Morgunblaðið - 16.10.1997, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 16.10.1997, Blaðsíða 72
Fyrstir meö <Ö> AS/400 er... ...þar sem grafísk notendaskil eru fjL í fyrirrúmi <ö> NÝHERJI HP Vectra PC HEWLETT PACKARD Sjádu meira á www.hp.is MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG RITSTJ@MBL:IS AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1997 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Hætt við sölu franska fyrirtækisins Gelmers til Sölumiðstöðvarinnar SH stefnir eigendun- um fyrir samningsrof SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihúsanna hefur stefnt eigendum franska fyrirtækisins Gelmer í Boulogne fyrir samningsrof, en skömmu áður en undirrita átti samning um kaup SH á Gelmer síðastliðinn þriðjudag tilkynnti lögmaðm- aðaleiganda Gelmers að hann myndi ekki undirrita samninginn þar sem hann væri hættur við að selja SH fyrirtækið. Gelm- er leggur stund á ýmsa starfsemi tengda ferskfisk- innflutningi, fisksölu og fullvinnslu fiskrétta. í fréttum Ríkisútvarpsins og Stöðvar 2 í gær- kvöldi var sagt að Islenskar sjávarafurðir hefðu gengið frá kaupum á Gelmer í gær, en Hermann Hansson, stjórnarformaður IS, vildi í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi ekkert tjá sig um málið. Morgunblaðið hefur heimildir íyrir því að fjórir menn hafi verið í Boulogne á vegum ÍS um og eftir síðustu helgi. Að sögn Friðriks Pálssonar, forstjóra SH, hefur verið krafist lögbanns á sölu bréfanna í Gelmer á meðan SH leitar réttar síns. Viðræður um kaup SH á Gelmer hafa staðið yfh- síðastliðna þrjá mánuði og sagði Friðrik að vitað hefði verið að fleiri aðilar væru að skoða fyrirtæk- ið. Á einhverju stigi málsins hefði SH verið sagt að ÍS væri væntanlega einn af þeim. Hann sagði að á sama tíma og aðaleigandi Gelm- ers hefði tilkynnt SH að hann myndi ekki selja fé- laginu bréfin hefðu fengist frétth’ af því að hann væri í viðræðum við annan aðila. „Það varð til þess að við ákváðum strax, af því að við töldum vera kominn á samning, að stefna honum og krefjast þessarar kyrrsetningar eða lögbanns á bréfunum," sagði Friðrik. „Málið var gjörsamlega fullfrágengið. Það voru öll plögg klár og búið að gefa út fyrirmæli frá seljanda um hvernig skipta átti upphæðum á ávísanir og búið að útbúa þær. Þetta var því algjörlega frágengið." Strangar kröfur SH um ábyrgðir Friðrik sagði að viðræðurnar við eigendur Gel- mers hefðu verið mjög erfiðar vegna þess að SH hefði gert mjög strangar kröfur um ábyrgðir vegna ýmissa fjárhagslegra og lagalegi-a álita- mála. Slitnað hefði upp úi’ viðræðunum föstudag- inn 3. október, en að beiðni seljanda hefðu viðræð- ur verið teknar upp á ný nokkrum dögum síðar. „Frá þeim tíma og allar götur þar til við fáum upphringingu fyrir hádegið á þriðjudag erum við í góðri trú að semja við þennan mann, lögfræðing- ana hans og starfsmennina hans, og aldrei nokkurn tímann gefið neitt annað í skyn heldur en að hlutimir væru á fullri ferð og lokafrágangur allur í eðlilegum farvegi. Þetta er óskiljanlegt framferði," sagði Friðrik. Rekstrartap undangengin ár Hjá Gelmer starfa nokkur hundruð starfsmenn, en fyrirtækið er með stóra ferskfiskdeild og flytur inn mikið af ferskum fiski, víðs vegar að úr heimin- um, m.a. frá Islandi. Gelmer er einnig með um- svifamikinn innflutning og sölu á unnum fiskafurð- um, og það rekur stóra fiskréttaverksmiðju í Boulogne. Fyrirtækið hefur verið rekið með rekstrartapi undangengin tvö ár og sagði Friðrik að lykilfor- senda þess að SH hafði áhuga á að kaupa fyrir- tækið væri sú að stjórnendur SH hefðu talið að til þess að snúa rekstri þess við yrðu að koma til samlegðaráhrif við fyrirtæki á sama sviði sem væri í fullum rekstri og jafnframt með aðgang að þekkingu og mörkuðum til þess að rífa fyrirtækið upp. Fyrst og fremst hefði verið áhugi á að eign- ast hina nýju fiskréttaverksmiðju fyrirtækisins, en rekstur hennar hefði getað fallið mjög vel að rekstri Coldwater Seafood UK í Grimsby, sem hefur í vaxandi mæli selt afurðir sínar á franska smásölumarkaðnum. Hluthafafundur verður haldinn hjá SH í dag. Seyðisfjörður Fugl drepst vegna olíu- mengunar Seyðisfirði. Morgunblaðið. TÖLUVERT af olíu fór í sjóinn á Seyðisfirði á þriðjudaginn þegar verið var að dæla gasolíu um borð í togarann Hólmadrang. Skipstjóri togarans tilkynnti óhappið til hafnarstjóra Seyðis- fjarðar. Þar sem um gasolíu var að ræða var ekki mikið hægt að gera því hún dreifist mjög fljótt. Heilbrigðisfulltrúa Seyðisfjarðar var ekki tilkynnt um slysið en lögregla fékk að vita um það og gerði vettvangsskýrslu. Svo virð- ist sem slysið hafi orðið er vél- stjóri skipsins var að dæla milli tanka. Ekki er ljóst hversu mikið magn af olíu fór í sjóinn, en þó hefur það verið svo mikið að fugl er farinn að drepast í firðinum. Þegar er vitað að margir tugir fugla hafa orðið fyrir mengun og eiga í vandræðum. Sjálfboðaliðar vinna nú við að reyna að bjarga fuglum sem lent hafa í olíunni en að sögn lögreglu á staðnum er alls óljóst hvort einhverjum, og þá hverjum, ber skylda til þess að koma villtum dýrum til hjálp- ar þegar svona slys verða. Lífeyrisfrumvarp Formaður SAMFOKS hefur áhyggjur af hörðum hnút kennaradeilunnar Ráðstafa megi iðgjaldi til maka I DRÖGUM lagafrumvarps um starfsemi lífeyrissjóða, sem nú er til meðferðar hjá nefnd sem væntanlega skilar niðurstöðum á næstunni, er gert ráð fyrir því að sjóðfélagi geti ákveðið að iðgjald hans skuli, allt að hálfu, renna til þess að mynda sjálf- stæð réttindi fyrir maka hans. Friðrik Sophusson, fjármálaráð- herra, greindi frá þessu á ráðstefnu um framtíðarsýn og sátt milli kyn- slóða í Reykjavík í gær. Á ráðstefnunni voru m.a. birtir fyrstu kynslóðareikningarnir sem gerðir hafa verið hérlendis en niður- staða þeirra er m.a. að heildarskatt- byrði komandi kynslóða, þ.e. þeirra sem fæðast fram til 2020 verði 161% meiri en heildarskattbyrði einstak- lings sem fæddist árið 1995. ■ Skattbyrði mun/12 --------------- Leituðu rjúpnaskyttna NOKKURRA rjúpnaskyttna var saknað á Holtavörðuheiði í gærkvöldi og var björgunarsveitin Heiðar í Stafholtstungum kölluð út til að leita þeirra. Áður en til þess kom höfðu mennirnir skilað sér niður á veg, mun neðar í heiðinni en þar sem þeir höfðu farið úr bílum sínum í gær- morgun. Björgunarsveitarmenn í Mývatns- sveit leitúðu að manni sem hafði orð- ið viðskila við félaga sína í Búrfells- hrauni, þar sem þeir voru á veiðum, en hann fannst á tíunda tímanum í gærkvöldi og amaði ekkert að hon- um. Þá leituðu björgunarsveitir á Húsavík og nágrenni að manni sem hafði verið á rjúpnaveiðum skammt suður af Húsavík en varð viðskila við félaga sinn. Morgunblaðið/Kristinn FOLK var áhyggjufullt á fundinum í gærkvöldi. Sættum okkur ekki við verkfall „VIÐ höfum verulegar áhyggjur af því hvað deilan virðist í hörðum hnút og við sættum okkur engan veginn við verkfall. Við óttumst um viðhorf til skólastarfs til langframa ef til verkfalls kemur,“ sagði Guðbjörg Björnsdóttir formaður Samtaka for- eldra- og kennarafélaga í skólum í samtali við Morgunblaðið. Samtökin stóðu í gærkvöldi fyrir fundi fulltrúa í stjómum foreldrafé- laga og foreldraráða til að hlýða á fréttir af stöðu samningamála í kenn- aradeilunni beint frá fulltrúum beggja samninganefnda. Guðbjörg Björns- dóttir kvað fulltrúa launanefndai’ sveitarfélaga hafa hafnað þátttöku í fundinum. Guðbjörg sagði óánægju kennara mun meiri en nokkru sinni. „Við höfum líka heyrt þær raddir að kynt hafi verið um of undir væntingum innan raða kennara um væntanlegar kjarabætur.“ Guðbjörg minnti á að kennarar hefðu áðm- farið í verkfall og væru enn óánægðir og velti fyrii- sér hvort verk- fall nú myndi skila meiri kjai-abótum og meiri ánægju í skólastarfið. „Það kemur los á allt starfið og verður aldrei hægt að bæta nemendum það upp. Sumir árgangar eru að fara gegn- um grunnskólann með tvö eða þrjú verkfóll og það má spyrja hvaða afleið- ingar það hefur fyrir þá kynslóð." „Eg hef áhyggjur af kjörum kenn- ara og tel að þau þurfi að bæta en jafnframt er nauðsynlegt að lagfæra fyrirkomulag vinnutíma þeirra og færa til nútímalegra horfs þannig að það standi ekki í vegi fyrir endurbót- um í skólastaifi," sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri á fundinum. Borgarstjóri kvaðst áhyggjufull vegna stöðunnar í kjaraviðræðunum en sagðist hafa tröllatrú á að samn- ingar tækjust á elleftu stundu. „Sjálfsímynd og sjálfsvirðing kenn- ara og sveitarfélaga bíður mikinn hnekki ef til verkfalls kemur sem ég óttast að verði langvarandi. Áður en til verkfalls kæmi væru sveitarfélög- in búin að teygja sig fram á ystu nöf og teldu sig ekki geta bætt miklu við þótt til verkfalls kæmi. Kennarar myndu væntanlega ekki fara út í verkfall nema að ætla sér að upp- skera eitthvað þannig að það verður erfitt að ná saman.“ Byggt verði á núverandi vinnutímagrunni Jón G. Kristjánsson, formaður launanefndar sveitarfélaga, tjáði Morgunblaðinu í gærkvöld að ýmis atriði hefðu verið rædd á breiðum grundvelli á samningafundi í gær og væri annar fundur boðaður í dag. Á SAMFOK-fundinum í gær sagði Ei- ríkur Jónsson, formaður KI, að lögð hefði verið fram á samningafundinum hugmynd um að greiða sérstaklega fyrir meira en þriggja klukkustunda bundna vinnu kennara í skólunum upp í fullt starf í einsetnum skólum. Eiríkur taldi ekki tíma til að ná sam- komulagi um algjörlega nýtt fyrir- komulag í vinnutíma en sagði hægt að ná saman á hugmynd sem byggði á núverandi gninni en opnaði mögu- leika til að kaupa aukna vinnu af kennurum ef áhugi væri fyrir hendi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.