Morgunblaðið - 16.10.1997, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1997 13
FRÉTTIR
Hugsjónalaus
eiturlyfj amenning
Sumarið 1967 hóf
David E. Smith starf-
semi ókeypis sjúkra-
stofnunar fyrir fórn-
arlömb fíkniefna og
aðra þá sem ekki höfðu
efni á venjulegri læknis-
þjónustu. í fyrirlestrum
á afmælisráðstefnu
SÁÁ mun hann meðal
annars fjalla um
eiturlyfjaneyslu
hugsjónalausra
unglinga nútímans.
ÁRIÐ 1967 flykktust tugir þús-
unda ungra manna og kvenna til
borgarinnar San Francisco til að
upplifa ástarsumarið sem boðað
var að gengið væri í garð, með
frelsi, umburðarlyndi og fijálsum
ástum. Reynsla margra þeirra varð
þó allt önnur, og meðal
annars urðu fíkniefnin óf-
áum að falli.
David E. Smith hafði þá
nýlokið kandídatsári sínu á
sjúkrahúsi í borginni með
glæsibrag og átti bjarta
framtíð innan læknisfræðinnar. í
stað þess að leita frægðar og frama
eftir hefbundnum leiðum ákvað
hann að hjálpa blómabörnum sem
lent höfðu í vanda og öðru um-
komulausu og fátæku fólki. Hann
setti á stofn sjúkrastofnun í hverf-
inu Haight Áshbury þar sem öll
þjónusta var sjúklingunum að
kostnaðarlausu. Kjörorð hans var
það að heilbrigðisþjónusta ætti að
teljast til réttinda, ekki
forréttinda.
„Við héldum því líka
fram að fíkn væri sjúk-
dómur, og að fíklar
ættu rétt á ummönn-
un. Þetta þóttu rót-
tækar hugmyndir árið
1967 og á þessum tíma
fengum við enga pen-
inga frá ríkinu,“ segir
David. „Fyrst og
fremst lifðum við á
ágóða sem okkur var
ánafnaður af tónleik-
um hljómsveita á borð
við Grateful Dead,
Janis Joplin, Jefferson
Airplane og Creedence Clearwater
Revival.“
Ókeypis sjúkrahjálp
á rokktónleikum
Árið 1973 tók Haight Ashbury-
sjúkrastofnunin til við að endur-
gjalda stuðninginn því þá var kom-
ið á fót ókeypis sjúkrahjálp fyrir
tónleikagesti á rokktónleikum.
„Núna sinnum við um tvö hundr-
uð tónleikum á ári og tökum á
móti fólki sem tekið hefur of stór-
an skammt af eiturlyfjum eða lent
í einhveijum slysum. Þetta er
mikilvægur hluti starfs okkar og
tenging við upphaf okkar
« árið 1967.“
Sjúkraþjónusta á rokk-
tónleikum er þó aðeins lít-
ill hluti af starfsemi Haight
Ashbury-sjúkrastofnunar-
innar nú enda hefur hún
vaxið gríðarlega og sams konar
starfsemi hefur verið sett á fót
víða í Bandaríkjunum. Haight As-
hbury-sjúkrastofnunin hefur sinnt
um milljón sjúklingum frá upphafi
og á hveiju ári koma þangað um
fimmtíu þúsund í viðbót.
David segir að heimspekileg
hugmyndafræði sem tengdist
frelsishreyfingu sjöunda áratugar-
ins hafi legið að baki stofnuninni
árið 1967. „Þetta var
tímabil mikillar
samfélagsbyltingar
sem hafði gífurleg
pólitísk áhrif í átt til
frelsis og mannrétt-
inda en eiturlyfín voru
skuggahlið hreyfing-
arinnar. Nú er hluti
af þessari þróun að
endurtaka sig án
þessa heimspekilega
og hugmyndafræði-
lega samhengis. Rave-
hreyfíngin á tíunda
áratugnum líkir að
nokkru leyti eftir
hreyfingu sjöunda
áratugarins. Hún notar ofskynjun-
arlyf og hefur ákveðna tónlistar-
menningu en henni fylgja ekki
hugsjónirnar sem voru svo áhrifa-
ríkar fyrir þijátíu árum.“
David telur að besta leiðin til
að taka á eiturlyfjaneyslu sé að
færa fé úr löggæsíu yfír í með-
ferðarstarf. „Mun fleira fólk með
vímuefnavandamál eða geðræna
erfiðleika er í fangelsi heldur en í
meðferð í Bandaríkjunum. Lög-
gæslu- og dómskerfið var ekki
hannað til að taka á móti þessu
fólki. Að leggja áherslu á þessa
leið í baráttunni gegn fíkniefnum
er bæði dýrara og áhrifaminna
heldur en læknisfræðileg meðferð.
Á sjöunda áratugnum var lögð
áhersla á þessa leið vegna þess að
margir fíkniefnaneytendur voru
hermenn sem barist höfðu í Víet-
namstríðinu og ríkisstjórnin vildi
ekki setja þá í fangelsi vegna
vandamála sem komið hefðu upp
í stríðinu. Á áttunda áratugnum
breyttist neytendahópurinn og
samúð með honum minnkaði og
því var gripið til annarra ráða.“
David hefur verið einn ráðgjafa
ríkisstjórnar Bill Clintons í vímu-
efnamálum og hann segist vera
vongóður um að stjórnarstefnan
sé á ný að snúast í rétta átt.'
David E. Smith
Alþjóðlegt skátamót á Smiðjudögum ’97 í Skátahúsinu
Mílljónir skáta
á Netinu um helgina
MÖRG hundruð þúsunda skáta á
öllum aldri um allan heim verða í
samskiptum með hjálp tölva og
talstöðva á alþjóðlegu skátamóti á
Netinu og í loftinu um helgina.
Hér á landi hefur mótið aðsetur í
Skátahúsinu við Snorrabraut, þar
sem samtímis eru haldnir svokall-
aðir Smiðjudagar.
Starf hefst í fyrstu smiðjunum
á föstudagskvöld. Þá verður farið
í rómantíska sundferð við kertaljós
í Sundhöll Reykjavíkur síðla
kvölds. Á miðnætti verður mótið
sett og verða radíóskátar og net-
skátar með opnar stöðvar í Skáta-
húsinu eitthvað fram eftir nóttu.
Smiðjurnar verða svo í fullum
gangi frá laugardagsmorgni og
ljúka þær síðustu störfum um miðj-
an dag á sunnudag. Á laugardags-
morgun verður opnuð viðamikil
ljósmyndasýning með yfir 100
myndum frá síðasta landsmóti
skáta á Úlfljótsvatni, auk þess sem
skátavefurinn (www.scout.is)verð-
ur formlega opnaður. Grillveisla og
skátaskemmtun verður í Skátahús-
inu á laugardagskvöld og að henni
lokinni býður borgarstjórinn í
Reykjavík, Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, skátum upp á kakó og kex.
Alla helgina geta skátarnir svo
spjallað við aðra skáta um allan
heim á Netinu og flakkað um vef-
inn, auk þess sem reynt verður að
koma á ráðstefnusambandi með
aðstoð Netsins. Sem fyrr munu
skátar um allan heim verða í tal-
stöðvasambandi, en alþjóðlegt
skátamót í loftinu (Jamboree on
the Air) er nú haldið í fertugasta
sinn. Þetta verður hins vegar í
fyrsta sinn sem haldið er alþjóðlegt
skátamót á Netinu (Jamboree on
the Internet).
Leiklistarsmiðja, kynlífssmiðja
og peningasmiðja
Alls er boðið upp á fjórtán smiðj-
ur að þessu sinni. Má þar nefna
leiklistarsmiðju, danssmiðju,
námssmiðju og snúðasmiðju, en í
þeirri síðastnefndu miðla þekktir
plötusnúðar þeim yngri og upp-
rennandi af atvinnuleyndarmálum
og fer sú kennsla fram á einu af
danshúsum borgarinnar. í kynlífs-
smiðju verður fræðsla um getnað-
arvarnir, kynsjúkdóma, alnæmi og
siðfræði kynlífs. Gaui litli fær þátt-
takendur til að svitna í heilsusmiðju
og í peningasmiðju verður rætt um
hugmyndir að fjáröflun og skátum
kennt að gera fjárhagsáætlanir fyr-
ir útilegur og aðrar ferðir.
Þetta er í þriðja sinn sem
Smiðjudagar eru haldnir, en þeir
hafa áður verið á Úlfljótsvatni.
Auk þess sem samskipti við skáta
um heim allan fara fram með hjálp
talstöðva og tölva í Skátahúsinu,
gerir Guðmundur Pálsson móts-
stjóri ráð fyrir að fjöldi skáta um
allt land muni sitja við tölvurnar
heima hjá sér og taka þátt í mót-
inu. Þá verða skátar á Akureyri
einnig með miðstöð þar í bæ, þar
sem skátar af öllu Norðurlandi
geta komið og náð sambandi við
félaga sína á Netinu og í loftinu.
Um væntanlegan heildarfjölda
þátttakenda segir Guðmundur ekki
auðvelt að spá en þó megi gera
ráð fyrir að skátar í loftinu og á
Netinu um helgina muni skipta
milljónum.
ísland án eiturefna árið 2002
Ráðstefna um
vímuefnavarnir
RÁÐSTEFNAN Frá foreldrum til
foreldra verður haldin á Hótel Sögu
í dag. Ráðstefnan er öllum opin og
er haldin á vegum áætlunarinnar
ísland án eiturlyfja 2002 í sam-
starfi við landssamtökin Heimili og
skóli og foreldrasamtökin Vímulaus
æska.
Þorsteinn Pálsson dómsmálaráð-
herra og Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir flytja ávörp við setningu ráð-
stefnunnar og Þórólfur Þórlindsson
prófessor flytur erindi um viðhorf
til fíkniefnaneyslu unglinga. Ámi
Gunnarsson, félagsmálaráðuneyt-
inu, Þórunn Sveinbjörnsdóttir,
Verkakvennafélaginu Sókn, og
Hjördís Ásberg, frá starfsmannafé-
lagi Eimskipafélagsins, flytjaerindi
undir liðnum fjölskyldustefna í
framkvæmd. Jónína Bjartmarz,
formaður Heimilis og skóla, flytur
erindi um hlutverk foreldrasam-
taka í forvörnum.
Eftir hádegishlé flytur Páll Pét-
ursson félagsmálaráðherra ávarp
og að því loknu flytur Sue Rusche
frá samtökunum National Families
in Action erindi undir yfírskriftinni
Foreldrastarf - vímuvarnir í verki.
Loks verða málstofur frá kl.
14-15.30.
Ráðstefnustjóri er Dögg Pálsdótt-
ir, formaður verkefnisstjómar ís-
lands án eiturlyija árið 2002. Eim-
skipafélagið styrkir ráðstefnuna.
Viltu verða viðskiptafélagi?
Ertu að leita að góðu tækifæri?
Geturðu tekið áskorun?
Ertu tilbúinn að
íjárfesta 20.000.000 kr?
Hefurðu áhuga á
langtíma sérleyfi?
Lestu þá áfram!
VERSLUN
VEIÐIMANNSINS
HAFNARSTRÆTI5
REKSTUR VERSLUNARINNAR ER
BOÐINN Á SÉRLEYFISLEIGU
Væntanlegur leigutaki mun ráðleggja áhugasömum við-
skiptvinum um heims-þekkt vörumerki í veiðivörum og fat-
naði. Má nefna Abu-Garcia, Berkley, Fenwick, House of
Hardy, Aigle, John Partidge o.fl.
Og viðhalda 58 ára lifandi hefð og færa hana inn í nýtt ár-
þúsund í verslun sem hefur fengið umfjöllun í kanadíska
sjónvarpinu, japönskum og ítölskum sportveiðitímaritum
og enskum dagblöðum og hefur verið útnefnd ein af fremstu
sportveiðivöruverslunum í Evrópu og Bandaríkjunum.
Nánari upplýsingar:
Lögmannsstofa Vitund ehf.,
Þorsteins Eggertssonar hdl., s. 5620086.
s. 5814011