Morgunblaðið - 17.05.1997, Side 12
12 LAUGARDAGUR 17. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Arsreikningur Reykjavíkurborgar 1996 lagður fram mánuði fyrr en tíðkast hefur
Oddviti minnihluta rengir full-
yrðingar um skuldalækkun
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri sagði við fyrri umræðu
um ársreikning Reykjavíkurborgar
1996 á fundi borgarstjómar á
fimmtudag að niðurstöður hans
sýni glögglega að R-listanum hafi
tekist að bæta fjárhagsstöðu
Reykjavíkurborgar verulega frá því
að hún var verst á árinu 1994.
Því til stuðnings benti hún á að
peningaleg staða Reykjavíkurborg-
ar, miðað við árslokaverðlag 1996,
hafi batnað undanfarin ár og að
heildarskuldir hafi lækkað lítillega
miðað við sömu forsendur. Halli á
samstæðureikningi borgarinnar
væri nú neikvæður um 588 millj.
kr., miðað við 1.302 millj. kr. 1995
og 3.100 millj. kr. árið 1994.
Gerir alvarlegar
athugasemdir
Árni Sigfússon, oddviti sjálfstæð-
ismanna í borgarstjóm, kvaðst í
samtali við Morgunblaðið í gær
gera mjög alvarlegar athugasemdir
við fullyrðingar borgarstjóra um að
heildarskuldir Reykj avíkurborgar
lækki lítillega. „Staðreyndin er að
skuldir Reykjavíkurborgar aukast
um 1.113 millj. kr. á milli 1995 og
1996,“ sagði hann.
„Þar af nemur skuldaaukning
borgarsjóðs 948 millj. kr. en mis-
munurinn er skuldaaukning borgar-
fyrirtækja. Peningaleg staða borg-
arsjóðs versnar á sama tíma um
1.047 millj. kr. staða borgarfyrir-
tækjanna batnar. Miðað við þessa
niðurstöðu er það til skammar að
borgarstjóri leyfi sér að snúa stað-
reyndum í þessu máli eins og öðr-
um. Ég er sannfærður um að þetta
mun koma fram í skýrslu endur-
skoðenda sem verður þá lögð fram
við síðari umræðu.“
í bókun borgarfulltrúa Sjálfstæð-
isflokks vegna framlagningar árs-
reiknings segir að frá því að R-list-
inn tók við stjómartaumum hafí
skuldir borgarsjóðs aukist um 2,6
milljarða króna og skuldir á sameig-
inlegum reikningi borgarsjóðs og
fyrirtækja borgarinnar, sk. sam-
stæðureikningi, um 6 milljarða kr.
Þetta gerist síðan á sama tíma og
tekjur borgarsjóðs aukist.
Borgarfulltrúar minnihlutans
sökuðu R-listann ennfremur um að
stunda bókhaldsleiki sem miði að
því að fela skuldir með því að færa
þær úr öðrum vasanum, þ.e. borgar-
sjóði, í hinn vasann, þ.e. samstæðu-
reikninginn. Með þessum hætti hafí
t.a.m. skuldir borgarsjóðs við Mal-
bikunarstöð og Grjótnám, 624 millj.
kr., verið látnar hverfa.
Mánuði fyrr á ferðinni
Borgarstjóri rakti helstu niður-
stöður ársreikningsins á fundi borg-
arstjómar. Vakti hún sérstaka at-
hygli á því að reikningurinn væri
nú lagður fram mánuði fyrr en ver-
ið hefur. Segir hún þau vinnubrögð
í samræmi við að tekist hefði að
afgreiða fjárhagsáætlun ársins
1997 í desember fyrir upphaf fjár-
hagsársins en ekki í febrúarmánuði
líkt og tíðkast hafi.
Bókfærðar skatttekjur námu
12.670 millj. kr. en þær höfðu ver-
ið áætlaðar 11.556 millj. kr. Aukn-
ingin skýrist að sögn borgarstjóra
af framlagi ríkisins til að standa
undir kostnaði við yfírtöku borgar-
innar á grunnskólunum sl. haust.
Ingibjörg Sólrún greindi frá því
að tekist hafí að minnka verulega
greiðslubyrði lána á árinu. Greiðslu-
byrði árið 1996 var áætluð 1.622
millj. kr. en reyndust vera aðeins
1.082 millj. kr. Að sögn borgar-
stjóra má rekja góðan árangur til
virkrar lánastýringar og betri láns-
kjara.
Borgarstjóri sagði að tekist hefði
að ná því markmiði að borgarsjóður
væri fjármagnaður eingöngu með
langtímalánum en ekki skamm-
tímalánum. Yfirdráttarheimild í við-
skiptabanka væri þess vegna aðeins
nýtt til að mæta mánaðarsveiflum
í útgjöldum borgarsjóðs.
Minni sala á heitu vatni
Samanlögð velta borgarfyrir-
tækja á síðasta ári nam tæpum 11
milljörðum kr. og hagnaður af
reglulegri starfsemi 937 millj. kr.
Tekjur voru 216 millj. kr. lægri en
áætlað var sem skýrist að mestu
með því að tekjur Hitaveitunnar
urðu 261 milljón kr. lægri en áætl-
að var vegna 10% minni sölu á
heitu vatni en árið áður.
Hjúkrunarfræðingar sam-
þykkja heilbrigðisstefnu
Sjúk böm
í beinu
sambandi
við skólann
STYRKTARFELAG krabba-
meinssjúkra barna afhenti í gær
Barnaspítala Hringsins fjar-
kennslubúnað sem ætlað er að
auðvelda sjúkum börnum, sem
eru umtalsverðan tíma frá skóla
vegna veikinda, nám og félagsleg
samskipti við skólafélagana. Auk
Styrktarfélagsins hafa mennta-
málaráðuneytið, Póstur og sími
hf., Kennaraháskóli íslands,
Austurbæjarskóli, Bjarni Sig-
urðsson og Magnús Logi Magnús-
son lagt verkefninu Iið.
Búnaðurinn er í grunninn
Pentium tölva með Windows 95
og Office hugbúnaði sem nýta
má á hefðbundinn hátt m.a. til
samskipta bandsupptökuvél,
hljóðnema og fleiru sem gerir
viðkomandi aðilum, þ.e. hinum
sjúka nemanda á sjúkrahúsinu
annars vegar og hins vegar kenn-
ara og bekkjarfélögum í skólan-
um, kleift að vera í mynd- og
hljóðsambandi. Með því móti á
hinn sjúki nemandi að geta tekið
beinan þátt í kennslustund þótt
hann liggi á sjúkrahúsi.
FULLTRÚAÞING Félags íslenzkra
hjúkrunarfræðinga hefur sam-
þykkt stefnu í hjúkrunar- og heil-
brigðismálum. Jafnframt hefur
þingið endurskoðað siðareglur
hjúkrunarfræðinga og kosið nýja
stjóm félagsins.
Meðal áherzluatriða í stefnu fé-
lagsins er að skjólstæðingar og
aðstandendur séu virkir þátttak-
endur í umönnun og ákvarðanatöku
um eigið heilbrigði. Hjúkrunar-
fræðingar leggja áherzlu á mikil-
vægi þess að almenningur fái sem
greiðastan aðgang að upplýsingum
tengdum heilbrigði og heilbrigðis-
þjónustunni.
Þjónusta færð nær vettvangi
skjólstæðinga
Hjúkrunarfræðingar benda jafn-
framt á að samfara þeirri stefnu
að minnka vægi stofnanaþjónustu
en leggja jafnframt áherzlu á að
veita þjónustu nær vettvangi skjól-
stæðings sé nauðsynlegt að byggja
upp öflugt stuðningskerfi heilbrigð-
is- og félagsþjónustu fyrir skjól-
stæðinga og fjölskyldur þeirra.
Fjallað er um fjármögnun heil-
brigðisþjónustunnar og telur félag-
ið að „vegna eðlis heilbrigðisþjón-
ustunnar sé eðlilegt að stór hluti
hennar sé í höndum hins opinbera,
en hvetur jafnframt til að fjöl-
breytt rekstrarform verði könnuð."
Borgarstjórn
Aukafundur
vegna kosninga
BOÐAÐ hefur verið til aukafundar
hjá borgarstjórn fímmtudaginn 23.
maí nk. til þess að unnt verði að
taka á dagskrá 2. umræðu um til-
lögu meirihluta og minnihluta borg-
arstjómar um kjördag fyrir at-
kvæðagreiðslu um sameiningu
Reykjavíkur og Kjalamess.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borg-
arstjóri, sagði að þetta væri gert til
þess að utankjörstaðaatkvæða-
greiðsla gæti hafíst fyrr en síðar.
Stefnt er að því að hún hefjist 26.
maí nk. en sameiningarkosningar
fara fram 21. júní.
Fulltrúaþingið samþykkti að
skora á yfírvöld heilbrigðis- og
menntamála að þau beiti sér fyrir
því að ráðnir verði skólahjúkrunar-
fræðingar til starfa í framhalds-
skólum landsins í þeim tilgangi að
bæta aðgengi ungs fólks að heil-
brigðisþjóustu og heilbrigðisráð-
gjöf, sem sniðin sé að þörfum þess.
I greinargerð með tillögunni kemur
fram að margt bendi til að ungt
fólk leiti ekki til heilbrigðisstofnana
eftir ráðgjöf eða hjálp af ýmsum
ástæðum. Því sé nauðsynlegt að
heilbrigðisþjónusta og ráðgjöf
standi íslenzkum ungmennum til
boða þar sem þau séu við nám og
störf.
Ný stjórn
í nýrri stjóm sitja Ásta Möller,
formaður, Jóhanna Bernharðsdótt-
ir 1. varaformaður, Hildur Helga-
dóttir 2. varaformaður, Anna Lilja
Gunnarsdóttir gjaldkeri, Hrafnhild-
ur Baldursdóttir ritari, Erlín Ósk-
arsdóttir meðstjórnandi, Steinunn
Kristinsdóttir meðstjómandi, Fríð-
ur Brandsdóttir varamaður og Guð-
rún Guðmundsdóttir varamaður.
Morgunblaðið/Golli
FRÁ afhendingu fjarkennslubúnaðarins á
Barnaspítala Hringsins i gær.
Forstjóri Pósts og síma hf. um úrskurð samkeppnisráðs
Póstur og sími hefur komið
á virkri samkeppni
GUÐMUNDUR Bjömsson, forstjóri
Pósts og síma hf., segir að samkeppn-
isyfírvöld eigi að fagna því að Póstur
og sími hf. skuli hafa opnað gátt
fyrir alnetsþjónustu til útlanda. Á
þann hátt hafi verið komið á virkri
samkeppni þar sem Intemet á ís-
landi, Intís, hefði verið eini aðilinn
sem áður sá um heildsöludreifíngu
þjónustunnar til útlanda.
„Það hlýtur að vera almennt fagn-
aðarefni að það skuli vera komin á
samkeppni á þessu sviði, en það er
ekki minnst á það í nýlegum úr-
skurði samkeppnisráðs um alnets-
þjónustu Pósts og síma hf. Varðandi
ummæli sem fram komu í viðtali við
þá Helga Jónsson hjá Intís og Bjöm
Davíðsson hjá Snerpu í Morgunblað-
inu 14. maí um úrskurð samkeppnis-
ráðs, þar sem þeir sögðu að Póstur
og sími hafi ekki sett upp boðaða
innhringiþjónustu vegna alnetsþjón-
ustunnar, þá er þetta einfaldlega
rangt hjá þeim þar sem uppsetningu
búnaðarins lauk á síðasta ári. Eg
held að þeir hljóti að hafa einhvetjar
rangar upplýsingar, því ég ætla ekki
mönnum að fara vísivitandi með ós-
annindi af þessu tagi,“ sagði Guð-
mundur.
Hvað varðar fjárhagslegan að-
skilnað milli samkeppnissviðs Pósts
og sima hf. og annarra sviða fyrir-
tækisins, eins og samkeppnisráð fór
fram á í úrskurði sínum, sagði Guð-
mundur að aðskilnaðinum hefði þeg-
ar verið komið á og jafnframt hefðu
verið reiknaðir markaðsvextir á
stofnframlagi einkaréttar í ársreikn-
ingum 1996. Hins vegar sagði hann
það vera spumingu hvort eðlilegt sé
að reiknaðir séu vextir af hverri
krónu sem lögð er til fyrirtækis af
þessu tagi.
Varðandi þau fyrirmæli sam-
keppnisráðs um að samkeppnissviði
Pósts og síma hf. sé óheimilt að nota
tekjur af rekstri GSM- og NMT-fíar-
skiptakerfanna til að greiða niður
kostnað við þjónustu eða aðra starf-
semi sem rekin er í virkri samkeppni
við aðra aðila, segir Guðmundur að
staðreyndin sú að það geri Póstur
og sími ekki, og því hafí hann engar
athugasemdir við það sem fram kem-
ur um þetta í úrskurði samkeppnis-
ráðs. „Það vakna hins vegar spum-
ingar um hvort þeim aðila sem er
að fá rekstrarleyfí fyrir GSM-fjar-
skiptarekstur verður óheimilt að nota
hagnað af slikri starfsemi hér á landi
til þess að greiða niður aðra þjónustu
sem er í samkeppni. Það er auðvitað
leyfísháð starfsemi á sama hátt og
hjá okkur," sagði hann.
Stórir viðskiptavinir eiga að
iyóta betri kjara
Um þau fyrirmæli samkeppnisráðs
að keppinautar samkeppnissviðs
Pósts og síma hf. skuli njóta sam-
bærilegra viðskiptakjara og sam-
keppnissvið nýtur og sambærilegs
aðgangs að búnaði og hvers konar
tæknilegri aðstöðu sem tengist einka-
réttarþjónustu fyrirtækisins segir
Guðmundur að svo hafi ætíð verið
og annað standi ekki til nema slíkt
sé tæknilega ómögulegt.
„Þó að samkeppnissvið Pósts og
síma sé langstærsti aðilinn í leigulín-
um hér á landi þá hefur það ekki
notið magnafsláttar, sem er í raun
og veru óeðlilegt. Við teljum nefni-
lega að stórir viðskiptavinir eigi að
njóta betri kjara en litlir viðskiptavin-
ir, en samkeppnissviðið hefur ekki
notið þess. Þá segir I úrskurðinum
að öll frávik varðandi aðgang að
aðstöðu og búnaði verði að byggjast
á hlutlægum og málefnalegum sjón-
armiðum, þ.e. tæknilegum ómögu-
leika, og þetta munum við virða,“
sagði Guðmundur.
Ekki óeðlilegt að upp komi
ágreiningur
Guðmundur sagðist ekki efast um
að Samkeppnisstofnun væri að gera
það í málefnum Pósts og síma hf.
sem stofnunin teldi rétt, en hins veg-
ar væru stjómendur fyrirtækisins
ósammála niðurstöðum stofnunarinn-
ar í nokkrum veigamiklum atriðum.
„Þannig höfum við ákveðið að fara
dómstólaleiðina með úrskurð sem
kveðinn var upp í einu þessara mála,
þ.e. varðandi stjórnunarlegan að-
skilnað á samkeppnisþjónustu og
einkaréttarþjónustu í pósti. Við telj-
um að þar hafí samkeppnisráð farið
út fyrir valdsvið sitt, og eftir því sem
ég veit best eru slíkir úrskurðir ekki
fyrir hendi í öðrum löndum. Það er
hins vegar ekkert óeðlilegt að það
komi upp ágreiningur af þessu tagi,
og heldur ekkert óeðlilegt að fyrir-
tæki eins og Póstur og sími hf. leiti
réttar síns telji menn að úrskurðimir
séu rangir, til þess eru dómstólarnir
og það þarf enginn að fyrtast við því
í sjálfu sér,“ sagði Guðmundur
Björnsson.