Morgunblaðið - 16.10.1997, Side 14
S í
VPPr íT^íiíiot^O qTy:
TTX/X/TFT
14 FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Bókaútgáfan Hólar gefur út
fimm bækur fyrir jól
Barna- og unglinga-
sögur, skemmtiljóð
og brandarar
Morgunblaðið/Kristján
KAUPENDUR Möðrufells í Eyjafjarðarsveit vilja fá jörðina afhenta í dag.
Lögmaður kaupenda Möðrufells í Eyjafjarðarsveit
Jörðin verði afhent
eigendum í dag
BÓKAÚTGÁFAN Hólar á Akureyri
mun gefa út fimm bækur fyrir jól-
in. Kennir þar ýmissa grasa og rið-
ið er á ný vöð. Ný höfundur, Krist-
jana Bergsdóttir kveður sér hljóðs
og fitjað er upp á nýjum háttum í
ljóðabókaútgáfu. Hinn góðkunni
leikari, Gunnar Helgason, skrifar
fyrir börnin og hinum sívinsælu
gamansögum um íslenska „eitt-
hvað“ er haldið áfram. Prestarnir
víkja en í þeirra stað koma íslensk-
ir íþróttamenn.
Gunnar Helgason, sem löngu er
orðin landsþekktur fyrir líflega
barnatíma í sjónvarpinu, lifir sig inn
í hugarheim bamanna og segir í
bókinni um Grýlu frá jólahaldi
hennar, Leppalúða og jólasvein-
anna. Grýla er heillandi saga, prýdd
stórskemmtilegum myndum Þórar-
ins Blöndals.
Brynhildur og Tarsan er ungl-
ingasaga eftir Kristjönu Bergsdótt-
ur og er þetta frumraun hennar.
Enginn byijendabragur er þó á sög-
unni um Brynhildi. Hér er á ferð-
inni spennandi saga um unga stúlku
sem þarf að takast á við sorgina
og einmanaleikann. Brynhildur er
stúlka með bein í nefinu, hún neitar
að gerast fylgifé og kossadúkka
stráka. Hún vill móta framtíð sína
sjálf og standa á eigin fótum. For-
dæmi hennar á erindi til allra ungl-
inga.
Hverjir eru bestir?
Hverjir eru bestir? er í sama dúr
og Þeim varð á í messunni nema
hvað íslenskir íþróttamenn eru í
sviðsljósinu og segja skopsögur af
sjálfum sér og félögunum. Menn
eins og Siggi Sveins, Guðjón Guð-
mundsson, Logi Ólafsson og Þor-
björn Jensson fara á kostum og eru
þá aðeins örfáir taldir af þeim sem
taka til máls eða lenda óvart milli
tanna ritstjóranna.
Bestu barnabrandararnir -
meira til er framhald hinna geysi-
vinsælu Bestu barnabrandara sem
komu út í fyrra. Þetta er brandara-
bók eins og börnin vilja hafa þær.
Skagfirsk skemmtiljóð
Skagfirsk skemmtiljóð eru tekin
saman af Bjarna Stefáni Konráðs-
syni. Á fimmta tug hagyrðinga taka
hér til máls og eru hver öðrum
snjallari og skemmtilegri. Meðal
þeirra má nefna Andrés H. Val-
berg, hjónin Kristbjörgu og Axel,
Harald frá Kambi, séra Hjálmar
alþingismann, Jón Drangeyjatjarl,
Jón Ingvar frá Hafsteinsstöðum,
Kristján frá Brúarlandi, Pálma
Runólfsson, séra Sigurð H. Guð-
mundsson og Sigurð bónda á
Kringlumýri. Þetta er bók sem
kveður að.
LÖGMAÐUR Matthíasar Eiðsson-
ar og Hermínu Valgarðsdóttur
hefur farið fram á það við lögmann
hreppsnefndar Eyjaíjarðarsveitar
að skjólstæðingum sínum verði
afhent jörðin Möðrufell í Eyja-
fjarðarsveit fyrir kl. 18.00 í dag,
fimmtudag.
Helgi Jóhannesson, lögmaður
Matthíasar og Hermínu, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær að
hann ætti von á viðbrögðum við
þeirri kröfu í fyrramálið (þ.e. í
dag).
Matthías og Hermína gerðu
samning við eigendur Möðrufells í
sumar um kaup á jörðinni en í
kjölfarið nýtti hreppsnefnd Eyja-
fjarðarsveitar forkaupsrétt á jörð-
inni og gekk inn í kaupin. Eftir
kaupin seldi hreppsnefndin Valde-
mari Jónssyni bónda á Ytra-Felli
jörðina og hefur hann stundað
búskap þar frá 1. september sl.
Mjólkurkvótinn seldur
Matthías hyggst stunda hrossa-
búskap á Möðrufelli og hann hafði
gert samning um sölu á 125 þús-
und lítra mjólkurkvóta jarðarinnar
til aðila innan sveitarinnar. Matthí-
as kærði ákvörðun hreppsnefndar
til landbúnaðarráðuneytisins.
Jón Höskuldsson, lögfræðingur
í landbúnaðarráðuneytinu, segir að
eftir að úrskurður ráðuneytisins lá
fýrir þann 7. október sl. hafi af-
skiptum ráðuneytisins af málinu
lokið. „Með niðurstöðu landbúnað-
arráðuneytisins er ákvörðun sveit-
arstjórnar að nýta forkaupsrétt á
jörðinni felld úr gildi. Jafnframt
að kaupsamningurinn sem gerður
var um jörðina stendur."
Hreppsnefnd glatað
forkaupsrétti
Jón sagði að niðurstaða ráðu-
neytisins hafi byggst á því að form-
reglur hefðu verið brotnar og þar
með hefði ákvörðun hreppsnefndar
ekki getað verið gild. Einnig kem-
ur fram í úrskurði ráðuneytisins
að hreppsnefnd Eyjafjarðarsveitar
hafi glatað rétti sínum til að neyta
forkaupsréttar á jörðinni sam-
kvæmt kaupsamningi dagsettum
24. júlí í sumar.
Birgir Þórðarson, oddviti Eyja-
fjarðarsveitar, sagði meirihluta
hreppsnefndar ekki sammála þeim
forsendum sem landbúnaðarráðu-
neytið telur vera að baki úrskurði
sínum varðandi forkaupsrétt
hreppsins og því hafi verið ákveðið
að fara dómstólaleiðina.
Geðþótta-
ákvörðun
Matthías Eiðsson sagði að
hreppsnefndin yrði að afhenda sér
jörðina strax. Málaferli gætu tekið
marga mánuði og hreppsnefndin
hefði heldur engan lagalegan rétt
til að halda jörðinni eftir úrskurð
ráðuneytisins. „Þetta var eingöngu
geðþóttaákvörðun hreppsnefndar
að taka jörðina og það eru ekki
til neinar forsendur sem segja að
jörðin sé betri kúajörð en hrossa-
jörð,“ sagði Matthías.
Númer fuku af
um 30 bílum
NÚMER hafa verið klippt af
rúmlega þijátíu bifreiðum síðustu
daga. Virðist sem töluvert sé um
að bifreiðaeigendur sofi á verðin-
um varðandi skoðun bifreiða
sinna og greiðslu lögboðinna
gjalda af þeim. Átak er í gangi
hjá lögreglu vegna þessa og hafa
klippurnar því verið á lofti síð-
ustu daga. Væntir lögregla þess
að þeir sem syndgað hafa upp á
náðina hingað til panti strax tíma
í skoðun og greiði gjöld af bifreið-
unum, því enginn yrði fegnari
en lögreglan sjálf gæti hún hætt
að taka númer af bifreiðum.
Valdemar Jónsson keypti jörðina Möðrufell af hreppsnefnd Eyjafjarðarsveitar
Vera
Gæti þurft
að hætta
búskap
VALDEMAR Jónsson, bóndi á
Ytra-Felli í Eyjafjarðarsveit, keypti
jörðina Möðrufell af hreppsnefnd
Eyjafjarðarsveitar, eftir að hrepps-
nefndin neytti forkaupsréttar og
gekk inn í kaup Matthíasar Eiðs-
sonar. Valdemar hefur tekið við
jörðinni og sameinað mjólkurkvóta
Ytra-Fells og Möðrufells og er
framleiðslurréttur hans nú um 190
þúsund lítrar.
Valdemar sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að kæmi til
þess að hann þyrfti að fara af jörð-
inni væru möguleikar hans á að
halda áfram búskap úr sögunni.
„Mín eining á Ytra-Felli er ekki
nógu stór til að halda áfram. Ég
kem því til með að selja mína jörð
og hætta búskap en mun kannski
eiga húsið áfram.“
Keypti í góðri trú
Valdemar segir að 150-200
þúsund lítra mjólkurkvóti sé mjög
heppileg eining en kvótinn sem
Morgunblaðið/Kristján
YTRA-FELL í Eyjafjarðarsveit er nýbýli frá Möðrufelli og þar býr Valdemar Jónsson. Hann keypti
Möðrufell af hreppsnefnd Eyjafjarðarsveitar en stendur nú frammi fyrir því að geta þurft að láta
jörðina af hendi eftir úrskurð landbúnaðarráðuneytisins.
fylgir Möðrufelli er um 125 þúsund
lítrar. „Ég keypti Möðrufell af
sveitarstjóm í góðri trú og hef
mjólkað kýmar í fjósinu þar frá
1. september," sagði Valdemar.
Hann býr ekki í íbúðarhúsinu á
Möðrufelli, enda á hann ágætis
íbúðarhús á Ytra-Felli sem er ný-
býli frá Möðrufelli.
sýnir í
Galleríi+
GUÐRÚN Vera Hjartardóttir opn-
ar myndlistarsýningu í Galleríi+ á
Brekkugötu 35 á Akureyri laugar-
daginn 18. október kl. 18.
Vera er fædd í
Reykjavík og bú-
sett þar, þetta er
6. einkasýning
hennar en hún
hefur tekið þátt í
fjölda samsýn-
inga hér á landi,
í Hollandi og á
Englandi. Sýn-
inguna í Galleríi+ nefnir hún OM
og er innsetning í rými sem þýðir
að inni í sýningarrýminu er áhorf-
andinn inni í verkinu. Innsetningin
samanstendur af skúlptúrum,
teikningum og hljóði. Allir eru
velkomnir við opnun sýningarinn-
ar, boðið verður upp á drykki og
fá sýningargestir að njóta matar-
gerðarlistar Veru.
Sýningin stendur til 26. október
næstkomandi og er opin um helg-
ar, laugardaga og sunnudaga frá
kl. 14 til 18 eða eftir samkomulagi
við húsráðendur á Brekkugötu 35.