Morgunblaðið - 16.10.1997, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 16.10.1997, Blaðsíða 60
80 FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Ný lína fyrir unga folkið Buxur frá kr. 2.900. — Velkominn á MARBERT kynningu fimmtudag og föstudag 15% kynningarafsláttur Förðunar-og snyrtifræðingur frá MARBERT veitir ráðgjöf HOLTS APOTEK Álfheimum 74 ♦ Sími 553 5212 Elizabeth Arden 1 kynnin«' J o í dag fimmtudag 15% kynningarafsláttur VESTURBÆJAR APOTEK MELHAGA 20-22 (GEGNT SUNDLAUG VESTURBÆJAR) SÍMI 552 2190 Októbersprengja á útigöllum og úlpum Brettaúlpur St. 160-170 Áðurkr.&OOO nú kr. 6.900 Gallar 5 St. 110 Áður kr. 67700 nú kr. 2.900 St. 120-140 Áður kr. Jt90d nú kr. 5.900 St. 150-170 Áður kr. &90Ö nú kr. 6.900 Úlpur eldrl gerðir ' St. 140-150 kr. 2.900 St. 120-150 Áður kr. &9QG nú kr. 4.900 St. 160-170 Áðurkr.JWOO nú kr. 5.900 ÚTIVISTARBÚÐIhl við Umferðamiðstöðina SÍMI 5S1 9800 IDAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Vanþóknun á auglýsingn SÍÐASTLIÐINN sunnu- dag birtist heilsíðuauglýs- ing í Morgunblaðinu frá Tóbaksvarnamefnd Reykjavíkur. Þeir hafa verið og eru ötulir að koma á framfæri aðvörunarorð- um til almennings um skaðsemi tóbaksreykinga og afleiðingar þeirra. Til- gangurinn er að vekja fólk til umhugsunar og er hið besta mál. En í þetta sinn var einum of langt gengið. Ungur drengur er mynd- efnið, andlit hans er með brunasárum eftir sígar- ettu. Ég er fullviss um það að þessi áhrifamikla aug- lýsing hefur vakið athygli hjá fleirum en mér og eru það því vinsamleg tilmæli mín til forráðamanna Tób- aksvarnarnefndar og þeirra sem setja upp og útfæra auglýsingar í þessu skyni. Farið varlega og að vel athuguðu máli um val á myndefni þegar koma á á framfæri áhugaverðum málstað. Sérstaklega ef hugsað er að hafa börn í aðalhlutverki. Mig langar að minna á að í auglýsing- ingu sem birtist í Morgun- blaðinu í sumar að þessu sama tilefni var ung stúlka sem kafreykir. Stúlkubarn situr við hlið hennar og fylgist undrandi á svip með reykjarkófinu sem líður út í andrúmsloftið. Það vekur athygli að þarna er það ekki barnið sem er í aðal- hlutverki. Anna. Of langt gengið ÉG VIL lýsa vanþóknun minni á mynd af litlum dreng sem Tóbaksvamar- nefnd notaði í auglýsinga- skyni sunnudaginn 12. október. Nú ganga þeir of langt. Það er mikið búið að fjalla um ljósmyndasýn- ingu sem er í Perlunni þessa dagana, mörgum finnst sýningin ekki við hæfi barna en hvað með þessa auglýsingu frá Tób- aksvarnamefnd? Hún er Ijót. Hver er tilgangurinn? Hver drepur í sígarettu í andliti lítils drengs? Það gera aðeins kvalarar og það er kannski álit tóbaks- varnarnefndar að reyk- ingafólk sé í þeim flokki. Ef það væri allra meina bót að reykja ekki væri það vel en svo er ekki. Móðir. Slæm auglýsing ÉG ER afskaplega óhress með auglýsingu sem birtist í Morgunblaðinu sl. sunnu- dag frá Tóbaksvamar- nefnd. Ég tel að með þess- ari auglýsingu hafi þeir skotið yfir markið. Þessi auglýsing segir manni ekkert um skaðsemi reyk- inga, hún minnir frekar á auglýsingu um heimilisof- beldi. Ég tel að nú sé Tób- aksvamarnefnd á rangri leið og hún ætti að endur- skoða auglýsingamál sín. Ein reyklaus. Barmnæla týndist BARMNÆLA (bronsuð hendi) sem er annar hluti af setti týndist þriðjudag- inn 7. október annaðhvort fyrir utan Háskóla íslands, Háteigskirkju eða í safnað- arheimili Háteigskirkju. Nælan hefur mikið tilfinn- ingalegt gildi. Skilvís finnandi vinsamlega hafi samband í síma 561-2043. Fundarlaun. Dýrahald Hefur þú séð Nölu? KISAN okkar Nala týndist frá Bólstaðarhlíð á sl. sunnudagskvöld. Hún er svört, hvít og ljósbrún. Hún er ekki vön að vera úti og er ekki merkt. Ef þið hafið séð hana, vinsam- lega hringið í síma 588-4284. SKÁK IJnisjön Margeir Pétursson Staðan kom upp í opna flokknum á alþjóðlegu móti í Hoogeveens í Hol- landi í haust. Það er gamla kempan Davíð Bronstein (2.420) sem hef- ur hvítt og á leik gegn Hollendingnum R. Vedder (2.255). 18. Re5! - Bxg2 19. Hxd7! - Bd5 (111 nauðsyn, því eft- ir 19. - Rxd7 20. Dxe6+ - Kh8 verður gamla góða kæfingarmátið uppi á ten- ingnum: 21. Rf7+ - Kg8 22. Rh6++ - Kh8 23. Dg8+! - Hxg8 24. Rf7 mát! Stef sem allir skák- menn verða að þekkja!) 20. HVÍTUR leikur og vinnur. Hlxd5 - Hxc3 21. Hd8+ 23. Db4+ - Ke8 24. Hd8+ - Bf8 22. Hxf8+! - Kxf8 - Kxd8 25. Df8 mát! Meistarinn lætur sig ekki muna um að hrista slíka snilld fram úr erminni þótt hann sé orðinn 73ja ára gamall. í efsta flokki tefla fjórir keppendur tvöfalda umferð. Staðan að mótinu hálfnuðu er þessi: 1. Sutovsky, ísrael 2 'U v. af 3 mögulegum, 2. Van Wely, Hollandi 1 'U v. og 3.-4. Júdit Polgar og Vasílí Smyslov, fyrrum heimsmeistari 1 v. í opna flokknum hefur Psakhis, Israel unnið fjórar fyrstu skákir sínar. Norræna VISA bikarmót- ið: Attunda umferðin í dag frá kl. 16 á Grand Hótel Reykjavík. Jóhann Hjartar- son hefur hvítt gegn Dan- anum Schandorff og Hann- es Hlífar hefur hvítt gegn Finnanum Westerinen. Víkverji skrifar... NÝLEGA barst Víkverja bréf frá Náttúruverndarráði, und- irritað af Helgu Haraldsdóttur. Þar segir: „í nýlegri umfjöllun Víkverja um framkvæmdir við Dynjanda hefur komið fram að Náttúruvernd- arráð hafi staðið að úrbótum við fossinn. Hið rétta er að fram- kvæmdir á svæðinu undanfarin tvö ár hafa verið unnar að frumkvæði og á kostnað Ferðamálaráðs íslands með dyggum fjárstuðningi Eim- skips. Vegagerðin og Þingeyrarhreppur (ísafjarðarbær) hafa einnig komið að þessu máli enda framkvæmdir miklar við bílastæði og aðkomu. Náttúruverndarráð hefur einungis verið umsagnaraðili þar sem fossinn er náttúruvætti." Svo mörg voru þau orð. Talsverð- ar umræður hafa verið um Dynj- anda í pistlum Víkveija að undan- förnu. Muni Víkveiji það rétt, hefur allt það, sem Helga minnist á þegar komið fram í þessum pistlum. En góð vísa er aldrei of oft kveðin eins og þar stendur. xxx KÍNVERJAR, það er að segja ráðamenn í Peking, virðast ekki miklir mannþekkjarar. Mót- mæli sem slík, sem þeir afhentu íslendingum dag eftir dag á meðan á einkaheimsókn varaforseta Tæv- an stóð, eru beinlínis til þess fallin að hafa þveröfug áhrif en ætlazt var til. Að krefjast þess, að maður- inn yrði ekki virtur viðlits, gæti allt eins haft í för með sér að hon- um yrði fagnað enn meir en áður. Afskipti stórveldis af málefnum, sem íslendingum finnst því ekki koma við, hafa einfaldlega þessi áhrif. Athyglivert var að hitta fólk meðan á þessu brambolti Kína- stjórnarinnar stóð. Allir töluðu um þessi mótmæli Pekingstjórnarinnar og voru hneykslaðir niður í tær. Hvað vildu þessir menn austur í Asíu eiginlega upp á dekk, hvað kom þeim við þótt varaforseta Tæ- vans langaði til að líta augum land- ið og þjóðina sem í því býr? Þetta fannst hinum almenna borgara ein- um of langt gengið og fólk, sem alla jafna talar aldrei um alþjóða- stjórnmál, talaði vart um annað þessa daga, sem heimsókn manns- ins stóð yfír. Og almennt var fólk á því að sýna ætti Kínastjórninni, að hér væri mál, sem kæmi henni hreint ekkert við. Víkverja fannst þetta vera mjög útbreitt og almennt viðhorf, hvar sem hann kom. En Kínveijar eru ekki fyrsta stórveldið sem flaskar á því að þekkja hug hins almenna íslendings. Þetta gerðu Bretar einn- ig á sínum tíma, þegar þeir ætluðu að fara að segja íslendingnum til um hvernig hann skyldi haga sér í sambandi við fiskveiðilögsöguna. Þá stóðu allir saman, hvar í flokki sem þeir voru og íslendingar höfðu aðeins eina skoðun á málinu, rétt eins og nú. xxx ANNARS virðist svo sem kapít- alisminn sé að sigla hraðbyri inn í kínverskt samfélag, en eftir stendur flokksræðið algjört, stein- runnið og sér ekkert nema naflann á sjálfu sér. Lýræðisöflum er haldið niðri. Kommúnistaflokkurinn innan gæsalappa, því hann er nú aðeins nafnið tómt, stendur enn uppi og innleiðir kapítalismann, því að hans eigið hugmyndakerfi er löngu hrun- ið um víða veröld. Flokkurinn hefur ekki vit á því að gefa skoðanamynd- un lausan tauminn. Það er í senn sorglegt og mikil mistök. Og það er af þeim toga, sem þessi fáran- legu afskipti eru runnin. Ráðamenn í Kína skilja ekki að það er ekki hægt að skerða ferðafrelsi manns, jafnvel þótt hann sé varaforseti Tævan, eða hitt þó heldur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.