Morgunblaðið - 28.11.1996, Side 52

Morgunblaðið - 28.11.1996, Side 52
52 FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1996 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, PETRA ÞÓRA JÓNSDÓTTIR, Hrauntungu 6, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju föstudaginn 29. nóvember kl. 15.00. Pétur Auðunsson, Guðrún Óla Pétursdóttir, Þorsteinn Auðunn Pétursson, Ragnheiður Pálsdóttir, Hinrik Pétursson, Erla Margrét Margeirsdóttir og barnabörn. t Eiginkona mín, móðir, amma og lang- amma, MARÍA SIGURÐARDÓTTIR, Starengi 48, Reykjavík, er látin. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakt þakklæti til handa heimahlynn- ingu Krabbameinsfélagsins. Haukur Þorsteinsson, börn, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginkona mín, ALDA GUÐLAUGSDÓTTIR, Baughóli 27, Húsavik, lést sunnudaginn 24. nóvember. Útförin fer fram frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 30. nóvember kl. 10.30. Fyrir hönd aðstandenda, Hreiðar Sigurjónsson. t Ástkær frænka okkar, EMILÍA BRYNHILDUR M. JÓHANNESDÓTTIR, frá ísafirði, Hrafnistu, Hafnarfirði, lést í Sjúkrahúsi Reykjavíkur 17. nóvem- ber. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Jóhannes Jensson, Guðrún Jensdóttir, Jenný Jensdóttir, Ragnar Jensson, Þórný Jensdóttir. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, EVA VILHJÁLMSDÓTTIR frá Meiri-Tungu, Holtum, Ásgerði 5, Reyðarfirði, sem lést á hjúkrunarheimilinu Eir sunnu- daginn 24. nóvember, verður jarðsungin frá Áskirkju föstudaginn 29. nóvember kl. 3 síðdegis. Hallgrímur Jónasson, Valgerður Hallgrímsdóttir, Vigdís Hallgrfmsdóttir, Gunnar Ingi Gunnarsson, Jónas Hallgrímsson, Kristín Isleifsdóttir, Lára Birna Hallgrímsdóttir, Heimir Geirsson, Guðrún Bóel Hallgrímsdóttir, Björgvin Karlsson, Ketill Hallgrimsson og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang- ömmu, HELGU JÓNSDÓTTUR, Höfðabraut 8, Akranesi. Guð blessi ykkur öll. Börn, tengdabörn, barnabörn og langömmubörn. + Guðrún Jó- hannsdóttir fæddist á Sellandi í Reykjavík 12. júní 1899. Hún lést á heimili sínu hinn 19. nóvember síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Jóhann Björnsson og Helga Tómasdóttir. Hinn 21. maí 1938 giftist Guðrún Jóni Olafs- syni, f. 20. júní 1898, d. 22. mars 1964. Þeim varð ekki barna auðið, en tóku að sér kjörson, Jóhann Þóri Jónsson, sem kvæntur er Sig- ríði Vilhjálmsdóttur og eiga þau þrjú börn. Einnig tóku þau fósturdóttur, Guðfinnu Iris Þórarinsdóttur, og er hún gift Nú þegar amma er dáin þurfum við sem eftir erum að finna út hvemig best er að kveðja hana. Og það er hreint ekki auðvelt. Amma var margbrotin og frábær manneskja, nokkur orð í blaði ná aldrei að lýsa henni vel og orðin eru fábrotin þegar þau eru notuð til að lýsa manneskju eins og henni. Réttu orðin eru ekki til. Wemer Ipsen og eiga þau fimm böra. Guðrún lauk kenn- araprófi árið 1931 og var kennari í Vestur-Eyjafjalla- hreppi 1931-1933. Hún var forstöðu- kona hjá Mjólkur- samsölunni frá byrj- un 1935-1942, og síðar frá 1958- 1972. Hún var starfsmaður Morg- unblaðsins frá 1975-1988. Guðrún var stofnfé- lagi Alþýðuflokksins og var heiðursfélagi í stúkunni Eining- in nr. 1. Útför Guðrúnar fer fram frá kapellu Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Amma var besta amma í heimi. Hún hafði alltaf tíma til að tala við okkur, sama hvað bjátaði á. Hún skildi okkur betur en nokkur annar og þegar við vorum búin að tala við hana, búin að segja henni frá því sem bjátaði á virtist allt vera auðleyst. Þannig var nefnilega hún amma. Hún þurfti varla neitt að segja. Hún leysti málin með því að vera hún sjálf, með því að hlusta og gefa ráð. Við eigum eftir að sakna ömmu svo óumræðilega mikið. Hún var okkur svo margt, ekki bara amma heldur líka félagi og vinur. Leikfé- lagi þegar við vorum lítil og trúnað- arvinur þegar við urðum unglingar. Það eru ekki margir sem geta breyst svo mikið án þess að breyt- ast neitt. Það verður skrýtið að geta ekki lengur farið upp til ömmu að spjalla yfir rjúkandi heitum kakó- bolla og nýsteiktum kleinum, að geta ekki talað við ömmu um hvað bjátar á eða hvað á daga okkar hefur drifið. Okkur langar meira að segja að fara upp til hennar núna og tala um sorgina yfir að vera búin að missa hana. En það verður ekki. Héðan í frá tölum við ekki við ömmu meir nema í gegn- um hugskeyti. Hugskeyti sem við erum viss um að amma muni fá og svara. Þótt síðar verði. Megi ömmu líða vel núna hjá Guði. Ef einhver á hvildina skilið er það hún. Góða nótt, elsku amma, láttu þér líða vel. Þó að jarðnesk björgin brotni, bili himinn, þomi mar, allar sortni sólimar, eldar deyi - allt um þrotni, aldrei gleymist það sem var. (Ók. höf.) Guðrún Jóna Ipsen, Jón Rúnar Ipsen, Karl Agúst Ipsen, Halldór Bjarki ípsen. GUÐRÚN JÓHANNSDÓTTIR + Steinunn Guð- munda Ólafs- dóttir fæddist á Kirkjulandi í Aust- ur-Landeyjum 4. apríl 1904. Hún lést á Hjúkrunarheimil- inu Skjóli 12. októ- ber síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Kross- kirkju í Austur- Landeyjum 19. október. Steinunn Guðmunda lifði og starfaði nær alla okkar byltingarkenndu öld. „Við höfum lifað fomöldina og nú- tímann,“ sagði vitur kona við skrif- ara þessa greinarkoms. í upphafi aldar voru vinnuhættir lítt breyttir frá því sem verið hafði þá er land byggðist. Og nú tæknibyltingin með sínu umróti og brambolti. Steinunn Guðmunda var fædd á Kirkjulandi í Austur-Landeyjum. Þar bjuggu foreldrar hennar bjarg- álna búi 1897 til 1934. Einkenn- andi fyrir heimilisfólk á Kirkjulandi var alúð og góðvild til sam- ferðafólks. Landeyingar héldu þjóðhátíð sína á Kirkjulandi árið 1974. Þá bjó þar frægur smiður, Bjami Bjarna- son. Mér var sagt að hann hefði smíðað klukkuna miklu í Hall- geirsey. í Jarðabók Áma og Páls segir um Kirkju- land: „Þessi jörð liggur undir miklum spjöllum af sandi og vatni og jafnvel eyði- leggingu." Samt búnaðist mönnum betur á Kirkjulandi en sumum jörð- um sem betur þóttu í sveit settar. Magnús Magnússon hét maður. Hann var son Magnúsar Þórðarson- ar, hann var bóndi og kunnur for- maður á Kirkjulandi. Magnús yngri í samtali: „Mér hlýnar alltaf um hjartarætur þegar ég hugsa um Kirkjuland í Austur-Landeyjum. Þar urðum við (systkin) sem sagt að manni. Ég held að við hefðum orðið uppkreistingar og ónýt til allra hluta, ef við hefðum ekki flust á Kirkjuland." Foreldrar Guðmundu voru Ólaf- ur Sigurðsson, bóndi á Torfastöð- um í Fljótshlíð, og Ingibjörg Guð- mundsdóttir, bónda og smiðs frá Brekkum í Hvolhreppi. Afi Ingi- bjargar var Þorkell á Ljótarstöðum í Landeyjum, frægur skipasmjður, smíðaði m.a. Gideon, Trú og ísak, „sem öll voru orðlögð gæða- og happaskip". I búskapartíð Kirkjulandshjóna sóttu Landeyingar sjó fast. Það mun hafa verið á útmánuðum 1916 að Jónas í Hólmahjáleigu, formaður föður míns, „lagði frá“ til Vest- mannaeyja. Sjór hafði brimað svo ekki var hægt að lenda við Sandinn. Þá gátu menn orðið innlyksa í Eyj- um dögum eða vikum saman. Heim- ilin sum hafa þá verið illa stödd þegar húsbóndinn var fjarri. Móðir mín varð þá að bæta á sig gegning- um því ekki mátti svelta skepnurn- ar. Flaug nú „fiskisagan", að Svan- urinn hefði ekki náð landi, og það þótt ekki væri þá sími nema á tveim bæjum í sveitinni. Þá í ljósaskiptum kemur Guð- munda austur að Rimakoti, send móður minni til halds og trausts. Móðir mín minntist stundum þessa sérstaka vinarbragðs fólksins á Kirkjulandi. Var hvort tveggja að telpan var hugsunarsöm og glað- lynd, hélt konunni í kotinu selskap og hafði skrifara í gæslu, fimm ára og lítt hæfan til útiveru um hávetur. Guðmunda giftist 12. maí 1932 Ágústi Guðlaugssyni (1903-1991) í Norðurhjáleigu í Austur-Landeyj- um. Ungu hjónin hófu þar búskap árið 1934. Þeim búnaðist vel þótt jörðin væri ekki mjög stór. Um tutt- ugu árum síðar nefndist bær þeirra Lækjarhvammur. Hjáleigunöfn sér- lega mörg í A-Landeyjum fyrrum. En eftir að Ingólfur frændi hafði hvatt bændur til að þurrka land, rækta land og stækka búin sín var ekki við hæfi að halda 5 hjáleigur sem voru orðnar höfuðból. Ágúst í Lækjarhvammi var smið- ur góður. Hann var eiginlega „stað- arsmiður" ijölskyldunnar í Vatna- hjáleigu. Hann smíðaði íbúðarhús og heyhlöðu. Og handa undirrituð- um hans fyrsta bókaskáp sem enn er í fullu gildi. Þau hjón fluttu til Reykjavíkur árið 1967. Ágúst andaðist árið 1991 og Guðmunda 12. október 1996. Blessuð sé minning Lækjar- hvammshjóna. Haraldur Guðnason. t Okkar elskulegi faðir, tengdafaðir, afi og bróðir, GUÐMUNDUR MAGNÚSSON frá Traðarbakka, Akranesí, siðar Bláhömrum 2, Reykjavik, lést á Borgarspítalanum 20. nóvember sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. , Börn, tengdabörn, barnabörn og systur. t Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÞÓRUNN WOODS, Blikabraut 3, Keflavík, lést þriðjudaginn 26. nóvember. Kristinn B. Egilsson, Sesselja Woods, börn, tengdabörn og barnabörn. STEINUNN GUÐMUNDA ÓLAFSDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.