Morgunblaðið - 16.10.1997, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1997 55
P
>
w
h
'P'
>
¥
I
>
I
P
3
.3
P
I
i
3
I
i
L
HESTAR
Gróska í hrossauppboðum í Þýskalandi
Þótti frá Hól-
um fór á tæpar
fimm milljónir
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
ÞÓTTI frá Hólum sem er undan Feyki frá Hafsteinsstöðum og Þöll frá Hólum kom fram á Equitana
á síðastliðnum vetri þar sem Angantýr Þórðarson sýndi hann. Gerðu þeir þar góða ferð og sigruðu
meðal annars í töltkeppni ganghesta af ýmsum kynjum.
NÁTTFARI frá Wiesenhof hefur skilað góðu verki í Þýskalandi
og þrátt fyrir orðróm um ranga ættfærslu móður hans telur fyrri
eigandi hans Bruno Podlech að þau mæðgin hafi skilað góðum
afkomendum í ræktun íslenskra hrossa í Þýskalandi og það skipti
meginmáli.
STÓÐHESTURINN Þótti frá Hól-
um var fyrir skömmu seldur á upp-
boði á Aegidienberg búgarðinum
og var söluverðið 121 þúsund þýsk
mörk eða rétt tæpar fimm milljónir
íslenskra króna. Seljandinn var
Angantýr Þórðarson sem er búsett-
ur í Þýskalandi en hann keypti hest-
inn hér á landi. Kaupendur voru
tveir íslandshestabúgarðar, Aegidi-
enberg búgarðurinn sem Walter
Feldmann jr. rekur og Hof der
Pferde í Austurríki. Það er félags-
skapur sem kallast Gæðingar Group
sem heldur þessi uppboð en það eru
þrír kunnir þýskir hestamenn sem
mynda þennan félagsskap, þeir
Bruno Podlech, Walter Feldmann
jr. og Andreas Trappe.
Þijár hryssur
á tæpar 3 milljónir
Angantýr kvaðst að vonum
ánægður með söluna en auk þessa
seldi hann þijár góðar hryssur,
Kolu frá Hamarshjáleigu undan
Feyki frá Hafsteinsstöðum, Heklu
frá Stærribæ undan Hektor frá
Akureyri og Stúlku frá Vallanesi
undan Erni frá Akureyri. Voru þær
seldar á 22 ti! 24 þúsund mörk
hver sem er ríflega 900 þúsund
krónur. Alls voru tíu hross seld á
uppboðinu og sagðist Angantýr
hafa verið í Aegidienberg í fímm
daga fyrir uppboðið og hafi margir
komið að skoða hrossin á þeim tíma.
Aðspurður kvaðst hann vissulega
hafa verið svolítið hræddur um að
fá ekki verð við hæfi fyrir hrossin
en sig hafi langað að prófa þetta
og hann sjái að sjálfsögðu ekki eft-
ir því. Hann sagði að seljendur settu
upp lágmarksverð og væri greini-
legt að ekki borgaði sig að hafa
það of hátt því slíkt fældi menn frá
þátttöku í að bjóða. Þrír aðilar buðu
í stóðhestinn og var mikil spenna
meðan á því stóð, segir Angantýr.
Það verð sem hér er nefnt er upp-
hæðin sem kemur í hlut Angantýs
en ofan á það bætist virðisauka-
skattur, uppboðsgjald og ef til vill
eitthvað fleira að hans sögn.
Angantýr á nú tvo stóðhesta,
Breka frá Eyrarbakka sem hann
sýndi á heimsmeistaramótinu í Nor-
egi í sumar með góðum árangri og
ungan Piltsson frá Þúfu í Ölfusi og
kvaðst hann vera vís til að selja
þann síðamefnda. Því miður væri
þetta síðasta uppboðið hjá Gæðing-
ar Group á þessu ári.
Angantýr sagði að mjög góð sala
hefði verið á góðum íslenskum
hrossum síðustu vikur. Hann hefði
nú þegar selt allt sem hann keypti
nýverið á Islandi og væri hann
væntanlegur til landsins á morgun,
fimmtudag, og hygðist kaupa fleiri
hross. Væri hann að leita að hross-
um í háum gæðaflokki.
Átján vetra
á tæpar sjö milljónir
En það virðist alltaf eitthvað
fréttnæmt gerast á uppboðum Gæð-
ingar Group því á uppboði sem
haldið var snemma í sumar á Wies-
enhof seldi Bruno Podlech einn af
gömlu stóðhestunum sínum, Nátt-
fara frá Wiesenhof, á 170 þúsund
þýsk mörk sem svarar til nærri sjö
milljóna króna sem þykir hátt verð
fyrir átján vetra stóðhest. Kaupand-
inn var kanadiskur og fór hesturinn
skömmu eftir uppboðið til Kanada.
Náttfari er undan Hrafni frá Krögg-
ólfsstöðum, aðalstóðhesti Wiesen-
hof ræktunarinnar í rúma tvo ára-
tugi. Móðir Náttfara er Perla frá
Sauðárkróki sem er samkvæmt
upprunavottorði undan Feng frá
Eiríksstöðum og Síðu frá Sauðár-
króki og því alsystir stóðhestsins
kunna Sörla frá Sauðárkróki. Þessi
ættarskráning vekur athygli því
samkvæmt skriflegri staðfestingu
undirritaðri af Sveini Guðmunds-
syni á Sauðárkróki átti Síða tólf
afkvæmi og ekkert þeirra samfeðra
Sörla. Þar segir einnig að ekkert
afkvæma Síðu hafi farið úr landi.
Á upprunavottorði Perlu segir að
Haraldur Sveinsson á Hrafnkels-
stöðum sé seljandi hryssunnar og
þegar haft var samband við hann
sagðist hann vel kannast við þetta
mál. Hann kvað það afleitt að hafa
nafn sitt á þessu plaggi því hann
hafi aldrei selt hryssu úr landi með
þessari ættarskráningu né átt þátt
í gerð slíkrar ættarskráningar. Erf-
itt sé fyrir hann að sanna á óyggj-
andi hátt að hann hafi ekki átt hlut
að þessu máli.
Haraldur segist hafa rætt þetta
mál við Svein á ársþingi Landsam-
bands hestamannafélaga fyrir all-
nokkrum árum þegar hann hafi
sýnt sér afrit af þessu vottorði.
„Sveinn tók reyndar fram að hann
tryði ekki að þetta væri mitt verk
en væri að leita skýringa á því
hvemig þetta hefði gerst,“ sagði
Haraldur og bætti við að eina hugs-
anlega skýringin sem hann gæti
fært fram væri sú að hér ætti hlut
að máli brún hryssa sem var í eigu
vinar hans í Reykjavík og var í
tamningu á Hrafnkelsstöðum vetur-
inn 1968. „Sú hryssa hét að vísu
'Nótt og var einu ári eldri en gefið
er upp á vottorðinu. Hún var undan
Grana frá Sauðárkróki og hryssu
frá Hörgsholti í Hrunamannahreppi
sem nú er komið í eyði. Þessi hryssa
var seld fyrir mína milligöngu og
fór frá mér í Sandhólafeiju þar sem
henni var haldið undir hest,“ segir
Haraldur ennfremur.
í upprunavottorði segir að hryss-
an hafi fengið fyl hjá stóðhestinum
Vini frá Sandhólafeiju sumarið
1968. Bruno Podlech kaupir hryss-
una Perlu frá Sauðárkróki í kring-
um 1970 af Walter Feldmann eldri
og þá með þessu upprunavottorði
sem hér er getið um. Undan henni
fékk hann stóðhestinn Náttfara sem
síðar hlaut háan dóm sem einstakl-
ingur og hefur getið sér gott orð
sem kynbótahestur í Þýskalandi.
Þess má geta að á Evrópumótinu
sem haldið var í Hollandi 1979 fékk
Reynir Aðalsteinsson lánaða hryss-
una Pöndru frá Wiesenhof sem var
einmitt undan þessari Perlu og
fylgdi þá sögunni að móðir Pöndru
væri alsystir Sörla frá Sauðárkróki.
Bruno Podlech kannaðist vel við
orðróminn um að ættarskráning
Perlu væri ekki rétt. Hann hefði
ekki fengið þetta staðfest þrátt fyr-
ir eftirgrennslan og gæti hann því
ekki annað en tekið mark á upp-
runavottorðinu eins og það væri.
Hann sagði ennfremur að úr því
sem komið væri skipti ættartala
hryssunnar Perlu í sjálfu sér ekki
höfuðmáli. Hún væri búin að sanna
sig með afkomendum sínum sem
afbragðs kynbótahross og það væri
fyrst og fremst það sem máli skipti.
Valdimar Kristinsson
Hinrik tvöfaldur skeiðmeistari
HESTAR
Austurríki
ALÞJÓÐLEGA
SKEIÐMEISTARAMÓTIÐ
Alþjóðlega skeiðmeistaramótið var
haldið um helgina í Wiener Neustadt
sem er í útjaðri Vínarborgar.
MÓTIÐ var að þessu sinni haldið
í tengslum við hestasýningu þar sem
við sögu komu önnur hrossakyn auk
íslensku hestanna og þar af leiðandi
betur sótt en fyrri mót Alþjóðlega
skeiðmannafélagsins. Var talið að á
sunnudeginum hafi verið á milli
fímm og sex þúsund manns. Þykir
þetta mót því hafa verið í sérflokki
hvað varðar kynningu á íslenska
hestinum.
íslendingar voru atkvæðamiklir
að venju þótt oft hafi þeir verið að-
sópsmeiri í keppninni um verðlauna-
sætin en nú. Eigi að síður stóðu
þeir sig með miklum ágætum og
má þar nefna árangur Hinriks
Bragasonar sem vann báðar skeið-
meistarakeppnirnar og mun það í
fyrsta skipti sem einn og sami kepp-
andinn vinnur í bæði 150 og 250
metra skeiðmeistarakeppni á þess-
um mótum. Þá varð Sveinn Ragnars-
son stigahæstur keppenda á Bokka
frá Akureyri og Jóhann G. Jóhannes-
son sigraði enn og aftur í A-flokki
gæðinga á Lokku frá Störtal en
hann hefur verið atkvæðamikill á
Störtal-hrossum á þessum mótum
undanfarin ár.
Ule Reber, nýr eigandi heims-
meistarahestsins Sprengju-Hvells
frá Efstadal, mætti með gripinn í
keppni í fyrsta sinn eftir mótið en
ekki tókst betur til en svo að klárn-
um skrikaði fótur í fyrsta spretti í
250 metrunum og heltist. Varð því
þátttakan endaslepp að þessu sinni.
Meiðslin reyndust ekki alvarleg.
Úrslit mótsins urðu annars sem
hér segir:
A-flokkur gæðinga
1. Jóhann G. Jóhannesson á Lokku
frá Störtal, 8,78
2. Trausti Þ. Guðmundsson á
Draupni frá Sauðárkróki, 8,52
3. Sveinn Ragnarsson á Bokka frá
Akureyri, 8,26
4. Piet Hoyos Austurríki, á Bessa
frá Stóra-Hofi, 8,25
5. Gunnar Ö. ísleifsson á Frama frá
Hafnarfirði, 8,25
Gæðingaskeið
1. Karly Zingsheim Þýskalandi, á
Fáki.
2. Johan Stapinger á Valberg frá
Flugumýri.
150 metra skeið
1.-2. Sveinn Ragnarsson á Bokka
frá Akureyri, 14,6 sek.
1.-2. Jóhann G. Jóhannesson á Ægi
frá Störtal, 14,6 sek.
3. Hinrik Bragason á Aski frá
Djúpadal, 14,8 sek.
4. Höskuldur Aðalsteinsson á Aroni
frá Stóra-Hofi, 15 sek.
5. Hulda Gústafsdóttir á Koli frá
Stóra-Hofi, 15,1 sek.
250 metra skeið
1. Ule Reber Þýskalandi, á Sif frá
Hóli, 22,4 sek.
2. Hinrik Bragason á Eitli frá Akur-
eyri, á 22,5 sek.
3. Klaas Duthil Hollandi, á Trausta
frá Hall, 22,6 sek.
4. Jóhann G. Jóhannesson á Ægi frá
Störtal, 22,6 sek.
5. Karly Zingsheim Þýskalandi, á
Fáki, 22,9 sek.
Slaktaumatölt
1. Arnar Grant á Höfga frá Dals-
mynni.
2. Jóhann G. Jóhannesson á Káti frá
Störtal.
3. Piet Hoyos Austurríki, á Bessa
frá Stóra-Hofi.
Samanlögð stigakeppni
1. Sveinnn Ragnarsson á Bokka frá
Akureyri.
2. Hinrik Bragason á Eitli frá Akur-
eyri.
3. Ule Reber Þýskalandi, á Sif frá
Hóli.
Skeiðmeistarakeppni - 150 m
1. Hinrik Bragason á Aski frá
Djúpadal.
2. Höskuldur Aðalsteinsson á Aroni
frá Stóra-Hofi.
3. Hulda Gústafsdóttir á Koli frá
Stóra-Hofí.
4. Sveinn Ragnarsson á Bokka frá
Akureyri.
Skeiðmeistarakeppni - 250 m
1. Hinrik Bragason á Eitli frá Akur-
eyri.
2. Jóhann G. Jóhannesson á Ægi frá
Störtal.
3. Klaas Duthil Hollandi á Trausta
frá Hall.
4. Eva Dyroy, Noregi, á Glettingi.
Valdimar Kristinsson
Piltur
nærri heið-
ursverð-
launum
í FRÉTT af nýjum útreikn-
ingum kynbótamats í Morg-
unblaðinu nýlega var ekki
farið rétt með stigatölu og
fjölda afkvæma hjá Pilti frá
Sperðli. Hann mun vera
með 120 stig og 49 afkvæmi
en ekki 119 stig og 17 af-
kvæmi. Þetta leiðréttist hér
með og hlutaðeigendur
beðnir velvirðingar á þess-
ari missögn. Af þessu má
sjá að farið er að hilla und-
ir heiðursverðlaunin hjá
Pilti, vantar einungis eitt
afkvæmi til að ná fjölda
afkvæma og fimm stig sam-
kvæmt núgildandi reglum.
Líklegt þykir að þau verði
lækkuð í 120 stig og ef svo
fer vantar hann einungis
eitt afkvæmi.