Morgunblaðið - 16.10.1997, Síða 64

Morgunblaðið - 16.10.1997, Síða 64
64 FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Tónlistarmaðurinn John Denver IJOHN Denver var lítt áberandi í tónlist síðustu ár og einbeitti sér að umhverfismálum. Yegna fjölda áskoranna! munu Ríó og vinir koma fram einu sinni enn á Hótel Sögu föstudaginn 24. okt. nk. Ríó, Bubbi og Jóhannes Kristjánsson ásamt Tamlasveitinni Agli Ólafssyni og Sigrúnu Evu Ármannsdóttur. Gunnar Þórðarson, Björn Thoroddsen, Gunnlaugur Briem, Grettir Björnsson, Szymon Kuran og Magnús Einarsson. MATUR, SKEMMIUN, DANS 1 hót el /aca Miða- og borðapantanir í síma 552 9900 Lést í flugslysi ÞJOÐLAGASÖNGVARINN John Denver lést í flugslysi á sunnudag í Monterey Bay í Kaliforníu. Den- ver var einn í vélinni þegar hún brotlenti í sjónum en ástæður slyssins eru enn ókunnar. Flugvél- in fór mjög illa í brotlendingunni og ekki var hægt að bera kennsl á líkamsleifar söngvarans fyrr en sýnishorn af fingraförum hans bárust frá Colorado. Það var því ekki fyrr en á mánudag að greint var frá dauða Johns Denvers opin- berlega. Denver, sem var 53 ára gamall, var þaulreyndur flugmaður og reyndi í þrígang að lenda vélinni áður en hún fórst. Flugvélin var tveggja sæta, eins hreyfíls, af gerð- inni Long-EZ, sem er ekki verk- smiðjugerð og því flokkuð sem til- raunavél. Denver sagði starfs- manni flugvallarins að hann ætlaði í stutta ferð og yrði í loftinu í um klukkustund. Hann hafði mikla flugástríðu en faðir hans, sem var flugmaður hjá Bandaríska flug- hernum, hafði til dæmis kennt hon- um að fljúga Lear-þotu. Henry John Deutschendorf, eins og söngvarinn var skírður, ferðað- ist mikið í æsku og eftir að hafa stundað nám í arkitektúr í Texas hélt hann vestur á bóginn til að freista gæfunnar sem tónlistar- maður. Þetta var árið 1965 en fyrsti smellur Johns Denvers leit dagsins ljós árið 1971 þegar lagið „Take Me Home, Country Roads“ fór í annað sæti bandaríska vin- sældarlistans. Hann átti 14 gull- og platínuplötur í Bandaríkjunum auk þess sem hann átti miklum vin- sældum að fagna um allan heim. Að sögn útgáfufyrirtækis hans, Sony, er hann einn af fímm sölu- hæstu tónlistarmönnum sögunnar. Denver lék í sinni fyrstu kvik- mynd árið 1977 á móti grínleikar- anum George Burns í myndinni „Oh God“. Hann kom fram í mörg- um jólasjónvarpsþáttum, þar á meðal í tveimur þáttum um Prúðu- leikarana. Auk viðurkenninga fyrir tónlistina og sjónvarpsþætti hlaut John Denver einnig viðurkenning- ar fyrir starf sitt á sviði umhverfis- mála. Þar á meðal var hann ötull verndunarsinni og unnandi Rocky Mountains í Colorado en sjálfur dvaldi hann lengstum í skíðabæn- um Aspen. Árið 1984 og 1985 var John Den- ver einn af fyrstu vestrænu tónlist- armönnunum sem fengu að halda tónleika í fyrrum Sovétríkjunum þegar menningarsamband var aft- ur tekið upp við Bandaríkin. Hann var einnig í hópi þeirra fyrstu sem fengu að halda tónleika í Kína árið 1992. John Denver hafði áður lent í flugslysi í apríl 1989 þegar gamalli vél sem hann var í hvolfdi á flug- braut í Arizona. Ái'ið 1995 kærði flugkennari Denver fyrir að klessa á kennsluvél sína á flugbraut í Wyoming. Árið 1993 var Denver ákærður fyrir að aka bíl undir áhrifum og ári síðar lenti hann í málaferlum eftir að hafa ekið Porsche bifreið sinni út af vegi undir áhrifum áfengis. John Denver hefur I lítið verið áberandi í 1 tónlistarlífinu undan- farin ár. Hann komst á vinsældarlista í Banda- ilkjunum í ágúst á þessu ári með plötunni „The Best of John Denver Live“ en það var í fyrsta sinn síðan 1988 sem það gerðist. LEIKKONAN Teri Carr lék með Denver í gamanmyndinni „Oh God“ árið 1977. Akafur barátfu- maður um- ? hverfismála FYRSTI smellur Johns Den- vers kom út árið 1971 en síð- an hefur hann selt milljónir platna um allan heim. Irskt kaffihús Sjö rétta hádegis hlaðborð frá mánudegi til föstudags kl. 12 - 15 FLUGVÉL söngvarans brotlenti undan ströndum Kaliforníu á sunnudag.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.