Morgunblaðið - 23.10.1997, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B/C/D
241. TBL. 85. ÁRG. FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuters
UPPBLÁSIÐ líkan ad 28 m hval fyrir utan spilavítið í Mónakó í tilefni af fundi Hvalveiðiráðsins.
Rányrkju Norðmanna
líkt við Smuguveiði
Efnahagskreppan
í Tælandi
Stjórnar-
breytinga
vænst
Bangkok. Reuters.
BATIÐ, tælenski gjaldmiðillinn,
hélt áfram að falla í gær. Þá héldu
mótmæli áfram á götum Bangkok,
þriðja daginn í röð.
A þriðjudag söfnuðust þúsundir
manna saman til að krefjast afsagn-
ar Chavalit Yonchaiyudh forsætis-
ráðherra og í gær voru um 500 mót-
mælendur enn fyrir framan þing-
húsið. Ausandi rigning var í Bang-
kok í gær en mótmælin fóru frið-
samlega fram.
Undanfarna daga hefur ríkis-
stjórnin unnið að stjómarbreytinga-
tillögum og einn af ráðherrum henn-
ar lét hafa eftir sér í gær að gengið
yrði frá þeim fyrir vikulok. Til stóð
að Chavaiit hitti Chatichai Choon-
havan, leiðtoga annars helsta stjórn-
arfiokksins, í gær til að ræða stjóm-
arbreytingar. Heimildarmenn innan
stjómarinnar segja að Chavalit vilji
Chatichai og flokk hans úr stjórn-
inni vegna ágreinings um aðgerðir í
efnahagsmálum.
Chaiyawat Wibulswasdi, banka-
stjóri Tælandsbanka, sagði í gær
að fall gjaldmiðilsins nú mætti
rekja til óvissunnar í stjórnmálum
landsins. Auk þess sem batið hefur
fallið um rúm 40% frá því í byrjun
júlí hefur yfirlýsing tjármálaráð-
herrans, Thanong Bidaya, um að
hann hyggist segja af sér veikt
stöðu forsætisráðherrans.
Þá hafði óvissan á fjármagns-
mörkuðum í Asíu áhrif á verð hluta-
bréfa á mörkuðum í Hong Kong í
gær. Hlutabréf í Hong Kong féllu
og í framhaldi af því féllu hiutabréf
bæði í Tævan og Malaysíu.
BILL Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, kynnti í gærkvöldi tillögu
bandaríski'a stjórnvalda um hvernig
þau telja gerlegt að draga úr út-
blæstri lofttegunda, sem stuðla að
upphitun lofthjúpsins, svonefndra
gróðurhúsalofttegunda.
Samkvæmt tillögunum skulu iðn-
ríki takmarka losun frá og með tíma-
bilinu 2008-2012 við það mark sem
hún nam 1990, og minnka hana upp
frá því. Fyrstu viðbrögð talsmanna
Evrópusambandsins og umhverfis-
verndarsamtaka við tillögunum voru
að þær gengju of skammt.
Clinton sagði í ræðu sinni í gær,
að nýta bæri grundvallarhugmyndir
hins frjálsa markaðar til þess að
draga úr losun gróðurhúsaloftteg-
unda. Bandaríkjamenn leggja enn-
fremur til að komið verði á kerfí við-
skipta með losunarkvóta, sem verði
orðið að veruleika eftir tíu ár, fímm
Vilja veiða
176 hvali á ári
BANDARÍKJAMENN og Rússar
lögðu í gær fram sameiginlega
tillögu á ársfundi Alþjóðahval-
veiðiráðsins (IWC) um að Makah-
indjánar í Alaska og Síber-
íuinúítar við Beringssund fengju
heimild til að veiða 120 sand-
lægjur og 56 Grænlandsslétt-
baka á ári næstu fimm árin. Til-
lagan féll í grýttan jarðveg en
talsmaður þýsku sendinefndar-
innar sagðist þó ekki myndu
leggjast gegn henni. Það gerði
hins vegar Sidney Holt, sérlegur
ráðgjafi IWC, þó svo að vísinda-
nefnd ráðsins telji að sandlægju-
stofninn þyldi veiði á 480 dýrum
á ári.
milljörðum Bandaríkjadala verði
varið til nýrra rannsókna og þróun-
araðstoðar til betri orkunýtingar. Þá
skuli verðlauna þau bandarísku fyi'-
irtæki, sem bregðist skjótt við, og
minnki losun.
Yarfærnin veldur vonbrigðum
Bandaríkin eru síðasta stóra iðn-
ríkið, sem leggur fram tillögu um
hvemig bregðast skuli við gróður-
húsaáhrifunum, en slíkai' tillögur
verða ræddar á ráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna í Kyoto í Japan í desember,
þai- sem til stendur að semja um
áætlun um minnkun útblásturs fram
til ársins 2010, sem iðnríki heims
skuldbindi sig til að fylgja eftir.
í Bonn í Þýskalandi fer fram þessa
dagana undirbúningsfundur fyrir
Kyoto-ráðstefnuna með þátttöku
samningamanna aðildarríkja Ríó-
sáttmálans írá 1992, þar sem kveðið
NORSKA Náttúruverndarráðið
sakar norsk stjórnvöld um að veita
styrki til smíða og reksturs skipa
sem stundi rányrkju í Suðurhöfum
undir hentifána. Þetta kemur fram í
skýi'slu sem ráðið vann að beiðni
norska utanríkisráðuneytisins en
þar er framferði norskra sjómanna
líkt við Smuguveiðar Islendinga.
Skýrslan er áfellisdómur yfir þar-
lendum stjórnvöldum og sjómönn-
um sem sakaðir eru um tvískinn-
ungshátt hvað varði veiðar utan
kvóta á skipum sem sigla undir
hentifána, að því er fram kemur í
norska blaðinu Nordlys.
Krefst Náttúruverndarráðið
var á um markmið um minnkun út-
blásturs fram til ársins 2000. Nokkrir
úr þeirra hópi sögðu í gær að tillögur
Bandaríkjamanna myndu ekki setja
samningaviðræðumar út af sporinu;
það ylli öllu heldur vonbrigðum
hversu varfæmislegar þær væru.
Mike McCuiTy, talsmaður Hvíta
hússins, tjáði fréttamönnum að
Bandaríkjastjórn reiknaði með að
umhverfisverndarsamtök, fulltrúar
iðnaðarins og Bandaiákjaþing
styddu tiilögur hennar. „Við teíjum
einnig að þetta sé sú leið sem sé
vænlegust til að .geta þjónað sem
grundvöllur fyrir alþjóðlegu, bind-
andi kerfi til stýringar á útblæstri."
Talsmenn umhverfisvemdarsam-
taka hafa sagt að ef takast eigi að
draga nægilega úr upphitun loft-
hjúpsins til að hindra hrikalegar af-
leiðingar hennai' verði áætlun um
minnkun útblásturs að ganga enn
þess að norsk stjórnvöld grípi til
aðgerða til að stöðva rányrkju
norskra skipa á patagónskum tann-
fiski en áströlsk yfirvöld gripu í
síðustu viku togara, sem fullyrt er
að sé í eigu Norðmanna, að ólög-
legum veiðum.
Gífurleg sókn er í patagónskan
tannfisk og óttast fiskifræðingar að
stofninn sé að hruni kominn. Verður
ofveiðin, og þá ekki síst hlutur
Norðmanna, eitt aðalefnið á fundi
Ráðstefnu um vernd fiskistofna í
Suðurhöfum sem hefst í Ástralíu í
næstu viku.
■ Segir stjórnvöld/23
lengra en stefnt er að í þeim tillögum
sem fram hafa komið fram að þessu.
ESB setur markið hæst
Tillögur Bandaríkjamanna ganga
styst þehæa tillagna sem þegar
liggja á borði samningamannanna.
Evrópusambandið, ESB, hefur lagt
til að árið 2010 verði heildarlosun
þessara lofttegunda 15% minni en
hún var 1990.
Fulltrúar ESB hafa þegar gagn-
rýnt harkalega nýlegar tillögur
Japana, sem miða að 5% niðurskurði
útblásturs. Klaus Kinkel, utanríkis-
ráðherra Þýskalands, hótaði því í gær
að ESB-ríkin myndu hafna tilvonandi
Kyoto-sáttmála ef hann gengur ekki
nógu langt og sagði tillögur Japana
ófullnægjandi. „Við getum ekki sætt
okkur við ófullnægjandi niðurstöðu.
Kyoto-ráðstefnan verður að skiia ár-
angri,“ sagði Kinkel.
Yélmenni
við skurð-
aðgerðir
Berlín. Reuters.
TALSMENN Humboldt há-
skóla í Berlín greindu frá því í
gær að unnið sé að hönnun
fyrsta skurðstofuvélmennisins.
Vélmennið, sem nefnt er
Otto, er sérhæft í munn- og
andlitsaðgerðum og mun verða
notað til aðstoðar við þær. í yf-
irlýsingu háskólans sagði að
vélmennið mundi fullnægja
þörf skurðlækna fyrir þrjár
hendur og ofurmannlega ná-
kvæmni og þannig bæta og
auðvelda erfiðar aðgerðir. Vél-
mennið leysti þó ekki skurð-
lækninn af hólmi heldur yrði
hjálpartæki hans.
Verkfræðingar, sem vinna
að hönnun vélmennisins, bú-
ast við að hægt verði að taka
það í notkun innan árs. Vél-
menni hafa fram til þessa ver-
ið nýtt til ýmissa hluta en
þetta verður í fyrsta skipti
sem þau verða notuð við
skurðaðgerðir.
Reuters
Sólin stríðir
við mengun-
armökk
SÓLIN reynir að brjótast gegn-
um mengunarmökkinn sem um-
lykur hæstu byggingu heims,
Petronas-tvíturninn í Kúala
Lúmpúr í Malaysíu. Reykjar-
mökkur frá skógareldum á
Súmötru og Kalimantan á
Borneó hefur breiðst út um
gjörvalla Suðaustur-Asíu og er
íbúum þessa heimshluta talin
hætta búin af völdum mengunar-
innar. í gær var árekstur tveggja
skipa við Borneóstrendur á
sunnudag rakin til þétts mengun-
armökksms en þar drukknuðu 28
manns.
Bill Clinton kynnir tillögur Bandaríkjamanna um gróðurhúsalofttegundir
Sagðar varfærnislegar
og ganga of skammt
Bonn. Reuters.