Morgunblaðið - 27.01.1998, Side 11

Morgunblaðið - 27.01.1998, Side 11
MORGUNB LAÐIÐ PRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1998 11 UMTALSVERÐAR BREYTINGAR hafa á undanförnum árum verið gerðar á sviði rafmagnsöryggismála til að mæta kröfum nýrra tíma. Allar miða þær að auknu rafmagnsöryggi og bættri þjónustu við neytendur. LÖGGILDINGARSTOFA fer nú með yfirumsjón rafmagnsöryggismála en faggiltar skoðunarstofur annast rafmagnseftirlit. Aukin ábyrgð HÚSEIGENDUR og umráðamenn húseigna bera ábyrgð á að raflagnir og rafbúnaður á þeirra vegum séu í lagi. Þeim ber að lagfæra strax það sem aflaga fer og kalla til fagmenn ef nauðsyn krefur. Meiri kröfur RAFVERKTAKAR og rafveitur eiga að vinna eftir gæðakerfi sem tryggir að öll verk séu yfirfarin í verklok og að þau uppfylli settar kröfur um öryggi. Framkvæmdar eru úrtaksskoðanir í stað þess að opinberir eftirlitsmenn taki hvert verk út eins og áður var. Leiði skoðun í Ijós að ekki hafi verið farið að reglum hefur Löggildingarstofa rétttil að grípa til viðeigandi ráðstafana. Löggiltir fagmenn RAFVERKTAKAR sem fengið hafa löggildingu hafa einir heimild til þess að annast rafverktöku og bera ábyrgð á þeim rafverkum sem falla undir lög og reglugerðir um raforkuvirki. Löggildingarstofa löggildir rafverktaka að uppfylltum skilyrðum um menntun, kunnáttu, búnað og aðstöðu. Ábyrgir seljendur RAFTÆKJASALAR og innflytjendur rafbúnaðar þurfa að geta sýntfram á uppruna og eiginleika þeirrar vöru sem þeir hafa á boðstólum og eru ábyrgir fyrir því að hún uppfylli settar kröfur. Vegna vaxandi alþjóða- samstarfs, m.a. vegna samninga um gagnkvæma viðurkenningu á prófunum og vottunum, er ekki lengur talin þörf á að skoða allan rafbúnað áður en hann fer á markað hérlendis. Breytt eftirlit RAFMAGNSEFTIRLIT RÍKISINS hefur verið lagt niður. Nú annast óháðar og faggiltar skoðunarstofur rafmagnseftirlit í umboði Löggildingarstofu. Skoðunarstofur framkvæma úrtaksskoðanir en einnig erfarið eftir ábendingum sem berast til Löggildingarstofu, m.a.frá almenningi. /T EBT ÞÚ í VAFA UM RAFMAfiftöÖBYGGI MTT? Ábyrgðin er þín. Fédtt iöggitla fagntenn í lið með þér. VANTAB MG UPPLÝSIWfiAt? Befðu sambattd við Léggildragaratofu. Löggjlwngarstofa SíSumúta 13 • Sími: 5681122 • Fax: 566 S2S6 Liggildingarstefa hafur yfirekirUt mdk •vomum gegn hættu ogtjóni af valdum rafmagns • háepenntum raforkuvirkjum og neyskiveitum • innri öryggisstjórnun rafveitna og rafverktaka • markaðsgæslu raffanga LögfpMingaratofa anaast • löggildingu rafverktaka • samningu og túlkun reglna á rafmagnssviði • leyflsveitlngu til faggiltra skoðunarstofa og eftiriit með þeim • miðlun upplýsinga til fagmanna og almennings

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.