Morgunblaðið - 16.04.1997, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 1997 17
ERLENT
Fyrrum forseti Ecuador neitar að
leggja árar í bát
„Vitfirringnrinn“
leitar alþjóð-
legs stuðnings
Fyrrum forseti Ecuador líkir sér við Jesú Krist
og kveðst hafa verið settur af í þaulskipulögðu
valdaráni. Stjórnvöld þar segja hann grafa undan
öryggi landsins og hafa gefið út handtökuskipun.
Ásgeir Sverrisson segir frá stjórnmálaástandinu
í þessu fátæka Suður-Ameríkuríki og fáránlegri
valdabaráttu sem minnir þó frekar á harmleik.
Reuter
ABDALA Bucaram, fyrrverandi forseti Ecuador, syngur í hljóð-
veri. Sljórnvöld í Ecuador hafa gefið út skipun um að hann verði
handtekinn og farið fram á það að Panamasljórn framselji hann.
ABDALA Bucaram, fyrrum forseti
Ecuador, gerir nú víðreist og leitar
eftir alþjóðlegum stuðningi á þeim
forsendum að honum hafi verið
komið frá völdum með ólöglegum
hætti. Bucaram, sem nefndi sjálfan
sigjafnan „vitfirringinn" („El loco“
á spænsku), var komið frá völdum
á nákvæmlega þeim sömu forsend-
um í byijun febrúar og frá þeim
tíma hefur pólitísk óvissa bæst við
þá efnhagslegu óáran sem ríkir í
heimalandi hans. Yfirvöld í Ecuador
gáfu á mánudag öðru sinni út skip-
un um að Buacaram, sem sótt hef-
ur um pólitískt hæli í Panama, yrði
handtekinn. Var jafnframt farið
fram á að yfirvöld í Panama fram-
seldu hann.
Yfirvöld í Ecuador fóru einnig
fram á að eignir Bucarams yrðu
gerðar upptækar og áður höfðu
bankareikningar hans verið frystir.
Þegar fyrri handtökuskipunin var
gefin út 10. apríl svaraði Bucaram
þar sem hann var staddur í Panama
því til að um væri að ræða pólitískt
sjónarspil, sem óvinir sínir hefðu
sett á svið til að koma í veg fyrir
að sneri aftur til Ecuador.
„Þeir gefa út handtökuskipun svo
að ég geti ekki snúið aftur og þeir
geti haldið áfram að reka einræðis-
stjórnina," sagði hann. í vikunni
áður en fyrri handtökuskiptunin var
gefin út hafði Bucaram sagt að
hann ætlaði aftur heim í júní til að
halda áfram afskiptum af stjórn-
málum og bjóða fram í forsetakosn-
ingum á næsta ári. Verið gæti að
hann færi aftur til Ecuador á laun
til að gera ráðamönnum lífið leitt.
Þing Ecuador leysti Bucaram frá
störfum 6. febrúar sl. á þeim for-
sendum að hann hefði gerst sekur
um spillingu og valdníðslu. Að auki
var tiltekið að „einkennileg hegðun
forsetans á opinberum vettvangi"
gæfi tilefni til efasemda um geð-
heilsu hans. Þessa ályktun sam-
þykkti þingið með einföldum meiri-
hluta atkvæða og fullyrðir Bucaram
að það hafi verið stjórnarskrárbrot.
Sérfræðingar í stjórnarskrá Ecuad-
or hafa tekið undir þetta sjónarmið
forsetans fyrrverandi og haldið því
fram að aukins meirihluta sé þörf
í slíkum tilfellum.
„Vitfirringnr sem elskar"
Bucaram á magnaðan feril að
baki. Fáir stjómmálamenn á seinni
árum þykja hafa beitt jafn ósvífnu
lýðskrumi í áróðri sínum og fáir
hafa framið „pólitískt sjálfsmorð“
með jafn afdráttarlausum hætti.
Bucaram var kjörinn forseti Ecuad-
or í júlí í fyrra með 54% greiddra
atkvæða. Þeim árangri náði hann
með lygilegri kosningaherferð, sem
minnti meira á skrípaleik en raun-
verulega stjórnmálabaráttu undir
gunnfánum lýðræðisins og var fylli-
lega í samræmi við vitfirrings-nafn-
bótina sem frambjóðandinn hafði
tekið sér.
Frambjóðandinn söng, öskraði og
grét á fundum sínum á milli þess
sem hann steig á svið og tók lagið
á meðan léttklæddar yngismeyjar
með litað hár stigu eggjandi dans
við hlið mannsins sem hafði einsett
sér að verða forseti landsins.
Framkoman varð jafnvel ein-
kennilegri eftir að Bucaram hafði
náð að vinna sigur á frambjóðanda
hægri manna, Jaime Nebot. Hann
snæddi hádegisverð með Lorraine
Bobbitt, konu frá Ecuador, sem
komst í heimsfréttirnar fyrir að
limstýfa eiginmann sinn í Banda-
ríkjunum. Forsetinn hélt áfram að
troða upp með frjálslega klæddum
ungum stúlkum og söng „Fangels-
is-rokkið“ við ágætar undirtektir.
Hann tók upp lagið „Vitfirringur
sem elskar“ og safnaði efrivarar-
skeggi að hætti Adolfs Hitlers áður
en hann kom fram í sjónvarpsþætti.
Verra var þó að á meðan forset-
inn skemmti landsmönnum með
þessum hætti var hann í óðaönn
við að koma ættmennum sínum og
vinum í há embætti innan ríkisgeir-
ans. Yngri bróðir hans, maður um-
deilanlegra hæfileika og reynslu,
var gerður að félagsmálaráðherra.
Ovinsælar aðgerðir
í nóvembermánuði kynnti forset-
inn nýi síðan strangar aðhaldsað-
gerðir á vettvangi efnahagsmála
og við það tóku að renna tvær grím-
ur á þjóðina. Vinsældirnar gufuðu
upp með undraskjótum hætti. Efna-
hagur Ecuador var og er sannarlega
rústir einar en alþýða manna reynd-
ist ekki tilbúin að kyngja aukinni
skattbyrði og minni niðurgreiðslum
auk þess sem rafmagns-, gas- og
símareikningarnir stórhækkuðu.
Mótmælaverkföll voru boðuð og til-
raunir Bucarams til að draga í land
komu of seint; þing landsins lýsti
forsetann vanheilan á geðsmunum
og setti hann af.
Frá þeim tíma hefur Bucaram
haldið til í sjálfskipaðri útlegð í
Panama. Varaforseti landsins,
Rosalia Arteaga, fyrrum dansfélagi
Bucarams, kona ágætlega valdagír-
ug og metnaðarfull, tók við forseta-
embættinu í nokkra daga en neydd-
ist til að láta það af hendi þegar
þing landsins kaus Fabian Alarcon
forseta til bráðabirgða þar til kosn-
ingar eiga að fara fram eftir 18
mánuði. Sjálfur segir Alarcon að
Bucaram og dansfélagi hans vara-
forsetinn hafi ógnað stöðugleikan-
um í Ecuador og því hafi reynst
nauðsynlegt að grípa til svo rót-
tækra aðgerða.
„Kristur, Gandhi og ég“
„Vitfirringurinn" hefur aðra
sögu að segja. Bucaram heldur því
fram að þing Ecuador hafi rænt
völdum í landinu með stuðningi
heraflans og hefur farið þess á leit
við allar lýræðiselskandi þjóðir að
þær styðji hann aftur til valda í
heimalandinu sem sé honum svo
kært. Bucaram kveðst hafa skjöl
undir höndum sem sanni þessa sam-
særiskenningu hans og þau sýndi
hann Rafael Caldara, forseta
Venesúela, á fundi þeirra nýlega.
Forseti Venesúela kaus að tjá sig
ekki um viðræður þeirra en Bucar-
am átti fund með fréttamönnum,
sem reyndist í ágætu samræmi við
þá frumlegu nafngift sem forsetinn
fyrrverandi hefur tekið sér.
Á fundinum kvaðst Bucaram
vera fórnarlamb „neikvæðra afla“
með nákvæmlega sama hætti og
margar aðrar þekktar persónur
mannkynssögunnar. Þessu til sann-
indamerkis nefndi hann Jesú Krist,
indversku frelsishetjuna Mahatma
Gandhi og bandaríska blökku-
mannaleiðtogann Martin Luther
King. „Hvers vegna má forseti Ecu-
ador ekki syngja rokklög?" spurði
hann og þegar ekkert svar barst
bætti hann við þeirri spurningu
hvort Bill Clinton, forseti Banda-
ríkjanna, teldist óhæfur eingöngu
vegna þess að hann hefði unun af
því að leika á saxófón.
Bucaram hefur einnig haldið því
fram að eftir að sér var vikið frá
hafí yfírvöld í Ecuador keypt vopn
í gríð og erg í þeim tilgangi að
undurbúa stríð við grannríkið Perú.
Þessi tvö ríki börðust stuttlega um
umdeilt svæði í frumskóginum
1995. Milton Alava, dómsmálaráð-
herra Ecuador, segir að ummæli á
borð við þessi séu „alvarleg árás á
öryggi landsins í utanríkismálum".
Væntir stuðnings
Bandaríkjamanna
Á meðan þessu fer fram reynir
hinn nýi forseti landsins, Fabian
Alarcon, að festa sig í sessi. í við-
tali við spænska útgáfu tímaritsins
Newsweek sagðist forsetinn stefna
að því að tryggja stöðugleika í
stjórnmálum Ecuador og leita leiða
til að leysa bráðan efnahagsvanda
landsmanna, sem eru að kikna und-
an erlendum skuldum, atvinnuleysi
og fátækt. Forsetinn hafnaði því
algjörlega að þrír „forsetar“ berð-
ust um völdin í Ecuador og sagði
yfirlýsingar Bucarams ekki svara
verðar. Hann neitaði efnislega að
svara fullyrðingum, sem m.a. hafa
borist frá öðrum ráðamönnum í
Suður-Ameríku þess efnis að valda-
rán hefði verið framið í landinu.
„Vanda Ecuador munu íbúar Ecu-
ador leysa sjálfir.“
I þessum heimshluta er stuðning-
ur Bandaríkjamanna lífsnauðsyn-
legur hveijum ráðamanni og forset-
inn nýi sagði hugsanlegt að hann
sækti Bandaríkin heim á næstu
þremur mánuðum til að treysta
tengslin. Jafnvél væri hugsanlegt
að hann berði að dyrum í Hvíta
húsinu og ætti fund með Clinton
Bandaríkjaforseta. Hinir nýju ráða-
menn í Ecuador væntu stuðnings
og skilnings af hálfu ráðamanna í
Bandaríkjunum.
Umboðið hjá Bucaram
Ekki liggur fyrir hvort Alarcon
getur vænst stuðnings úr þeirri átt-
inni; lýðræðislegt umboð hans til
að halda um valdataumana er í
besta falli umdeilanlegt þó að flest-
ir telji að mikilvægast sé að binda
enda á skrípaleikinn sem einkennt
hefur stjórnmálalífið á undanförn-
um mánuðum í þessu bláfátæka
landi. „Sá bijálaði" hefur enn ekki
lagt árar í bát hvað sem öllum hand-
tökuskipunum líður og eftir stendur
að hann er hinn eini af „forsetun-
um“ þremur sem beijast um völdin
sem getur státað af því að hafa
hlotið lýðræðislegt umboð þjóðar-
innar til að gegna forsetaembætt-
inu.
Sjávarútvegsráðherrar ESB
Ove Fichum niðurstöðu ríkjaráðstefnu ESB
Samþykktu 30% niðurskurð
Luxemborg. Reuter.
Býst við þjóðar-
atkvæðagreiðslu
SAMÞYKKT var á fundi sjávarút-
vegsráðherra Evrópusambandsins,
ESB, í Luxemborg í gær að minnka
veiði úr þeim fiskstofnum, sem verst
standa, um allt að 30% á fimm
árum. Voru Bretar og Frakkar
bornir ofurliði í atkvæðagreiðslunni
en þeir fyrrnefndu vilja, að fyrst
verði tekið á svokölluðu kvótahoppi
Spánveija og Hollendinga og þeir
síðarnefndu lögðu til, að niður-
skurðurinn yrði 15%.
„Við munum ekki sætta okkur
við, að fjórðungur breska fiski-
skipaflotans verði í höndum útlend-
inga,“ sagði Tony Baldry, sjávarút-
vegsráðherra Bretlands, að at-
kvæðagreiðslunni lokinni. „Breskur
fiskur er fyrir breska sjómenn. Við
gætum hæglega náð 30%-markinu
með því að losa okkur við kvóta-
hopparana."
John Major, forsætisráðherra
Bretlands, sagði í gær, að hann
myndi ekki beita sér fyrir neinum
niðurskurði fyrr en fundin hefði
verið lausn á kvótahoppinu og ítrek-
aði, að hann myndi koma í veg fyr-
ir niðurstöðu af leiðtogafundi í júní
um framtíðarskipulag ESB ef þetta
mál yrði ekki leitt til lykta.
Styrkur til
endurskipulagningar
Framkvæmdastjórn ESB lagði
upphaflega til, að veiðarnar yrðu
skornar niður um 40% á sex árum
en því var hafnað af ótta við mikið
atvinnuleysi í sjávarútvegs-
bæjunum. Samkvæmt þeim regl-
um, sem samkomulag náðist um,
verður um að ræða 20% niður-
skurð í þeim stofnum, sem eru
taldir ofnýttir en ekki beinlínis
rányrktir. Þessar reglur ná hins
vegar ekki til
skipa, sem eru
12 metra löng
eða styttri.
Embættis-
menn ESB í
Brussel sögðu,
að samkomulag-
ið opnaði fyrir
tugmilljarða króna styrk, sem
notaður yrði til að endurskipu-
leggja evrópskan sjávarútveg.
OVE Fich, formaður Evrópu-
málanefndar danska þingsins og
frammámaður stjórnarflokks
jafnaðarmanna, segir að líkleg-
ast muni danska
stjórnin láta
fara fram þjóð-
aratkvæða-
greiðslu um nið-
urstöðu ríkja-
ráðstefnu Evr-
ópusambands-
ins, óháð því
hver niðurstaða dómsmáls sem
nokkrir andstæðingar andstæð-
ingar ESB-aðildar reka um þess-
ar mundir fyrir dönskum dóm-
stól, sem snýst um það hvort
danska sljórnarskráin hafi verið
brotin með aðiid Danmerkur að
Maastricht-sáttmálanum.
Fich segist búast við því að þær
breytingar sem samið verði um
á yfirstandandi ríkjaráðstefnu,
sem stefnt er að því að ljúka á
leiðtogafundi ESB í Amsterdam
í júní nk., verði það umfangs-
miklar að ríkisstjórnin muni
hvort sem er ekki sjá sér annað
fært en að bera niðurstöðuna
undir þjóðaratkvæði.