Morgunblaðið - 16.10.1997, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 16.10.1997, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1997 33 AÐSENDAR GREINAR Á UNDANFÖRN- UM árum hefur at- vinnuleysi verið að festa rætur í íslensku samfélagi. Opinberir aðilar hafa reynt að grípa í taumana með aðgerðum sem hafa tekist misvel. Sumar hafa verið umdeildar, eins og þegar fyrrver- andi meirihluti í Reykjavík lét um 500 milljónir króna í svo- kölluð átaksverkefni sem því miður skiluðu litlum árangri. Um tíma fækkaði á at- vinnuleysisskrá en þeir einstaklingar sem nutu úrræðanna voru jafn atvinnulausir eftir átakið eins og fyrir það. Það er þess vegna mikilvægt þegar skipulagðar eru aðgerðir gegn atvinnuleysi að reynt sé að leggja hlutlaust mat á það hvort úrræðin skili markverðum árangri og hvort þau séu að ná til þess hóps sem þeim er ætlað að ná til. Atvinnuleysi hefur heijað mjög mikið á ungt fólk og allt að fimmta hvert ung- menni í Reykjavík hef- ur á undanförnum árum verið atvinnu- laust um lengri eða skemmri tíma. Við höf- um á örfáum árum horft upp á mikla sam- félagsbreytingu sem felst í því að unglinga- störf eru nánast að hverfa og að ungt fólk getur ekki á sama hátt og áður gengið nánast ómenntað í vel launuð störf á vinnumarkaði. Sífellt er krafist meiri sérmenntun- ar á vinnumarkaði án þess þó að á sama tíma séu til skilgreindar námsbrautir sem beinast að til- teknum störfum. Góður árangur Á undanförnum árum hefur Hitt húsið skipulagt og haldið utan um námskeiðshald fyrir ungt atvinnu- Um 60% þeirra, sem tóku þátt í starfsnám- inu, segir Steinimn V. — Oskarsdóttir, bættu verulega stöðu sína á vinnumarkaði. laust fólk í Reykjavík. Tilfinning manna hefur verið sú að þessi verk- efni séu að skila tilætluðum arangri en til þess að kanna það lét íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur og Atvinnu- og ferðamálanefnd Reykja- víkurborgar gera úttekt og mat á starfsnámi Hins hússins. Nú nýlega var kynnt skýrsla dr. Gests Guðmundssonar um árangur starfsins. Öllu ungu fólki á atvinnu- leysisskrá er sent bréf frá Hinu húsinu og gefinn kostur á að sækja um þátttöku en mikil áhersla er lögð á að ná til þeirra sem lerigst hafa verið á atvinnuleysisskrá. í ljós hefur komið að flestir þátttakendur hafa horfið frá námi án skilgreindra námsloka og að flestir hafa ein- hvetja reynslu af vinnumarkaði. Starfsnám Hins hússins er byggt þannig upp að þátttakendur fara fyrst á námskeið og enda síðan á að fara í starfsþjálfun á vinnustað. Það er ótvíræð niðurstaða rann- sóknarinnar að þetta úrræði skili markverðum árangri og hafa marg- ir þátttakendur uppi stór orð um að námskeiðið hafi vakið þá af doða og fleira í þeim dúr. Mæling á ár- angri sýnir að um 60% þeirra sem tóku þátt í starfsnáminu bættu verulega stöðu sína á vinnumarkaði. Skýrsla Gests sýnir svo ekki verður um villst að við erum á réttri braut varðandi skipulagningu úr- ræða fyrir ungt atvinnulaust fólk í Reykjavík. En betur má ef duga skal og því þarf sífellt að vera með verkefnin í endurskoðun. Áframhald starfsins Á námskeiðum Hins hússins hef- ur hingað til verið gerð krafa um a.m.k. 50% bótarétt atvinnuleysis- bóta sem kemur til vegna krafna frá Atvinnuleysistryggingasjóði. Þ.e. sveitarfélagið fær endur- greiðslu frá sjóðnum vegna ein- staklinga sem eru á skrá og hafa rétt til atvinnuleysisbóta. Þetta ákvæði hefur sett starfinu nokkrar skorður því ekki hefur verið hægt að taka inn einstaklinga sem engan bótarétt hafa, en þeir hafa oft mesta þörf fyrir aðstoð. Nú í haust hefst hins vegar námskeið sem sérstak- lega er ætlað bótalausum einstakl- ingum. Við vitum að stór hópur ungs fólks er hvorki í skóla né vinnu og jafnvel ekki á skrá hjá Vinnu- miðlun Reykjavíkurborgar. Það er erfitt að henda reiður á hversu stór þessi hópur er en ljóst er að þessir einstaklingar eru í mestri hættu að lenda í langtímaatvinnuleysi. Þarna verður að grípa strax í taumana til að koma í veg fyrir að atvinnuleys- ið verði að lífsmynstri. í dag hvetur ekkert ungan atvinnulausan ein- stakling til að skrá sig ef hann hefur engan bótarétt. Þessu verður að breyta og setja einhvers konar hvata í kerfið til að hægt sé að nálgast þennan hóp á markvissari hátt en gert er í dag. Það verður eitt af stærstu verk- efnum samfélagsins á næstu árum að koma í veg fyrir að atvinnuleysi aukist enn meira en nú er. Við eig- um ekki að sætta okkur við að ungt frískt fólk, sem hefur lent utan skóla eða er ekki á vinnumark- aði festist í langtímaatvinnuleysi. Atvinnuleysi á ekki að vera „lifs- stíll“, síst af öllu fyrir ungt fólk sem á framtíðina fyrir sér. Höfundur er borgarfulltrúi. Góður árangur af starfs- námi Hins hússins Steinunn V. Óskarsdóttir Leiðrétting ÞEGAR annar borg- arfulltma Alþýðu- bandalagsins i R-listan- um geysist. fram á rit- völlinn, ríkir jafnan þóttafullt orðbragð. Verk hans eru stórkost- leg en öfund og sundur- þykkja eiga að ein- kenna verk annarra. Að hætti gömlu kom- manna svertir hann einstaklinga og fer rangt með. Hann hefur áhyggjur af prófkjöri okkar sjálfstæðis- manna og skyldi engan undra. Kassaprófkjör R-listans, þar sem hveijum flokki er úthlutað tveimur sætum, er svo flókið og óljóst að hugað hefur verið að sérstöku nám- skeiði við Háskóla íslands fyrir þá sem hyggjast taka þátt í því. Þótt Arni Þór hefji mál sitt á öfund í garð okkar sjálfstæðis- manna vegna öflugs prófkjörs er megin tilgangur greinar hans í Morgunblaðinu 14. október annar. Þau skrif skulu leiðrétt hér. Korpúlfsstaðir-Hafnarhús Þegar loks lágu fyrir kostnaðar- áætlanir vegna endurbyggingar Korpúlfsstaða, sem að stórum hluta átti að nýta undir listasafn, tók ég málið upp í borgarstjórnarflokki sjálfstæðismanna og beitti mér gegn frekari framkvæmdum. Kostnaðurinn var einfaldlega allt of mikill, miðað við forgang verk- efnisins í mínum huga. Niðurstaðan var að hætt var við framkvæmdina. Afstaða mín til framkvæmda í Hafnarhúsi byggir á sömu forsend- um. Nú þegar eru vel yfir 30 lista- söfn, sýningasalir og gallerí í Reykjavík og ef þörf væri á nýjum sal undir listaverk þyrfti hann ekki að kosta 700 milljónir. Auk þessa þykir mér staðsetningin óheppileg. Þá hef ég sagt að tónlistarhús sé ofar í forgangsröð okk- ar sjálfstæðismanna en 700 milljóna kr. lista- safn. Niðurstöður starfshóps borgarráðs Niðurstöðum starfs- hóps um Hafnarhúsið, sem skipaður var af borgarráði, fylgdu kostnaðaráætlanir upp á rúmar 400 milljónir kr. Þær voru aldrei samþykktar og reyndi því ekki á pólitíska af- stöðu borgarfulltrúa. Þá hefur heldur ekki verið farið eftir hugmyndum starfs- hópsins í veigamiklum atriðum er Svo dýr framkvæmd, segir Arni Sigfússon, samræmist ekki for- gangsröð okkar til nýtingar skattfjár. varða verslunar- og þjónustuhús- næði við Tryggvagötu. Niðurstöður starfshópsins eru því algjört auka- atriði. Kostnaður nálgast 700 milljónir Kostnaður við listasafnið er nú metinn á 670 milljónir kr. og stefnir yfir 700 milljónir. Kaupverð þess nemur 125 milljónum kr. og breyt- ingakostnaður er nú áætlaður 525 milljónir kr. Búnaður er nú áætlað- ur aðeins 20 milljónir kr. Árni Þór Sigurðsson verður að æfa samlagn- inguna. Meiri fjölgun á leikskóla á síðasta kjörtímabili Á síðasta kjörtímabili sjálfstæðis- manna fjölgaði plássum á leikskóla Árni Sigfússon um 1.200 en á þessu kjörtímabili fjölgar líklega um 870 pláss. Þó er þar um að ræða fleiri heilsdags- pláss svo dvalarstundaíjöldinn verð- ur líklega svipaður. Það eru öll af- rek R-listans i leikskólamálum. Stefna um einsetningu mótuð og verk hafin á síðasta kjörtímabili Á fyrsta ári þeirra þriggja sem ég var formaður Fræðsluráðs á sið- asta kjörtímabili var mótuð stefna um einsetningu grunnskóla borgar- innar og hafnar framkvæmdir sam- kvæmt henni. Um þetta var sam- staða í fræðsluráði sem ríkir enn. Tekist hefur að semja við ríkið, vegna yfirfærslu á verkefnum grunnskólanna, um þátttöku í byggingarframkvæmdum. Reykja- vík stóð ein fyrir þessum fram- kvæmdum á síðasta kjörtímabili. Að ofangreindu sést að ekki stendur steinn yfir steini í málflutn- ingi Árna Þórs Sigurðssonar, full- trúa Alþýðubandalagsins í R-listan- um. Höfundur er oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn Reykjavíkur. VINDUFOTUR Arnarberg ehf. Fossháls 27, Draghálsmegin Sími 567 7557 • Fax 567 7559 ESTEE LAUDER Taktu í taumana í dag Resilience Elastin Refirming linan fyrir andlit, augu og líkama. Resilience kremin eru samansett úr háþróuðum efnum sem hindra eyðingu elastin þráðana í j' j húðinni og styrkja þá fyrir framtíðina. Byrjaðu núna - sjáðu áhrifamikinn árangur þar sem húðin verður stinnari, þéttari og unglegri á nokkrum vikum. Kynnstu einnig Futurist nýja farðanum frá Estée Lauder. Lúxus prufa fylgir öllum Estée Lauder kremum. ____ f STLf LAUD.ER ResiUence Elasún KefiirriingLoúoii ■si(.ntaffatnissarilc f?ÍE LAOO^ r^mc reficnwaf V ‘ ™ mm STEt LAD(e^ (SNYRTIVöRUVERSLUNII GLÆS@Æ Álfheimum 74, sími 568 5170 S. Ráðgjafar frá Estée Lauder verða í versluninni í dag og á morgun. HÚSGAGN ALAGERINN 9 • Sími 564 1475* * : R % % t Þreytt(ur) á gömlu þungu bílskúrshurðinni? Nú er rétti tíminn til að panta nýja, létta, einangraða stálhurð frá Raynor pl □ U □ u 1 u £ i UmJ VERKVER Smiðjuvegi 4b, Kópavogi ■0“ 567 6620 Raynor bílskúrshurðaopnarar Verðdsemi: Fulningahurð 229 x 244 cm kfe 61 •490/“. Innifaiið í verði eru brautir og þéttiiistar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.