Morgunblaðið - 23.10.1997, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 23.10.1997, Blaðsíða 62
62 FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens SJ/IOO HME> þess/ gauz M/WAttNN\ J MANN ee eKKezrHAU&u eN i//£> ^2a‘- ÞeTT* gnwn/nsaznaí^ 'b.f) V Tommi og Jenni Ljóska Smáfólk WH1!' DON T VOU 6ET A PEN PAL OF WUR 0WN7TOENV0U UI0ULDNT ALWA15 BE B0THERIN6ME I HATE WRITIN6 LETTER6..I LIKETO 6ET LETTER5, BUTI HATEWRITIN6THEM ss Af hveiju útvegarðu þér ekki eigin pennavin? Þá værirðu ekki alltaf að ónáða mig. ir~ Mér leiðast bréfa- skriftir ... mér þykir gaman að fá bréf, en mér leiðist að skrifa þau. Kannski að þú gætir skrifað þau fyrir mig ... En leyfðir þú mér að lesa þau sem þú fengir send? AR6 VOU KIPDIN 6V. j Ertu að grínast?! BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 « Símbréf 5691329 Fögur fyrirheit Frá Kristni Snæland: FYRIR síðustu borgarstjómar- kosningar gaf R-listinn út stefnu- yfirlýsingu. Samkvæmt henni átti m.a. að fjölga leiguíbúðum borgar- innar. Einnig var á það minnst að aldraðir skyldu fá að eyða ævikvöld- inu með reisn, eins og það hét hjá R-listanum. Mikil- vægur hluti þess er að búa við ör- yggi í mannsæm- andi húsakynnum. Fögur fyrirheit um fjölgun leigu- íbúða á vegum borgarinnar fóru fyrir lítið enda hefur borgarstjór- inn, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, lýst því yfir í Mbl. 1. jan. 1997: „Það er ekki hægt að bæta stöð- ugt við nýjum íbúðum til að mæta þörfum nýrra leigutaka.“ Þar eru svikin staðfest. (Hvaðan sem Ingi- björg hefur haft heimild til þessar- ar yfirlýsingar.) Þessi yfirlýsing stangast á við þarfir borgarbúa og sjónarmið Páls Péturssonar félagsmálaráð- herra sem sagði nýlega í útvarpi: „Það þarf að fjölga leiguíbúðum og leigja þær á skikkanlegu verði.“ Ótrúlegt er að þessi skoðun félags- málaráðherra skuli ekki berast til eyrna borgarfulltrúa R-listans. Við núverandi aðstæður, þegar því fólki fjölgar óðfluga sem ekki ræð- ur við íbúðakaup og húsaleiga veð- ur upp úr öllu valdi, þá ættu stjóm- málamenn að hvetja til byggingar leiguíbúða í opinberri eigu. Þær væm þá leigðar á kostnaðarverði, því sem R-listinn kallar núna „raunleigu". Valdhroki R-listafólks er þó slíkur að „raunleigan" verður tæplega fundin í samvinnu við samtök leigjenda eða leigjendurna sjálfa. Kosningaskjálfti veldur því sennilega að nú er ekki lengur talað um markaðsleigu eins og borgarstjóri gerði í grein sinni í jan. sl. heldur raunleigu. Við þenn- an ótta R-lista fólks bætist svo það hugleysi eða pólitískur fláttskapur að raunleigan mun ekki verða gef- in út fyrr en eftir næstu borgar- stjómarkosningar. Þvert ofan í stefnuyfírlýsingu R-listans um að vinna gegn hluta- félagsvæðingu hefur nú verið stofnað hlutafélag, „Félagsíbúðir hf.“, til þess að sjá um rekstur leiguíbúða borgarinnar sem þó gekk vel eða a.m.k. án athuga- semda hjá félagsmálastofnun borgarinnar. Tilgangurinn er sagð- ur sá að hækka leigu íbúðanna í fyrrnefnt raunverð og ýta út þeim sem óverðugir njóta þessara íbúða. Látið er að því liggja að þá fjölgi íbúðum til ráðstöfunar stórlega og biðlistar verði ekki vandamál. Þetta er firra því leigumarkaður borgarinnar (allur) er víðsijarri því að ráða við eftirspumina. Við slík- ar aðstæður þarf að fjölga sem mest má leiguíbúðum í opinberri eigu, sem væru leigðar á skikkan- legum kjörum eins og Páll Péturs- son orðaði það. Þegar rekstur Fé- lagsíbúða hf. hófst um mánaða- mótin þá ræddi borgarstjóri um fjölgun íbúða í hinu félagslega kerfi. Þá talaði hún um verka- mannabústaði og búsetaíbúðir. Hún talaði ekki um fjölgun leigu- íbúða borgarinnar en minntist lauslega á að einstaklingar eða félagasamtök kæmu upp leigu- íbúðum. Allt það væri gott og blessað en nauðsynina á fjölgun leiguíbúða í eigu borgarinnar virð- ist manneskjan ekki skilja - nú eða það sem verra væri, vill ekki skilja það. Svo lengi sem þensla og neyðarástand ríkir á leigumark- aði, þá er bráðnauðsynlegt að borgin fjölgi íbúðum sínum og leigi þær á skikkanlegu verði. Astæðan er sú að skikkanlegt verð og jafn- vel niðurgreitt á þeim íbúðum, kemur öllum leigjendum til góða, líka þeim sem leigja á almennum markaði því lág leiga borgaríbúða er hemill á okursækni einkamark- aðarins. Þó svo að borgarfulltrúar R-listans átti sig ekki á svona ein- faldri staðreynd er líklegt og von- andi að almenningur á leigumark- aði átti sig á þessu og þrýsti borg- arfulltrúum R-listans til vitrænnar afstöðu. Það má reyna það, þó trú- lega sé lítils árangurs að vænta. Páll Pétursson félagsmálaráðherra hefur það á hreinu að það þarf að fjölga leiguíbúðum og leigja þær á skikkanlegu verði. Astæðan sem hann ræddi um var sú að svo virð- ist sem þeim fjölgi sem ekki ráða við kaup eða kaupleiguíbúðir. Páll hefur sýnt mikinn skilning á greiðsluerfiðleikum almennings og húsnæðismálum. Hann er að koma á húsaleigubótum. Það sem miður er, er að hann tekur einfaldlega ekki upp hið sænska húsnæðis- bótakerfi. Það kerfi er áratuga gamalt og reynist allvel. I því eru öllum greiddar húsnæðisbætur, hvort sem um er að ræða eignar- eða leiguíbúð. Þar er það mánaðar- legur kostnaður íbúðar sem er reiknaður út og bætur síðan greiddar í samræmi við þá upphæð að teknu tilliti til fjölskyldustærð- ar, tekna og stærðar íbúðar. Of stór íbúð miðað við stærð fjöl- skyldu lækkar bætur og of lítil íbúð miðað við fjölskyldu lækkar einnig bætur. Kerfið miðar við að halda uppi velferðarþjóðfélagi en ekki að styrkja alla jafnt. Ef Páll tæki upp þetta kerfi þá mætti hætta vaxtabótunum. Þá kæmu til ráðstöfunar í húsnæðisbætur nú- verandi húsaleigubætur ogn núver- andi vaxtabætur. Auðvitað er firra að vera að greiða stórar fjárhæðir í vaxtabætur til fólks sem býr í heilu köstulunum eins og dæmi eru um. í raun og veru er það móðgun við kastalabúa að almannafé sé veitt í styrki til þeirra. Varðandi það efni sem hér er til umræðu, má benda á að sjálfstæðismenn fjölguðu leiguíbúðum stöðugt á undanförnum árum þá er þeir voru við völd. Það má virða og ber að hafa í huga þegar oss gefst næst kostur á að greiða atkvæði í borg- arstjórnarkosningum. KRISTINN SNÆLAND, leigubílstjóri. MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: MBL@CENTRUM.IS / Áskriftargjald 1.800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. eintakið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.