Morgunblaðið - 23.10.1997, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1997 33
Tolli opnar sýningu í Galleríi Borg
Náttúrukraftur —
innra sem ytra
SÝNING á málverkum eftir
Tolla verður opnuð í Galleríi
Borg, Síðumúla 34, í kvöld kl.
20.30. Á sýningunni getur að líta
25 ný málverk, olíu- og vatnslita-
verk.
Síðarnefndu verkin eru unnin
„á fjöllum" en þangað heldur
Tolli annað veifið á húsbílnum
sinum, leggst út í auðnina með
rússnesku vatnslitina og á þar
„prívat helgistund" — óháður
öllu og öllum.
Að sögn listamannsins er við-
fangsefnið náttúrukraftur —
innra sem ytra. Vísar hann ekki
í ákveðna staði enda skiptir, að
hans áliti, ekki máli hvar maður
er staddur, „þar sem það eru
ekki staðir sem gera upplifun
ógleymanlega, heldur birtan,
ljósið“.
Tolli segir að margra grasa
kenni á sýningunni, þar séu fíg-
úratífar myndir í bland við lands-
lagsmyndir. „Þarna eru myndir
sem eru allt frá því að vera „ýkt
kúl“, svo maður notist við æsku-
lýðsfrasann, yfir í það að vera
raunsæjar."
Á sýningunni eru jafnframt
nokkrar myndir sem heyra undir
flokkinn Stríðsmenn andans en
út er komin bók með sömu yfir-
skrift, sem Tolli hefur unnið í
samvinnu við Thor Vilhjálmsson
skáld. Verður nánar um hana
fjallað í Lesbók Morgunblaðsins
á laugardag.
Það er skammt stórra högga
á milli hjá Tolla en í næsta mán-
uði opnar hann sýningu í húsa-
kynnum Jóns Indíafara í Kringl-
unni, þar sem nýjar vatnslita-
myndir úr flokknum Stríðsmenn
andans verða leiddar til öndveg-
is. Þá segir listamaðurinn að
„undraheimar alnetsins" séu að
ljúkast upp fyrir sér og er hann
meðal annars farinn að leggja
drög að gerð heimasíðu. „Listin
gengur út á samskipti og alnetið
er verðugur vettvangur sam-
skipta myndlistarmanna í fram-
tíðinni."
Við opnunina í kvöld mun
Thor Vilhjálmsson lesa úr bók-
inni Stríðsmenn andans og Bubbi
Morthens flytur nokkur lög.
Sýning Tolla í Galleríi Borg
stendur til 3. nóvember og verð-
ur opin virka daga frá kl. 10-18,
laugardaga 12-18 og sunnudaga
14-18.
Svör Biblíunnar
BÆKUR
T r ú m á 1
ÉG HEF AUGU MÍN TIL
FJALLANNA
Höfundur: Sigurbjörn Þorkelsson.
Utgefandi: Sigurbjöm Þorkelsson
Stærð: 80 blaðsíður, innbundin.
ÉG hef augu mín til fjallanna er
þriðja bók Sigurbjörns Þorkelssonar
á jafn mörgum árum. Sigurbjörn
hefur verið framkvæmdastjóri Gíde-
onfélagsins frá 1987 og átt mikinn
þátt í að efla það. Gídeonmenn hafa
gefið 11 ára skólabörnum Nýja testa-
menti um margra áratuga skeið, auk
þess að gefa Biblíur og Nýja testa-
menti á hótel og stofnanir.
Höfundur segir i inngangi að bók-
in sé unnin af „leikmanni, Biblíuunn-
anda, sem hefur lengi haft það að
sérstöku áhugamáli að útbreiða Bibl-
íuna“ (bls. 9) og vonar að hún muni
auka áhuga fólks á biblíulestri.
Bókin skiptist í marga stutta þætti
og kafla, sem eru allt frá nokkrum
línum upp í nokkrar blaðsíður. Síð-
asti kaflinn hefur að geyma sálma
sem höfundi eru kærir. Annars er
bókin fyrst og fremst beinar biblíutil-
vitnanir, á annað hundrað. Fyrsti
kaflinn, sem er stærsti hluti bókar-
innar, skiptist í marga stutta þætti
sem hver um sig er safn biblíutilvitn-
%
T E
-j..
I D O L E
LOKSINS SMITFRÍR, ÞÆGILEGUR FARÐI, SEM
ENDIST FRÁ MORGNI TIL KVÖLDS
Teint Idole er nýr, þægilegur, olíulaus farði, sem rennur á
húðina. Ný tækni tryggir að hann smitar ekki fatnað.
Líttu inn og fáðu sýnishorn.
Haustlitimir frá LANCÖME eru komnir. Ferskir og
nýstárlegir litir. Til að fullkomna förðunina bjóðast strípulitir
fyrir hár og glitrandi púður.
Sérfræðingur fráLANCÖME verður í versluninni í dag
og á morgun. Kaupaukar sem munar um.
snyrtivöruverslunin
GLÆSI8Æ
SÍMI 568 5170
snyrtlvöruverslun
STRANDGÖTU 32, HAFNARFIRÐI,
SÍMI 555 2615
LISTIR
Morgunblaðið/Júlíus
TOLLI og Alex við eitt verkanna á sýningunni.
ana sem svara spurn-
ingunni: Hvaðan kemur
mér hjálp? Síðan eru
ýmsar nánari aðstæður
tilteknar. Dæmi: Þegar
ég er hræddur? Þrír
ritningarstaðir gefa
svar við þessari spurn-
ingu. Önnur þiþlíuvers
svara hinum spurning-
um kaflans eins og t.d.
(hvaðan kemur mér
hjálp) þegar ég er kvíð-
inn og áhyggjufullur,
hef misst ástvin, er
haldinn sektarkennd,
verð fyrir gagnrýni?
o.s.frv.
Ég hef augu mín til
íjallanna nýtist lesend-
um sem glíma við spurningar lífsins
og leita svara Biblíunnar. Biblían er
stór bók og óaðgengileg
fyrir mörgum. Bók Sig-
urbjörns auðveldar slíku
fólki leitina að svari.
Hægt er að fletta upp í
efnisyfírliti að þeirri
spurningu sem leitað er
svara við. Bókin auð-
veldar einnig venjuleg-
um biþlíulesanda leit að
biblíuversum um flest
grundvallaratriði kris-
tinnar trúar.
Ég hef augu mín til
fjallanna er einföld bók
og auðskilin. Hún á án
efa eftir að verða ýms-
um til hjálpar, sérstak-
lega leitandi fólki. Þetta
er að mínu mati besta
bók höfundar til þessa.
Kjartan Jónsson
Sigurbjörn
Þorkelsson
Nýjar bækur
• FJÖLMIÐLARÉTTUR er eftir
Pál Sigurðsson, prófessor í lögfræði
við Háskóla íslands. Bókin er fræði-
legt yfírlitsrit um fjölmiðlarétt. Er
hún hin fyrsta
sinnar tegundar
hér á landi.
Fjölmiðlaréttur er
sú fræðigrein lög-
fræðinnar sem
fjallar um rétta-
rumhverfi fjöl-
miðlanna.
I bókinni er
m.a. fjallað um
hlutverk og mikil-
vægi fjölmiðla og um fræðigreinina
fjölmiðlarétt og réttarheimildir á því
sviði. ítarlega er fjallað um tjáning-
arfrelsið, sem er lögvarið í stjómar-
skrá okkar, og jafnframt vemdað í
fjölþjóðlegum sáttmálum, sem ís-
lenska ríkið á aðild að, en einnig er
rætt um margvíslegar takmarkanir
á tjáningarfrelsinu. Sérstakir kaflar
eru um friðhelgi einkalífs og um
æm manna og vemd hennar. Þá er
m.a. rætt um ábyrgð á birtu prent-
efni og útvarpsefni, um siðareglur
á þessu sviði, um nafnleynd höfunda
og heimildarmanna, um lögvarinn
rétt fjölmiðla til upplýsinga úr opin-
bera stjórnkerfinu, um samskipti
fjölmiðla við dómstóla og lögreglu-
yfirvöld og skyld efni og einnig um
tölvuna sem fjölmiðil.
Áhersla er lögð á umfjöilun um
það, hvort íslensk lög, er tengjast
efnissviðum bókarinnar, fái sam-
ræmst alþjóðlegum mannréttinda-
sáttmálum, einkum mannréttinda-
sáttmála Evrópu. Þá er í bókinni
fjallað um gildi dóma Mannréttinda-
dómstóls Evrópu í Strassborg fyrir
þróun íslenskrar dómaframkvæmd-
ar á sviði íjölmiðlaréttar og eru
ýmsar mikilvægar dómsúrlausnir
þaðan reifaðar ítarlega og ályktanir
dregnar af þeim miðað við íslenskan
rétt.
í bókarlok eru skrár yfir dóma,
lagagreinar og ritheimildir, sem vís-
að er til, svo og ítarleg atriðisorða-
skrá.
Bókin er ætluð lögfræðingum,
laganemum og starfandi fjölmiðla-
mönnum jafnt sem öllum áhuga-
mönnum um tjáningarfrelsi, um
einkalífs- og æruvemd og um mál-
efni fjölmiðlanna almennt.
Útgefandi bókarinnar, sem er 476
síður, er Háskólaútgáfan. Bókin
kostar 4.490 kr.
Páll
Sigurðsson
Prófkjör sjálfstæðis-
manna í Reykjavík
föstudag og laugardag
%
24. og 25. október 1997
Prófkjörið hefst á morgun, föstudag, og er þá kosið í
Valhöll, Háaleitisbraut 1, frá kl. 13.00 til 21.00.
Hverjir mega kjósa? wmmmmmmmmmmmmmmmmmmm^^mmmm^^mt^^mm
□ Allir félagsbundnir sjálfstæðismenn í Reykjavík og á Kjalarnesi, sem
þar eru búsettir og hafa náð 16 ára aldri prófkjörsdagana.
Q Þeir stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins, sem eiga munu kosningarétt
í Reykjavík og á Kjalarnesi við borgarstjórnarkosningarnar 23. maí
1998 og undirritað hafa inntökubeiðni í sjálfstæðisfélag í Reykjavík
fyrir lok kjörfundar.
Athugið.
|A laugardag verður kosið á sex stöðum í sjö kjörhverfum:
Hótel Saga C-sal, Valhöll, Hraunbæ 102b, Álfabakka 14a,
Hverafold 1-3 og Fólkvangi, Kjalarnesi.
Yfirkjörstjórn Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.