Morgunblaðið - 16.10.1997, Qupperneq 16
16 FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1997
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Sundlaugin í Lauga-
skarði endurbætt
Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir
SUNDLAUGIN í Laugaskarði er ein stærsta sundlaug landsins.
Hveragerði
Nýr organ-
isti ráðinn
NÝR organisti, Jörg E. Sonder-
man, hefur verið ráðinn í
Hveragerðis- og Kotstrandar-
sókn og tekur hann til starfa
1. nóvember nk.
Sonderman er Þjóðveiji, fer-
tugur að aldri, og hefur víð-
tæka menntun (A-próf) í
kirkjutónlist og langa starfs-
reynslu sem kirkjutónlistar-
maður, organisti og kórstjóri.
Hann hefur undanfarin tíu ár
starfað sem kantor við Alte
Kirehe í Bönen í Westfalen og
staðið þar fyrir árlegri kirkju-
tónlistarhátíð „Bach Tage,
Bönen“ auk þess að stofna og
stjórna kammerkórnum
„Heinrich Schiitz-Kreis, Heer-
en“.
Sondermann kemur til með
að annast orgelleik við Hvera-
gerðis- og Kotstrandarkirkju
og þjálfa og stjórna Kirkjukór
Hveragerðis- og Kotstrandar-
sóknar og vinna að eflingu
frekara tónlistarlífs auk þess
sem vænta má að hann eigi
frumkvæði að tónleikahaldi
sem auki enn fjölbreytt tónlist-
arlíf í prestakallinu.
Kirkjukór Hveragerðis- og
Kotstrandarsóknar er rótgróðið
söngfélag, ríkt af reynslu og
dáð og hyggur gott til sam-
starfsins við nýjan stjórnanda.
Kórinn getur bætt við söngfólki
í allar raddir og æfingar eru á
fimmtudagskvöldum í Hvera-
gerðiskirkju nú í október en
annars eru æfingar á miðviku-
dagskvöldum kl. 20.30.
Hveragerði - Þeir eru margir, bæði
ungir sem aldnir, sem eiga góðar
minningar frá sundlauginni í
Laugaskarði. Sundlaugin var reist
fyrir tilstuðlan Lárusar Rist árið
1938 en árið 1940 var hún stækkuð
uppí núverandi stærð og var lengi
eftir það stærsta sundlaug landsins
en hún er 50 metrar á lengd og
12 metrar á breidd.
Enn þann dag í dag eru það ein-
ungis örfáar sundlaugar á landinu
sem skáka Laugaskarði hvað varðar
stærð og fallega staðsetningu. Und-
anfarið hafa farið fram gagngerar
endurbætur á sundlauginni sem
miða meðal annars að því að gera
hana að löglegri keppnislaug á ný.
En fyrir nokkrum árum var steypt
í botn laugarinnar og varð hún þá
of grunn til keppni.
Framkvæmdir í Laugaskarði
hafa staðið yfír síðan í bytjun sept-
ember en það er fyrirtækið Garpar,
Hveragerði, sem sér um verklega
þáttinn. Hækka á bakka sundlaug-
arinnar um 15 sentimetra, leggja
dúk á kanta laugarinnar og setja
niðurfallsristar meðfram bökkun-
um. Setja á hita í stéttar ásamt því
að leggja nýjar lagnir að og frá
lauginni. Gufubaðið verður lagfært
og settir verða upp ráspallar og
flotlínur.
í stuttu viðtali sagði Einar Math-
iesen, bæjarstjóri Hveragerðisbæj-
ar, að framkvæmdum miðaði vel
áfram og verkinu myndi ljúka í lok
október. „Einhver seinkun hefur þó
orðið á framkvæmdum því í ljós
kom heilmikil klöpp undir öðrum
bakkanum sem ekki var gert ráð
fyrir en hana þurfti að bijóta upp
og fjarlægja. Einnig má nefna að
stærðar lækur, um 35 sekúndulítr-
ar, rann undir öðrum laugarbakk-
anum og þurfti að leggja hann í
20 tommu rör og veita í Varmá.
Við vissum um tilvist þessa lækjar
en hann var samt mun meiri en við
héldum."
Aukaverk auka kostnað
Vegna þessara aukaverka er
kostnaður við verkið orðinn öllu
hærri en áætlað var í upphafi en
gert er ráð fyrir að verkið muni
kosta um 14 milljónir króna þegar
upp verður staðið. Einar sagði þó
að þessi aukaverk hefðu ekki verið
annað en búast mátti við þar sem
sundlaugin er komin til ára sinna.
„Að þessum endurbótum loknum
má segja að sjálft sundlaugarsvæð-
ið í Laugaskarði hafi verið fært í
afskaplega gott horf og þarna er
nú boðið uppá fullkomna aðstöðu
fyrir sundfólk bæði til æfinga og
keppni og þá ekki síst mjög
skemmtilega sundlaug fyrir al-
menning.“
Víst er að það verður langþráð
stund fyrir hina íjölmörgu fasta-
gesti laugarinnar þegar hún verður
aftur tekin í gagnið nú í lok október.
Nýbreytni í
garðplöntu-
framleiðslu
Selfossi - 80 manns sóttu ráð-
stefnu í Básnum í Olfusi 8. til
10. október sl., sem haldin var
á vegum Garðyrkjuskóla ríkis-
ins, Reykjum í Ölfusi. Yfir-
skrift ráðstefnunnar var „Ný-
breytni í garðplöntufram-
leiðslu." Aðalfyrirlesari var
Ole Billing Hansen, prófessor
í Landbúnaðarháskólanum að
Ási í Noregi. Einnig fluttu ís-
lenskir aðilar fyrirlestra, m.a.
Olafur S. Njálsson garðykju-
kantidat, Björn B. Jónsson
framkvæmdastjóri Suðurlands-
skóga, Guðríður Helgadóttir,
aðalkennari á garðplöntubraut
Garðyrkjuskólans, og nemend-
ur á brautinni gerðu grein fyr-
ir námsferð, sem þau fóru í til
Danmerkur og Þýskalands í
haust.
Heppnaðist vel
Að sögn Magnúsar Hlyns
Hreiðarssonar, endurmenntun-
arstjóra Garðyrkjuskólans,
heppnaðist ráðstefnan í alla
staði mjög vel. „Þátttakendur
voru mjög ánægður með að-
stöðuna í Básnum, fyrirlesar-
ana og alla umgjörð námskeiðs-
ins. Nú förum við að undirbúa
næstu ráðstefnu, sem verður
vonandi í mars á næsta ári, sem
mun fjalla um uppeldi skógar-
plantna," sagði Magnús Hlyn-
ur, endurmenntuarstjóri Garð-
yrkjuskóla ríkisins.
Félagsheimilið á Blönduósi
Morgunblaðið/Sig. Fannar
HLUTI af þátttakendum á ráðstefnu Garðyrkjuskóla ríkisins um nýbreytni í garðplöntuframleiðslu.
Gagngerum endur-
bótum að ljúka
Nýr prófastur í Borgarfirði
Blönduósi - Senn fer að ljúka
gagngerum endurbótum á Fé-
lagsheimilinu á Blönduósi sem
staðið hafa yfir frá því um miðjan
júlí. Siguijón Ólafsson hefur haft
yfirumsjón með verkinu en Hlyn-
ur Tryggvason hefur verið hans
hægri hönd við verkið. Áætluð
verklok eru 31. okt. og verður
af því tilefni efnt til matarveislu
og stórdansleiks þar sem Björg-
vin Halldórsson og Óperubandið
leika fyrir dansi.
Breytingar þær sem um ræðir
ná yfir danssal, salemi og and-
dyri og má segja að nánast allt
hafi verið hreinsað út úr Félags-
heimilinu og það staðið eftir sem
fokhelt. Steinull er komin í loftin
og skipt hefur verið um allar
lagnir og nýtt parket er á dans-
gólfi. Fullkomið brunavarnakerfi
hefur verið sett upp og loftræst-
ing fyrir allt húsið hefur verið
endumýjuð. Nýtt hljóðkerfi verð-
ur í húsinu, fyrir þráðlaust hljóð-
nemasamband og öll húsgögn era
ný. Salernum hefur verið breytt
og er nú komin hreinlætisaðstaða
fyrir fatiaða. Gólf í anddyri og
fyrir framan bíósal, alls 250 fer-
metrar, hafa verið flísalögð. Það
eina sem hefur fengið að halda
sér er veggklæðningin en þó var
hún öll tekin niður, pússuð upp á
nýtt og sett upp aftur. Nokkrar
breytingar aðrar hafa verið gerð-
ar sem tengjast þjónustu við sam-
komugesti.
Margir iðnaðarmenn
komu að verkinu
Eins og fyrr greinir hafa þeir
félagar Siguijón Ólafsson og
Hlynur Tryggvason mest unnið
að þessum breytingum en óhætt
er að segja að flestir iðnaðar-
menn á Blönduósi hafa komið að
þessu verki með einum eða öðr-
um hætti. Þegar félagsheimilið
verður tekið í notkun á ný eftir
breytingar ættu allir að þekkja
sig aftur sem á annað borð hafa
áður komið en þó gætu menn
þurft tíma til að átta sig á því
hvar hægt sé að kaupa límonaðið.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
ÞAÐ eru mörg handtökin í endurbættu félagsheimili en iðnaðar-
menn sem voru að störfum fyrir skömmu gáfu sér þó tíma til
að líta upp frá verki.
Borgarnesi - Við messu í Borgar-
neskirkju sunnudaginn 12. október
setti biskup íslands, herra Ólafur
Skúlason, séra Þorbjörn Hlyn Árna-
son í embætti prófasts Borgarfjarð-
arprófastsdæmis. Sr. Björn Jónsson
Akranesi, fráfarandi prófastur, þjón-
aði^ fyrir altari.
í prédikun sinni við messuna sagði
biskup meðal annars: „Gott er að
vitja Borgarfjarðar og enn betra að
hafa ríkulegt tilefni. Og nú er um
sérstaka athöfn að ræða. Ekki aðeins
í hinum fræga og söguríka Borgar-
firði, heldur og hér í Borgarnes-
kirkju. Aldrei fyrr hefur prófastur
verið settur í embætti sitt hér í þess-
um helgidómi. Aldrei fyrr hefur söfn-
uði verið boðið hingað, til þess að
vera ekki aðeins vitni að því að prest-
ur þeirra taki við stóru embætti,
heldur að vera gefið tækifæri til
þess um leið að taka þátt í bæn kirkj-
unnar fyrir honum og þeim störfum
sem hans bíða. En jafnljúft og það
er mér að koma hingað og búa mig
undir að setja vin minn og náinn
samstarfsmann á Biskupsstofu inn í
embætti sitt og nota til þess tækifær-
ið í senn að þakka séra Þorbirni
Hlyni Árnasyni fyrir skeif hans og
framlag til Þjóðkirkju íslands og
starfs hennar, þá fylgir þessu vissu-
lega þungur niður tímans með áhrif-
um sínum. Það fylgir að um leið og
einn er boðinn velkominn og honum
Morgunblaðið/Theodór
HERRA Ólafur Skúlason biskup, sr. Björn Jónsson og sr. Þor-
björn Hlynur Árnason að aflokinni messu.
er beðið blessunar guðs á framtíðar-
brautum, þá er öðrum yfirleitt þakk-
að og þannig er það að um leið og
séra Þorbjörn Hlynur tekur við próf-
astsembættinu þá lætur séra Björn
Jónsson af því starfi. Séra Björn tók
aftur á móti við því starfi af séra
Jóni Einarssyni sem við syrgjum
vegna fráfalls hans iangt um aldur
fram. En séra Björn var fyrstur pró-
fasta í Borgarl'irði til þess að taka
við embætti sínu í heimakirkju og
heimahéraði. En ég hef tekið upp
þann sið að fara til prófasta verð-
andi þar sem með því tengist athöfn-
in heimafólki og heimahéraði. Og
verður vonandi til þess að enn nánar
er fylgst með og enn ríkulegar er
fundið til samstöðu og þar með kröfu
með samstarf. Ég þakka enn mínum
gamla og góða vini séra Birni Jóns-
syni og ég minnist hans miklu verka
og hans hlýja og starfsfúsa hugar.“
Kirkjukór Borgarneskirkju söng
við messuna undir stjórn Jóns
Björnssonar organista.