fætur, Á Kanarí, Ég fer í Sjallann og tíu önnur lög. í plötubæklingi er saga sveitar- innar rakin í stuttu máli, ennfrem- ur fylgja allir textar með. Spor ehf. gefur út og dreifir. Það varPrisma sem sá um útlit ogfilmuvinnslu, SonyDADCann- aðist framleiðslu. Leiðbeinandi verðer 1.699 kr. • JETZ hefur sent frá sér geisla- disk. Jetz skipa þeir Gunnar Bjarni Ragnarsson, Guðlaugur Júníusson, og Kristinn Júníusson. Gunnar Bjarni starfaði áður með hljómsveitinni Jet Black Joe og tvíburabræðurnir Guðlaugur og Kristinn með hljómsveitinni Tjalz Gizzur. Á disknum koma fram nokkrir listamenn aðrir sem gestir: Móeið- ur Júníusdóttir systir tvíburanna syngur tvö lög á plötunni, Þórhall- ur Bergmann sér um hljómborðs- leik, Eyþór Amalds leikur á selló, Dan Cassidy leikur á fiðlu og Ein- ar Hjartarson á gítar. Þá syngur bandaríska söngkonan Kate Nel- son eitt lag á plötunni. Að öðm leyti sjá Jetz um söng og annan hljóðfæraleik. Gunnar Bjarni semur flest lög- in, syngur og útsetur. Kristinn Júníusson syngur eigið lag á plöt- unni en eitt lag plötunnar er frá hljómsveitinni Velvet Undergro- und. Upptaka fór að mestu fram í Stúdíó Stöðin. Upptökustjórn var í höndum Gunnars Bjama og Ól- afs Halldórssonar upptökumanns. Skífan ehf. sér um dreifingu. • í TILEFNI af fimmtugsafmæli Gylfa Ægissonar verða gefnir út tveir gisladiskar með efni eftir hann. Fyrst er að telja diskinn Gylfi Ægisson - „20 bestu köst- in“. Tuttugu vinsælustu lögin sem Gylfi hefur sungið á ferli sínum. En á hon- um eru: Minning um mann, Helg- arfrí, íslensku sjómennirnir, Vertu sæll herra Bakkus og fleiri lög samin og flutt af Gylfa. Disknum fylgir 20 síðna bæklingur með umsögn um lista- manninn, myndum og öllum text- um á disknum. Um leið og tuttugu vinsælustu lög Gylfa koma út kemur út ann- ar diskur með verkum hans: „Ævintýri“. Þar er að finna barnaævintýrin, Stígvélaði kött- urinn, Kiðlingarnir sjö og Eldfær- in eins og Gylfi samdi þau. Meðal þeirra sem leika og syngja í þessum ævintýrum em Gylfi sjálfur, Páll Óskar Hjálmtýs- son, Hemmi Gunn, Laddi og Júlíus Brjánsson. Disknum fylgir bækl- ingur með öllum textunum í söng- leikjunum þremur. Útgefandi er Geimsteinsútgáf- an íKeflavík. • „ TIL hamingju með fallið “ heitir nýútkomin plata með Meg- asi. Hún inniheldur 15 ný lög og texta. Um stjórn upptöku sá Pjet- ur Stefáns, en platan var tekin upp í Geimsteini og Gný af þeim Rúnari Júlíussyni, Pjetri Stefáns, Sigurði Bjólu (sem hljóðblandaði síðan plötuna) og Jens Hanssyni. Útgefandi Falleg, PO box 1642 -121 Rvk. Japis sér um dreifingu. • ANNA Halldórsdóttir er ung stúlka ættuð frá Akranesi og sendir nú frá sér sína fyrstu plötu sem ber nafnið „ Villtir morgn- ar“. Anna syng- ur sjálf, semur lög og texta og spilar auk þess á píanó. Við undir- leik nýtur Anna aðstoðar margra tónlistarmanna, en upptöku- stjórn var í höndum Orra Harðarsonar og Rafns Jónssonar. Upptökumenn plötunnar vom þeir Tómas Tóm- asson og Ken Thomas, Tómas sá einnig um hljóðblöndum. Útgefandi erAnna Halldórsdóttir. Japis sér um dreifingu. • „KEF“ er geislaplata með lög- um eftir Jóhann Helgason tón- listarmann úr Keflavik. Á „KEF“ flytur Jóhann tíu frumsamin lög við texta breska tónlistarmanns- ins Reg Meuross. „KEF“ er fjórða sólóskífa Jóhanns. Áður hafa komið út „Tass“ 1981, „Einn“ 1983 og „Ástin“ 1985. Á „KEF“ nýtur Jóhann aðstoðar valin- kunnra islenskra tónlistarmanna. Jóhann hefur löngum starfað sem annar helmingur dúettsins „Magnús og Jóhann" með hléum frá 1972, auk tímabundna dúetts- ins „Þú og ég“ ásamt að hafa starfað með hljómsveitunum Change, Poker og Celsíus á átt- unda áratugnum. Þá hefur Jóhann samið fjöldann allan af lögum i annarra flutningi í gegnum árin. Útgefandi Hugverkaútgáfan. Skífan sér um dreifingu. Verð 1.999 kr. • „EINS oger...“ er ný geisla- plata frá Stefáni Hilmarssyni. Platan ber nafnið „Eins og er...“, og er önnur einhetjaplata Stefáns. Þijú ár era nú liðin frá því að Stefán sendi frá sér sína fyrstu plötu, „Líf“. Á „Eins og er ...“ sækir Stefán meðal annars rhytmískan inn- blástur í dans- tónlist síðustu missera og blandar þeim saman við hans „me- lódíska innri mann“, eins og hann hefur orðað það í viðtölum. Átta lög plötunnar em samin af Stefáni, Mána Svavarssyni og Friðriki Sturlusyni, en þeir annast jafnframt hljóðfæraleik að mestu leyti. Eitt er eftir Stefán og Sigurð Gröndal og annað eftir Stefán og Ástvald Traustason. Allir textar em eftir Stefán. Aðrir listamenn sem koma nokkuð við sögu á plöt- unni em Jóel Pálsson saxófónleik- ari, Veigar Margeirsson trompet- leikari og Jóhann Hjörleifsson trommuleikari. Upptökustjórn er i höndum Stefáns, en um útsetning- ar sáu þeir Stefán, Máni og Frið- rik. Ljósmyndir á kápu tók Gunnar Gunnarsson, förðun annaðist Hanna Maja og grafísk hönnum var í höndum Páls Ólafssonar. Útgefandi er útgáfufyrirtæki Stefáns, SouIHeimar. Sporhf. sér um dreifingu. • „Með stuð í hjarta “ er nýj asta afurð Rúnars Júlíussonar. Við lagasmíðar á þessum diski fær Rúnar í lið með sér ýmsa af þekkt- ustu lagahöfundum landsins, en sjálfur sér hann að mestu um textagerð. 13 lög er að finna á þessum diski. Þau 12 fyrstu tilheyra þess- ari útgáfu, en sú nýbreytni er hér í hávegum höfð að 13. lagið er sýnishom af næsta diski. Útgefandi er Geimsteinn. • TODMOBILE hefur tekið upp þráðinn þar sem frá var horfið í árslok 1993. Komin er út ný Todmobile plata sem er framhald geislaplötunnar Spillt sem kom út fyrir jólin 1993. Síðastliðið vor, þegar Þorvaldur Bjami Þorvaldsson og Andrea Gylfadóttir vom að hefja vinnslu á nýrri plötu sinni, þótti rétt að kalla gamla hópinn saman til að vinna að gerð plötunnar. Þar á meðal var Eyþór Amalds sem leik- ur á selló í nokkmm lögum, en þar sem aðalvettvangur hans er í hljómsveitinni Bong verður hann ekki fullgildur meðlimur að þessu sinni. Eiður Amars (bassi), Kjart- an Valdemarsson (hljómborð) og Ólafur Hólm leika með á plötunni ásamt ýmsu öðm tónlistarfólki. Geislaplatan Perlur og svín inni- heldur 10 ný lög eftir Þorvald Bjama við ljóð Andreu. Halldór Baldursson teiknaði for- síðumynd geislaplötunnar Perlur og svín, en Halldór átti einnig heiðurinn af umslagi síðustu plötu Todmobile, Spillt. Sjöundi himinn sá um útlitshönnun. Útgefandi er Spor hf. með Todmobile ogannast dreifingu. Offsetþjónustan annaðisl filmu- vinnslu og Sony DADC framleiddi geislaplötur og bæklinga. Leið- beinandi verð er 1.999 kr. Gylfi Ægisson Stefán Hilmarsson Af Njálsgötunni í töfraheima Vigdís Grímsdóttir Einar Þ. Ásgeirsson Einar Björgvinsson Gísli J. Ástþórsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.