Morgunblaðið - 23.10.1997, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 23.10.1997, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1997 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Forseti Alþingis um gagnrýni bresku ríkisendurskoðunarinnar A Urbætur í undir- búningi ÓLAFUR G. Einarsson, forseti Alþingis, segir að ábending bresku ríkisendurskoðunarinnar um að á Alþingi sé ekki tekið með nægjan- lega formlegum og afdráttarlaus- um hætti á ábendingum Ríkis- endurskoðunar komi sér ekki á óvart og að vænta megi úrbóta með breytingum á þingskaparlög- um sem séu í undirbúningi. Ólafur segir að þetta eigi raunar ekki aðeins við um skýrslu Ríkis- endurskoðunar heldur einnig ýms- ar aðrar skýrslur sem lagðar séu fyrir þingið. Það hafi komið í ljós að það sé enginn eðlilegur farveg- ur í þinginu fyrir þær. Þær séu lagðar fram og það sé ekki víst einu sinni að þær séu ræddar. Það eigi til dæmis við um ýmsar skýrsl- ur ráðherranna. Nefnd fjalli um skýrslur Ólafur sagði að endurskoðun þingskaparlaganna stæði nú yfir og væri sameiginlegt viðfangsefni forsætisnefndar og formanna þingflokka. Þar hefði þetta verið rætt og einnig hefðu hann og fleiri þingmenn rætt það í þinginu að það þurfi að finna þessu farveg. Hugmynd væri að setja sérstaka nefnd í það að taka til meðferðar þessar skýrslur, þ.á m. skýrslu Ríkisendurskoðunar, umboðs- manns Alþingis og fleiri. Breyting- ar myndu hafa það í för með sér að Alþingi myndi álykta beint um Morgunblaðið/Þorkell ÓLAFUR G. Einarsson, forseti Alþingis, og Friðrik Ólafsson, skrifstofustjóri Alþingis, bera saman bækur sínar. svona skýrslur og fylgja þeim eftir. endurskoðunar í það heila tekið. Ólafur sagðist ennfremur vera Þeir væru með vissar ábendingar mjög ánægður með hvað skýrsla sem Ríkisendurskoðun myndi taka Bretanna væri jákvæð í garð Ríkis- til athugunar. Smíði hafrannsóknaskips skilgreind sem þróunarverkefni Stenst ekki reglur Evr- ópska efnahagssvæðisins FINNUR Ingólfsson iðnaðarráð- herra sagði í utandagskrárumræðu á Alþingi í gær um málefni skipa- smíðaiðnaðarins að það hefði verið sérstaklega kannað af hálfu hins opinbera sem og Samtaka iðnaðar- ins og Skipasmíðaiðnaðarins hvort það stæðist reglur Evrópska efna- hagssvæðisins að gera smíði nýs hafrannsóknarskips að sérstöku þróunarverkefni. Samhljóða niður- ALÞINGI staða hefði hins vegar verið sú að það stæðist ekki reglur EES. Málshefjandi, Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Alþýðu- bandalags, sagði að nú væri stefnt að því að skipasmíðaiðnaðurinn hér á landi næði sínum fyrri styrk um næstu aldamót, en til að ná því marki hefðu Samtök iðnaðar- ins og Skipasmíðaiðnaðurinn bundist samtökum um að reyna að ná til sín að einhvetju leyti þeim verkefnum sem tengdust byggingu nýs hafrannsóknaskips. Aðferð til að komast hjá reglum Spurði Steingrímur ráðherra í framhaldi af því hvort ekki mætti gera smíði nýs hafrannsóknaskips að sérstöku þróunarverkefni. Sagði Steingrímur að á það hefði verið bent af hálfu forsvarsmanna skipasmíðaiðnaðarins að sá háttur hefði verið hafður á víða erlendis til að komast hjá reglum EES um útboð verkefna á vegum ríkisins. Iðnaðarráðherra benti á að á undanfömum árum hefði verið gripið til margvíslegra aðgerða af hálfu ráðuneytisins til að bæta samkeppnisstöðu innlends skipa- iðnaðar. Þá hefði ráðuneytið reynt að stuðla að því eins og frekast væri kostur að smíði hafrannsókna- skips gæti verið framkvæmd hér á landi, innan þess ramma sem hægt væri, að teknu tilliti til EES-reglna á þessu sviði. Sú viðleitni hefði hins vegar ekki borið árangur. Seltjarnarnes — 130 fm Skemmtileg og mikið endurnýjuð 110 fm efri hæð ásamt 20 fm aukaherbergi í risi. Stórglæsilegt útsýni um víðan völl. Nýlegt gler, rafmagn, glæsilegt nýtt baðherbergi. Parket. Sérþvottahús. Helmingur húss nýklæddur að utan og hinn helmingurinn verður málaður á kostnað seljanda. Bílskúrsréttur. Áhv. húsbréf 5,2 millj. Verð 9.650 þús. 2900. Austurb. — Kóp. — einb. Til sölu gullfalleg 185 fm einbýli á skemmtilegum stað í Austurbænum. Glæsilegt útsýni. Fallegur garður með góð- um timburveröndum. Hús í toppstandi. Möguleiki á séríbúð á neðri hæð. Verð 13,9 millj. 6934. Sérbýli í Vesturbæ/miðbæ Höfum fjársterkan kaupanda að stórri íbúð, rúmgóðri hæð eða húsi. Verðhugmynd 10-16 millj. Nánari upplýsingar veita Ingólfur eða Bárður. Valhöll fasteignasala, Mörkinni 3, Reykjavík, sími 588 4477. Alþingi Frumvarp um Kennara- og uppeldisháskóla íslands BJÖRN Bjarnason menntamálaráðherra lagði öðru sinni fram á Alþingi á þriðjudag/rumvarp til laga um Kennara- og upp- eldisháskóla íslands. í frumvarpinu er mælt fyrir um það að Fósturskóli íslands, íþróttakennaraskóli íslands, Kennarahá- skóli íslands og Þroskaþjálfaskóli íslands sameinist í einn skóla sem beri heitið Kennara- og uppeldisháskóli íslands. Með sameiningu þessara skóla er talið auðveldara að efla og samhæfa menntun kennara og annarra uppeldis- og umönn- unarstétta og tengja hana betur rannsóknum auk þess sem gefst betri kostur á hagkvæmari rekstri, að því er kemur fram í fylgiskjali frumvarpsins. í framsögu ráðherra kom m.a. fram að hugmyndir um sam- starf og sameiningu þessara skóla hafi verið að mótast á undanförnum árum. Slíkar hugmyndir hafi verið settar fram í nefndaráliti um eflingu uppeldis- og kennaramenntunar á íslandi, sem menntamálaráðuneytið gaf út árið 1995. Frum- varpið er samið af embættismönnum menntamálaráðuneytisins ásamt Ólafi H. Jóhannssyni endurmenntunarstjóra Kennarahá- skóla íslands. Auk þess hefur, að sögn ráðherra, verið unnið í samvinnu við þá sem í þessum skólum starfa og veita þeim forstöðu. Gagnrýnir óvissu í málefnum Áburðarverksmiðjunnar SVAVAR Gestsson, þingmaður Alþýðubandalags, gagnrýndi landbúnaðarráðherra í utandagskrárumræðu á Alþingi í gær fyrir þá óvissu sem ríkti um framtíð Áburðarverksmiðjunnar. Sagði Svavar það alvarlegt mál að ráðherra skyldi hafa fres- tað því að taka ákvörðun um framtíð verksmiðjunnar á með- an henni blæddi smátt og smátt út vegna stórfellds taps. Vís- aði hann þar til þeirrar ákvörðunar ráðherra að fresta um sinn frekari sölutilraunum verksmiðjunnar. Landbúnaðarráð- herra, Guðmundur Bjarnason, sagði hins vegar að eins og sakir stæðu væri ekki hægt að selja verksmiðjuna á viðun- andi verði. Því yrðu sölutilraunum frestað um sinn og þess freistað að snúa rekstrinum til betri vegar. Eftir það yrði svo framhaldið metið. Málshefjandinn, Svavar Gestsson, taldi að verið væri að fara illa með verksmiðjuna, eins og málum væri nú háttað og sagði að svo virtist sem fullkomið ráðaleysi ríkti í ríkis- sljórninni og umhverfis- og landbúnaðarráðuneytinu um mál- efni Áburðarverksmiðjunnar. Hann sagði að á meðan svo væri biði starfsfólk og forysta verksmiðjunnar í mikilli óvissu um framtíðina. Sljórnarfundur á föstudag Landbúnaðarráðherra sagði að mál verksmiðjunnar væru alls ekki einföld. Reksturinn væri hvorki nógu arðbær eins og sakir stæðu til þess að unnt væri að selja verksmiðjuna á viðeigandi verði né heldur nógu slæmur til þess að réttlætan- legt væri að leggja hana niður. Hann sagði að þess vegna hefði það verið niðurstaða sín að fresta um sinn frekari sölu- tilraunum verksmiðjunnar, en freista þess um leið að snúa rekstrinum til betri vegar. Hefur hann falið stjórn fyrirtækis- ins að gera það. Þau mál verði rædd, að sögn ráðherra, í stjórn fyrirtækisins næstkomandi föstudag og væntir hann þess að þá muni endanleg niðurstaða liggja fyrir. Endurinnritunargjöld samtals sex og hálf milljón í SVARI menntamálaráðherra við fyrirspurn Svanfríðar Jónasdóttur, þingflokki jafnaðarmanna, um innheimtu endur- innritunargjalds eða svokallaðs fallskatts kemur fram að af þeim 34 framhaldsskólum á landinu sem haft var samband við hafi 21 þeirra innheimt slíkt gjald frá því reglugerð þess efnis tók gildi síðastliðið vor. Með reglugerðinni er framhalds- skólum heimilt að innheimta sérstakt endurinnritunargjald af nemendum sem endurinnritast í bekkjardeild eða áfanga. Miðast upphæð gjaldsins við 500 krónur fyrir hveija ólokna einingu frá síðustu önn. í svari ráðherra kemur ennfremur fram að þessir skólar hafa samtals innheimt 6,5 milljónir króna í endurinnritunar- gjald. Fjölbrautaskólinn í Breiðholti er þar með hæstu upphæð- ina eða rúmlega eina milljón. Þar á eftir kemur Menntaskól- inn við Hamrahlíð með rúmlega 800 þúsund. Fjölbrautaskól- inn í Garðabæ hefur innheimt samtals um 350 þúsund og Kvennaskólinn í Reykjavík um 80 þúsund. Sá skóli sem er með lægstu upphæðina er Framhaldsskóli Vestfjarða, en þar hafa alls 4.000 krónur verið innheimtar vegna endurinnritun- argjalda. Þá kemur fram í svari ráðherra að samkvæmt upplýsingum frá skólunum séu ekki dæmi um að nemendum hafi verið vísað frá námi vegna þess að þeir hafi ekki greitt gjaldið. Alþingi Dagskrá ÞINGFUNDUR Alþingis hefst kl. 10.30 í dag. Eftirfarandi mál eru á dagskrá: 1. Meðferð og eftirlit sjávar- afurða. 3. umræða 2. Rafræn eignarskráning verðbréfa. 1. umr. 3. Hollustuhættir. 1. umr. 4. Hlutafélög. 1. umr. 5. Einkahlutafélög. 1. umr. 6. Þjónustukaup. 1. umr. 7. Verslunaratvinna. 1. umr. 8. Einkaleyfi. 1. umr. 9. Nýtingarmöguleikar gróðurhúsalofttegunda. Fyrri umr. 10. Bann við kynferðislegri áreitni. 1. umr. 11. Tekjuskattur og eignar- skattur. Frh. 1. umr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.