Morgunblaðið - 23.10.1997, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 23.10.1997, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1997 15 AKUREYRI Breskir nemar halda tón- leika HÓPUR tónlistarnema úr Purc- ell skólanum á Bretlandi heldur tónleika í Safnaðarheimili Ak- ureyrarkirkju í kvöld, fímmtu- dagskvöldið 23. október, kl. 20.30. Skólinn er grunnskóli og menntaskóli fyrir tónlistar- nema og eru gerðar miklar kröfur til nemenda, en margir þeirra hafa náð langt á lista- brautinni. í hópnum sem hingað kemur eru sjö ungmenni 17-18 ára. Á efnisskrá tónleikanna eru aðallega verk þekktra tón- skálda klassíska og rómantíska tímabilsins, en þó bregður fyrir argentínskum dönsum og verki eftir John Coltrane. Fluttir verða m.a. þættir úr arpegg- ionesónötunni eftir Franz Schubert og úr sónötu Roberts Schumann í a-moll fyrir fiðlu og píanó. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir. Listasafnið á Akureyri Gestum boðið upp á leiðsögn SAFNALEIÐSÖGN verður fyr- ir gesti á sýningu Kristjáns Steingríms Jónssonar á Lista- safninu á Akureyri næsta sunnudag, 26. október, og einnig á fimmtudag, 30. októ- ber. Þar starfar nú safnakenn- ari og gefst almennum sýning- argestum kostur á að njóta leið- sagnar hans um sýninguna þessa daga. Sýning Kristjáns nær yfir tæpan áratug af ferli hans og býður upp á gott tæki- færi til umhugsunar og umfjöll- unar. Kristján Steingrímur er fæddur á Ákureyri og starfar nú sem skólastjóri Myndlista- skóla Reykjavíkur. Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir. Klippurnar á lofti EIGENDUR bifreiða hafa að mati lögreglu verið heldur kærulausir við að mæta með bifreiðar sínar til aðalskoðunar. Síðustu daga hafa númer verið klippt af 24 bifreiðum sem ekki hafði verið mætt með á þeim tímum sem þeim voru ætlaðir. Minnir lögregla á að síðasti stafur í skrásetningarnúmeri bifreiðar segir til um mánuðinn sem koma á með bifreiðina til skoðunar. Þeim sem eru með svokölluð einkanúmer ber að fara eftir fastskráningarnúm- eri bifreiðarinnar, sem skráð er í skrásetningarvottorð henn- ar. Sýningu lýkur SÝNINGU Guðrúnar Veru Hjartardóttur í Gallerí+ í Brekkugötu 35 á Akureyri lýk- ur á sunnudag, 26. október. Galleríið er opið um helgar frá kl. 14 til 18 eða eftir samkomu- lagi við húsráðendur að Brekkugötu 35. Sýningin ber yfirskriftina Om og er innsetn- ing í rými, þannig að áhorfand- inn er inni í verkinu, en sýning- in samanstendur af skúlptúr- um, teikningum og hljóði. Heitavatnsleit 1 Grýtubakkahreppi Tilraunaholur boraðar næsta vor NÆSTA vor verður farið í að leita að heitu vatni í Grýtubakkahreppi. Að sögn Guðnýjar Sverrisdóttur sveitarstjóra verða boraðar níu 50 metra djúpar tilraunaholur á svæð- inu norðan við Grenivík og suður að brúnni yfir Fnjóská. „Þegar þeirri vinnu er lokið á að vera búið að fínkemba svæðið og sjálf er ég nær viss um að við finnum nýtanlegt vatn en þetta er spurning um að hitta á það. Því ætti ekki að vera vatn hér hjá okkur eins og í næsta nágrenni?“ sagði Guðný en búið er að finna vatn m.a. á Dalvík, í Hrísey, á Svalbarðsströnd og nú síðast í Árskógshreppi. Sundlaugin á Grenivík er hituð upp með vatni sem tekið er úr holu rétt sunnan við þorpið. Vatnið er þó ekki nema 20 gráðu heitt og er notuð varmadæla til að skerpa á því. „Þá er hola í landi Grýtubakka sem gefur um 26-27 gráða heitt vatn, þannig að við vitum víða um volgrur.“ CHRISTIAN DIOR Kynning í dag á morgun. Snyrtifræðingur veitir ráðgjöf. Komið og sjáið nýju varalitina og haustlitalínuna. GRAFARVOGS APOTEK Hverafold 1—3, sími 587 120 Prófkjör Sjálfstœðisflokksins LINDU RÓS í BORGARSTJÓRN LINDA RÓS MICHAELSDÓTTIR STARF Kennari við Álftamýrarskóla frá 1983 MENNTUN Stúdent frá MR 1972 BA í ensku og bökmenntum fráHÍ 1978 Námskeið innanlands og utan Námsferðir til Bretlands, Bandaríkjanna, Þýskalands og Japan TRÚNAÐARSTÖRF (stjórn Heimdallar 1974-75 og 1978-79 í stjórn Vöku 1974-76 f nefnd Menntamálaráðu- neytisins um mótun menntastefnu í nefnd Félagsmálaráðu- neytisins um vinnu barna . og unglinga. FJÖLSKYLDA Linda er gift Steingrími Ara Arasyni, hagfræðingi, aðstoðarmanni fjármálaráð- herra og eiga þau þrjú börn, Herdísi, Valborgu og Vilhjálm D CS TA T“A Góð menntun er vopn í samkeppni okkar við aðrar þjóðir og lykill að áframhaldandi velmegun. í forystusveit C T A NT C Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík verður að vera fólk, ^ i-'JVlN O sem þ,efur tengsl við skólakerfið og þekkir bæði vandamál þess og möguleika. Einkum er þetta brýnt núna, þegar ábyrgð á grunnskólanum hefur verið færð frá ríki til sveitarfélaga. Rödd skólans verður að heyrast í borgarstjórn Reykjavíkur. KJÓSUM LINDU RÓS MICHAELSDÓTTUR Stuðningsmenn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.