Morgunblaðið - 23.10.1997, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1997 35
Saga Landa-
kotsskóla
BÆKUR
A f m æ 1 i s r i t
LANDAKOTSSKÓLI
100 ÁRA 1897-1997
Höfundar: Gunnar F. Guðmundsson
og Johannes Gijsen. Utgefandi:
Landakotsskóli. Stærð: 88 blaðsíður,
innbundin.
LANDAKOTSSKÓLI 100 ára
1897-1997 er, eins og nafnið gef-
ur til kynna, rituð í tilefni 100 ára
afmælis Landakotsskóla í Reykja-
vík. Bókin skiptist í tvo megin-
hluta: „Úr sögu Landakotsskóla“
eftir Gunnar F. Guðmundsson
sagnfræðing og „Leiðir og aðferðir
til að miðla kristinni trú og krist-
inni menningu" eftir Johannes Gij-
sen biskup kaþólsku kirkjunnar í
Reykjavík.
I fyrri hlutanum eru aðdrag-
andi, stofnun og saga Landakots-
skóla rakin. Skólinn byijaði við
erfiðar aðstæður og aðstandendur
hans máttu þola fordóma Reykvík-
inga en hann ávann sér um síðir
virðingu og traust bæjarbúa sem
framúrskarandi góður skóli. Hann
hefur verið rekinn af mikilli alúð
og fórnfýsi frá upphafi. Þótt ótrú-
legt sé þá fékk hann ekki styrk
úr ríkissjóði fyrr en árið 1972 en
kirkjan vonast til þess „að hann
komist á fjárlög - eins og aðrir
grunnskólar í höfuðborginni" (bls.
37) við flutning grunnskólanna til
sveitarfélaga.
Undirrituðum fannst áhugavert
að lesa um sögu og þróun Landa-
kotsskóla, en ekki síður um þróun
menntamála í höfuðstað íslands,
sérstaklega í byijun aldarinnar
áður en skólaskylda komst á og
fólk varð að greiða há skólagjöld,
„þriðjung mánaðarlauna vinnu-
konu á mánuði" (bls. 33), ef það
vildi veita börnum sínum grunn-
menntun.
Þessi hluti bókarinnar er prýdd-
ur myndum sem eykur gildi hans.
Hann er vel skrifaður og fróðleg-
ur, þó að hann sé ekki mjög ítarleg-
ur. „Leiðir og aðferðir til að miðla
kristinni trú og kristinni menn-
ingu“ ijallar um mikilvægi, inntak
og tilgang_ menntunar í kaþólsku
kirkjunni. í upphafi er rakin saga
skólahalds og menntunar í V-Evr-
ópu frá fornöld. Þar er m.a. rakin
„barátta kirkjunnar við að tryggja
helst öllum börnum kennslu -
löngu áður en ríkisvaldið innleiddi
almenna skólaskyldu - ókeypis
ef þurfa þótti“ (bls. 66) á seinni
öldum. Síðan er gerð grein fyrir
mikilvægustu atriðum ritsins „Hið
mikla gildi menntunarinnar" frá
öðru Vatikanþingi kaþólsku kirkj-
unnar (1962-1965) stefnuriti
kirkjunnar í menntamálum.
Skóiamál kaþólsku kirkjunnar al-
mennt eru síðan skoðuð í þessu
samhengi.
Niðurstaðan er sú að kirkjan
vilji gera kærleika Guðs raunveru-
legan „með alhliða menntun ein-
staklingsins eftir fyrirmynd fagn-
aðarerindisins. - Þessa menntun
vill hún bjóða í skólunum" (bls.
88). Ætla má að þetta sé tilgang-
ur og stefna Landakotsskóla.
Þessi hluti bókarinnar um Landa-
kotsskólann er mjög frábrugðinn
hinum fyrri og heldur fyrirferðar-
meiri. í rauninni hefur hann lítil
tengsl við sögu Landakotsskóla,
nema þá til að setja hana í sam-
hengi við almenna mentunar-
stefnu kaþólsku kirkjunnar. Höf-
undi eru greinilega önnur tungu-
mál tamari en íslenska og skín
það víða í gegnum málfarið. Nokk-
uð ber á stirðum og jafnvel slæm-
um þýðingum. Engin grein er gerð
fyrir höfundum bókarinnar.
Eins og séra A. George segir í
formála, þá átti útgáfa þessarar
bókar sér ekki langan aðdraganda.
Ástæða hefði verið til að undirbúa
útgáfuna betur og gefa út myndar-
legri bók um 100 ára sögu jafn
merkilegrar stofnunar og Landa-
kotsskóla.
Kjartan Jónsson
Helena Rubinstein
ÁHRIFARÍK „ANDLITSLYFTING"
ÁN SKURÐAÐGERÐAR <g*
Öelena
^LBlNSTiaN
Æce
'PLPTOR
,t*,p*oriiosno«
Húðsnyrtivörur hafa aldrei komið í stað andlitslyftingar. En í dag
nálgumst við það með Face Sculptor serumi og kremi.
Pro-Phosphor örvar náttúrulegan fosfór likamans, til að styrkja
grunn húðarinnar. Samtímis strekkja mótandi efni á yfirboröi
húðarinnar.
Arangur: Tafarlaus strekkjandi áhrif og dag frá degi verða út-
línur andlitsins afmarkaðri og skarpari og dregur úr línum og
hrukkum.
Sérfræðingur frá
HelenaRubinstein
verður í versluninni í dag
og á morgun. Líttu við og
fáðu ráðleggingar og prufu.
Reuters
Bókasýningin í
Frankfurt hafin
GESTIR taka sér hvíld á sýningarsvæði
Portúgala á alþjóðlegu bókasýningunni
í Frankfurt, en hún hófst opinberlega
á laugardag þótt nokkrum sérvöldum
gestum hafi gefist kostur á því að skoða
hana áður. Portúgalskar bókmenntir
verða í öndvegi á sýningunni en auk
þess má nefna ýmsa rafmiðla sem eru
kynntir í fimmta sinn. Munu um 1.600
fyrirtæki kynna útgáfu á því sviði en
hún er í mjög örum vexti. Það hefur
vakið áhyggjur ýmissa bókaunnenda og
bókaútgefenda en þeim áhyggjum virð-
ist að nokkru leyti létt af þeim, ef marka
má breska útgefendur, svo sem
Chadwyck-Healey, sem segja enga
ástæðu til að hafa áhyggjur af framtíð
bókarinnar. Lesendur muni ekki segja
skilið við hana.
SIEMENS
Svo sannarlega handa þér:
Nýjar uppþvottavélar
á kynningarverdi!
Nú kynnum við nýjar uppþvottavélar frá Siemens sem eru
fleytifullar af nýjungum. Það er svo sannarlega kominn tími til að
þú rammir inn uppþvottaburstann og látir vélina sjá um verkið.
Meðal nýjunga:
• Nýjar og betri síur • Nýtt þvotta- og gljáefnishólf • Nýir öldulaga
úðarar • Gegnumstreymishitari í öllum vélum • Glæsilegt útlit.
■e>
SE 34200
Fjögurra kerfa
uppþvottavél sem þvær
og þværog þvær. Hún
slærí gegn þessi enda er
verðiðfrábært.
59.800
kr. stgr.
SE 64530
Alklæðanleg fjögurra
kerfa vél sem er eins og
sniðin fyrir nýju
innréttinguna þína. Ekki
galinn kostur.
78.800kr. stgr.
fftæsllts
SE 35260
Fimm kerfi, vatnsskynjari,
varmaskiptir tryggir
frábæra þurrkun,
rafeindastýrð í bak og fyrir,
eins og hugur manns.
78.300kr. stgr.
SR 23215EU
Nokkuð mjóslegin þessi
en kná. 45 sm breið. Góð
í lítil eldhús. Þrjú kerfi,
einföld í notkun. Já,
auðvitað.
55.700
kr. stgr.
tMMÍÍÍi
.5«.-AtJit-.
SE 54230
Klæðanleg vél með hvítu
stjórnborði, fjögur
þvottakerfi, á að sjálfsögðu
heima í eldhúsinu þínu.
69.800
kr. stgr.
UmboÓsmenn okkar á
Bandsbyggöinni:
Akranos:
Rafþjónusta Sigurdórs
Borgarnei:
Stykklshólmur:
Skipavlk
BúAardalur:
Ásubúó
Hvammstangi:
Skjannl
Sauöárkrókur:
Rafsjó
SiglufjörAur:
Torgiö
Akureyrl:
Ljósgjafinn
Húsavik:
öryggi
Voi
jpnafjöröur:
Rafmagnsv. Arna M.
Brelödalsvik:
Stefón N. Stefónsson
Höfn i Hornaflröi:
Króm og hvltt
Vlk 1 Mýrdal:
Klakkur
Hvolsvöllur:
Rafmagnsverkst. KR
Hella:
Gllsé
Selfoss:
Arvlrkinn
Grindavik:
Rafborg
Garður:
Raftækjav. Sig
Ingvarss.
Keflavik:
LJósboginn
Hafnarflöröur:
Rafbúö Skúla,
Reyöarfjöröur:
Rafvólaverkst. Árn
Alfaskeiói
SMITH &
NORLAND
Nóatúni 4 • Sími 5113000