Morgunblaðið - 28.11.1996, Page 35

Morgunblaðið - 28.11.1996, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ AÐSEIMDAR GREINAR FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1996 35 Hágöngumiðlun og hveraörverur HÁGÖNGUMIÐLUN hefur verið talsvert til umfjöllunar að undanförnu og hefur undirritaður komið þar nokkuð við sögu. Hverasvæðið í Köldukvíslarbotnum, sem fara mun undir vatn við framkvæmd- ina er eitt af því helsta, sem er sérstakt fyrir þetta svæði. Það er því eðlilegt að það sé vel rannsakað í þessu samhengi og er lífríkið þar stór þátt- ur. í útvarps- og sjón- varpviðtali nýlega reyndi ég að útskýra að hverirnir, sem þarna eru myndu ekki hverfa heldur breyt- ast, við það að fara undir vatn, og við það myndi jafn- framt lífríki hveranna breytast. Ég lét þau orð falla að þessi breyt- ing á lífríkinu væri í sjálfu sér vísindalega áhugaverð og að það myndi vera áhugavert vísindalegt verkefni að rannsaka þessa breyt- ingu. Mér hefur síðan verið bent á að yfirbragð beggja þessara frétta hafi verið með þeim hætti að það virtist, sem það væri mér sérstakt ánægju- og tilhlökkunar- efni að til stæði að sökkva hvera- svæðinu í Köldukvíslarbotnum, því þá gæfist þarna einstakt tæki- færi til rannsókna. Ég vil því hér með taka það fram að svo er alls ekki. Það er augljóslega ekki ver- ið að byggja Hágöngumiðlun til þess að ég eða aðrir vísindamenn geti gert áhugaverðar tilraunir, heldur til þess að afla orku. Öll viljum við halda í sem mest af ósnortinni náttúru landsins og persónulega mundi ég helst óska þess að hægt væri að friða öll hverasvæði landsins, en þau eru nú þegar mörg mikið breytt af mannavöldum. Tilgangurinn með umhverfismati er að afla gagna um sem flest huglæg og hlut- læg verðmæti, sem er að finna nú á fyrirhug- uðum framkvæmdastað, svo að síðan sé hægt að vega þau og Það er ekki verið að byggja Hágöngumiðlun til að vísindamenn geti gert tilraunir, segir Jakob K. Krisljánsson, heldur til að afla orku. meta á móti þeim fjárhagslega ávinningi, sem fæst með fram- kvæmdinni. Mitt hlutverk sem vísindamanns er að afla slíkra gagna og leggja faglegt mat á þau. Ég get síðan haft mína skoð- un á því, hver eigi að vera hin endanlega niðurstaða en tel ekki rétt að opinbera hana, þar sem það er hlutverk annarra að meta öll gögn málsins og kveða upp endanlegan úrskurð. Ég er ekki ánægður með hvern- ig fyrrnefndar útvarps- og sjón- varpsfréttir komu út. Framsetn- ing þeirra var e.t.v að einhverju leyti lituð af skoðunum viðkom- andi fréttamanna, en þó fyrst og fremst af því að það virðist nauð- synlegt að fréttir séu umdeilan- legar til Jpess að þær séu áhuga- verðar. Ég neita ekki þeim um- mælum, sem eftir mér eru höfð, en eins og flestir vita þá er ekki pláss fyrir langar útskýringar eða fyrirvara í útvarps- og sjónvarps- fréttum, allt slíkt er því klippt burt. Hlutir geta verið vísindalega áhugaverðir alveg óháð því hvort þeir eru jákvæðir eða neikvæðir í eðli sínu. Oft eru sjaldgæfir at- burðir áhugaverðari en algengir og á það vissulega við um væntan- legar breytingar á lífríki hvera- svæðisins í Köldukvíslarbotnum. Hið sama má segja um stórhlaup- ið á Skeiðarársandi og afleiðingar þess. Höfundur er forstöðumaður líftæknisviðs Iðntæknistofnunar og dósent við Háskóla Isiands. Jakob K. Kristjánsson y m endist og mdist og endist og, U U J aeoskternleiðsla úrU-PVC^ Gluggar Hurdir Sólstofur Svalahurðir án viðhalds! Kjarnagluggar Dalvegur 28 • 200 Kópavogur • Sími 564 4714

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.