Morgunblaðið - 28.11.1996, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1996 57
FRETTIR
Jólasala
í Bergvík
GLERBLÁSTURSVERKSTÆÐIÐ í
Bergvík, Kjalarnesi, heldur jólasölu
á útlitsgölluðu gleri nú um helgina,
30. nóvember og 1. desember.
Á boðstólum verður kaffi og pip-
arkökur og e.t.v. gefst færi á að
sjá glerblástur/mótun. Verkstæðið
hefur verið stækkað þannig að
rýmra er um gesti en áður. Gallerí-
ið verður opið.
Gierverkstæðið er staðsett um
27 km frá Reykjavík við Vestur-
landsveg, milli Klébergsskóla (Fólk-
vangs) og Grundarhverfis. Opið
verður laugardag kl. 10-17 og
sunnudag kl. 10-15.
Framlög til
verkmenntunar
verði aukin
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi frá Menningar- og frið-
arsamtökum íslenskra kvenna:
„Fundur Menningar- og friðar-
samtaka íslenskra kvenna, haldinn
23. nóvemnber sl., skorar á Alþingi
og ríkisstjóm að stórauka framlög
til verkmenntunar í landinu.
Efling verkmenntunar er grund-
völlur þróunar í verkmenningu og
framleiðni. Aukin verkmenntun eyk-
ur fjölbreytni í íslensku atvinnulífi.
Verkmenntun veitir unglingum og
æskufólki þroskavænleg viðfangs-
efni.
Það fjármagn sem verkmennta-
skólar þurfa að fá gæti m.a. nýst til
að bijóta upp kynbundna og úrelta
verkaskiptinu á vettvangi iðnaðar-
og framleiðslu."
Jafnframt: „Fundur Menningar-
og friðarsamtaka íslenskra kvenna
fagnar degi íslenskrar tungu sem
haldinn er í minningu Jónasar Hall-
grímssonar.
Fundurinn lýsir ánægju sinni með
þá viðurkenningu sem kennarinn og
skáldið Vilborg Dagbjartsdóttir hefur
hlotið fyrir að laða og hvetja unga
íslendinga til að rækta mál sitt.“
Jólaferð með
Kátu fólki kát-
um dögum til
Dublinar
FERÐAKLÚBBURINN Kátt fólk -
kátir dagar efnir til jólaferðar fyrir
félaga sína og aðra áhugasama
ferðalanga til Dublinar dagana
12.-15. desember nk. Flogið er til
Dublinar með breiðþotu Atlanta
flugfélagsins á fimmtudagsmorgni
og til baka á sunnudagskvöldi.
Gist er á hótelinu Burlington og
fararstjóri verður Ásthildur Péturs-
dóttir sem þegar hefur farið nokkrar
ferðir með félaga í ferðaklúbbnum.
í síðustu ferð voru um 100 félagar.
Jólabasar og
flóamarkaður
NÍUNDI bekkur Æfingaskóla
Kennaraháskóla íslands verður með
jólabasar í skólanum á laugardag
kl. 1116.
Á boðstólum verður ýmis varn-
ingur framleiddur af nemendum og
foreldrum, m.a. skotpallar fyrir ára-
mótaflugeldana, jólakort, kökur og
fjölmargir hlutir á vægu verði.
Ágóðinn rennur í ferðasjóð 9.
bekkjar vegna Danmerkurferðar og
skólaheimsóknar unglinganna til
Álaborgar í ágúst á næsta ári.
Ljósmyndasýning Morgunblaðsins
NÁTTÚRUHAMFARIRNAR Á VATN AJÖKLI
t\f* c l/cm ADADCAKini Eldgosið í Vatnajökli í október og
V/Vl hlaup á Skeiðarársandi í byrjun
nóvember eru meðal mestu náttúru-
hamfara á Islandi á þessari öld. A svipstundu stórskemmdust samgöngumannvirki á
Skeiðarársandi og hringvegurinn rofnaði sem olli einstaklingum og fyrirtækjum á sunnan-
og austanverðu landinu miklum óþægindum.
Ljósmyndarar Morgunblaðsins fylgdust vel með náttúruhamförunum og í anddyri
Morgunblaðshússins, Kringlunni 1, hefúr verið komið upp yfirlitssýningu á völdum myndum
sem teknar voru þar.
Sýningin stendur til föstudagsins 6. desember og er opin á afgreiðslutíma blaðsins kl. 8-18
alla virka daga og laugardaga kl. 8-12.
Allar myndirnar á sýningunni eru til sölu.
MYNDASAFN
STAKUR JAKKI
7980, -
SKYRTA
MEÐ KÍNAKRAGA
1980r
FRAKKI
12900,-
LAUGAVEGI 18 B REYKJAVIK
HERRATÍSKA Á HEIMSVÍSU