Morgunblaðið - 16.10.1997, Qupperneq 10
10 FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1997
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Friðrik Sophusson fjármálaráðherra á Alþingi í gær
Morgunblaðið/Þokell
FRIÐRIK Sophusson við umræðurnar á Alþingi í gær.
Réttur feðra til fæðing-
arorlofs til athugunar
RÍKISSTJÓRNIN hefur nú til at-
hugunar lagafrumvarp sem trygg-
ir feðrum á almennum vinnumark-
aði sjálfstæðan rétt til fæðingar-
orlofs. Þetta kom fram í máli Frið-
riks Sophussonar fjármálaráð-
herra í umræðum um fæðingaror-
lof feðra á Alþingi í gær.
Friðrik sagðist telja að kostnað-
ur við slíkan orlofsrétt yrði í kring-
um eitt hundrað milljónir króna.
Beinast lægi við að sá kostnaður
yrði greiddur í gegnum Trygg-
ingastofnun ríkisins og þá af
tryggingargjaldi, sem myndi þýða
um 0,05% hækkun á því.
Umræðurnar um fæðingarorlof
feðra á Alþingi í gær urðu í kjöl-
far fyrirspurnar Svanfríðar Jónas-
dóttur, þingmanns Þjóðvaka, til
fjármálaráðherra um það hvort
allir karlar, sem störfuðu hjá rík-
inu og uppfylltu skilyrði um
starfsaldur, hefðu rétt til fæðing-
arorlofs án tillits til þess í hvaða
stéttarfélagi þeir væru.
Friðrik sagði svo vera. Hann tók
jafnframt fram
að rétturinn til
sjálfstæðs fæð-
ingarorlofs karla
væri fyrst og
fremst veittur til
að auka mætti
jafnrétti karla
og kvenna.
Ákvörðun um
hann hefði ekki
verið tekin í
tengslum við
gerð kjarasamninga eða að und-
angengnum viðræðum við stéttar-
félögin.
Frumvarp frá Kvennalistanum
um fæðingarorlof væntanlegt
í máli Friðriks í gær kom enn-
fremur fram að gert væri ráð fyr-
ir því í rekstrarkostnaði stofnana
ríkisins að til kostnaðar gæti kom-
ið vegna fæðingarorlofs feðra hjá
ríkinu. „Verði hins vegar um „far-
aldur“ að ræða hjá einstakri stofn-
un verður auðvitað gripið til að-
gerða til að bæta
stofnuninni það
upp,“ sagði
hann.
Guðný Guð-
björnsdóttir,
þingmaður
Kvennalista,
fagnaði því að
réttur til fæðing-
arorlofs ætti að
ná til allra feðra
sem starfa hjá
ríkinu. Hún sagði þennan rétt mik-
ilvægan áfanga í jafnréttisbarátt-
unni þó enn væri mjög langt í land
miðað við það sem tíðkast á hinum
Norðurlöndunum, þar sem feður
gætu fengið allt að þijá mánuði í
fæðingarorlof. „Að því hljótum við
að stefna," sagði hún og bætti því
við að Kvennalistakonur ásamt
fleirum væru að undirbúa að leggja
fram lagafrumvarp sem gerir ráð
fyrir „mun betri sjálfstæðum rétti
feðra til fæðingarorlofs en þessum
tveimur vikum“.
1 •| ^1:1 $;:■% fíÍÁÍí|3|fl
ALÞINGI
Lögnm um tekjuskatt og
eignarskatt verði breytt
FRUMVARP til laga liggur nú
fyrir Alþingi um breytingu á lög-
um um tekjuskatt og eignarskatt.
Fyrsti flutningsmaður frumvarps-
ins er Steingrímur J. Sigfússon,
þingmaður Alþýðubandalags.
Frumvarp þetta var flutt á síðasta
þingi en varð þá ekki útrætt. Nú
er það endurflutt „nokkuð breytt
í ljósi breyttra aðstæðna", eins og
segir í greinargerð með frumvarp-
inu.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að
við lögin um tekjuskatt og eignar-
skatt bætist svohljóðandi ákvæði
til bráðabirgða: „Við álagningu
tekjuskatts árið 1998 skal, til að
draga úr jaðaráhrifum tekjuteng-
ingar bótaliða í skattkerfinu, haga
útreikningi tekjutengdra bótaliða
þannig: Samanlagt hlutfall
álagðra skatta og skerðingar bót-
aliða skal vera að hámarki 50%.
Skal skerðing vaxtabóta eða húsa-
leigubóta reiknuð fyrst en síðan
skerðing barnabóta að áðurnefnd-
um mörkum.“
Samráð verði haft við
samtök launafólks
Þá gerir frumvarpið ráð fyrir
að Alþingi kjósi nefnd skipaða
fulltrúum allra þingflokka, auk
formanns sem fjármálaráðherra
skipar, til að gera í samráði við
samtök launafólks ítarlega úttekt
á áhrifum tekjutengingar í skatt-
kerfinu og samspili slíkrar tekju-
tengingar við aðra þætti, svo sem
almannatryggingakerfið, lífeyris-
réttindi, tekjutengdar afborgamr
námslána og fleira. Ennfremur
skal nefndin skila tillögum um
breytingar á skattalögum sem fela
það í sér að komist verði hjá óhóf-
legum jaðaráhrifum vegna tekju-
tengingar bótaliða, í skattkerfinu
og utan þess.
I greinargerð með frumvarpinu
er því haldið fram að erfitt sé að
meta kostnað vegna þeirra breyt-
inga sem frumvarpið felur í sér
fyrir árið 1998, en líklegt sé að
um nokkur hundruð millj. kr. tekj-
utap yrði að ræða fyrir ríkissjóð
kæmi ekkert annað til. „Lægri
jaðarskattsprósenta gæti þó orðið
til þess að launatekjur ykjust
nokkuð og þar með skattar,“ seg-
ir í greinargerðinni.
Alþingi
íslendingar vanmeta
möguleika túnfiskveiða
KRISTJÁN Pálsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sagðist í
fyrirspurn til sjávarútvegsráðherra á Alþingi í gær telja að
íslendingar vanmætu möguleika túnfiskveiða við íslands-
strendur. Vísaði hann í því sambandi til góðs árangurs japan-
skra skipa, sem hafi verið á túnfiskveiðum í íslenskri land-
helgi frá því í sumar. Sagði hann að miðað við þær fréttir
væri um mikla tekj umöguleika að ræða sem gætu aflað
þjóðarbúinu tekna sem skiptu milljörðum króna.
„Árangurinn sem hefur komið í ljós af túnfiskveiðum í
sumar bendir eindregið til þess að við eigum að vera mjög
ákveðnir í því að efla þessar veiðar á næsta ári. Bæði með
rannsóknum með aðstoð Hafrannsóknastofnunar og einnig
með því að hvetja alla þá sem að þessu koma, útgerðarmenn
sem og aðra, til að kynna sér þessi mál ítarlega."
Til að auðvelda íslenskum
útgerðum ákvörðun
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra sagði að þær til-
raunir til túnfiskveiða sem færu nú fram í samvinnu við
Hafrannsóknastofnun og japanska aðila væru vitanlega gerð-
ar til þess að athuga
veiðimöguleika á túnfiski
hér við land og þar með
til að auðvelda íslenskum
útgerðum ákvörðun um
það hvort þær reyni frek-
ar við túnfiskveiðar.
Ráðherra benti enn-
fremur á að ráðuneytið
hefði komið fyrirliggj-
andi upplýsingum um
þessar rannsóknir á
framfæri og hvatt út-
gerðarmenn til að kanna
þessa möguleika. Hann
sagði þarna vafalaust
mikla möguleika fyrir
hendi en sagði eðlilegt
að útgerðarmenn sýndu
varkárni vegna þeirra
fjárfestinga sem fylgdu
túnfiskveiðum.
Frumvarp um breytingar á lögum
um almannatryggingar
ÁGÚST Einarsson, þingmaður Þjóðvaka, Steingrímur J. Sig-
fússon, þingmaður Alþýðubandalags, Jón Baldvin Hannibals-
son, þingmaður Alþýðuflokks og Kristín Ástgeirsdóttir, þing-
maður Kvennalista, hafa lagt fram frumvarp til laga á AI-
þingi um breytingu á lögum um almannatryggingar.
í frumvarpinu er lagt til að afnumið verði bráðabirgðaá-
kvæði í almannatryggingalögum sem kveður á um að ekki
gildi lengur tenging bóta almannatrygginga við launabreyt-
ingar. Með afnámi þessa bráðabirgðaákvæðis gildi hins vegar
fyrri lagaákvæði um að greiðslur úr almannatryggingakerf-
inu taki sömu breytingum og vikukaup í almennri verka-
mannavinnu.
í greinargerð flutningsmanna segir að verði frumvarpið
samþykkt taki greiðslur úr almannatryggingakerfinu, þ.e.
ellilífeyrir, örorkulífeyrir, tekjutrygging, barnalífeyrir, bæt-
ur í fæðingarorlofi, slysatryggingar og sjúkratryggingar,
mið af breytingum sem verða á launum. „Ríkissljórnin afnam
þessa viðmiðun við launabreytingar með bráðabirgðaákvæði
árið 1995 og ákvað að hækkanir þessara greiðslna kæmu
fram á fjárlögum hveiju sinni. Fullyrt var að ekki stæði til
að nota þessa kerfisbreytingu til að skerða bætur en annað
hefur komið á daginn,“ segir í greinargerðinni.
Alþingl
Dagskrá
Rætt um heilbrigðismál utan dagskrár
ÞINGFUNDUR Alþingis hefst
kl. 10.30 í dag með utandag-
skrárumræðu um stefnuna í
heilbrigðismálum, að ósk
stjórnarandstöðunnar.
Málshefjandi er Margrét Frí-
mannsdóttir, Alþýðubandalagi,
en Ingibjörg Pálmadóttir heil-
brigðisráðherra verður til and-
svara. Umræðan verður þijár
umferðir og er gert ráð fyrir
að hún standi í eina og hálfa
klukkustund.
Eftirfarandi mál eru síðan á
dagskrá:
1. Tekjuskattur og eignar-
skattur. Framhald 1. umræðu.
(Atkvgr.)
2. Ríkisábyrgðir. 1. umr.
3. Virðisaukaskattur. 1. umr.
4. Ríkisreikningur 1996.1
umr.
5. Starfsskýrsla Rikisendur-
skoðunar 1996. Ein umr.
6. Atvinnusjóður kvenna.
Fyrri umr.
7. Aðgerðir til að draga úr
ofbeldisdýrkun. Fyrri umr.
8. Efling atvinnu- og þjón-
ustusvæða á landsbyggðinni.
Fyrri umr.
9. Þingvallaurriðinn. Fyrri
umr.
10. Umgengni um nylja-
stofna sjávar. Fyrri umr.