Morgunblaðið - 16.10.1997, Síða 44
FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSEIMDAR GREINAR/PROFKJOR
Nýskipan í rekstri
borgarinnar
VIÐ lifum á tímum
örra breytinga og aðrar
þjóðir eru sem óðast að
búa sig undir framtíð
sem gerir miklar kröfur
en veitir um leið mörg
tækifæri. Meiri hag-
kvæmni og skilvirkni
eru lykilatriði í sívax-
andi samkeppni milli
þjóða og fyrirtækja.
^Menntamál hafa verið
sétt í brennidepil og
loksins er flestum að
verða ljóst að það er
samhengi á milli góðrar
menntunar fólks og
lífskjara. Atvinnulífið
stenst ekki samkeppni
við önnur lönd ef grunnurinn er van-
ræktur. Ný kynslóð nær ekki að
hasla sér völl eða vinna að fram-
gangi nýrra hugmynda ef umhverfið
er ekki hvetjandi. Nýskipan í opin-
berum rekstri jafnt hjá ríki og sveit-
arfélögum verður að haldast í hend-
ur við kröfur þær sem fólk og fyrir-
tæki þurfa að mæta í alþjóðlegri
samkeppni.
Hlutverk stjórnmála-
manna þarf að breyt-
ast. Þeir eiga að skil-
greina markmið, setja
meginreglur og ákveða
hvaða þjónustu eigi að
veita. Ekki er nauðsyn-
legt að borgin sjái sjálf
um þjónustuna eða
starfsemina. Hana á að
fela einkaaðilum, fyrir-
tækjum, félagasamtök-
um, einstaklingum eftir
því sem framast verður
við komið. Þannig verð-
ur raunverulegt vald og
verkefni fært út til fólks
þar sem þekking og
reynsla eru fýrir hendi.
Abyrgð og eftirlitsskylda hvílir
áfram á stjórnmálamönnum og verð-
ur í raun virkari við þessar aðstæð-
ur. Stjórnmálamenn geta aldrei haft
eftirlit með sjálfum sér.
Sem dæmi um þetta má taka rekst-
ur skóla. Fyrir tæpum tveimur árum
flutti ég tillögu í borgarstjórn um að
gerðir yrðu þjónustusamningar við
nokkra grunnskóla í tilraunaskyni.
Inga Jóna
Þórðardóttir
Stjórnmálamenn, segir
Inga Jóna Þórðardótt-
ir, geta aldrei haft eftir-
lit með sjálfum sér.
Þannig yrði skólastjóra, kennurum og
foreldrum eftir atvikum falinn rekstur
skóla. Þeir hefðu fijálsar hendur um
starfsemina og með hvaða hætti þeir
uppíyiltu þær kröfur sem samningur
gerði til þeirra. Þessar hugmyndir
fengu ekki hljómgrunn og töldu full-
trúar R-listans þær ótímabærar.
Slíkir rekstrarsamningar geta
tekið til margs konar þjónustu sem
borgin sinnir í dag. Má þar nefna
rekstur sundlauga, leikskóla og fé-
lagsmiðstöðva. Eina tillögu mína
samþykkti þó R-listinn í þessum
dúr. Það var að heíja undirbúning
að stofnun rekstrarfélags um Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinn. Hug-
myndin að baki þeirri tillögu var
m.a. að leita eftir samstarfi við fyr-
irtæki um reksturinn.
Um leið og við stöndum vörð um
þann grunn sem samfélagið hvílir á
er ástæðulaust að óttast nauðsynlegar
breytingar í fijálsræðisátt sem nýir
tímar kalla á. Við viljum ekki sitja
eftir þegar aðrir eru á hraðferð fram
á við.
Höfundur er borgarfulltrúi.
Júlíus Vífil í fjórða sætið
ÞAÐ er milli margra
góðra manna og
kvenna að velja í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokks-
ins 24. og 25. þ.m.
vegna borgarstjórnar-
kosninganna á vori
^gmanda. Þar eru ýms-
ir með langa og sumir
stranga reynslu af
stjórn borgarmálefna,
aðrir eru nýliðar.
Reynslan er dýrmæt,
en endurnýjun er nauð-
synleg hér eins og ann-
ars staðar í stjórnmál-
um og mannlífinu öllu.
Þegar framboð lágu
fyrir tók kjörnefnd sjálfstæðisfélag-
anna þá skynsamlegu ákvörðun að
leita til nokkurra manna til viðbótar
þeim sem sjálfir höfðu boðið sig
fram, til þess að auka breidd þess
hóps sem um væri að
velja. Eitt þeirra nafna
sem þar kom fram og
vakti sérstaka athygli
mína og ánægju var
nafn Júlíusar Vífils Ing-
varssonar, söngvara,
lögfræðings og fram-
kvæmdastjóra.
Júlíus Vífill hefir
ekki áður gengið fram
fyrir skjöldu í stjórn-
málum. En hann er lög-
fræðingur að mennt
eins og mjög margir
fremstu stjórnmála-
menn okkar. Og hann
hefur óvenjulega
starfsreynslu sem eflaust mun nýt-
ast vel í borgarstjórn. Hann er vei
menntaður og ágætur söngvari, eins
og þeim er kunnugt sem fylgst hafa
með viðburðum á tónlistarsviðinu,
Júlíus Vífill hefur
óvenjulega starfs-
reynslu, segir Jón
Þórarinsson. Hún mun
efalaust nýtast vel í
og hefði eflaust haft alla burði til
að verða einn fremsti óperusöngvari
þjóðarinnar, ef aðstæður hér hefðu
verið aðrar og rýmri. En tækifærin
voru of fá, og hann sneri við blað-
inu: varð framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins sem á í harðri samkeppni
við öfluga keppinauta, en hefur hasl-
að sér völl sem eitt hið traustasta í
landinu. Þannig hefur hann, auk
ágætrar menntunar á tveimur ger-
ólíkum sviðum, öðlast dýrmæta og
víðtæka starfsreynslu bæði í við-
skiptalífinu og á menningarsviðinu,
í þjónustu sjálfrar tónlistarinnar.
Það er ekki síst vegna hins síðast-
nefnda sem ég styð Júlíus Vífil heils
hugar til áhrifa í borgarstjórn.
Menningarmálin hafa oft verið látin
sitja á hakanum, einkum á döprum
tímabilum vinstri stjórnar í borgar-
málum, og þar þarf sannarlega að
taka til hendinni á komandi kjör-
tímabili, þegar nýr meirihluti sjálf-
stæðismanna tekur við stjórninni.
Júlíus Vífill Ingvarsson hefur
fyllsta traust mitt til að gegna þar
forystuhlutverki. Hann sækist ekki
eftir sæti í borgarstjórn vegna
framavonar eða af persónulegum
eða pólitískum metnaði, heldur
vegna þess að til hans var leitað af
trúnaðarmönnum Sj álfstæðisflokks-
ins. Hann brást vel við kallinu. Ég
vona að við kjósendur berum gæfu
til að svara með því að tryggja hon-
um öruggt sæti á borgarstjómariista
flokksins. Hann hefur óskað eftir
fjórða sætinu. Hann hefur minn
stuðning eindreginn.
Láttu ekki plata þig...
Með kaupum á úreltum búnaði
200
Kynntu þér nýju ATX
vélarnar hjá okkur
MORE Pentium 200
ASUS TX-97XE, ATX móðurborð
200 MHz MMX Intel örgjörvi
512Kflýtiminni
32MB vinnsluminni SDRAM 1 Ons
3200MB harður diskur Ultra DMA
24 hraða geisladrif
15" ViewSonic 100 riða skjár
ATi 3D skjákort
Soundblaster h|jóðkort
Windows 95 lyklaborð
Microsoft samhæfð mús
Innbyggt eftirlitskerfi
Windows 95 á geisladisk
Mechwarrior 2 3D leikur
MPEG2 spilari og fleira og fleira...
kr. 1 59.900 stgr.
Langar þig í 17” skjá?
Við getum boðið takmarkað
magn af 17" Optiquest skjám
frá ViewSonic á ótrúlegu
verði.
Aðeins kr. 44.900 stgr.
Móðurborö
- H Eíns/tveggja örgjörva
BOÐEIND
TÖLVUVERSLUN - ÞJÓNUSTA
Mörkki 6-108 ReyKJavik - líml 588 2061 • fax 588 2062
www.bodelnd.li
Höfundur er tónskáld.
flísar
rlí [eýl fíX U
± l:
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sími 567 4844
mmmmmmmmmmmmmmmmm
Aldraðir Reyk-
víkingar afskiptir
HJÚKRUNAR-
RÝMI fyrir aldraða eru
hlutfallslega færri í
Reykjavík en í nokkru
öðru sveitarfélagi á ís-
landi. í Reykjavík eru
aðeins 5 hjúkrunar-
rými fyrir hveija 100
eldri borgara og 9,8
vistunarrými á hundr-
að eldri borgara.
Landsmeðaltalið er
12,8 rými á hundraðið,
sem þýðir að meðaltal-
ið í sveitarfélögum
utan Reykjavíkur er
u.þ.b. 16. Á Suðurlandi
nær meðaltalið 24 og
þar er nýtt hjúkrunar-
heimili í byggingu.
200 aldraðir Reykvíkingar bíða
eftir hjúkrunarvistun og margir
þeirra í sárri neyð. U.þ.b. 70 þeirra
bíða á bráðasjúkrahúsum borgar-
Hjúkrunarrými fyrir
aldraða eru, að mati
Bryndísar Þórðar-
dóttur, hlutfallslega
færri í Reykjavík en
nokkrum öðrum kaup-
stað á íslandi.
innar. Brýnt er að þörfum þessa
hóps verði sinnt og til þess að það
megi verða þurfa Reykjavíkurborg
og ríkisvaldið að leggjast á eitt.
Reikna má með því að u.þ.b. 50
ný hjúkrunarrými verði tekin í notk-
un í borginni á næsta ári. Þá vant-
ar 150 rými til að uppfylla sárustu
þörfina og það mætti leysa með því
að reisa tvö u.þ.b. 75 manna hjúkr-
unarheimili. Þeim
mætti finna stað í aust-
urhluta borgarinnar,
t.d. Fossvogshverfi og
Árbæjarhverfi, þannig
að öldruðum gefist
kostur á hjúkrunarvist-
un sem næst sínum
heimaslóðum og
vandamönnum.
Jafnframt því að
hjúkrunarþörfinni er
mætt, þarf að sam-
hæfa þjónustu við aldr-
aða í heimahúsum. Sú
þjónusta er annars
vegar heimilisaðstoð
o.fl. á vegum félags-
máiayfirvalda borgar-
innar og hins vegar heimilishjúkrun
o.fl. á vegum ríkisins og fleiri aðila.
Þetta er óþarflega flókið kerfi og
hverfaskipting félagsmála og heil-
sugæslu er meira að segja ekki sú
sama. Þannig fær sami einstakling-
ur heimsóknir frá heimilisaðstoð
borgarinnar og heimahjúkrun ríkis-
ins og það segir sig sjálft að sam-
hæfing er erfið í slíku skipulagi.
Reykjavíkurborg þarf að taka frum-
kvæði í heimaþjónustu við aldraða
og hugsanlega semja við ríkisvaldið
um að taka að sér heimahjúkrun
og heilsugæslu.
Undir stjórn R-listans hefur
Reykjavíkurborg ekki sinnt þeirri
skyldu sinni að taka frumkvæði í
því að gæta hagsmuna aldraðra
Reykvíkinga. Borgarstjórn hefur
ekki sinnt því, að eldri borgarar
Reykjavíkur sitja skör neðar en
aðrir landsmenn, þegar þeir þurfa
á hjúkrunarvistun að halda. Reykja-
víkurborg má ekki una slíkri mis-
munun.
Höfundur er félagsráðgjafi og er
íframboði í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins.
Bryndís
Þórðardóttir
Veljum traustan
mann í 5. sætið
PRÓFKJÖR Sjálf-
stæðisflokksins vegna
komandi borgarstjórn-
ar-kosninga fer fram
dagana 24.-25. þ.m.
Kjartan Magnússon,
blaðamaður og vara-
borgarfulltrúi, gefur
kost á sér í 5. sæti list-
ans. Kynni mín af
Kjartani hófust í bar-
áttunni fyrir síðustu
borgarstjórnarkosn-
ingar þegar Kjartan
var í 13. sæti listans.
Ég var einn af fjöl-
mörgu ungu fólki sem
Kjartan fékk til liðs við
Sjálfstæðisflokkinn í þeirri baráttu
og þá kynntist ég því hversu mikinn
áhuga hann hefur á borgarmálum.
Atorkusemi og dugnaður var
áberandi í því starfi sem hann vann
að fyrir síðustu kosningar. Af vinnu
hans þá mætti ráða að hann hefði
sjálfur verið í einu af aðalsætum
listans. Á kjörtímabilinu hefur
Kjartan vakið athygli fyrir skelegga
en málefnalega gagnrýni á R-list-
ann, bæði með greinaskrifum og
úr ræðustól borgarstjómar. Því er
ástæða til þess að gefa Kjartani
tækifæri til þess að vera fulltrúi
flokksins í komandi kosningum. Til
þess að okkur sjálfstæðismönnum
takist að sigra nk. vor, er nauðsyn-
legt, að sterk forysta veljist til bar-
áttunnar.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur
Kjartan mikla reynslu af fjölmiðlun
og stjórnmálastarfi. Kjartan vinnur
nú sem blaðamaður við
Morgunblaðið. Hann.
var formaður Heim-
dallar 1991-1993 og
hefur það sem af er
þessa kjörtímabils stýrt
borgarmálahópi
Heimdallar. Hver sá,
sem þekkir til Kjartans,
veit að þar er maður
með þekkingu og
reynslu á ferð.
Þekking Kjartans á
borgarmálum og ekki
síður baráttuvilji á eftir
að. skipta miklu fyrir
flokkinn í komandi
kosningum. Kjartan
hefur setið í fjölmörgum nefndum
á vegum Reykjavíkurborgar og
Þrátt fyrir ungan aldur,
segir Hjálmar Blöndal,
hefur Kjartan mikla
reynslu af fjölmiðlun og
stjórnmálastarfí.
kynnst því hvernig stjórnkerfi borg-
arinnar er uppbyggt. Atkvæði til
handa Kjartani Magnússyni er at-
kvæði sem á stóran þátt í því að
sjálfstæðismenn endurheimti borg-
ina í komandi kosningum.
Höfundur er formaður
Ncmendaféiags Menntaskólans
við Hamrahlíð.
Hjálmar Blöndal