Morgunblaðið - 16.10.1997, Side 36
36 FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
3Ktv0nnMnhli
STOFNAÐ 1913
UTGEFANDI
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RITSTJÓRAR
Árvakur hf., Reykjavík.
Hallgrímur B. Geirsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
BRAUTRYÐJENDA-
STARF
SNEMMA á þessum áratug hófst merkilegt tilrauna- og
brautryðjendastarf á Flateyri við veiðar, vinnslu og mark-
aðssetningu á kúfiski. Það skiptir verulegu máli, bæði fyrir
sjávarplássin, sem sum hver eiga í vök að veijast, og sjávarút-
veginn í heild, að brydda upp á nýjungum sem þessari, til að
fjölga störfum og auka verðmæti í atvinnugreininni. Þeir Flat-
eyringar sem ruddu brautina í vinnslu og markaðssetningu
kúfisks höfðu þá framtíðarsýn, að jafnframt kúfiskvinnslu
mætti þróa aðrar skelfiskveiðar, svo sem á beitukóngi, trjónu-
krabba og öðuskel.
Tilrauna- og þróunarstarf af þessu tagi er sjaldnast dans á
rósum. Það skilar þó oftar en ekki árangri í fyllingu tímans,
ef rétt er að málum staðið. Og í frétt hér í blaðinu í gær segir
frá því að veiðar á kúfiski með nýju skipi þeirra Flateyringa
séu komnar vel á skrið. Fyrirtækið Vestfirzkur skelfiskur stefnir
að því að veiða og vinna árlega um 12.000 tonn af kúfiski á
Bandaríkjamarkað. Söluvirði þeirrar framleiðslu mun vera 150
til 200 milljónir króna. Og hjá fyrirtækinu starfa á milli 20 og
30 manns á sjó og landi. Starfsemi þess er góð búbót fyrir
atvinnulífið í þessu vestfirzka sjávarplássi.
FÆÐIN GARORLOF
FYRIR ALLA FEÐUR
REYKJAVÍKURBORG hefur nú fetað í fótspor ríkisins og
býður körlum í sinni þjónustu að taka tveggja vikna laun-
að fæðingarorlof á fyrstu átta vikunum í lífi nýrra fjölskyldu-
meðlima. Þetta þýðir að allstór hluti karla á vinnumarkaði
hefur nú öðlazt sjálfstæðan rétt til fæðingarorlofs, sem er
mikilvægt skref í jafnréttisátt þótt enn sé orlofið afar stutt.
Um leið verður staða feðra á almennum vinnumarkaði, sem
eiga engan sjálfstæðan rétt til orlofs til að kynnast börnum
sínum og taka þátt í umönnun þeirra, auðvitað enn hróplegri
en áður. Nú er full ástæða til að aðrir atvinnurekendur, sem
margir hverjir hafa greitt konum laun í fæðingarorlofi, sýni
frumkvæði í þessu jafnréttismáli og stígi svipað skref og þess-
ir tveir stóru vinnuveitendur, ríkið og borgin, hafa gert.
Jafnframt er brýnt að ríkisstjórnin efni hið fyrsta loforð sitt
um að allir karlar skuli njóta réttar til greiðslna frá Trygginga-
stofnun í fæðingarorlofi, sem ekki skerði orlof barnsmæðra
þeirra.
Til framtíðar hlýtur hins vegar að verða stefnt að því að
allir feður eigi sjálfstæðan rétt til launaðs fæðingarorlofs, burt-
séð frá því, hvar þeir starfa, og að hjón eða sambúðarfólk
geti vandræðalaust skipt því með sér að sinna umönnun barna
sinna á fyrstu mánuðunum í lífi þeirra. Viðurkenning samfélags-
ins á því að karlar séu jafnhæfir til að annast börn og heimili
og konur og eigi að hafa til þess sömu tækifæri er forsenda
þess að jafnrétti náist á ýmsum öðrum sviðum.
UNDARLEGT
UPPHLAUP
TIL HARÐRA orðaskipta kom á Alþingi á mánudag er einn
þingmanna Alþýðubandalagsins, Steingrímur J. Sigfús-
son, gagnrýndi harðlega áform um að íslensk sendinefnd, und-
ir forystu Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra, færi til
Indónesíu á næsta ári. Steingrímur J. Sigfússon sagði fráleitt
að utanríkisráðherra sækti Indónesa heim vegna mannréttinda-
brota og fjöldamorða á Austur-Tímor.
Reglulega koma upp kröfur um að stöðva beri viðskipti og
jafnvel samskipti við tiltekin ríki af siðferðilegum ástæðum.
Bandaríkjamenn hafa um áratuga skeið haldið uppi viðskipta-
banni gegn Kúbu og beijast nú gegn því að önnur ríki eigi
viðskipti við íran. Fyrir nokkrum árum var ísland meðal ríkja
er settu viðskiptabann á Suður-Afríku.
Sá hængur er hins vegar á kröfum af þessu tagi að tals-
menn þeirra eru yfirleitt ekki þeirrar skoðunar að eitt eigi yfir
alla að ganga heldur láta sér nægja að velja ákveðin ríki sem
beri að „refsa“. Þannig var aldrei til umræðu að setja viðskipta-
bann á Sovétríkin eða takmarka ferðir sendinefnda þangað
þrátt fyrir svívirðileg mannréttindabrot. Ekki hefur tíðum ferð-
um stjórnmálamanna til ríkja á borð við Kína á undanförnum
árum heldur verið mótmælt. íslendingar hafa mótmælt mann-
réttindabrotum í þessum ríkjum en ekki látið það hafa áhrif á
önnur samskipti milli ríkjanna, t.d. á viðskiptasviðinu.
Þótt margt megi gagnrýna í stjórnarfari Indónesíu verður
vart séð að það réttlæti að þetta ríki, eitt hið fjölmennasta í
heimi, sé sett í pólitíska sóttkví. Þá myndi þingmaðurinn vænt-
anlega einnig vilja loka á samskipti við Víetnam, Kambódíu
og Kína. Eða hvað?
ímyndin bætt í
„bakgarðinum“
Bill Clinton Bandaríkja-
forseti hélt í byrjun vik-
unnar í för til þriggja
ríkja Suður-Ameríku.
Tilgangur forsetans er
sá að tryggja stöðu
Bandaríkjamanna á þeim
nýju mörkuðum sem
opnast hafa í þessum
heimshluta. Asgeir
Sverrisson segir frá ferð
forsetans og veltir fyrir
sér samskiptum Banda-
ríkjanna og ríkja Suður-
Ameríku á tímum örra
breytinga.
VOPNAÐUR háttstemmdum
ræðum um einingu og
óheftanlega framrás lýð-
ræðisins hóf Bill Clinton,
forseti Bandaríkjanna, fyrstu för sína
tii Suður-Ameríku í byijun vikunnar.
Með þessu fetaði forsetinn í fótspor
þeirra Franklins D. Roosevelts og
átrúnaðargoðs síns Johns F. Kenned-
ys, sem báðir leituðust við að bæta
ímynd Bandaríkjamanna í þessum
heimshluta. í Venezúela og Brasilíu
hefur forsetinn rætt um ágæti óheftra
viðskipta og heitið því að í nánustu
framtíð verði öll ríki vesturhvelsins
sameinuð undir gunnfánum sameigin-
legra gilda. Vísast mun hann endur-
taka þann boðskap á fundum sínum
með argentínskum leiðtogum síðar í
vikunni. í Suður-Ameríku ríkir á hinn
bóginn ekki eining um ágæti þessara
gilda og enn líta margir svo á að
Bandaríkjamenn séu fram úr hófi af-
skiptasamir í anda eldri stefnu sinnar
í málefnum þessa heimshluta, sem
fólst í því að halda kommúnismanum
niðri þótt oft kostaði það samvinnu
við siðleysingja, glæpamenn og morð-
ingja.
För forsetans til þriggja Suður-
Ameríkuríkja er einkum hugsuð til
að draga athyglina að þeim gífurlegu
breytingum sem átt hafa sér stað í
þessum heimshluta á vettvangi efna-
hags- og stjórnmála. Sjálfur sagði
forsetinn í ræðu er hann hélt í Brasii-
íu að „hljóðlát bylting" hefði orðið í
þessum hluta heimsins. Haft var á
orði að með veru sinni vildi Clinton
leggja blessun sína yfir þessi um-
skipti og hvetja ráðamenn í ríkjum
þessum til frekari dáða. Lokamarkmið
forsetans er sameiginlegt __________
fríverslunarsvæði allra Am-
eríkuríkja, (Área de Libre
Comercio de las Ámericas,
ALCA), allt frá Alaska til
Eldlandsins, árið 2005. Hins
Reuters
BILL Clinton, forseti Bandaríkjanna, hlýðir á ræðu borgarsijóra
Sao Paulo í Brasilíu í gær og hefur sýnilega hrifist af boðskapnum.
Myndskreyting að baki forsetanum á vísast að túlka tengslin sem
forsetinn vill efla á milli Ameríkuríkja.
þessum í nánustu framtíð og erlend
fyrirtæki og fjárfestar horfa nú vonar-
augum til þessa hóps nýrra neytenda.
Gullegg í bakgarðinum
För Clintons er söguleg fyrir þær
sakir að hann hyggst sýnilega setja
Suður-Ameríku á forgangslista sinn á
vettvangi utanríkismála á síðara kjör-
tímabilinu eftir að hafa einkum lagt
áherslu á Rússland og Mið- og Austur-
Evrópu á hinu fyrra. Tilgangurinn er
sá að tryggja bandarísku fjármagni
forgang að þessum nýja markaði nú
þegar hænan er tekin að verpa gull-
eggjum í „bakgarði" Bandaríkjanna. í
raun er hafið kapphlaup um markaðina
sem nú eru að opnast og í dagblöðum
í Suður-Ameríku mátti í vikunni sjá
greinar þar sem því var haldið fram
að forsetinn hygðist í för sinni freista
þess að stöðva sókn Evrópuríkja inn á
þessa markaði.
enda þótti með ólíkindum hvílíkan
íjölda af afkastamiklum drápstólum
þeim þótti nauðsynlegt að flytja til
landsins m.a. skriðdrekabyssur. Litla
hrifningu vöktu og fréttir þess efnis
að bandarískum blaðamönnum í fylgd
með forsetanum hefði verið ráðlagt
að halda sig fjarri baðströndum Rio
að kvöldlagi og láta sprauta sig við
taugaveiki. Þá vakti upplýsingablað
sem sendiráð Bandaríkjanna í Brasilíu
dreifði athygli fjölmiðla þar í landi en
þar sagði m.a. að spillingin í Brasilíu
væri „enn landlæg" og dómskerfið
mjög hægvirkt enda lyti það enn „póli-
tískri stjórn". Þetta þótti sumum bras-
ilískum fjölmiðlamönnum enn eitt
dæmið um „hroka heimsveldisins."
Syndir forveranna
Ný ogjákvæðari ímynd
Kapphlaup
hafið um
markaðina
vegar ríkir ekki sátt um þetta mark-
mið og sérstaklega hafa Brasilíumenn
lýst yfir efasemdum um að unnt reyn-
ist að koma því á svo fljótt. Reyndi
Clinton að eyða þessum efasemdum
á fundum með ráðamönnum Brasilíu,
sem frekar vilja horfa til Mercosur-
samstarfsins í þessu tilliti en í því
taka þátt Argentína, Uruguay og
Paraguay auk Brasilíu.
Sá mikli hagvöxtur sem verið hefur
í mö'-gum helstu ríkjum Suður-Amer-
íku á undanförum árum hefur ásamt
þeim pólitíska stöðugleika, sem tekist
hefur að skapa, opnað augu manna
fyrir þeim gífurlegu möguleikum sem
þar gefast á sviði fjárfestinga og við-
skipta. Haldi svo fram sem horfir mun
fjölmenn millistétt rísa upp í ríkjum
Argentínska dagblaðið La Nación
sagði fyrr í vikunni að Clinton vildi í
________ þessari för sinni „tæla“
Suður-Ameríku og forset-
inn hefur að sönnu beitt
persónutöfrum sínum og
meðfæddum „populisma"
til að skapa nýja og já-
kvæðari mynd af Bandaríkjunum og
leiðtoga þeirra. í Caracas í Venezúela
ávarpaði hann móttökunefndina á
spænskri tungu og fór að gröf frelsis-
hetjunnar Simons Bolivars en í Rio
de Janeiro í Brasilíu hyggst hann
sækja heim öreiga í hreysahverfi.
Vísast veitti ekki af því að koma
þeirri mynd á framfæri að þar færi
leiðtogi sem umhugað væri um kjör
alþýðu manna i þessu fjölmenna ríki.
Er Ronald Reagan Bandaríkjaforseti
sótti Brasilíu heim árið 1982 tókst
honum að gera viðstadda orðlausa er
hann fagnaði því sérstaklega í skálar-
ræðu að vera kominn til Bólivíu. Fyr-
ir heimsókn Clintons gat að líta nei-
kvæðar fréttir í brasilískum blöðum
af vopnabúnaði öryggisvarða hans
Þessi fréttaflutningur segir nokkuð
til um þá spennu sem enn er í sam-
skiptum Brasilíu og Bandaríkjanna
og enn ristir andúðin á Bandaríkja-
mönnum djúpt þar syðra. Sú ákvörðun
stjórnar Clintons að hefja hernaðar-
samvinnu við Argentínu upp á nýtt
stig með tilheyrandi vopna- __________
sölu hefur mætt mikilli
andstöðu í Brasilíu, sem nú
krefst þess að fá stöðu á
alþjóðavettvangi í sam-
við stærð sína og
„Hafði
brott a
Boliv
ræmi
mátt enda er þar að finna áttunda
stærsta hagkerfi heims. Þar í landi
eru og margir þeirrar hyggju að ill-
mögulegt sé að verða við kröfum
Bandaríkjamanna um frekari opnun
markaða og einkavæðingu og af þeim
sökum hafa brasilískir ráðamenn
hafnað þeirri hugmynd Clintons að
fyrirhugað fríverslunarsvæði Amer-
íkuríkja , verði að veruleika árið 2005,
Iíkt og forsetinn boðaði á fundi leið-
toga Ameríkuríkja í Miami fyrir þrem-
ur árum. Brasiiísk fyrirtæki myndu í
mjög mörgum tilfellum aldrei fá stað-
ist þá erlendu samkeppni, sem frekari
opnun markaða fylgdi og slíkt myndi
aðeins reynast ávísun á aukið atvinnu-
leysi, sem aftur gæti spillt þeim póli-
tíska stöðugleika er þó hefur tekist