Morgunblaðið - 23.10.1997, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
«
______________________LANPIÐ
Hátíðisdagur á Ingjaldshóli
Samstarfssamn-
ingur um rekstur
tveggja hitaveitna
Hellissandi - Síðastliðinn sunnu-
dag, 19. október, kl. 14 vígði biskup
íslands, hr. Ólafur Skúlason, nýtt
safnaðarheimili við kirkjuna á In-
gjaldshóli. Safnaðarheimilið sem er
tæpir 300 fermetrar að stærð er
byggt inní hólinn og tengist kirkj-
unni með göngum neðanjarðar. Er
það gert til að skyggja ekki á kirkj-
una sem nú stendur ein húsa á
hólnum eftir að búskapur Iagðist
þar af. Ingjaldshólskirkja var löngu
orðin of lítil fyrir þarfir safnaðar-
ins. Hún var byggð árið 1903 og
er alfriðuð. Með tilkomu þessa nýja
safnaðarheimilis fæst kærkomin
viðbót við kirkjuna í nýjum safnað-
arsal, salernum, eldhúsi og aðstöðu
fyrir prestinn. Þá fæst þar einnig
ágæt geymsla fyrir kirkjugarðinn.
Um 200 manns sóttu staðinn
heim í tilefni a_f vígslunni. Sóknar-
presturinn sr. Ólafur Jens Sigurðs-
son þjónaði fyrir altari við hátíðar-
messu í kirkjunni með aðstoð próf-
asts, fyrrverandi presta og ná-
grannapresta. Biskup íslands préd-
ikaði og gekk síðan til safnaðar-
heimilisins ásamt prestunum og
kirkjukórnum og blessaði húsið og
bað því starfi blessunar sem þar
ætti eftir að fara fram.
Byggingarsaga sögð
Að því loknu var gengið aftur til
kirkju og þar sagði Smári J. Lúð-
víksson formaður sóknarnefndar
byggingarsögu hússins. Heimilið
hefur verið í smíðum s.l. 4 ár. Það
er teiknað af Magnúsi H. Ólafssyni
arkitekt en hönnun og eftirlit var í
höndum Verkfræðistofu Sigurðar
Thoroddsen hf. Byggingarmeistar-
ar voru þeir bræðurnir Ómar og
Smári J. Lúðvíkssynir en Smári var
jafnframt byggingarstjóri. Ágúst
Guðmundsson múrarameistari sá
um múrverk. Rafiagnir annaðist
Benedikt Sveinbjörnsson rafvirkja-
meistari, pípulagnir Gústaf Geir
Egilsson pípulagningameistari og
Sævar Þóijónsson málarameistari
sá um málningu og lágningu gólf-
efna. Innréttingar smíðaði að lang-
mestu leyti Trésmiðja Siguijóns
Hannessonar á Akranesi. Smári
þakkaði öllum sem lögðu hönd að
byggingu hússins og taldi þá hafa
skilað ágætu starfi.
Sluppu við miklar lántökur
Sævar Friðþjófsson sem var fjár-
haldsmaður byggingarinnar gerði
síðan grein fyrir reikningshaldi
hennar. Sagði hann að framreiknuð
kostnaðaráætlun hljóðaði uppá kr.
39 milljónir króna. Byggingar-
kostnaður væri hins vegar aðeins
kominn í 35 milljónir króna, þannig
að vel hefði verið haldið á spilum.
Búið væri að fjárfesta samtals í
heimilinu fyrir 39 milljónir króna,
þá væru meðtalin húsgögn, innrétt-
ingar og tæki í eldhús sem ekki
hefðu upphaflega verið inni í kostn-
aðaráætlun. Sævar fagnaði því að
lokum að búið væri að ráða framúr
því aðstöðuleysi sem verið hefði við
kirkjuna. Nú væri húsrými nægjan-
legt og mikilvægt væri að það hefði
tekist án þess að reisa sér hurðarás
um öxl eða með miklum lántökum.
Heillaóskir nágranna
Næstur talaði Finnbogi G. Lárus-
son á Laugarbrekku sem talaði fyr-
ir hönd Búða- og Hellnasókna. Ósk-
aði hann söfnuði Ingjaldshólskirkju
til hamingju með þrekvirkið sem
þarna hefði verið unnið og færði
safnaðarheimilinu að gjöf faxtæki
og kertastjaka frá Búða- og Hellna-
kirkjum. Stefán Jóhann Sigurðsson
formaður sóknarnefndar Ölafsvík-
urkirkju óskaði söfnuðinum til ham-
ingju með þetta glæsilega safnaðar-
heimili við gömlu sóknarkirkjuna
sína.
Kirkjan á góða að
Sóknarpresturinn tók að lokum
til máls og gerði grein fyrir gjöfum
sem safnaðarheimilinu höfðu borist
á byggingartímanum, bæði í pen-
ingum og einstökum hlutum. Taldi
hann þær vera að verðmæti um 10
milljónir króna. Hefðu bæði sóknar-
börn og fyrrverandi sóknarbörn
kirkjunnar sýnt henni einstaka
rausn og höfðingslund. Þannig hefði
Jón Júlíusson kaupmaður fyrir hönd
verslunarkeðjunnar Nóatúns í
Reykjavík fært kirkjunni eina millj-
ón króna á lokasprettinum til minn-
ingar um foreldra sína. Þá hefði
Magnús Sigurðsson frá Hallsbæ,
fisksali í Reykjavík og kona hans
Ragna Magnúsdóttir fært kirkjunni
að gjöf 560 þúsund krónur og gefið
nýjan flygil að auki ásamt Ingveldi
Sigurðardóttur systur Magnúsar og
manni hennar Herði Pálssyni bak-
ara á Akranesi. Flygillinn er minn-
ingargjöf um hjónin í Hallsbæ, þau
Guðrúnu Jónasdóttur og Sigurð
Sandhólm. Halldóra Kristleifsdóttir
í Rifi og Sævar Friðþjófsson sonur
hennar og fjölskylda hans gáfu að
mestu húsgögnin í safnaðarheimilið
til minningar um Friðþjóf Guð-
mundsson útvegsbónda í Rifi sem
lengi var safnaðarformaður og með-
hjálpari kirkjunnar.
Kristján Guðmundsson útgerðar-
maður í Rifi og fjölskylda hans
gáfu fatahengið og Ólafur Rögn-
valdsson framkvæmdastjóri færði
heimilinu öll rafmagnstæki í eldhús
frá Hraðfrystihúsi Hellissands. Mik-
ill fjöldi höfðinglegra gjafa barst
kirkjunni til viðbótar sem gerð var
grein fyrir við athöfnina og fyrir
bragðið stendur safnaðarheimilið
nú fullbúið og hið glæsilegasta.
Sóknarpresturinn þakkaði gjafir
sem borist hefðu og bað að þær
mættu nýtast svo sem gefendur
vonuðust til. Þá þakkaði hann sókn-
arnefndinni fyrir samstarfið og þá
einingu sem ríkt hefði um þetta
verk, milli sín og sóknarnefndarinn-
ar. Á það hefði aldrei borið nokkurn
skugga og sérstaklega þakkaði
hann Smára J. Lúðvíkssyni for-
manni sóknarnefndar sem hefcji lagt
sig allan fram við þetta og verið
vakinn og sofinn yfir verkinu.
Lagið Ingjaldshóll frumflutt
i kaffisamsæti
Síðan var sest að borðum í
safnaðarheimilinu og þegnar veg-
legar kaffiveitingar. Stóðu að því
konur úr sóknarnefnd, konur sókn-
arnefndarmanna og úr kirkjunefnd
Kvenfélags Hellissands. Litla lúðra-
sveitin á Hellissandi lék í upphafi
samsætisins nokkur lög. Úndir
borðum lék Kay Wiggs Lúðvíksson
vígslulag á nýjan flygil heimilisins,
lék hún Tunglskinssónötu Bethov-
ens. Þá söng kirkjukórinn 3 lög,
þ.á m. nýtt lag eftir Kay Wiggs,
sem heitir Ingjaldshóll og var samið
fyrir þetta tækifæri, vígslu safnað-
arheimilisins. Ljóðið er eftir Ragnar
Ágústsson frá Ingjaldshóli. Biskup
íslands hr. Ólafur Skúlason og pró-
fasturinn sr. Ingiberg J. Hannesson
og sr. Friðrik J. Hjartar í Ólafsvík
óskuðu síðan sókninni innilega til
hamingju með þetta nýja hús og
þann myndarskap sem söfnuðurinn
sýndi við byggingu þess og á vígslu-
daginn. Veðurblíðan lék við Snæ-
fellinga þennan dag sem var sá
fallegasti sem komið hafði á haust-
inu og sýndust allir halda glaðir
heim frá Ingjaldshóli.
Haust-
slátrun
lokið
hjá KÞ
Húsavík - Haustslátrun sauðfjár
hjá Kaupfélagi Þingeyinga er lokið
og var heildartala dilka og fullorð-
ins fjár 36.500. Meðalþungi dilka
reyndist 14,9 kíló sem er hálfu kílói
minna en í fyrra en jafnt meðalvigt
árinu þar á undan.
Jón Helgi Björnsson, sláturhús-
stjóri sagði sláturtíðina hafa gengið
vel og að hann hefði ekki átt í
miklum erfiðleikum með að manna
' sláturhúsið með heimamönnum.
Stórgripaslátrun er nú ekki árs-
tíðarbundin eins og áður fyrr held-
ur fer fram allt árið eftir ástandi
markaðarins.
Sauðárkróki - í kjölfar þess að veru-
legt magn af heitu vatni fannst við
borun í Reykjahól við Varmahlíð fyrr
á þessu ári hafa nú Hitaveitur Seylu-
hrepps og Sauðárkróks gert sam-
starfssamning um rekstur hitaveitn-
anna svo og stofnað um þær byggða-
samlag. Voru samningar um þetta
undirritaðir á Sauðárkróki fyrir
skömmu.
Það voru Stefán Haraldsson, odd-
viti Seyluhrepps, og Snorri Bjöm Sig-
urðsson, bæjarstjóri á Sauðárkróki
sem undirrituðu samningana fyrir
hönd sveitarfélaganna. Að sögn Páls
Pálssonar, veitustjóra á Sauðárkróki,
er meginmarkmiðið með samstarfí
hitaveitnanna að nýta og selja það
mikla vatn sem sameiginleg hitaveita
hefur yfir að ráða og stækka verulega
orkuveitusvæðið í Skagafirði. Páll
sagði að í samningnum kæmi fram
að á verkáætlun fyrir næsta ár hefði
það forgang að koma hitaveitu í
Reykholtsdal - Starfsemi Kiwanis-
klúbbanna er kominn af stað aftur
eftir sumarhlé. í byijun starfsárs eru
stjómarskipti og tekur ávallt ný stjóm
við á hveiju hausti. Það er svæðis-
■stjóri sem framkvæmir stjómarskipt-
in á sérstökum stjómarskiptafundum.
Á Eddusvæði er þeim nú lokið og
var síðasti stjómarskiptafundurinn í
Ólafsvík hjá Kiwanisklúbbnum Korra
þann 11. október sl. Svæðisstjóri
Eddusvæðis er Bemhard Jóhannesson
og umdæmisstjóri Íslands-Færeyja er
Bjöm Ágúst Siguijónsson.
Aðalverkefni Eddusvæðis verður
fatasöfnun fyrir bágstadda í Litháen
en söfnunin fer þannig fram að Kiw-
anisfélagar safna fötum og verður
þeim komið til Kiwaniskúbba í Lithá-
bæina í Vallhólma næst Varmahlíð )
en þegar væri hafin hönnun lagnar á
svæðið milli Sauðárkróks og Varma-
hlíðar ásamt því hvemig koma mætti
fyrir lögn í Sæmundarhlíð og yrði
hægt að hefjast handa um þessar
framkvæmdir þegar á næsta sumri.
Það er verkfræðistofan Stoð á
Sauðárkróki sem annast alla hönnun
hinnar nýju hitaveitu. Þá sagði Páll
að verið væri að skoða möguleika á
lagningu hitaveitu víðar í Skagafirði
svo sem frá Varmahlíð yfir í Akra-
hrepp en samningar um það væm
ekki komnir af stað ennþá.
Af hitasvæði Hitaveitu Sauðár-
króks fást um 140 1/sek. af 70 gráða
heitu vatni en af svæði Hitaveitu
Seyluhrepps fást um 40 1/sek. af 95
gráða heitu vatni úr nýju holunni en
úr þeirri holu sem nú er nýtt fást
u.þ.b. 10 1/sek. og er því sameiginleg
orkueign hins nýja fyrirtækis um það
bil 35 megavött.
en sem sjá um dreifmgu á fötunum.
Mikil fátækt er í Litháen og sam-
kvæmt þakkarbréfum sem borist hafa
þá er þörfín mikil. Hafa flölskyldur
fanga notið góðs af fötum sem send
voru í fyrra og var það í fyrsta skipti '
sem föt fara út til fátækra frá Kiwan-
is á Islandi.
Allir klúbbar hafa svo sínar fjáröfl-
unarleiðir til að styrkja góð málefni
en kjörorð Kiwanis er „Byggjum til
framtíðar. Bömin fyrst og fremst."
Kiwanisklúbbar á öllu landinu hafa
verið í fararbroddi við að gefa öllum .
sex ára bömum reiðhjólahjálma svo
og að styrkja einstaklinga og félög
þegar þess gerist þröf. í dag eru 46 |
Kiwanisklúbbar með 1171 félaga á '
íslandi í dag.
I opptilboð
Herraskór - Casual
Verð áður
Verð nú:
1.795,-
Tegund: 135
Litur: Svartir
Stærðir: 40-46
Ath: Mikið úrval af herraskóm
Póstsendum samdægurs
Ioppskórinn
Veltusundi v/ Ingólfstorg,
sími 552 1212
Morgunblaðið/Bjöm Björnsson
SIGURÐUR Haraldsson t.v. og Snorri Björn Sigurðsson t.h.
handsala samninginn að lokinni undirskrift. í miðju stendur
Þorsteinn Ásgrímsson, formaður Hitaveitu Skagfirðinga í
Varmahlíð.
Stj ómarskipta-
fundur hjá Korra