Morgunblaðið - 23.10.1997, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1997 17
SNYRTISTOFAN
GUERLAIN
REYKJAVÍK
RÆS TIVAGNAR
RÆSTIÁHÖLD
Óðinsgata I »'101 Reykjavík
Sími 562 3220 • Fax 552 2320
Umhverfi fisk-
vinnslufyrir-
tækjafegrað
Neskaupstað - Nú í haust hafa
staðið yfir miklar framkvæmdir
við að bæta og fegra umhverfið
við nýtt frystihús og loðnu-
bræðslu Síldarvinnslunnar.
Skipt hefur verið um jarðveg á
stóru svæði við fyrirtækin og lagt
þar á bundið slitlag og hellulagt.
Þá hefur grænu svæðunum ekki
verið gleymt því töluvert mikið
hefur verið lagt út af grasi (torfi)
auk þess sem gróðursett hafa
verið tré.
Framkvæmdirnar eru nú vel á
veg komnar og hefur umhverfi
fyrirtækjanna tekið mikium
stakkaskiptum til hins betra.
íslandsflug hf.
Fækkar
ferðum í Isa-
fjarðarflugi
Isafirði - Forsvarsmenn íslands-
flugs hafa ákveðið að fækka ferðum
til Isafjarðar verulega frá því sem
verið hefur. Að sögn Úlfars Ágústs-
sonar, umboðsmanns Islandsflugs á
ísafirði, verða morgun- og kvöld-
ferðir félagsins felldar niður frá og
með 27. október en flogið verður
daglega kl. 10 frá ísafirði á 46 sæta
ATR-vél og auk þess seinni partinn
á föstudögum á 19 sæta Dornier-vél.
„Við héldum að ísfirðingar myndu
fagna þjónustu sem byði þeim að
komast til Reykjavíkur strax kl. átta
að morgni og heim aftur um kvöld-
ið. Reynslan í haust sýnir samt að
þetta er mjög lítið notað þannig að
við ákváðum að skera ferðirnar nið-
ur. Við ætlum þó að gera eina heiðar-
leg tilraun í viðbót og munum fljúga
alla daga vikunnar. Það er stefnt
að því að bjóða áfram fargjöld á
6.900 krónur en einhverjar takmark-
anir kunna þó að verða settar þar á
og hærra verð sér hugsanlega dags-
ins ljós. Við héldum að við yrðum
verðlaunaðir fyrir að lækka fjar-
gjöldin svona mikið, en það hefur
ekki gerst. Við viljum samt þjóna
Vestfirðingum og ætlum að reyna
hvað við getum og þetta er okkar
nýja útspil," sagði Úlfar.
Hann segir að eftir óhappið með
Metró-vél Flugleiða hafi fólk greini-
lega skipað Dornier-vélum íslands-
flugs á bekk með Metró-vélum sem
sé alls ekki sanngjarnt. „Þetta hefur
e.t.v. átt sinn þátt í þeim samdrætti
sem varð í fluginu fljótlega eftir
óhappið og við höfum ekki náð okk-
ur á strik síðan.“ íslandsflug mun
sinna sjúkraflugi áfram.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
B u b o
w ■ '
ei
Eldhúsvörur á sérstöku___
tilboðsverði 23. - 30. okt.
í Skeifu, Kringlu o
LAIMDIÐ
Arnarberg ehf.
Fossháls 27, Draghálsmegin
Sími 567 7557 • Fax 567 7559
i l a n n a